Alþýðublaðið - 30.10.1947, Qupperneq 8
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
vantar fullorðið fólk og ung-
linga til að bera blaðið í
!þessi hverfi:
t Vesturgöíu
Seltjarnarnes.
Fimmtudagur 30. okt. 1947.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
vantar fullorðið fólk og ung-
linga til að bera blaðið í
þessi hverfi:
Kléppsholt
Hringbraut
Talið við afgr. Sími 4900.
SSaS híl n
m
í gangsféfflnnl!
í FYRRINÓTT var fólks-
‘bifreiðinni R 2028 stolið við
Tjarnargötu 26. en eigandi
hennar er Egill Renedikts-
son veitingamaður í Odd-
feilow.
Hefur bifreiðinni verið ek-
ið suður Tjarnargötuna og á
Skothúsvegmn og á leið upp
á Suðurgötuna, en þar stóð
vörubifreið á hægri gang-
stétt og rakst fólksbifreiðin
framan'á haná. Svo virðist,
sem ökumaðurinn, er stal
bifreiðinni, hafi ætlað að
smeygja bifreiðinni á milli
vörubifreiðarinnar og garðs-
grindverks. er vörubifréiðin
stóð hjá, því að fólksbifreið-
inni var ekið langt upp á
gangstéttina, og lenti hún
framan á vöurbílnum, og
stórskemmdust báðir bílarn-
ir, þó einkanlega bifreið
•Egils.
Svo var að sjá, sem bílþjóf-
urinn hafi ekki veríð af baki
dottinn, þótt hann hafi lent
í þessum árekstri, því svo
virðist sem hann hafi gefið
bifrdíðinni, sem hann var í,
fullt benzín og ætlað að ýta
mótstöðunni (vörubílnumj úr
vegi, því að fólksbifreiðin
hafði spólað djúpt niður í
gangstéttina og sat þar föst.
Þjófurinn hefur ekki fund-
izt enn þá.
* I!
!
eíia MæiíSKspa
EYRIR TÍU ÁRUM, um það. bil þrem vikum eftir að
rafmagni var fyrst hieypt til Reykjavíkur frá Sogsvirkjun-
inni, voru fyrstu raftæk'.n afgreidd frá Rafha í Hafnar-
firði. Á þessum tírj. árum hefur verksmiðjan framleitt
8700 eldavélar fyrir heimili, 6200 þilofna til húsahitunar,
6300 rafmagnsófna, 600 önnur húsahitunartæki, 300 þvotta-
potta, 77 stórar eldavélar fyrír hótel, sjúkrahús og f’eira og
lóks 35 stóra bökunaroína fyrir brauðgerðarhús, sjúkrahús
cg veit'ngahús.
í gær skoðaði margt gesta,
í .þar á meðal riklsstjórnin, h.f.
Skólafáik skoðar
Heklu
NÁLEGA EITT ÞÚSUND
manns mun vera búið að
ferðast austur að Heklu á
vegum ferðaskrifstofu ríkis-
ins nú á rúmri viku. Þessa
dagana hefur skólafólk farið
þangað í stórum hópum;
f.yrstir fóru nemendur
menntaskólans, eins og áður
hefur verið getið. Þá fóru
nemendur Ingimarsskólans í
þessari viku, og í gær fóru
cun 150 nemendur frá verzl-
'unarskólanum að Heklu.
Auk þessara ferða efndi
ferðaskrifstofan til almennr-
ar ferðar að Heklu á sunnu-
■daginn var, og tóku þátt í
henni um 80 manns.
Samkvæmt upplýsingum
frá starfsmönnum ferðaskrif
stofunnar hafa fyrirspurnir
<um ferðir til Heklu sjaldan
verið meiri en nú, enda eru
eldarnir í fjallinu með lang-
mesta móti sem þeir hafa ver-
ið um þessar mundir, og er
stórfengleg sjón að vera aust
ur við Heklu í myrkri á
kvöldin.
Á sunnudaginn kemur mun
ferðaskrifstofan enn efna til
ferðar að Heklu, og verður
lagt af stað kl. 9 fyrir hádegi.
Þátttaka þarf að tilkynnast
fyrir laugardagskvöld.
Raftækjaverksmiðjuna í
Hafnarfirði, og voru gest-
irnir hinir hrifnustu af starf-
seminni.
