Alþýðublaðið - 30.10.1947, Page 4
4
AIE»YBJJBLAÆ»I&
Fimmtudagur 3ð. okt.: 1947.
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Bitstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasimi: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan hX
Kosningaúrsiíiin
í Danmörku.
KDSNINGAÚRSLITIN í
DANMÖRKU staðfesta það,
sem marga grunaði, að þar
séu orðin mikil pólitísk
straumhvörf síðan kosið var
til þings þar fyrir tveimur
árum, í fyrsta sinn eftir að
hernámi landsins var af létt.
*
Þá varð danski Alþýðu-
flokkurinn, sem á hernáms-
árunum hafði lengst af orðið
að bera hita og þunga ábyrgð
arinnar á stjórn landsins, fyr-
ir mjög alvarlegu skakka-
falli. Tókst kommúnistum þá
að kljúfa raðir hans svo, að
hann tapaði 18 þingsætum af
66, sem hann hafði áður haft,
en sjálfir juku kommúnistar
þingsætatölu sína úr 3 upp í
18. Þetta hafði það í för með
sér, að Alþýðuflokkurinn
missti í bili þá forustuað-
stöðu, sem hann hafði haft í
dönskum stjórnmálum um
hálfan annan áratug; og hinn
svo kallaði vinstri flokkur,
sem í rauninni er enginn
vinstri flokkur, heldiur íhalds
samur bændaflokkur, mynd-
aði borgaralega minnihluta-
stjórn, sem síðan hefur farið
með völd í Danmörku með
stuðningi annarra borgara-
flokka.
Nú er Alþýðuflokkurinn
aftur í voldugum uppgangi,
jók fylgi sitt miklu meira en
nokkur annar flokkur og
hækkaði þingmannatölu sína
úr 48 upp 1 57; en kommún-
istar biðu einn hinn ógurleg-
asta kosningaósigur, sem um
getur í seinni tíð, töpuðu
helmingi þess kjörfylgis og
þeirra 18 þingsæta, sem þeir
fengu fyrir tveimur árum og
eru þar með aftur orðnir að
þeirri áhrifalausu klíku, er
þeir áður voru í Danmörku.
*
En Alþýðuflokkurinn var
ekki eini flokkurinn, sem jók
fylgi sitt við hinar nýaf-
stöðnu kosningar. Vinstri
flokkurinn vann einnig mjög
verulega á, á kostnað hinna
borgaraflokkanna, einkum í-
haldsflokksins, sem tapaði
9 fyrri þingsætum sínum af
26; en sjálfur fékk vinstxi
flokkurinn nú 49 þingsæti í
stað 38, sem hann hafði áð-
ur; og er það mjög athyglis-
vert og furðu mikil fylgis-
aukning fyrir flokk, sem far-
ið hefur með völd í landinu
í tvö erfið ár. Róttæki flokk-
urinn hélt nokkurn veginn
sínu fylgi, — tapaði ekki
nema 1 þingsæti af 11.
*
Sem stendur verður engu
Mótsetningarnar, sem reynast hættulegar. —
Áfengisskattur á alla! — Uppreisn. — Skömmt-
un á áfengi og tóbaki.
AIIÐVALDSÞJÓÐFÉLAGIÐ
er viðsjált. Það er fullt af mót-
setningum. Jafnaðarmenn telja
heppilegra að draga úr agnúum
þess smátt og smátt, lækna mein
semdir þess með meðulum og
uppskurðum, heldur en að
leggja þjóðfélagið að velli í
eitt skipti fyrir öll, enda myndu
þá farast geysileg verðmæti og
fólkið, sem byggir upp þjóðfé-
lagið, líða mikla nauð. Það
mundi taka aldir að vinna upp
tjónið. Ein mótsetning þessa
þjóðfélags, sem við eigum við
að búa, er það, að svo virðist
sem nauðsynlegt sé fyrir af-
komu ríkisins, að selja áfengi til
þjóðarinnar. Það vita allir, að
áfengið stórspillir á allan hátt.
