Alþýðublaðið - 13.09.1947, Qupperneq 7
Laugar dagur 13 ■ sept. 1947. ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavík
urapóteki, sími 1760.
Næturakstur annast bifreiða-
stöðin Hreyfill, sími 6633.
Ljósatími ökutækja
er frá 19,25—5,20 að nóttu. —
Enginn má stýra bifreið nema
hann hafi ökuskírsteini, er heim
ili honum að stýra bifreið. Með
an ekið er, má bifreiðarstjóri
ekki sleppa hendi af stýri bif-
reiðar sinnar, og varast skal
hann að tala við farþega. (Lög-
reglusamþ. Rv.)
Hallgrímsprestakall
Messað í Austurbæjarskólan-
um kl, 11 f. h. á morgun. Séra
Jakob Jónsson.
'Séra Jakob Jónsson
hefur að gefnu tilefni beðið
blaðið að geta þess, að fram-
vegis verði messum hans ekki
útvarpað svo lengi, sem þær
fara fram í Austdrbæjarskóla.
' Fríkirkjan
Messað kl. 2 á morgun. Séra
Árni Sigurðsson.
Laugarnesprestakall
Messað kl. 2 á morgun. Séra
Garðar Svavarsson.
Nesprestakall
Messað í kapellu háskólans á
morgun kl. 2. Séra Jón Thorar-
ensen.
Handavinnunámskeiff
Húsmæðrafélags Reykjavík
ur byrjar 15. okótber næstkom
ándi. Kennsla fer fram í tvennu
lagi éins og að undanförnu.
Kennt verður klukkan 2—6 og
8—10 síðdegis. Allar nánari
upplýsingar gefur frú Guðrún
Pétursdóttir, Skólavörðustíg
11 A, frá kl. 3—5 eftir hádegi.
Sími 3345.
Efnahagsnefnd
Evrópu
(Frh. af 3. síðu.)
1 t. d. frá Belgíu 8, Bretlandi
13,'Rússlandi 14, Bandaríkj-
unum 6, Tékkóslóvakíu 14,
Danmörku 6 og Hollandi 15,
svo þau séu nefnd, sem flesta
fulltrúa sendu. Formaður
nefndarinnar var aðalfulltrúi
Danmerkur, E. Weerum,
sendiherra og deildarstjóri í
fjármáladeild utanríkismála-
ráðuneytisins dansba. Vara-
formaður var aðalfulltrúi
Póllands, dr. T. Lychowski.
Framkvæmdastjóri nefndar-
innar er hinn þekkti sænski
hagfræðingur og fyrrverandi
fjármálaráðherra Svía,
Gunnar Mvrdal. Hann er
ungur maður en ötull og
starfsamur og virðist mjög
áhugasamur um starf nefnd-
arinnar.
Að sjálfsögðu voru það
stórveldin fjögur, sem mest
létu til sín taka á fundum
nefndarinnar, og voru aðal-
fulltrúar þeirra þessir: Frá
Bretlandi Hector McNeil að-
stoðar utanríkismálaráð-
herra, frá Bandaríkjunum
Clayton aðstoðar viðskipta-
málaráðherra, fráj’rakklandi
André Philip efnabagsmála-
ráðherra og frá Sovétríkjun-
um Valerian Zorin, en þess
var ekki getið, hvaða starfi
hann gegndi heima í sínu
föðurlandi.
Mjög bar á togstreitu í all-
flestum málum milli Rússa
annars vegar og Breta,
Frakka og Bandaríkjamanna
hins vegar. Við atkvæða-
greiðslur flestar var skipt-
ingin oftast mjög lík. Annars
vegar voru hin 12 demokrat-
dsku ríki, sem ráðstefnuna
sátu, en hins vegar einræðis-
ríkin 5 — Sovét-Rússland,
Ukraina, Júgóslavía og Pól-
land- — og stundum einnig
Tébkóslóvakía, en venjulega
sat hún hjá við atkvæða-
ÞORS-CAFC
Laugardaginn 13. sept. klukkan 10 síðdegis.
Aðgöngumiðar í síma 6497 og 4727. — Miðar
afhentir frá kl. 4—7.
Ölvuðum mönnum bannaður aðgangur.
greiðslur, nema þær skiptu
miklu máli, en þá var full-
trúi hennar oftast með Aust-
ur-jEvrópu rikjunum.