Þessi verksmiðja hefur nú
í tíu ár verið eitt gleggsta
dæmið um tilverurétt inn-
lends iðnaðar, enda var rauði
þráðurinn í öllum heillaóska
ræðunum, sem fluttar voru
syðra í gær, sá. að iðnaður
ætti að vera þriðja stoðin
undir atvinnulífi þjóðarinn-
ar, á eftír fiskveiðum og
landbúnaði.
SAGA FÉLAGSINS
H.f. Raftækjaverksmiðjan
er stofnuð 29. október 1936;
fyrstu stjórn skipuðu þeir
Emil Jónsson, Bjarni Snæ-
björnsson, Ásgeir Stefánsson,
Sveinbjörn Jónsson og Guð-
mundur Kr. Guðmundsson.
Samtímis stofnuninni var
hafinn undirbúningur að
byggingu verksmiðjuhúss og
innkaupum á vélum og tækj-
um. er til rekstursins þurfti;
naut verksmiðjustjórnin þar
ráðlegginga Ing. Berg-Han-
sen, Porsgrunn í Noregi, en
við hann höfðu forystumenn
þessa máls, þeir Sveinbjörn
Jónsson byggnigameistari,
Nikulás Friðriksson umsjón-
armaður og Emil Jónsson, þá-
verandi bæjarstjóri í Hafnar
firði. gert frumdrög að samn-
ingi, þar sem Berg-Hansen
seldi Raftækjaverksmiðjunni
réttinn til að framleiða hér á
landi rafmagnseldavélar og
önnur rafmagnstæki, er
verksmiðja hans í Nöregi
framleiddi. Jafnframt tók
hann að sér að vera teknisk-
ur ráður.-autur verksmiðj-
unnar.
Ýmsir örðugleikar voru á
rekstri verksmiðjunnar til að
byrja með, eins og búast
mátti við; og aðeins 14 elda-
vélar voru afgreiddar frá
verksmiðjunni til áramóta
1937—1938; 1938 er bezta ár
verksmiðjunnar hvað elda-
vélar snertir; eru þá fram-
leiddar 1422 eldavélar. Strax
á árinu 1938 verður fram-
leiðslan fjölþættari, og nú er
svo komið. að eldavélar eru
aðeins um það bil helmingur
af árlegri framleiðslu verk-
smiðjunnar,
Frá því verksmiðján 'tók
til starfa og fram til 1. októ-
ber síðast liðinn hafa verið
afgreidd frá henni samtals
24 800 tæki; saman lagður
kílówattafjöldi þessara tækja
er um það bil 80 000. Virkjað
afl til almenningsþarfa á öllu
landinu mun láta nærri að sé
nú um 35 000 kw.
Frá byrjun hafa verið seld-
ar framleiðsluvörur fvrir um
10V2 milljón króna. Á sama
tíma hafa verið greidd vinnu-
laun með um 3 880 000 kr.
Verð á aðalframleiðslu
verksmiðjunnar, rafmagns-
eldavél, þriggja hellna, með
bökunarofni, var í nóvember
1937 270 kr., í september 1939
325 kr. og í október 1947 880
kr. — 10 ára reynsla hefur
sýnt. að Rafha eldavélin hef-
ur fyllilega staðizt erlenda
samkeppni bæði hvað snert-
ir gæði og verð. í þessu sam-
bandi má geta þess, að aðeins
fjórði hluti af verði vélarinn-
ar er erlendur gjaldeyrir.
Verksmiðjan hefur frá því
hún tók til starfa aldrei getað
unnið af fullum krafti, stafar
þetta af gjaldeyrisskorti
fyrstu árin, en á seinni árum
vegna þess hve örðugt hefur
reynzt að fá keypt frá útlönd
um þau hráefni sem nauðsyn
leg eru til framleiðslunnar og
nú síðast sérstaklega á út-
vegun járns.
Eins og áður er getið, hef-
ur mest verið framleitt á
einu ári 1400 eldavélar, en
meðaltal þeirra 10 ára, sem
verksmiðjan hefur starfað,
er 870 eldavélar á ári. í nú-
verandi húsakynnum og
með þeim vélakosti, sem verk
smiðjan hefur nú, má fram-
leiða um 2400 eldavélar ár-
lega, ef efni væri ávallt nægj
anlegt fyrir hendi.
