Alþýðublaðið - 21.01.1948, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 21.01.1948, Qupperneq 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ Miðvikudagui' 21. jan- 1948 *• ’ Úígefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þing-fréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h.f. FREGNIN, sem barst hing- að um síðustu helgi, af því, að FinnlancL hefði látið kúg- ast af Rússlandi til þess að framselja þrját’íu Eistlend- inga, sarri leiltuðu hæli's á Finnlandi í haust, af því, að þeir vildu ekki lifa við rúss- nesk yfirráð hei'ma á ættjörð sinni, vekur ýmsar hugleið- ingar, og þær ekki allar skemmtilegflir. * Það er ei'tt af mörgum, ömurlegum dæmum þess, hve slj.óir menn eru orðnir •fyrilr másþyrmingu frelsis og mannréttinda á þessum síð- ustu og verstu tímum ofbeld is og harðstjórnar í stórum hlutum heimsins, að slík fregn sem þessi skuli fara svo að segja þegjandi fram- hjá bæði blöðum og einstak- lingum. Sú var þó tfðin, að minnsta kosti á nítjándu öld, að það þótti ekki nema sjálf sagður réttur pólitískra flóttamanna, að fá að njóta gestrisni þeirra landa, sem þeir leituðu hælis í; og því betur hafa hin stóru og vold- ugu lönd lýðræoisin's, um- fram öll önnur Bretland og Bandaríkin, virt þann rétt fram á okkar daga. Það mundi1 hafa orðið stutt saga margrar frelsis- hetjunnar, sem við nú heiðr- um( ef þessi lönd lýðræðis- ins hefðu ekki orðið þieim, griðastaðir fyrir ofsóknum afturhalds og harðstjórnar, og gefið þaim starfsskilyrði til þess að halda áfram bar- áttunni fyrir hugsjónum sín •um. Mættu ekki hvað sízt allir sósíalistar minnast þess í dag, að því aðeins gat Karl Marx, hinn miklii brautryðj- andi verkalýðshreyfingarinn ar, lokið verki sínu „Kapí- talið“, sem síðan hefur verið leiðarvísir fyriir flesta sósíal- ista, að hið kapitalistíska, en þó lýðræðiissinnaða Bretland veitti Iionum gráðastað- í meira en þrjátíu ár Hvalrekinn. —- Féð og gjaldeyririnn. — Síldar- fluíniíigarnir. — Vinmimiðíun nauðsynleg. SÍLDVEIÐARNAR 1 HVAL- FIRÐI- eru búnar að gefa mikla vinnu, mikla peninga og mik- inn gjaldeyri. Og allt má segja að jþetta sé fundið fé fyrir verkamenn, sjómenn, útgerðar- menn, bifreiðastjóra og þjóðina í heild. í gær var skýrt frá þeirri geipivinnu, sem síldin skapar á Siglufiröi. Aílir, sem vettlingi geta valdið, stunda vinnuna, jafnvel skrifstofufólk í eftirvinnu og bændur frá bú- um sínum í Eyjafirði og víðar að. Ég hitti mann, sem er dul- trúar. Hann sagði að máttar- völdin hefðu alveg séérstaka velþókmin á íslandi og íslend- ingum. Og þau hefðu nú sent okkur síldina af því að dálítið hefði verið farið að syrta í ál- inn Iijá okkur. EN HVAÐ SEM ÞVÍ LÍÐUR, og það er næstum því eðlilegt að menn reyni að leita annar- legra skýringa á þessum svo að segja alveg nýja atvinnuvegi — þá getum við verið þakklát fyr • ir þennan mikla afla og allt, sem honum fvlgir. Enda er gleði yfir þessu öllu saman. Bara að hún spenni okkur ekki enn meir upp í taumlausri eyðslu og fyrirhyggjuleysi. STJÓRNMÁLAMAÐUR sagði við mig rétt áður en dýr- tíðarfrumvarpið var lagt fram: ,,Það er alls ekki víst að við þurfum að gera neitt til að sporna við dýrtíðinni svoköll- uðu. Það hefur allt breytzt með þessari miklu síldveiði. Við þurfum ekki að spara.“ Ég svaraði: „Aldrei mun ég kjósa þig í nokkra trúnaðarstöðu fyr ir þjóðfélagið. Ég vona að þú Ieitir ekki til mín.“ Mér fannst nefnilega að við ættum ekki að reikna með þessum hvalreka, en hafa hann sem varasjóð í framtíðinni. EN ÞAD VAR EKKI aðal- lega þetta, sem ég ætlaði að skrifa um í sambándi við síld- veiðarnar. Sjómenn höfðu sæmilega atvinnu, eða gátu haft áður en síldveiðin kom. Verkamenn höfðu líka nóga at- virinu. En vörubifreiðastjórar höfðu sáralitla atvinnu. Þess vegna mun engum þykja . eins vænt um síldveiðarnar og þeim. Þær hafa breytt öilum viðhorfum þeirra, — en þó að- eins þeirra, sem fá vinnuna. OG NÚ ER KVARTAÐ mjög undan því að ekki sé miðlað vinnunni meðal vörubifreiða- stjóra. Þegar vinna er lítíl hjá einhverri stétt, verður að miðla henni. Það var þetta, sem við sáum í gamla daga Alþýðu- flokksmenn og fengum lögin um vinnumiðlun sett. Mér er ) sagt að þeir sömu séu nær allt- af við síldarflutningana og vinni svo að segja nótt og dag. Þettá er ekki gott, og æskilegt að því væri brejrit, því að um þessar mundir hafa vörubif- reiðastjórar sáralitla