Alþýðublaðið - 22.11.1947, Blaðsíða 3
Laugardagur 22. nóv. 1947.
ALÞVÐUBLAÐIÐ
Beinafundur við Laugarás
Tvær ferðir til Heklu
um helgina
FERÐASKRIFSTOFA rík-
ásins hefur um hverja helgi
að undanfömu efnt til ferða
að Heklu. Ferðir þessar hafa
verið afar fjöilsóttar og tala
þátttakenda orðið um allt að
150 í einni ferð, þegar flest
hefur verið. Þá hafa og nem-
endur framhaldsskólanna
farið á vegum skrifstofunnar
austur að Heklu. Hafa þann-
ig farið nokkrar þúsundir
ferðafólks þangað fyrir til-
stilli skrifstofunnar og, að því
bezt er vitað, komið ánægðir
heim aftur og látið hið bezta
yfir för sinni.
í von um að veðrið verði
enn hagstætt hefur Ferða-
skrifstofan ákveðið að efna
til tveggja ferða austur að
Heklu um þessa helgi, og má
búast við því; að þær verði
hinar síðustu ferðir þangað
austur á þessu ári.
Fyrri förinni verður hagað
þannig, að lagt verður af
stað austur kl. 5 e. h. í dag
og ekið að Næfurholti i
kvöld. Gist verður í skála þar
eystra, og verður hver þátt-
takandi að sjá sér fyrir hvílu
poka, en ,,beddar“ verða
látnir þátttakendum í té og
séð um að hiti verði nægjan-
iegur í skálanum. Þá verða
þátttakendur og að sjá sér
fyrir mat, en kaffi og kökur
verður hægt að fá keypt í
Næfurholti. Á morgun
snemma verður lagt á fjallið
og gengið ©ins langt upp í
öxlina, að hraungígnum, eins
og öruggt getur talizt, en
smágos eru svo að segja lát-
laust upp úr honum þessa
dagana. Þaulkunnugir menn
verða með í förinni, og munu
þeir gæta þess að fyllsta ör-
yggis sé gætt. Um kvöldið
verður síðan haldið heim. —
Þátttakendur, sem ætla sér
að fara þessa för, verða að
hafa tilkynnt þátttöku sína
fyrir hádegi í dag.
Síðari förin verður farin
kl. 8 í fyrramálið. Ekið verð-
ur að Næfurholti og gengið
upp á svo kallaðar Rauðöld-
ur og dvaiið þar uppi nokkra
stund. Blasa þaðan við hraun
gígurinn og hraunstraum-
arnir úr honum. — Væntan-
legir þátttakendur í þessari
'för tilkynni þátttöku sína
fyrir kl. 4 í dag.
Verði bjart veður á morg-
un og skyggni gott, mun
ferðaskrifstofan efna til enn
þá einnar ferðar, og þá í
Þjórsárdalinn, en þaðan blasa
Heklueldarnir við, og verða
þeir skoðaðir frá Gaukshöfða
eftir að skyggja tekur.
,Þess skal að lokum getið,
að Hafnfirðingum verður
gefinn kostur á að óeggja af
stað, eins og um síðustu
helgi, beint þaðan að sunnan.
fáist næg þátttaka, en til-
kynna verður um hana í
Vörubúðina fyrir hinn ofan-
skráða, til tekna tíma.
í HAUST var grafið fyrir
votheystóft að Laugarási í
Biskupstungum, þegar graf-
3ð hafði verið nokkuð niður
varð vart við bein og beina-
leifar, sem við nánari athug-
un reyndust vera mannabein.
Öll hin stærri bein, svo sem
leggir, höfuðskeljar o. þ. h.,
eru heiMeg- En þau smærri
mjög fúin og vart finnanleg.
Þarna fundust smátt og
smátt beinagrindur af fimm
mönnum. Beinin voru mis-
djúpt í jörð, en öll virtust
þau þannig, að líkin hefðu
legið í austur og vestur.
Á einum stað voru leifar
af fötum eða einhverju þess
konar, en Jíkkistuleifar var
ekki hægt að sjá.
Hvaða menn munu hafa
verið grafnir hér og hvenær?
Ekki er líklegt, að þarna hafi
verið bænahús eða grafreit-
ur eftir að kirkja kom í Skál
holt, sem er næsti bær við
Laugarás, 2-3 km. milli bæj-
anna.