Það eyðileggur vinnuþrek. Það
Ieggur heimili í rústir. Það
dregur úr menningarbaráttunni
og það spillir siðferðinu.
EN LÉTTFENGNUSTU tekj-
ur ríkisins koma frá áfengis-
verzluninni. Ef alþingi sam-
þykkti að leggja skatta á at-
vinnurekendur, sem samsvaraði
helmingi ágóða áfengisverzlun-
arinnar, myndi Sjálfstæðisflokk
urinn rjúfa stjórnarsamvinnuna
og ef alþingi samþykkti að
leggja skatta á alþýðuna, sem
næmi hinum. helmingnum,
myndi allt loga í verkföllum og
jafnvel óánægjan notuð til að
reyna að koma af stað uppreisn
í landinu. Svona er svikamyllan
í auðvaldsþjóðfélaginu.
EF ÉG VÆRI einræðisherra |
myndi' ég afnema alla áfengis-
sölu alveg skilyrðislaust. Og
þegar menn færu að gera aðsúg
að mér fyrir það, mynai ég að
vísu ekki láta skjóta þá, eins og
gert myndi vera í Rússlandi,
heldur myndi ég láta senda þá
eitthvað þangað, sem enn væri
óunnið velræktanlegt land og
láta þá vinna þar þangað til
þeim væri runninn móðurinn
og landið komið í rækt.
EN ÉG ER EKKI einræðis-
herra. Og þess vegna er víst
ekkert gert, en allt látið dank-
ast. En má ég spyrja: Hefur
ekki viðskiptanefnd nýlega
samþykkt að nauðsynlegt sé og
sjálfsagt beinlínis vegna gjald-
eyrisifts að skammta áfengi með
það fyrir augum að draga úr á-
fengiskaupunum? Hefur hún
ekki sent þessa samþykkt sína
til fjárhagsráðs? Hvað hefur
það gert við hana? Ég, og al-
menningur, sem er með mér í
þessu máli, bíðum eftir svari.
ÁHORFANDI skrifar: „Nú er
farið að skammta marga hluti,
en ekki hefur þó verið tekin
upp skömmtun á áfengi og tó-
baki. Er mörgum þe'tta undrun-
arefni. Á sama tíma, sem menn
verða réttilega að takmarka við
sig ýmsa nauðsynjavöru, má
það furðulegt heita, að tóbak
og áfengi skuli vera boðið lands
mönnum í stríðum straumum.
Vill ekki viðskiptánefnd taka til
athugunar að skammta þessa
vöru?“
„ANNARS ER drýkkjuskap-
ur hér í þessu landi hreinasta
plága, svo mikil plága, að áfeng
isneyzlan er að setja stóran
blett á þjóðina. Til áfengis-
neyzlunnar má rekja ýmsa
glæpi, stóra og smáa, einnig
flest bílslysin, mannhvörf o. fl.
o. fl. En hvað gerir svo þjóðin
til að aftra sjálfri sér frá þess-
um voða? Gjaldeyrir er nægur
jafnan fyrir þessari vöru, þó
neita verði um marga þarflega
hluti. í aðalhóteli landsins, auk
hinna tveggja útsölustaða í
Reykjavík, fæst nóg áfengi,
enda þarf margur að fá sér leka
þar. Veizlur flóa út í áfengi
bæði á vegum ríkis og Reykja-
víkurbæjar, auk þess sem ýmis
félög eru farin að hafa vínveit-
ingar um hönd á skemmtunum
sínurrt. Á flestum dansleikjum
bæði í bæ og sveit slaga fullir
sveinar og margar meyjarnar
einnig með. Góðtemplarar vinna
þarft verk, en mæta oft glám-
skyggni og áhugaleysi borgar-
anna og jafnvel þeir, sem skel-
iTh. á 7. síðu.
