Alþýðublaðið - 13.01.1948, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 13.01.1948, Blaðsíða 4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ Þriðjudagur 13. janúar 1948 Úígefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Iíelgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 490G. Afgrciðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h.f. OóSur byrjunar- Dómur höfðingjans. — „Deí er en doven Ilund“. — Verk, sem fala langt inn í framtíðina. — Bréf úr Kíeppsholtinu. SANNGJÖRNUM og óhlut drægum mönnum duldist ekki, er dýrtíðarlagafrum- varp ríkisstjórnarinnar kom fram á alþingi, að stefnt var að því að jafna byrðum nauð synlegra dýrtíðarráðstafana réttlátlega, niður á alla. Ákveðið' v.ar, að lagður skyldi á stighækkandi eignarauka- skattur og efnastéttunum þar með bundinni þyngstur baggi, sem sjálfsagt vair og réttmætt. En af öðrurn stóttum þjóðfé- lags.ins var krafizt þess fram lags í baráttunni gegn verð- bólgunr.jL og dýrtíAinni, að kaupgreiðslur yrðu frá og með árámótunum miðaðar við 300 stiga vísitölu, og v.erð lag á innlendum afurðum lækkað í hlutfalli v.ið það. Þetta framlag efnamiinni stéttanna virtist í fyrstu all- mikil fórn, enda reyndu kommúnistar óspart að nota sér þetta atriði og mikla það í andstöðu sinmi við setn ingu dýrtíðarlaganna. Lýsti þó ríkisstjórmin yfir því, að hún mynddi notfæra sér til hins ýtrasta öll ákvæði lag anna um verðlækkum, tíl þess að hin raunverulega launa- skerðing yrði sem allra minnst. Kommúnistar full- yrtu hins vegar, að þetta væri aðeins sýndarmennska og staðhæfðu, að dýrtíðarlög in myndu valda stóraukinni verðbólgu og hin raunveru- lega vísitala fara, strax um áramótin,. að minnsta kosti upp í 350 stig! " * Svo komu áramótin, þegar dýrtíðarlögin gengu 'í gildi, og var þá tilkynnt hin boðaða verðiækkun. Inniendar vörur lækkuðu verulega í verði. Húsaleiga í húsnæði, teknu á leigu eftir 1941, lækkaðd um tíu af hundraði. Álagning, farmgjö!d og uppskápunar- gjöld lækkuðu einnág ,svo að hér varð um almenna verð- jækkun að ræða, að vísu mis munamdi mikla, en verulega á flestum daglegum nauðþurft um almennings. Enn hefur þessi verðlækk- un ekkiii öll getað haft áhrif á framfærsluvísitöluna, enda sumar lækkanirnar enn ekki komnar til framkvæmda, eins og til dæmis hin væntan iega lækkun á rafmagnsverði. En eigi að síður hafa þessar ráðstafaniir nú þegar haft þau áhrif, að vísitalan hefur lækkað úr 328 stigum í 319 stig eða um 9 stig. Þar með er á óyggjandi „DET ER EN DOVEN HUND“, Svo svaraSi Hilmar Finsen lands höfðingi, þegar konungur spurði hann hver það væri, sem ann- aðist þann vísi að þjóðminja safni sem Sigurður Guðmunds- son málari hafði með höndum upp í turni dómkirkjunnar. Sigurður stundaði listnám í Kaupmannahöfn við hina mesfu fátækt, enda sonur fátæks bónda. Hann fékk hin hcztu meðmæli og ágætan vitnisburð kunnustu kennara og listfræð- inga þess tímá fyrir list sína, en eftir heimkomuna hætti hann skyndilega að mála og sneri sér eingöngu að því, að reyna að fegra og hæía það, sem snart daginn sem hann lifði í. HANN TEIKNAÐI nýjan ís- lenzkan kvenbúning, sem kon- urnar tóku síðan upp, hann teiknaði íslenzkan fána með fálkanum og hann ræddi við alla sem hann gat um það, hvern ig ætti að fara að því að gera Reykjavík fegurri fyrir íbúa hennar. Hann virðist því hafa fært mikla ' fórn, skilið að ís- lenzka þjóðin var ekki undir það búin að taka á móti málara listinni, en að hann gæti ef til vill fegrað mannlífið með því að bæta um það sem fólkið hugs aði um á þeim tíma, notaði og neytti. GUÐRÚN BORFJÖRÐ, systir Klemens Jónssonar og Finns prófessors leiddi Sigurð í sjúkra húsið daginn áður en hann lézt. Ég held að enginn hafi ritað eins vel um Sigurð Guðmunds- son og þessi inerkilegá kona, sem átti víst meiri þátt í barna láni Jóns Borgfirðings, en nokk urn grunar, en það var óvenju legt barnalán. Sigurður Guð- mundsson „lifði á engu“, eins og stundum er komizt að orði. Hann átti aldrei nema ein föt, en var allt af hreinn og fágaður. Hann var fámæltur, en þegar hann sagði eitthvað vakti það athygli og oft sveið undan. HANN HEFUR HAFT miklu meiri þýðingu fyrir Reykjavík — og ísland, en við höfum vitað Skrifsfofa og geymsluplás óskast nú þegar eða næstkomandi vprj; ■ : I r Sxmar 5836 og 5837. til þessa. Það er eins og Guðrún Borfjörð hafi opnað augu okkar fyrir þýðingu þessa manns. Hún gefur okkur miklu gleggri mynd af honum en Páll Briein í ævisögu Sigurðar, sem