Alþýðublaðið - 04.01.1948, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 04.01.1948, Blaðsíða 4
I 4 ALÞÝÐUSLAÐiÐ Sunnudagur 4. janúar 1948. Það eina, sem gert hefur verið. — Ráðstafan- irnar til baráttu gegn dýrtíðinni. — Lækkun vísi- töiunnar. — Lækkun verðs á nauðsynjum og liúsa leigu. —‘Skrílsiætin á gamlaárskvöld. — A óður skríll að vera rétthærri á íslandi en beir, sem eiga að gæía reglu og friðar? RÁÐSTAFANIRNAB, sem Útgeíantli: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetarsson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sœmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan luf. RAÐSTAFANIR RlKIS STJORNARINNAR í barátt- iunni við verðbólguna og dýr- Itíðina leiða í ljós á óyggjandi hátt, að allar fullyrðingar kommúnista um áhrif og til- gang dýrtíðarlaganna voru fleipur eitt. Ríkisstjórnin hef- ur nú ákveðið lækkun álagn- ingar á allar vörur, sem heild salar, fraxrtleiðendur og smá- salar áttu birgðir af um ára- mót, og nemur su lækkun yfirleitt jafnmiklu og hinn nýi söluskattur, svo að af hans völdum verður engin verðhækkun. En jafnframt hefur ríkisstjórnin ákveðið verulega lækkun á öllum inn- lendum framleiðsluvörum, þar á meðal helztu daglegum nauðsynjavörum, svo sem landbúnaðarvörum og fiskaf- urðum, svo og allri seldri þjónustu. Enn fremur hefur verið ákveðin lækkun á flutningatöxtum til landsins og útskipunar- og uppskipun artöxtum um aillt land. Kommúnistar fullyrtu, að vísitala fram,færslukostnaðar myndi stórhækka vegna dýr- tíðarlaganna og hikuðu ekki við að ljúga upp tölum í því sambandi. Sannleikurinn er er hins vegar sá, að allar lík- ur benda til þess, að vísitalan lækki verulega frá því, sem hún var, þegar dýrtíðarlögin voru satt, þó að enn sé óger- legt að segja til um það með vissu, hversu mikil sú lækk un kemur til með að verða. Þannig má með sanni segja, að reynslan hafi tætt mál- ílutning kommúnista vegna dýritíðanlaganna sundur lið fyrir lið. gerSar hafa veriff núna um ára mótin til þess að stemma stigu við vaxandi verffbólgu og þar af leiffandi atvinnulej'si, eru í raun og veru, þaff eina, sem gert hefur veriff í haráttunni gegn dýrtíffinni, þrátt fyrir stanslausar umræður um það í mörg ár og síendurtekin Ioforð ailra stjórnmálaflokka, nema eins, sem ekkert virðist vilja láta gera vegna þess aff velmeg unin sé svo' mikil að ekkert þurfi aff gera. AÐ SJÁRSSÖGÐU, þegar tek ið er tillit til þess, að þrír stjórn málaflokkar hai'a leitað sam- komulags um sameiginlegar að- gerðir, bera þessar ráðstafanir svip af tilhliðrunarsemi og til- litum til margskonar hagsmuna. En með því ætti þá líka að verða hægt að vænta þess, að margir sameinist um þær og styðji þær af öllum mætti, því að mönnum ætti að minnsta kosti að vera það' ijóst, að lýðræðisþjóofélag byggist á samningum milli mis munandi hagsmuna og að með þeim getur enginn fengið allt, en allir nokkuð. ÉG FULLYRÐI LÍKA, að þannig séu þessar aðgerðir. Vísi talan er fest, hún lækkar um 28 stig, þar með fá launþegarn ir ekki alla'dýrtíðina uppbætta, en það hafa heldur engir laun þegar fengið í nokkru öðru landi en hér á þessum árum. En til þess að bæta þetta upp lækk ar vöruverð og húsaleiga. Allar nauðsynjar lækka í verði og lækkunin á húsaleigunni í þeim Uiúsum, sem byggð hafa verið síðan 1941, nemur allverulegum upphæðum hjá miklum fjölda manna. hagsmunum nokkurrar sérstakr ar stéttar, en allar verða að fórna nokkru. Það er því ljóst, að allt þetta miðar að því að lækka dýrtíðina og þar með vísitöluna svo að við erum farn ir að klifra niður stigann. Með þessu ætti að verða hægt að tryggja okkur framtíðina og það væri glæsilegur vottur um þroska okkar og jafh mikils virði og öll hin glæsilegu skip, sem nu eru að koma til landsins og ungu mennirnir eru nú að taka í þjónustu sjávarútvegsins. ÞAÐ ER'AÐEINS EITT, sem getur gert að engu þessar fyrstu tilraunir okkar og það er kröfu frekja einstakra hópa. Þeir gsetu eyðilagt allt, og áð því er nú róið öllúm árum að æsa hóp- ana hvern upp á móti öðrum. Ég hef ekki neina trú á því að þetta takist, en ef það tækist og þjóðfélaginu