Alþýðublaðið - 06.12.1947, Síða 5

Alþýðublaðið - 06.12.1947, Síða 5
Laugardagur 6. des. 194L ALÞÝÐUBLAÐIÐ Þarfasfa þjónsins makiega minnzf „FAXI“ heitir bók ein, sem fyrir skömmu er komin út. Nafnið er yfirlæíislaust. En þessi bók hefur meira og merkara mál að flytja og ís- lendingum, að minnsta kosti þeim eldri, — hugstæðara mál, en mörg önnur bók, sem þó er talin nokkurt erindi eiga til þjóðarinnar. Þetta er saga íslenzka hests ins, þarfasta þjónsins, sem að vísu hefur hlotið þakklæti og ástríki hjá sumum vinum sínum á öllum öldum, en stundum sætt ómaklegni og ó þarflega harðri meðferð. Og nú er'hann óðum að þoka úr sessli fyrir s'tórvirkari, — en sálarlausum þjónum, svo það er óneitanlega vel til fundið, að skrifa sögu hans nú. Dr. Broddi Jóhannesson virðist næmur sálfræðingur, og þá jafnt, er mállausar skepnur eiga í hlut, ef svo mætti að orði komast. Er frásögn hans öll einkar látlaust en hlý og giögg. Þarna er margt fróðlegt að finna. Og auk þess er bókin prýdd fjölda mynda eftir Halldór Pétursson. B&ra myndirnar því Ijóst vitni, að hestarnir eru uppáhaldsvið- fangsefni hans. Norðri gefur út bókina og er frágangur allur hinn prýði legasti. Ævisaga Önnu Boleyn komin út á íslenzku DRAUPNISÚTGAFAN hef ur nýlega sent á lesmarkað- jnn ævisögu Önnu Boleyn eftir ítalska sagnfræðiprófess orinn og rithöfundinn E. Momigliano í þýðingu Sig- urðar Einarssonar. Er bókin 230 blaðsíður að stærð í stóru * broti, prýdd átta heilsíðu-1 mýndum af helztu sÖgupersón| imum og mjög vönduð að öll^ um frágangi. & Anna Boleyn var önnura. i hinna sex kvenna, sem Hin-fe rik áttundi Englandskonung^, ur gekk að eiga á áru.nurrA 1509 — 1547 og hóf til þess^ vegs að verða drottningar* Englands. Af þessum sex kon” um létu tvær lífið á högg-# stokknum, og var Anna* Boleyn önnur þeirra. Einka-* líf Hinriks konungs hefur" orðið eitthvert blóðugasta'* hneykslii veraldarsögunnar. Bókin fjallar um h!ið áttaL ára tímabil, sem hið furðulegal ævintýri Önnu Boleyn stóð^ yfir, eða þar til því lauk höggstokknum skömmu eítirL að hún hafði fætt Hinrikio konungi dóttur, Elísabetu,S sem síðar varð nafnkunnasta '* drottruing Bretaveldis. En hjú| skapur Önnu og Hinriks er|' merkilegasti atburðurinn í» ævi konungsins, þar eð til| hans má rekja orsakirnar til þess, að með öllu - skildi á milM ensku þjóð.arinnar og kaþólskrar kirkju með öllum þeim. afleiðingum, sem sá skilnaður hafði í för með sér. ávallf glæsilegasta Menn gefa Norðrabækurnar í jólagjöf og tryg gja þannig vinum sínum þjóðlegusfu, skemmtilegustu, í og gagnvönduðustu bækurnar. URVAL ISLENZKRA BÓKA: Faxi, eftir dr. Brodda Jóhannesson. Sagan um hlutdeild 'hestsins í íslenzku þjóð- lífi er lýsing á menninearviðhorfum, sem í þúsurid ár hafa verið ein upp- runalegustu sérkenni íslenzks þjóð- ernis. Þessi mikla bók er engri annarri bók hk. Hún er undursamlegt ævin- týri heillar bjóðar á hestbaki. Prýdd fjölda teikninga eftir Halldór Péturs- son Bessastaðir, eftir Vilhjálm Þ. Gíslason, er merki- legt, skemmti. og fræðirit um hið langfræga höfuðból og núverandi þjóðhöfðin."iasetur. Bókin er mynd- skreytt og handbundin í alskinn og talin ein fegursta bók, er gefin hefur verið út á íslandi. Dagur er li&inn, ævisaga Guðlaugs frá T1'”iðbarðaholti eftir Indriða Indriðason. Saga ó- breytts alþýðumanns og um leið snar þáttur úr þjóðarsögunum síðustu 70 árin. Hér er lýst lífskjörum og aðbún- aði kynslóðar, sem nú er óðum að falla í valinn. Hver íslendingur, sem er vaxinn úr grasfi, kannast við sögu- hetjuna, nafrnð kann að vera annað en maðurinn er hinn sami. Öræfaglettur, eftir Ólaf Jönsson. Þessi skáldsaga hefur þegar vakið mikla athygli, enda _ * sérstaeð og þjóðleg saga, sem opnar Sræna trée, lesendanum leáð inn í huliðsheima ís- lenzkra þjóðsagna, hinnar miklu víð- áttu öræfanna. ÚRVAL ÞÝDDRA BÓKA: Riki mannanna, eftir Sven Edvin Salje, í þýðingu Kon ráðs Vilhjálmssonar. Raunskyggn og heilbrigð ástarsapa. Að nokkru leyti framhald af sögunni KetiII í Engihlíð, sem hlotið hefur