Hér yrði það of langt mál,
að segja nákvæmlega frá
meðferð þeirra mála, sem á
dagskrá voru, endg er þeim
ekki í raun og veru lokið enn
og verður ekki fyrr en. á
3. fundi nefndarinnar.
En rétt þykir mér að minn
ast á tvö mál, sem ekki voru
á dagskránni en voru leyfðar
umræður um samkvæmt sér-
stökum fundarsamþykktum.
(Síðari grein á morgun.)
Sigurrcs Sveinsdóiiir
(Frh. af 3. síðu.)
tíðin hefur undir forustu
Sigurrósar Sveinsdóttur kom
ið málum sínum svo sem bezt
má verða, ekki. með hávaða
og auglýsingastarfsemi, held-
ur með lægni og festu, enda
mun það reynast affarasæl-
ast, þegar til lengdar lætur.
I pólitískri baráttu Al-
þýðuflokksins í Hafnarfirði
hefur Sigurrós einnig starfað
í fremstu röð, og aldrei talið
eftir sporin, ef hún taldi að
hún gæti unnið Alþýðu-
flokknum gagn.
í stjórn landssamtakanna
hefur Sigurrós einni gstafað
bæði á Alþýðusambands-
þingum og flokksþingum og
ávalt með sama áhuga.
Yfirleitt má segja, að á-
hugi, dugnaður og skörungs-
skapur hafi .einkennt öll
hennar störf.
Lifðu heil, Sigurrós, og
þökk fyrir þín ágætu störf.
Emil Jónsson.
7 sækja um skóla-
stjórasföðuna við
Gagnfræðaskóla
Akraness
SKOLASTJORASTAÐAN
við Gagnfræðaskólann á Akra
nesi var nýlega auglýst til um-
sóknar og mun menntamála-
ráðherra veita I<ana frá 1.
október. Umsóknarfrestur er
nú útrunninn og eru umsækj-
endurnir um skólastjórastöð-
una sjö.
Umsækjendurnir eru: Ragn
ar Jóhannesson cand. mag.,
i*3>o<?<?<3><^2>e><><j><*?<i><<><^<*s><5><3><>2><*í><>e<?<*s><->'e<^5><s><j><:><*s><£<><3K>^
Skemmtanir dagsins -
<5><X?<0<?<3>0<^0<?<0<*>0<^®<?<»<^><5*0<?e><0<^0<?<^><<><0<^0<^<0<?<S><?<*0<í>S><i><3><?<3><3>e><^S*^^
Kvikmyndir:
GAMLA BÍÓ: ,,Blástakkar“. —
Nils Poppe, Annalisa Ericson,
Cecile Ossbahi, Karl-Arne
Holmsten. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
NÝJA BÍÓ: „Cluny Brown“.
Charles Boyer og Jennifer
Jones. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
TJARNARBÍÓ: „Túnglskins-
sónatan“, sýnd kl. 9. „Á báð-
um áttum“. Rosalind Russell
og Adele Jergens. Sýnd kl. 3,
5 og 7.
TRIPOLIBÍÓ: „Uppreisnin í
fangelsinu". — Borton Mac
Lane, John Rusell, Constance
Moore. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
BÆJARBÍÓ: „Virginia City“,
k sýnd kl. 9.
Söfn og sýningar:
SEPTEMBERSÝNIN GIN í
Listamannaskálanum: Opin
frá kl. 11 árdegis til 11 síðd.
Skemmtisfaðir:
TIVOLI: Opnað kl. 2 e. h.
Samkomuhúsin:
BREIÐFIRÐINGABÚÐ: Al-
mennur dansleikur kl. 10 s.d.
HÓTEL BORG: Konserthljóm-
leikar frá kl. 9—11,30.
TJARNARCAFÉ: Dansleikur
KR. kl. 10. .
SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ: Dans-
leikur kl. 10.
G.T. HÚSIÐ: Gömlu dansarnir
kl. 10 síðd.
ÞÓRSCAFÉ: Gömlu dansarnir
kl. 10.
ALÞÝÐÚHÚSIÐ HAFNAR-
FIRÐI: Dansleikur í kvöld
kl. 10.
Útvarpið:
20.30 Ávarp um skýrslu fjár-
hagsráðs (Eysteinn Jóns
son ráðherra).
21.00 Tónleikar: íslenzk lög.
Í21.10 Frásöguþáttur: Um Hesta
Bjarna (Sigurður Jóns-
son frá Brún).
21.25 Upplestur: Brúin yfir Vest
ari-Jökulsá; frásaga eftir
séra Vilhjálm Briem
(Helgi Hjörvar).
