Alþýðublaðið - 19.06.1947, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 19.06.1947, Qupperneq 8
■■MD&F/S/KM" Smurt brauð og snyttur. Fimmtudagur 19. júní 1947 Piifur fersi af voða- Heljarstökk á hestbaki Myndin er frá veðreiðum í Ameríku og sýnir einn góð- hestinn í heljarstökki yfir grind, er sett héfur verið sem hindrun á leið hans, og knapann, sem virðist munu sitja reiðskjótann, þrátt fyrir stökkiðf Álmennur kvennafundur ræðir - slysahæííu barna á almannafæri .................. Fundorinn gerði ýmsar samþykktir um umferðar-, dagheimila- og leikvailamál. ALMENNUR KVENNAFUNDUR var haldinn í Gamla Bíó á mánudaginn og gerði hann víðtækar samþykktir um slysahættu barna á almannafæri og ráðstafanir gegn því, að börn séu eftirlitslaus á götum bæjarins. Hafa hin tíðu umferðarslys í bænum vakið slíkan ugg meðal mæðra, að kvenfélög bæjarins skipuðu nefnd undir for- ustu Soffíu Ingvarsdóttur til þess að undirbúa fund þenn- an um málin. fþróttamótið 17. iúní: Finnbjörn Þorvaldsson, IR, varð mesti afreksmaður mótsins ------♦------ Nýtt met í 100 m. hlaupi færði honum sigur yfir Huseby og konungsbikarinn. ÍÞRÓTTAMÓTIÐ 17. JÚNÍ sýndi, að frjálsíþróttamenn okkar eru líklegir til mikilla afreka í ár. Árangrar voru yfirleitt góðir og mjög góðir í nokkrum greinum. Hetja dagsins var Finnbjörn Þorvaldsson, sem setti nýtt glæsilegt íslandsmet í 100 metra hlaupi. Hann rann skeiðið á 10,7 sek., en það gefur 934 stiy samkvæmt finnsku stigatöflunni og var að mun bezta afrek mótsins. Hlaut Finnbjörn því konungsbikarinn í ár, en handhafi hans frá í fyrra var Gunnar Huseby, sem nú varð að una öðru sæti. Finnbjörn sigraði einnig í langstökkinu og varð annar í spjótkastinu. Þá var hann og aðalmaðurinn í sveit ÍR, sem vann 1000 metra boðhlaupið og setti nýtt met. Gunnar Huseby vann kúluvarpið, Skúli Guðmundsson hástökkið, Óskar Jónsson 800 metra hlaupið, Þórður Þor- geirsson 5000 metra hlaupið og Hjálmar F. Torfason spjót- kastið. í keppninni um konungsbikarinn komu næstir Finn- birni: Huseby með 915 stig, Hau'kur Clausen með 843 stig, Skúli Guðmundsson með’822 stig, Vilhjálmur Vilmundar- son með 815 stig og Óskar Jónsson með 814 stig. skoíi á Húsðvík SEXTÁN ÁRA PILTUR, Karl Valdimar Parmesson. varð á mánudagskvöld fyrir voðaskoti á Húsavik og beið þegar bana af. Hann og tveir aðrir piltar höfðu farið á sjó og haft með sér tvær byssur. Þegar þeir voru að draga bátinn á land rétt norðan við þorpið, hljóp skot úr annarri byssunni og í höfuð Karli, og lézt hann þegar. Byssan •lá í bátnum. þegar drengirn ir drógu hanrf á land. Nýi Egill Skallagríms- son kojninn liann er fjórði ný- sköponartogarlnn HINN NÝI Egili Skalla- grimsson, fjórði nýsköpunar togarinn, kom til Reykjavík- ur um miðaftan í gær. Er ■ hann, eins og gamli Egill, eign Kveldúlfs og