um það spáð, hvort þessi
kosningaúrslit í Danmörku
hafa stjórnarbreytingu í land
inu í för með sér. Alþýðu-
flokkurinn er að vísu lang-
stærsti flokkurinn og fylgi
hans bersýnilega aftur í ör-
um vexti. En hann vantar
enn mikið á það að hafa hrein
an meirihluta,, — til þess þarf
75 þingmenn. Hins vegar
hafa borgaraflokkarnir þrír,
vinstri flo'kkurinn, íhalds-
flokkurinn og róttæki flokk-
urinn, 76 þingmann, ef þeir
leggja saman fylgi sitt; og
mætti þá svo fara að núver-
andii stjóm vinstri flokksins
yrði áfram við völd, en ný
borgaraleg samsteypustjórn
tæki v*ið af henni Er lítill efi
á, að íhaldsflokkurinn muni
verða með í slíkri lausn, en
um afstöðu róttæka flokksins
er enn allt óljósara, og get-
ur það oltið á honum, hvor
nú myndar stjórn í Dan-
mörku, — Alþýðuflokkurinn
eða vinstri flokkurinn.
. *
En hvað, sem ofan á verð-
ur í því efni í bili, hafa kosn-
ingarnar í Danmörku hreins
að hið pólitíska andrúmsloft
þar rækilega. Pest kommún-
ismans hefur verið kveðin
niður og klofningurinn í röð
um alþýðuhreyfingarinnar að
mestu verið yfirunninn. Og
Alþýðuflokkuxinn er þar aft
ur í uppgangi, sem, ef ekki
nú þegar, þá að rninnsta
kosti innan skamms, mun
hefja hann til valda á ný.
S. &. T. S. K. T.
- Paraball
verður í G.T.-húsinu laugard. 1. nóv. og hefst kl.
9,30 e. h. — 4—7 e. h. Aðgöngumiðar afhentir í dag frá kl.
Ásadans. — Verðlaun. Samkvæmisklæðnaður.
ihslei
‘halda knattspyrnumenn í Sjálfstæð-
ishúsinu á rnorgun, föstud., og hefst kl.
10 s. d. KI. 11 fer fram verðlauna-
afhending.
Aðgöngumiðar verða seldir í Sjálf-
stæðishúsinu á morgun frá kl. 5—7
og við innganginn.
Allt íþróttafólk veikomið meðan húsrúm leyfir.
Mótanefnd.
F. U. J. F. U. J,
AÐALFUNDUR
Félags ungra jafnáðarmatnna verður haldinn
föstudaginn 31. október 1947 kl. 8,30 e. h. í Bað-
stofu iðnaðarmanna, Vonarstræti (Iðnskólanum).
Ðagskrá: .
Venjuleg aðalfundarstörf.
Tekið á móti nýjum félögum.
Félagar! Fjölmennið stundvíslega.
Stjórnin.
Handavinnudeild Breiðfirðingafélagsins
í Breiðfirðingabúð föstudaginn 31. okt. kl. 8,30.
SkemmtiatriSi: Heklukvikmynd Kjartans O. Bjarna
sonar og fleira.
Dansað frá kl. 10 (Gömlu dansarnir)
Athugið að kvikmyndin byrjar stundvíslega kl.
8,30. Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 6 sími 7985.
Stjómin.
Eimr
flytur þúsundum heimila fjölþætt umhugsunar-
efni, margvíslegan fróðleik og skemmtun — og
hefur gert í meira en háSa öld. Kemur út árs-
fjórðungslega. Haustheftio 1947 er nýlega komið
út, mjög fjölibreytt að efni, Ef þér eruð ekki á-
skrifandi þá gerist það strax í dag.
Utfyllið seðilinn og sendið hann Bókastöð
Eimreiðarinnar, Aðalstræti 6, Reykjavík,
Pöníunarseðill
Undirritaður óskar að gerast áskrifandi að
Eimreiðinni frá síðustu áramótum að telja.
Áskriftargjaldið, kr. 25,00, fylgir.
Áskriftargja-ldið, kr. 25,00, óskast inn-
heimt með póstkröfu.
Nafn....................... Staða...........
Heimili ....................................