Tónleikar.
22.00 Fréttir.
22.05 Danslög.
Thor Jensen
andaðist að Lágafelli föstudaginn 12. þ. m. Jarðarförin
verður auglýst síðar.
Börn og tengdabörn.
Getum nú aftur afgreitt alls konar bómu'llarne't, gegn
innflutnmgs- og gjaldeyrisleyfum. — Til dæmis:
REKNETASLÖNGUR, alar möskvastærðir.
HERPINÓTAREFNI, al'Iar mösikvastærðir.
KOLANETASLÖNGUR.
DRAGNÓTAEFNI.
AHar nánari upplýsingar og fulikomið sýnishornasafn á
skrifstofu okkar, Hverfisgötu 4.
Kristján G. Gíslason & (o. h.f.
TELDRI DANSARNIS í G.T. húsinu
kl. 5 e. h. í dag. Sími .3355.
®í kvöld kl. 10. — Aðgöngumiðar
fulltrúi útvarpsráðs', Sverrir
Kr. Sverrisson cand. tbeol.,
Haraldur Magnússon kennari,
Helgi J. Ha'lldórsson cand.
mag., Sigurður Kristjánsson
cand. theol., Snæbjörn Jó-
banness'on cand. mag. og
Magnús ’Gíslason söngvari.
Allir fulltrúarnir í fræðsiu-
ráði Akraness 'hafa eindregið
mælt með Ragnari Jóhannes-
syni oand. mag. sem hæfust-
um tii ’starfsins af umsækjend-
unum, en þrír fuiiitrúanna
hafa einniig mælt með Sverri
Kr. Sverrissyni camd. t'heol.
sem jafnhæfum til starfsins, og
tveir þeirr-a mealtu með Magn-
úsi Gísiasyni sem næsthæfust-
um til starfsins.
Aukakosningar
I Liverpool
ÚRSLIT aukakosninga í
Liverpool á Bretlandi voru
birt í gær og sigraði fram-
bjóðandi Alþýðuflokksins.
Vfð síðustu þingkosnángar
var frambjóðandi Alþýðu-
flokksins kosinn í Liverpool
með 6000 atkvæða meiri-
hluta fram yfir frambjóðanda
íhaldsflokksins. Við auka-
kosningarnar ,nú hlaut fram-
bjóðandi Alþýðuflokksins
2000 aitkvæða meárihluta
fram yfir frambjóðanda í-
haldsflokksins.
Það vekur mikla athygli,
að Alþýðuflokkurinn hefur
engri aukakosningu tapað á
FÉLAGSLÍF
FORINGJASKÓLI B.Í.S. Far-
ið frá Sk'átabeimiiiinu kl.
6.45- á suninu’dagsmorgun.
Tekið á móti 'farangri eftir
Wádegi í dag. Nánari1 upp-
lýsingar í S'kátabeimilinu.
Foringjaskólanefndin.
kjörtímabilinu, en það hefur
ekki komáð fyrir á Bretlandi
í 150 ár, að stjórnarflokkur
stæði svo föstum fótum við
aukakosningar.
Lokafundi Parísar-
ráðstefnunnar frestað
LOKAFUNDI efnahagsráð
stefnunnar í París hefur ver-
ið frestað, og var tilkynnt í
London í gær, að Bevin ut-
anríkismálaráðherra færi
ekki til Parísar á mánudag,
eins og til stóð, vegna þessa.
Ástæða'n fyrir frestun loka
fundar ráðstefnunnar er sú,
að ákv.eðið hefur verið að end
urskoða skýrslu ráðstefnunn
ar og semja hana að nýju-
Hefur Clayton, aðstoðarvið-
skiptamálaráðherra Banda-
ríkjanna, komizt þannig að
orði, að skýrslan væri ekki
svo úr garði gerð sem æski-
legt væri og heppilegt. Hún
væri mun líkari pöntunar-
lista yfir vörur, sem hlutað-
eigandi þjóðir teldu sér nauð
synlegt; að fá frá Bandaríkj-
unum, en yfirliti og áætlun
um efnahagsmál Evrópuland
anna.
SKIPAHTG6RÐ
RIKISIWS
vesitur og norður til Akureyr-
air um miðja næstu viku.
Bantaðir farseðlar óskast sótt-
ir og flutningi skilað á rnánu-
dag.
Mb. Skafffellingur
til Vestmannaeyja eftir helg-
1 ina. Vörumóttaka á mánudag.