með því stefnt í J voða, verður að krefjast nýrra' kosninga og þá að kosningarnar snúist um að framkvæmdavald þjóðarinnar verði styrkt og þjóð in á þennan hátt látin skera úr. Þjóðin í heild er sterkari en samtök einstakra hópa, sem kynnu að verða leidd út í bar- áttu gegn hagsmunum hennar sjálfrar. SKRÍLSLÆTIN á gamlaárs- kvöld eru ekki neitt nýtt.fyrir brigði. Sem betur fer eiga hér ekki margir sök, en þeir eru nógu margir ög of margir. Ég tók eftir því í fregnum af skemmdar- og glæpaverkum skrílsins á gamlárskvöld að for ustumenn lögreglunnar kvört- uðu undan því að þeir mættu ekki beita sér í baráttunni við óáldarlýðinn. Þetta er ófært á- stand. Það nær ekki neinni átt, að óður skríil sé rétthærri á göt Maður gssti nú haldið, að Þjóðviljínn gerði hinar rót- tæku ráðstafanir ríkisstjórn- arinnar ýtarlega að umræðu- efni og játaði villu sína og flokks síns. En það er nú öðru nær, enda hefur það aldrei verið hin sterka hlið íslenzkra kommúnista að kunna að skammast sín. Þjóðviljinn í gær hefur það eitt að segja um þessar ráðstafanir ríkis- stjórnarinnar, að þetta borgi sig alls ekki( því að það fari slík ókjör af pappír undir all ar þessar tilskipanir yfirvald anna, sem að auki séu þannig samdar, að enginn skilji þær! Og á annarri fréittasíðu blaðs ins er í feitletraðri ramma- grein býsnazt yfir því, að á síðustu áramótum hafi út- varpshlustendur ,,fengið — í stað hátíðadagskrár — þau helvítis fim af tilskipunum frá stjórnarvöldunum, að seint muni gleymast“. Þjóðviljinn velur sem sé það ráð; að böiva vonzku- ÞAÐ VÆRI ÞVÍ algerlega rangt að halda því fram að þess um ráðsstöfunum sé stefnt gegn um höfuðborgar íslands en þeir sem eiga að gæta friðar og reglu. lega yfir ráðstöfunum ríkis- stjórnarinnar og láta þær að öðru ley-ti lönd og leið. Áhugi hans fyrir lausn dýntíðarmál anna og hag og afkomu lands manna er ekki meiri en það, að honum finnst það ekki borga sig að gefnar séu út tilskipanir um almenna vöru Iækkun, lækkun álagningar lækkun húsaleigu og seldrar þjónustu. Það fer svo mikill pappír í þetta> að það svarar ekki kostnaði að dómi þeirra Magnúsar og Sigurðar! Ritstjórum Þjóðviljans finnst erfitt að skilja tilskip- anir stjórnarvaldanna um þessi áramót. Almenningur í landinn mun hins vegar áreiðanlega eiga auðvelt með að skilja þessar tilskipanir og kunna vel að meta þær. En annað mun þjóðinni reynast erfitt að skilja, sem sé það, hvernig í ósköpunum Þjóð- viljinn og forsprakkar komm únista á alþingi ætla nú að standa við sín stóru orð um áhrif og tilgang dýrtíðarlag- anna. Um hitt má auðvitað deila endalaust, hvort pappírs- eyðsla okkar íslendinga sé ekki orðin óhóflega mikil. En hitt leikur varla á tveim tumgum, að þjóðin hafi efni á að eyða pappír undir til- skipanir slíkar sam þær, er gerðar voru heyrinkunnar um áramótin, meðan hún ver dýrmætum pappírsbirgðum í annan eins óþarfa og þann, að flokksútibú erlends stór- stórveldis hér á landi haldi úti sorpblaði á borð við Þjóð viljann. neðangreindra stofnana skal vakin á því, að fyrst um sinn þar íif öðruvísi verður ákveðið munu bær hver um sig eigi innleysa aðra tékka en þá, sern geínir eru út af þeirra eigin viðskiptænönn- um. — Hér eftir verða að sjálfsögðu engir tékkar innleystir, nerna reikninjgseigendur 'hafi áður 'látið skrásetja reikningsnnstæður siínar.. íslasufs h.f. i íslaEii Tilboð óskast í að rífa flugskýli, er stendur á Patt'ersonflugvelli við Keflavík og flytja það á Reykj avíkurflugvöllinn. Tilboðum sé skilað í skrifstofu flugvallastjóra ríkisins á Reykjavíkurflúgv.elli fyrir 15. þ. m. 3. janúar 1948. % Flugvaílssfjóri ríkisins r KB Félags fslenzkra frístundamálara getur tekið á móti nokkrum nemenidum, sem óska eífir til- sögn í teikningu og m'eðferð iita. Upplýsingar í síma 8808. vantar fullorðið fólk og unglinga til blaðburðar í þessi hveiTi: Rauðarárliolt Hverfisgötu, Laugaveg, Njálsgötu, Grettisgötu, Bergsstaðastræti, .. V. .. 77 77 77 77 Miðbæinn. Skólavörðustíg Talið við afgreiðshma. Álþýðublaðið. Sími 4900. Augfýsið í Aiþýðublaðinu

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.