Hvers vegna hefur þessi
beinafundur ekki verið skoð-
aður af fræðimönnum? Það
mun strax hafa verið til-
kynnt til réttra áðila, þegar
beinin fóru að finnast. Óneit
anlega væri þó fróðlegt að
komast að því, frá hvaða
tíma þetta kumbl er, og und-
arlegt er að enginn fornfræð
ingur skyldi koma og líta á
þennan fund, sem er þó ekki
að öllu ómerkur.
Geta þetta verið bein Dið-
riks van Mynden og félaga
hans, sem drepnir voru að
Skálholti árið 1539? Víta
menn, hvar þeir voru grafn-
ir? Munnmæli herma, að
þeir hafi verið dysjaðir í svo
kölluðu SöðulhoLti; en það
er lítið klapparholt austan
við Skálholtskeldu, skammt
austur frá staðnum. Senni-
legt er það ekki, því að svo
grunnt er þar niður á klöpp,
að vara hefði verið unnt að
hylja þar lík, sízt mörg.
Prófessor frá háskól-
anum í Kiel flytur
háskólafyrirlestur hér
A MORGUN kl. 2 flytur
dr. Hans Kuhn, prófessor við
háskólann í Kiel, í hátiðasal
háskólans, fyrirlestur um
Knörinn.
Undirstaða þessa fyrir-
lestrar eru rannsóknir í
menningarsögu Norðurlanda,
sem prófessor Kuhn hefur
unnið að í mörg ár. Það, sem
menn vissu um sjómennsku
miðalda á Norðurlöndum,
var sótt næstum allt í forn-
sögur okkar, ellegar þá í
skipsskrokka og brot þeirra,
sem voru grafin upp úr jörðu
og í myndir af gömlum
skipum, sem geymzt hafa til
ELDIiI DANSARNIS í G.T. húsimi
í kvöld kl. 10. — ASgöngumiðar
kl. 5 e. h. í dag. Sími 3355.
heldur fund í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu
sunnudaginn 23. nóv. kl. 2 e. h.
FUNDAREFNI:
Félagsmál.
Gengið frá uppstillmgarlista.
Uppsögn útgerðarmanna
á samningum á móíorskipum.
Önnur mál.
Félagar mæti stundvíslega og sýni félags-
skírteini við innganginn.
STJÓRNIN.
jÞrjár
málverkasýningar
Fefíings
Útvegum frá Ítalíú rörafittings
með stuttum afgreiðslutíma.
(
Vétuniðjan HÉÐINN h.f.
Sírni 7565. '
4ra herbergja íbúðarfiæl
160 ferm er til sölu nú þegar. Laus til íbúðar
ÓLAFUR ÞORGRÍMSSON hrl.
Austurstræti 14. — Sími 5332.
Auglýsíð í Alþýðublaðinu
okkar daga. Hingað til hafði
ekki tekizt að ná öruggu sam-
bandi málli þessara gjörólíku
heimilda.
Fornrit okkar eru flestöll
samin á 13. og 14. öld, og
það er lítil von, að þau gefi
óspilltar upplýsingar um
skip og sjómennsku víkinga-
aldar. A hinn bóginn er fát't
af hinum heimildunum, upp-
gröfnum skipum og mynd-
um, orðið til eftir hyrjun 11.
aldar, og mestallt, og með
því það, sem mest kveður að,
miklu fyrr. Þó tókst pró-
fessor Kuhn að bæta í þetta
mikla skarð, sérstaklega með
því að athuga vandlega allt,
sem okkar gamli kveðskapur
•geymir um þessi efni. Það
eru reyndar sömu fornritin,
sem geyma þennan kveðskap,
sömu handritin, en allur
þorri þessara kvæða og
vísna er langtum eldrii og
mun hafa varðveitzt nærri
því óbreyttur, og að minnsta
kosti mestallur hirðkvaðskap-
ur er tímasettur með miklu
öryggi. Þessi kvæði og vísur
segja furðulega mikið um
þróun sjómennskunnar á
sínum tima, eins og um
fleiri þætti menningarsög-
unnar, en jafn furðulegt er,
hvað því var lítijl gaumur
gefinn. Þessi saga er miklu
fjölbreyttari og að sama
skapi merkilegri en mann
hefur grunað. Lang merki-
Legasta skipategund, sem þá
var notuð, er knörinn, og
hann kemur líka allra mest
við sögu okkar lands. Knör-
inn var í margar aldir hið
eina verulega haffæra skip,
sem sÖgur fara af. Þess vegna
mun prófessor Kuhn tala
fyrst og fremst um hann.