miklar vinsældir. Rússneska hilGmkviðan, eftir Guy Adams. Rómantísk og heill- andi skáldsaga um ástir og örlög lista manna. Verðlaunabók í bók^-+"- samkeppni Sameinuðu þjóðanna. Konan i söSEImim, eftir Harriet Lundblad. Konráð Vil- hjálmsson þýddi. Lífsreynd ung stúlka lítur til baka yfir farinn veg og skrSfar ævisögu sína blátt áfram og hispurslaust. Feðgarnir á Breiðaboli E-BIE. Stórviði, Bærinn og byggðin, Græna- dalskóngurinn. Þessi merki, norski sagnabálkur, í þrem bindum, lýsir hörðum átökum hins nýja og gamla tíma. Á Svörtuskerjum, eftir Emilie Carien. Á Svörtuskerj- um, þar sem öldumar rísa og hníga, skip stranda og skipshafnir berjast við dauðann, gerist mikil saga og margbrotin. Saga ásta og manndóms. Á Dælamýrum, eftir Helga Valtýsson, er nýstárleg og sérkennileg bók hér á landi að stíl og efnismeðferð. Gömul bflöð, eftir Ehnborgu Lárusdóttur. Snjallar og hnitmiðaðar sögur um tímabær efni. Fjöllin blá, lióðabók eftir Ólaf Jónsson, Ljóð Ólafs Jónssonar eru óður til íslenzkra fjalla og öræfa. Fegurð dagsins, kvæði eftir Kjartan J. Gíslason frá Mosfelli. Það er hlýtt og bjart yfir þessari bök, sem veldur því, að lesand dnn leggur hana ánægður frá sér. ís- lendingum hefur jafnan þótt ljóðabók góð gjöf og svo mun enn. eftir Kelvin Lindeman. Þýð. Brynj- ólfur Sveinsson menntaskólakennari. Áður fyrr áttu Norðurlandamenn ný. lendur í Austurlöndum., Þar leituðu margir hraustir drengir frama. Sum- ir týndu lífinu í skæðum drepsóttum, óþrotlegri baráttu við fjandsamlega frumbyggja eða harðfenga keppi- nauta. Áðrir komu heim með fé og frægð. Þetta er sagan um ferðir þeirra. Vinsælustu barna- og ung- lingabækur landsins hafa jafnan verið frá Norðra — og í ár hefur komið út veru- Iega fjölbreytt og glæsilegt úrval íslenzkra og þýddra bóka, sem verða kærkominn lesíur fyrir íslenzka æsku. Barnagull I. I Rökkrinu, sögur fyrir yngri börnin. Ragnar Jóhannessön magister tók saman. Bráð- skemmtilegar sögur, fullar af gáska og hugkvæmni. Dýrasögur. f Jóhannes Friðlaugsson kennar ari valdi sögurnar. Fjölbreytt safn, víðsvegar af landinu. Öll óspillt börn hafa yndi af dýr- um, og foreldrár geta tæplega fengið börnunj sínum hugð- næmara og hollara lestrarefni en þesasr sögur uni vini barn- anna. Það er garaan að lifa eftir Evu Hjálmarsdóttur frá] Stakkahlíð. Nafnið lýsir bók-| inni vel. Höfundi er óvénju- lega sýnt um að draga framv hina bjartari hlið lífsins. í þessl um sögum birtist fegurðarþrá |) mannlegs hjarta í tærri og( upprunalegri mynd. Benna-bækurnar hafa slegið met í vinsældurt: hjá drengjunum. Beverly Gray-bækurnar eru eftirlætisbækur allra ungra stúlkna. Óskabækurnar eru orðnar þrjár. Þær heLa: \ Hilda á Hóli, Börnin á Svörtutjörnuni og/j Kata bjarnarbani. Allar eru, óskabækurnar heill- andi og spennandi, enda njóta þær sívaxandi hylli stúlkna og drengja. ISLANDSFOR ÍNGU eftir ESTRID OTT. Þetta er í fyrsta sinn, er erlendur höfundur skrifar unglingabók frá íslandi. Er bæði fróðlegt og skemmtilegt fyrir íslenzka æsku að kynnast iandi s'ínu, eins og það kemur erlendum gesti fyrir sjónir. Aðalsögupersónan er norsk stúlka, sem varð að flýja heimaland •sitt á stríðsárunum og komst til íslands. Hér eignast hún góðar vin- konur, Ruth og Rúnu, sem lenda í margvíslegum ævintýrum, en 'hvar sem þær :koma, vekja þær lífsgleði og fjör. En þáer kunna líka að taka til höndum og eiga ráð undir hverju rifi. Um sama leyti og þessi saga kemur út á íslerizku, mun hún einnig birtast á hinum Norðurlandamálunum. Munið, að Norðra-bœkurnar eru kœrkomnasta jólag jöfin* Pósth. 101 Reykjavík Pósth. 45 Akureyri. Enn er kostur á að eignast sumar a£ þeim bókumNorðra, sem mestar vinsæidir hafa hlotið undanfarm ár, t. d. Á hreindýraslóðum, Söguþættir landpóstanna I.—III., Á ferð, Ég vitja þín, æska, Horfnir góð- hestar. Hér eru gagnmerkar og rammíslenzkar bækur, sem ekki fyrnast, þótt tímar líði. Gætið þess að tryggja yður þær í tíma, því að upplagið er senn á þrotum. —

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.