var byggð ur hjá Cochrane and Sons í Selby. Er hann af sömu gerð og Ingólfur Arnarson og hin ir nýsköpunartogararnir, sem komnir eru til landsins. Skipstjóri er Kolbeinn Sig- urðsson. Samið hefur verið um smíði á 8 togurum hjá Coch rane and Sons og eru þeir þrír, sem komnir eru á und- undan Agli einnig byggðir þar. Sama fyrirtæki hefur og byggt þrjá af eldri togur um Kveldúlfs, þá Egil Skalla grímsson (eldri) Skallagrim og Þórólf. Nýi Egill er 642 tonn og með 1300 hestafla vél. í skip inu eru rúm fyrir 42 menn. Lúkarinn er þrískiptur, með Ijósi við hvert rúm. Ferðin gekk vel heim. Veð ur var hið bezta og var skip- ið 4 daga til Reykjavíkur frá Hull með viðkomu í Shields. Farþegar voru 10, en skip- verjar 16. Nú 'liggur þetta veglega skip nýsköpunar atvinnuveg anna í höfn. en ekki er vit- að, hvenær það kernst á veið ar vegna verkfallsins. Heklu fagnað í Kaupmannahöfn Einkaskeyti frá HÖFN ÍSLENKI SENDIHERR- •ANN og margir kunnir flug- málaleiðtogar voru viðstadd- ir á Kastrup flugvellinum, þegar Skymasterflugvélin Hekla kom þangað í fyrsta sinni. Flugvélin var aðeins sjö tíma á Ieiðinni frá Reykja vík, en þaðan lagði hún af stað kl. 10 á þriðjudagsmorg un. Opnun þessarar nýju flug leiðar er tekið með gleði í Danmörku. HJULER, Borgarstjóra og lögreglu- stjóra var boðið á fundinn, en þar var margt kvenna saman. komið og umræður urðu miklar. Að lokum voru gerðar sex samþykktir um fundarefnið. Konurnar lögðu til, að haldið yrði uppi stöðugum áróðri meðal almennings um meiri varúð í umferð og til þess að hvetja foreldra til þess að gæta þess. að óvita börn séu ekki eftirlitslaus á almannafæri. Þá lýsti fundurinn ánægju sinni yfir auknu eftirliti með umferðinni og vildi, að því yrði haldið áfram. Segir í samþykktinni, að sérstak- lega sé mikilvægt að lög- reglusamþykkt bæjarins sé haldin í umferðarmálum og gagnvart allri vinnu, sem framkvæmd er á almanna- færi. Þá vildi fundurinn, að komið yrði á aukinni bif- reiðaskoðun fyrirvaralaust. Leikvallamál bæjarins voru einnig tekin til umræðu og var þar samþykkt að beina þeim tilmælum til bæj arráðs, að sérmenntaðri konu verði falin yfirstjórn leikvallanna. Þá var sam- þykkt að æskja þess, að varzla á leikvöllunum verði aukin, svo að mæður geti skilið smábörn bar eftir um stundarsakir, ef til vill gegn einhverri þóknun. Loks var þess æskt, að ógirt svæði sem víðast í bænum verði afgirt sem bráðabirgða leik- vellir. Loks lýsti fundurinn á- nægju sinni yfir ákvörðun bæjarins að hafa leikskóla í gamla Stýrimannaskólan- um og Málleysingjaskólan- um og vildi, að sem mest yrði gert að því að nota skóla fyrir dagheimili, þar til full- komin heimili verða byggð. Þá taldi fundurinn, að Hlíð- arendi við Laugarásveg, sem bærinn hefur nú keypt, sé hinn hentugasti staður fyrir dagheimili. Auk Soffíu