Alþýðublaðið - 05.07.1947, Qupperneq 1
Veðurhorfur:
Norðan kaldi, léttskýjað.
Aíþýðublaðið
vaníar börn til að bera
blaðið í nokkur hverfi.
XXVII. árjr.
Laugardagur 5. júlí 1947
Umtalsefnið!
ViSræðurnar um verk-
fölllin.
Forustugrein:
Noregsför Ægis.
146. tbl.
Féfcfc traudsyfiriýsingu
Paul Ramadier forsætisráðherra.
FEANSKA ÞINGIÐ samþykkti í gærkveldi traustsyfirlýs-
ingu til stjórnar Ramadiers að afloknum umræðum um fjár-
málastefnu hans, sem sætt hefur mikilli gagnrýni kommún-
ista undanfarið i samhandi við verkföllin og hin nýju fjárlög.
Með traustsyfirlýsingunni greiddu atkvæði 331 þmgmaður,
en á móti 247.
ÞJóðháh'ðarræða Trumans:
Takmarkið friður, - ekki aðeins á
okkar dögum, heldur um allar aldir
--------*--------
Áfelíist ríki, sem hindra samneyti þjóða
og neita samvinnu þeim til viðreisnar.
TRUMAN BANDARÍKJAFORSETI flutti í gær, á
þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, ræðu í Charlottesville í
Virginíu, átthögum Thomas Jeffersons, og skoraði þar á
aliar þjóðir, að setja sér frið að markmiði, — ekki aðeins
frið á okkar dögum, heldur frið um allar aldir.
Forsetinn benti á, hvað
Bandaríkin hefðu þegar gert
til þess eftir stríðið, að koma
á traustum friði; en því mið
ur hefðu sumar aðrar þjóðir
ekki sýnt sömu ábyrgðartil-
finningu. Sérstaklega gagn-
rýndi hann þau ríki, sem
„hindruðu það, að þjóðirnar
fengju að skiptast á hug-
myndum og áreiðanlegum
upplýsingum“ um ástandið í
heiminum, og „neituðu að
vinna með öðrum löndum að
viðreisn heimsins undir því
yfirskyni að verið væri að
ganga á fullveldi einstakra
þjóða“.
Truman sagði að friðurinn
yrði að byggjast á fjórum
gr undvallaratriðum:
1) Að það væri viðurkennt,
að stjórnarvöld hvers lands
hefðu samþykki þegna þess.
2) Að almenn mannrétt-
indi væru virt.
3) Að þjóðirnar hafi fullt
frelsi itil þess að skiptast á
skoðunum og upplýsingum.
4) Að þjóðirnar miði stefnu
sína í fjárhagsmálum og at-
vinnulífi við efnahagslegar
þarfir mannkynsins í heild,
en ekki þröng sérhagsmuna-
sjónarmið einnar þjóðar.
DAUÐADÓMINUM yfir
Kesselring marskálki og
tveimur öðrum þýzkum her-
foringjum, sem kveðinn var
upp af herrétti bandamanna
á ítalíu fyrir nokkru, hefur
verið breytt í ævilangan
fangelsisdóm, sgeir í friegn
frá London í gær.
Eilandl Mn þátttaka í
I i Paríi 12, iúlí
Skákmenn frá Kefla-
vík tefla viS reyk-
víska skákmenn
Sendiherrar Breta og Frakka hér faerðu
ríkisstjórninni í gær samhíjóða orðsend
ingu um þaö frá ríkisstjórnum sinum.
-----------------------*---------
ÍSLANDI var í gær boðin þátttaka í ráðstefnu
þeirri í París 12. júlí, sem Bretland og Frakkland
gangast fyrir til þe;s að ræða tilboð Marshalls, utan-
ríkiemálaráðk erra Bandaríkjanna, um fjárhagslega
hjálp til viðreisnar Evrópu.
í opinberri tilkynningu • "
um þetta frá utanríkismála-
ráðuneytinu í gær segir:
„Sendiherra B-reta, Sir
Gerald Shepherd, og sendi-
herra Frakka, berra Henri
Voillery ,komu í dag á fund
utanrikisráðherra og færðu
honum samhljóða orðsend-
ingar ríkisstjórna sinna, þar
sem íslandi er boðið að senda
fulltrúa á ráðstefnu um við-
reisn Evrópu, um áætlanir
va-rðandi framleiðslumögu-
leika og þarfir Evrópuland-
anna og um nauðsynlega
skipulagningu i því skyni að
koma þeim áformum fram.
Til ráðstefnu þessarar,
sem hefjast mun í Pa-rís
hinn 12. júlí n. k., er boðað
á -grundvelli þeirra hug-
mynda, sem fram komu í
ræöu utanrikisráðherra
Bandaríkjanna hinn 5. julí s.