birtist í „Merkir íslendingar“, (tekin úr Andvara) og er hún þá frábær lega vel rituð. Og þó lifa verk hans á meðal okkar. Svona geta verkin talað langt inn í framtíð ina, þó aö samtíðin hafi engan skilning á þeim og dæmi þann sem vinnur þau, sem latan hund. ÍBÚAR í ÚTHVERFUM bæj arins eiga við margvíslega erfið leika að búa, sem við, sem eig- um heima inn í bænum sjálfum þekkjum ekki. Þá vantar síma, lækna, lyfjabúðir og 'margt fleira Reykjavík þenst út, jafn vel meira en góðu hófi gegnir, og þó má segja að gott sé að borgum sé ekki kúldrað á lítið svæði. Hér fer á eftir bréf frá „Kleppsholtsbúa“ um vandræði þeirra. Bréfið hefur af vangá minni legið hjá mér nokkuð lengi og bið ég höfundinn, og íbúa í úthverfunum yfirleitt, af sökunar á því. „ÉG BÝ í KLEPPSHOLTINU. Fyrir nokkrum dögum þurfti næturlæknir til veikrar dóttur minnar. Ég hef ekki síma og á engan bíl. Ekki vildi ég ganga milli nágranna minna og vekja upp til þess að síma, svo mér var sá einn kostur að ganga um 5 km. leið niður í læknavarðstofu. Læknirinn var úti við vitjanir, en mér var lofað honum heim við fyrsta tækifæri. Hafði ég því litla viðdvöl og gekk heim. Var ég þá búinn að ganga um 10 km. leið, og verið nær tvo tíma í ferðinni. Eftir svo sem klukku- tíma kom læknirinn. Hann fyrir .skipaði að sækja lyf í apótekið.“ ,»EKKERT APÓTEK er í Kleppsholtinu, því eins og lcunnugt er, hefur landlæknir ekki leyft lyfjafræðingum að stofna þar apótek. Ég þurfti því enn í miðbæinn, en fékk nú -að fljóta með lækninum, enda þótt lionum sem öðrum sé óheimilt (Framh. á 7. siðu.) Rsykvíkingar, félög og fyrirtæki. Tökum að okk ur alls konar V'eizlur eftir miðjani þennan mánuð,, Reynið hina ágætu veizíusali aS HÓTEL RITZ. Sími 1385. Samkvæmt fyrirmælum 'laga nr. 58, 30. nóv. 1914, ber að framkvæma þrifaböðun á öllu sauðfé hér í lög sagnar'umdæmánu. Út af þessu ber öllum sauðfjáreigend um hér í bænum að snúa ser NÚ ÞEGAR til eftirlits mannsins með sauðíjárböðunum, lierra lögregluþjóns Stéfóns Thorarens&n. Sínrar 2374 og 1925. Borgarstjórinn í Reykjavík, 12. janúar 1948. GUNNAR THOROÐDSEN. Ýðublaði vantar fullorðið fólik og imglinga til blaðburðar í þessi hverfi: Vesíurgötu Hlíðahverfi Rauðarárholt Hringbraut Greítisgötu Talið við afgreiðsluna. / Álþýðublaðið. Sími Auglýsíð f Alþýðublaðinu háít úr því skorið, að ríkis- stjórnin er istaðráðdn í því að einbeita sér að því, að fórn al þýðustéttanna og launafólks ins í landinu í sambandi við framkvæmd dýrtíðarlaganna verði sem minnst, enda þola þær stéttiicr sízt auknar álög ur. En jafnframt er þjóðinni nú orðið ljóst, að hjóli verð bólgunnar hefur loksins ver- ið snúið við. Það er mikið afrek út af fyr ir sig fyrir ríkisstjórnin, að vísdtalan hefur á einum mán uði verið lækkuð um 9 stig. Það sýnir að við getum gert okkur góðar vonir um si'gur í baráttunni gegn verðbólg- unni og dýrtíðiiinni, ;&n sigur í þeiirri baráttu yrði trygging þess, að íslendingar gætu' un að blómlegu atvinnulífi í framtíðinni, og árangurinn af þeirri þróun yrði að sjálf- sögðu hvað mestur fyrir al- þýðustéttimar og launafólkið. Þetta er þjóðinni ljóst. Þess vegna fagnar hún hinum gleðilega byrjunarárangri dýrtíðarlaganna. * En það er til mannhópur hér á lahdi, sem harmar lækk un vísitölunnar og stöðvun niðurfærslu dýrtíðarinnar. Sá mannhópur er flokkur vina dýrtíðarinnar og verðbólgunn ar, Kommúniistaflokkurinn. Þjóðviijinn hefur það að segja á sunnudaginn um lækk un vísiitölunnar, að hún sé „aðei-ns rykský til að villa fólki sýn“ og að „hrinn eigin legi tilgangur sé að rýra kjör almennings“! Staðreyndin, sem leiðir í Ijós, að stóryrði kommúnlsta um dýrtíðariög- in væri fleipur eitt, á með öðrum orðum að vera „rýk- ský“, og verðlækkunin og lækkun vísitölunnar á að sanna, að hinn eiginliegi til- gangur sé að rýra kjör al- mennings! Slíkur er málflutningur þeirna pólitísku sky.nskipt- inga, sem fyrir tveimur vik um fu'llyrtu á alþingi og í mál gagni sínu, að vísitalan myndi fyrir áhrif dýrtíðarlag anna fara- upp úr öllu valdii og verða isitrax um ácamótin að minnsta kosti 350 stig. Um slíkan málflutnimg er vissu lega ástæðulaust að fara mörgum orðum. Hann dæm ir sig sjálfur, ©n blekkir eng an, sízt nú, þegar staðreynd irnar liggja fyrir. Hlutskdptii kommúnista í siambandi við dýrtíðarlögin og fraankvæmd þeirra verð ur hér eftir það eitt að ak- neytast við staðreyndirnar, og það er sannarlega óöfunds vert Mutskipti.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.