Það má nú kalla vist, að hið
alkunna skip, sem Norðmenn
grófu upp á Gokstad í Vest-
fold hafi verið knör, en þetta
kemur í bága við aLlt, sem
um það var kennt til joessa.
Fyrirlesturinn verður flutt-
ur á íslenzku, og er öllum
heimill aðgangur.
SKI PAUTGíRO
RIKISINS
foriin
Vörur, sem afhentar voru til
flutnings með Súðinni til
Hvammstahga, Blönduóss,
Skagastrandar, Sauðárkróks
og Siglufjarðar, verða sendar
héðan í dag með m.s. „Foldin“.
Vörusendendur eru beðnir-að
athuga þetta vegna vátrygig-
ingar vafánna.
SEINUSTU VIKURNAR
hafa þrjár málverkasýningar
verið haldnar í Listamanna-
skálanUm hér í Reykjavík,
og stendur ein þeirra yfir
enn þá, nefnilega sýning Jóns
Þorleifssonar.
Þetta er sennilega ein bezta
sýning Jóns Þorlecfssonar.
Það er í málaralistinni sem
öllu öðru, að menn læra svo
lengi sem þeir lifa. Jón Þor-
leifsson er þroskaður málari;
hann er allí af betur og bet-
ur að finna sjálfan sig í list
sinni og að verða óháðari
þeim áhrifum sem hann varð
fyrir og tileinkaði sér, er
hann var- við listnám er-
Lendis.
Beztu myndir Jóns Þor-
leifssonar virðast mér mál-
verkin utan af Snæfellsnesi,
t. d. nr. 7, 16 og 18; þá eru
ágætar myndir annars staðar
fá, t. d. nr. 21. Myndir Jóns
Þorleifssonar eru vel byggð-
ar; en þó eru sumar ekki
nógu vel útfærðar; hann
vinnur stundum ekki nóg úr
^moitivunum", svo er t. d. um
nr. 39 (Síldarverkun), sem er
efni í ágætis mynd. Jón Þor-
leifsson notar.mikið Ijósrauða
eða rauða liti, næstum um of;
rauðir Qitir eru löngum vand-
meðfarnir svo vel fari.
Dóttir Jóns, Kolbrún, held-
ur sýningu á mörgum stúdíu-
teikningum; hún hefur stund
að höggmyndalist erlendis;
en lítt er hægt að dæma um
listhæfileika hennar af þess-
um teikningum, en þó má
segja, að þær gefi góðar
vonir.
Þá hafa tveir ungir lista-
menn haldið málverkasýn-
ingu nýlega, þeir Örlygur
Sigurðsson og Sigurður Sig-
urðsson. Örlygur hefur
stundað listnám í Bandaríkj-
unum og virðist hafa orðið
fyrir nokkrum áhrifum þar.
Honum hefur nokkuð farið
fram síðan hann sýndi 1945.
Málverk hans bera blæ þess,
að þau séu máluð á ör-
skammri stund; slíkum mál-
verkum hættir oft til að
verða nokkuð innihaldslaus-.
um.
Örlygur sýndi margar
„karikatur“-teikningar og eru
þær hans sterka Mið.
Sigurður Sigurðsson hefur
stundað nám í Danmörku
undanfarið og gætir áhrifa
þess. Honum svipar nokkuð
til Jóns Þorleifssonar og
Kristinar Jónsdóttur. — Mál-
verk hans virðast mér yfir-
leitt betri en málverk Örlygs,
og maður verður meira var
við alvarlegar tilraunir hjá
honum. Oft er eins og hann
skorti úthald til að fullgera
myndir sínar. Þeir eiga báðir
vonandii eftir að þroskast og
vaxa.
. Mikið hefur verið um sýn-
ingar í haust, og er það góðs
viti.
Listrýnandi.
U
ri
til Krófcsfjarðarness og Salt-
hólmavíkur um helgina. Vöru-
móttaka í dag.
14
^Fí/mR'
UMDÆMISSTÚKAN NR. 1.
Haustþing Umdæmisstúfcu
Suðurlands verður sett á
morgun sunnudaginn 23.
nóvember kl. 1 e. h. í
Templarahöllinni. Stigbeið-
endur mæti rétt fyrir þing-
setningu. Umdæmistemplar.