1., og er öllum Evrópuríkj-
um, nema Spáni, boðin þátt-
taka.“
Á MORGUN koma skák-
menn frá Keflavík í heim-
sókn til Skákfélags Reykja-
Viðræður um verk-
föllin aftur í nótf.
VIÐRÆÐURNAR milli
fulltrúa Alþýðusambands-
ins og Vinnuveitendafé-
lagsins, sem hófust á
fimmtudagskvöldið undir
forsæti sáttasemjara ríkis
ins, með það fyrir augum
að fá enda bundinn á verk
föilin, sem eftir eru, þ. e.
Dagsbrúnarverkfallið og
verkföllin við síldarverk-
smiðjurnar norðanlands,
báru engan árangur í fyrri
nótt.
Nýr fundur var þó boð-
aður í gærkveldi og stóð
hann enn, er blaðið fór í
prentun í nótt.
víkur og þreyta við þá keppni
klukkan 2 e. h. í skákheimili
taflfélagsins í Kamp Knox.
Teflt verður á 10—12 borð-
um. Öllum er heimill að-
gangur að skákinni.
verkfalli í Khðfn lol
Skipfing Indlands
í fvö samveldisríki
>
fer fram 12. ágúsf
TILLAGA brezku stjórn-
arinnar um stofnun tveggja
samveldisríkja á Indlandi,
Hindústan og Pakistan, var
lögð fyrir neðri málstofu
brezka þingsins í gær, og var
Attlee forsætisráðherra sjálf
ur flutningsmaður hennar.
Samkvæmt tillögunni á að
stofna hin tvö nýju samveld-
isríki 12. ágúst næstkomandi,
og verður skipting landsins
milli þeirra ákveðin á grund
velli atkvæðagreiðslunnar á
Norður-Indlandi um hana,
en þar eru þaiu héruð, sem
byggð eru Múhameðstrúar-
mönn-um og mynda mun'u
ríki þeirra, Pakistan.
55 ára
er í dag frú Guðrún Pálma-
dóttir frá Bolungavík, til heim-
ilis aS Gerðum, Garði.
Launatap prentaranna nemur 20 millj.
króna og aóeins þeir, sem næturvinnu
stunda, fengu kjarabætur.
—--------♦--------
Frá fréttáritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í gær.
FJÖGURRA MÁNAÐA VERKFALLI PRENTARA í
Kaupmannahöfn lauk á fimmtudagskvöldið eftir að þriðja
málamiðlunartillagan í því hafði verið samþykkt með litl-
um meirihluta. Prentararnir fengu ekki neina almenna
kauphækkun, en þeir, sem næturvinnu stunda, fengu átta
króna hækkun á viku og vinnutímann styttan niður í sjö
klukkustudnir.
Það hefur verið reiknað út, að sú launaupphæð, sem
prentararnir hafa tapað á þeim f jórum mánuðmn, sem verk-
fallið hefur staðið, nemi 20 milljónum króna, en í verkfalls-
styrkjum fengu þeir á sama tíma 5 milljónir króna.
Málamiðlunartilla-gan, sem
samþykkt var á fimmtudag-
inn með 1957 atkvæðum
gegn 1812, var borin fram af
forseta bæjarstjórnar í Kaup
mannahöfn, jafnaðarmannin
um Heltberg, sem áður var
prentari. Það var þriðja
málamiðlunartillagan, sem
borin var fram í prentara-
verkfallinu, og gekk nokkru
lengra til móts við óskir
pr-entaranna en hinar fyrri,
sem báðar voru felldar.
Það hefur ekki leikið á
tveim tungum að pólitísk
öfl hafa staðið að -baki þessu
verkfalli, og lét forseti
danska Aiþýðusambandsins,
Ejler Jensen, svo um mælt í
gær, að verkfallinu loknu,
að það hefði sannarlega ver-
ið alltof löng og tilgangslaus
deila, til þess að þjóna hags-
munum kommúnista. For-
maður danska prentarasam-
bandsins, Jörgensen, sagði,
að það sem unnizt hefði,
væri langt frá því, að vega
upp á móti þeim fórnum,
sem færðar hefðu verið.
Loks hefur það nú verið
upplýst, eftir verkfallið, að
hin kommúnistíski formaður
prentarafélagsins í Kaup-
mannahöfn, Brauer, hafi
staðið í leynilegu samninga-
makki við formann prent-
smiðjueigendasambandsins, á
bak við aðra samningsfull-
trúa prentaranna, meðan á
verkfallinu stóð.
HJULER.