Ingvarsdóttur. sem setti fundinn með ræðu, tóku til máls Auður Auðuns, Elín Guðmundsdóttir, Stein- Afrek beztu manna í ein- stökum íþróttagreinum urðu þessi: 100 metra hlaup: 1. Finn- björn Þorvaldsson, ÍR, 10,7 sek. 2. Haukur Clausen, ÍR, 11,0 sek. 3. Örn Clausen, ÍR, 11,1 sek. 4. Ásmundur Bjarna- son, K, 11,3 sek. Afrek Finnbjarnar er nýtt íslandsmet. Fyrra metið, sem hann átti sjálfur, var 10,8 sek. Enginn Evrópumaður mun hafa náð betri árangri í þessari íþróttagrein það, sem af er sumrinu. Afrek Hauks er nýtt drengjamet, og Örn og Ás- mundur eru báðir drengir enn- þá. Hástökk: 1. Skúli Guðmunds son, KR, 1,83 m. 2. Örn Clau- sen, ÍR, 1,80 m. 3. Kolbeinn Kristinsson, UMFS, 1,70 m. 4. Sigurður Friðfinnsson, FH, 1,70 m. Kúluvarp: 1. Gunnar Huse- by, KR, 14,94 m. 2. Vilhjálmur Vilmundarson, KR, 13,99 m. 3. Sigfús Sigurðsson, UMFS, 13,52 m. 4. Sigurður Sigurðs- son, ÍR, 12,73 m. 800 metra hlaup: 1. Óskar Jónsson, ÍR, 1:59,3 mín. 2. Kjartan Jóhannsson, ÍR, 2:00,0 mín. 3. Hörður Hafliðason, Á, 2:02,5 mín. 4. Árni Kjartans- son, Á, 2:06,0 mín. . í þessu hlaupi var keppnin milli Óskars og Kjartans hörð og lengst af tvísýn. Langstökk: 1. Finnbjörn .Þor valdsson, ÍR, 6,62 m. 2. Torfi Bryngeirsson, KR, 6,37. 3. Þor- kell Jóhannesson, FH, 6,37 m. unn Bjartmarsdóttir, Aðal- björg Sigurðardóttir og fleiri konur. - Fundarstjóri var Rannveig Þorsteinsdóttir, stud. jur. og fundarritarar frú Guðrún Pétursdóttir og frú Guðrún Gísladóttir. 5000 metra hlaup: 1. Þórður Þorgeirsson, KR, 16:10,2 mín. 2. Sigurgeir Ársælsson, Á, 16:12,8 mín. 3. Haraldur Þórð- arson, Á, 18:33,6 mín. í þessu hlaupi var hörð keppni milli Þórðar og Sigur- geirs, en Þórður vann á loka- sprettinum. Þarna var einnig keppt um nýjan verðlauna- grip, Kaldalsbikarinn, en hann vinnur það félag, sem á fyrstu þriggja manna sveitina í hlaup- inu. Að þessu sinni vann Ár- mann Kaldalsbikarinn. Spjótkast: 1. Hjálmar F. Torfason, HSÞ, 51,50 m. 2. Finnbjörn Þorvaldsson, ÍR, 49,73 m. 3. Halldór Sigurgeirs- son, Á, 47,52 m. 1000 m. boðhlaup: 1. A-sveit ÍR, 2:02,5 mín. 2. Sveit KR, 2:05,2 mín. 3. B-sveit ÍR, 2:06,6 mín. 4. Sveit Ármanns, 2:07,8 mín. A-sveit ÍR setti nýtt íslands- met í þessu hlaupi. Fyrra met- ið, sem ÍR' átti einnig, var 2:04,1 mín., sett í hitt eð fyrra. Nýju íslandsmeistararnir í 1000 metra boðhlaupinu eru: Finn- björn Þorvaldsson, sem hljóp 100 metra sprettinn, Örn Clau- sen, er hljóp 200 metra sprett- inn, Haukur Clausen, sem hljóp 300 metra sprettinn og Kjartan Jóhannsson, er hljóp 400 metra sprettinn. 17. júní í Höfn Einkaskeyti frá HÖFN DANSK-ISLANDSK SAM FUND hélt þjóðhátíðardag- inn hátíðlegan með mikilli samkomu í salarkynnum stúdentafélagsins. — Meðal ræðumanna var sendiherr- ann. Jakob Möller. HJULER. !

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.