aðra vinnu en við síldarfiutningana. Um þetta fékk ég bréf í gær frá G. J. Hún segir: ,»MIG LANGAR TÍL að fá upplýsingar hjá þér um mál, sem varðar mig og fjölskyldu mína miklu' -— og áreiðanlega fleiri. Svo er mál með vexti, að ég er gift vörubílstjóra, sem hefur stundað keyrslu í fjölda ára. Við eigum ung börn. Mað- urinn minn hefur verið at- vinnulaus í nokkrar vikur og farið víða í atvinnuleit, en án árangurs. Hann hefur hímt hjá vörubílastöðinni Þrótti, en litla úrlausn fengið. Svo þegar vinna hófst við síldarflutning- ana hýrnaði yfir bónda mínum, því þá bjóst hann fastlega við að fá atvinnu, — en það var nú öðru nær, aldrei hefur atvinnu- leysið hjá honum verið tilfinn- aniegra en nú.“ ,,EN MIG LANGAR til þess að spyrja þig að einu: Því er ekki vinnu við síldarflutning- ana jafnað niður svo allir vöru bílstjórar beri eitthvað úr být- uip:? Ég hef nefnilega heyrt að j sumir þeirra hefðu rífandi at-1 vinnu, og það venjulega þeir sömu. Getur það verið, að um kunningsskap einan sé að ræða í sambandi við þessa vinnu? Ef svo er, þarf að kippa þessu í lag strax, en ekki láta nokkra kunningja þeirra, sem sjá um flutningana, dansa í kringum gullkálfinn, en aðra horfa á löngunarfullum augum og Já hvergi að koma þar nærri.“ „ÉG OG BÓNDI MINN höf- um áhyggjuí. Hann átti gamlan ,,skrjóð“, en seldi hann og keypti sér nýjan traustan bíl. Skuldar hann mikla upphæð í sambandi við þessi kaup. Aumt væri ef hann yrði að láta af hendi framfærslutæki fjöl- skyldu sinnar vegna ónógrar atvinnu.“ í dómkirkjunni föstud, 23. janúar kl. 8,30 e. h. Sigurður Skagfield óperusöngvari Orgel: Dr. Páll ísólfsson. Oboe: Andrés Kolbeinsson. Viðf angsefni: Beetboven, Bacli, Reger, Brahms, Gounod, Rossini og Sveinbjörnsson. * Aðgöngumiðar hjá bókaverzlun ísafoldar og Ritfanga- verzlun ísafoldar, Bankastræti. "heldur AÐALFUND að Ilö&li fímmtudaginn 22. þ.'m. kl. 8 e. h. 1. Venjuleg aðaifundarstörf. 2. Gluntasöngvar: Egill Bjarnason og Jón Kjartansson, undirleikari Weisshappel. 3. Kvikmynd frá Heklugosinu: Kjartan O. v Bjarnason. . 4. Bans. Aðgöngumiðar fást í verzl. Sæbjörgu, Laugávegi 27- og við innganginn. Stjórnin. Tilkynning frá Barðstrendingafélaginu. Aðalfundi félagsins er frestaS til niánudags- ins 26. jan. kl. 8 s. d. Að öðru leyti 'samkv. bréfi. Stjórnin. vantar ungling til blaðburðar í SKEKJAFIRÐI. Talið við afgreiðsluna. Álþýðublaðið. Sími 4900. Kaupendur Álþýðublaðsins eru vinsamlega beðnir að láfa afgi'eiðslu blaðsins vita, ef vanskil verða á blaðinu, enn fremur að tilkynna bústaðaskipti. Það munu allir virða hinu litla, sigraða Finnlandi það til vorkunnar, þó :að það léti kúgast af hi num volduga rússneska nágranna og sig- urvegara til þess að fram- selja hina þrjátíu eistlenzku flóttamenn; því að Rússland hefur nú ráð Finnlands svo í hendi sér, að fyrir það mun varla hafa verið um nokkurt val að ræða í þessu máii En því murlegra hluitskipti hef- ur Rússland sjálft valið sér í því. Þetta land, sem kallar sig verkalýðsríki og kennir sig við sósíalisma, — hvort- tveggja að vísu með jafn- litlum rétti, — gengur nú fram fyrir skjöldu í því, að uppræta al'lt frelsi og öll mannréttindi í þei’m lönd- um, sem að því liggja, þar á meðal hinn heilaga rétt póli- tíska flóttamannsins, sem verkalýðsbreyfingin og sós- íalisminn eiga svo mikið að þakka frá upphafi og fram á okkar daga. En skömm hi'nna núverandi valdhafa Rússlands af þeirri kúgun, sem þeir í þessu1 skyni beita Finnland nú, verður tvöföld, þegar þess er minnzt, að á meðal þeirra mörgu póli- tísku flóttamanna, sem. ein- mitt Finnland hefur skotið skjólshúsi yfir í fortíðmni, voru margir þekktustu fo'r- ustumenn rússneska komm- únismans sjá'lfs, svo sem bæði Lenin og Stalin, sem þar leituðu hælis á keisara- tímunum til að haida flokks- ráðstefnur sír*ar og fela sig fyrir ofsóknum hinnar þáver andi harðstjórnar á Rúss- landii. Ýmsum mun nú verða á að hugsa, að Stalin og stjórn hans hefði mátt minnast slíkra staðreynda í dag. En því fer bersýnilega fjarri. Meira iað segja: Það, sem hin marglastaða rússneska keisarastjórn gerði aldrei, — að haimita pólitíska flótta- msnn framselda 'af Finn- landi, — það gerir hin ,,sós- íalistíska sovétstjórn“ í dag! Og slíkt og þvílíkt segja að- dáendur hennar, að sé fram- för í frelsi og mannréttind- um í heiminum!

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.