Húsakostur verksmiðjunn-
ar var til að byrja með ná-
lægt 700 ferm. að grunnlfeti,
en hefur smátt og smátt ver-
ið aukinn og er nú um 1700
ferm. Aukin húsakynni og
bætt vinnuskilyrði gera
mögulegt að víkka verksvið
verksmið.junnar og gera það
fjölbreyttara. Af framtíðar-
verkefnum Rafha má t. d.
minnast á að stjórn verk-
smiðjunnar hefur nýlega gert
Myndin er úr- vinnusal verksmiðjunnar.
samninga við A/B. Elekírolux
í Svíþjóð, um smíði á kæli-
skápum hér á iandi, af sömu
gerð og þetta fyrirtæki fram-
leiðir. Vonir standa til að
þessi framleiðsla geti hafizt á
næsta ári.
Vjð Raftækjaverksmiðjuna
starfa nú 46 manns, en hægt
væri að veita 80—90 manns
vinnu, ef nægjanlegt efni
væri fáanlegt.
Hlutafé H.f. Raftækjaverk-
smiðjunnar er kr. 161 000,00.
Ríkissjóður íslands er aðal-
eigandi, og á hann 50 000,00
af hlutafénu. Aðrir hluthaf-
ar eru 37 að tölu. Arður af
hlutafé var ekki greiddur ár-
in 1937 og 1938, en 1939 4%
og 1940 og síðan 6%. Lög
félagsins mæla svo fyrir, að
eigi megi greiða meira en 6 %'
í arð árlega af hlutafénu.
Stjórn H.f. Raftækjaverk-
smiðjunnar skipa nú þessir
menn: Emil Jónsson ráð-
herra, Guðmundur Kr. Guð-
mundsson skrifstofustjóri (f.
ríkissjóð), Bjarni Snæbjörns-
son íæknir, Sveinbjörn Jóns-
son forstjóri 00 Guðmundur
Árnason bæjargjaldkeri. —
Framkvæmdastjóri er Axel
Kristjánsson.
Einar Krisíjánsson syngur Veírar-
ferðina í Ansfurbæjarbíó.
Hann dvelur hér í hálfan mánuð og fer
héðan beint til Vínar að ríkisóperunni.
EINAR KRISTJÁNSSON óperusöngvari er kominn til
landsins og mun hann syngja hér lagaflokkinn „,Vetrar-
ferðina“ eftir Schubert. sem flutt verður í Austurbæjarbíó
á vegum Tónlistarfélagsins innan skamms. Dvelur óperu-
söngvarinn hér aðeins í hálfan mánuð að þessu sinni og fer
héðan beint til Vínar en þar er hann ráðinn í vetur við
ríkisóperuna og mun syngja þar meðal annars tenórhlut-
verkin í óperunum La Bohmé, Rigoletto og Týnda brúðurin.
Tiðindamaður blaðsinstil Austurríkis og dvelja þar í
hitti Einar Kristjánsson að
máli í gær. og sagði hann, að
það_hefði iengi staðið til og
raunar verið ákveðið, að
hann syngi hér „Vetrarferð-
ina“ á vegum Tónlistarfélags-
ins, þegar Austurbæjarbíó
væri fullgert, en þar eð það
hefði dregizt, hefði ekki ver-
ið hægt að koma því við
fyrr en nú, að flytja verkið
þar.
Hins vegar sagði Einar að
þetta hefði ekki nátt seinna
vera til þess. að hann hefði
getað komizt hingað, því að
hann er samningsbundinn
við ríkisóperuna í Vín í vet-
ur og verður að leggja héðan
af stað eftir hálfan mánuð.
Hefur Einar nú fengið öll
nauðsynleg leyfi viðkomandi
yfirvalda rtil að mega koma
vetur.
Aðalhindur F. U.
annað kvöld.
AÐALFUNDUR Félags
ungra jafnaðarmanna í
Reykjavík verður haldinn
annað kvöld kl. 8,30 í bað-
stofu iðnaðarmanna.
Á dagskrá fímdarins eru
veríjuleg aðalfulndarstörf.
Starfsemi félagsins er nú
að komast í fullan gang og
eru málfundaflokkarnir þeg-
ar byrjaðir, en þeir eru á
hverju sunnudagskvöldi kl.
8,30 í skrifstofu félagsins.
Enn fremur er saumaklúbb--
urinn byrjaður og loks mun
talkór félagsins taka til starfa
á næstunni.