Alþýðublaðið - 25.01.1948, Síða 4

Alþýðublaðið - 25.01.1948, Síða 4
4 ALÞÝÆfrUBLAÐIO Sunnudagur 25. ian. 1948. Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Bitstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 490S. } Afgreiðslusími: 4900. 'j Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan luf. Sljómarkosningin í Dagsbrún. MÁLFLUTNINGUR Þjóð- viljans út af yfirstandandi stjórnarkjöri í Dagsbrún er fyrst og fremst hlægilegur, en jafnframt lýsir hami taug'a óstyrk kommúnista og gremju þeirra yfir því, að reykvískir verkamenn skuli ekki una ,,austræna lýðræð- inu“ í stéttarfélagi sínu. Blaðið endurtekur dag eftir dag, að fráfarandi Dagsbrún- arstjórn sé nú fastari í sessx en nokkru sinni fyrr, en þó birtir það hverja langlokuna annarri stóryrtari um íram- boð verkamanhalistans. Sá málflutningur verður varla skilinn öðruvísi en þannig, að kommúnistar óttist fylgis- hrun í Dagsbrún eða að þeim finnist það ófært, að tveir listar séu í kjöri í s'cærsta verkalýðsfélagi Jandsins. Sannleikurinn mun sá, að hvoru tveggja sé til að dreifa. Kommúnistum er enn niinn- isstæð allsherjaratkvæða- greiðslan í Dagsbrún, þegar þeir öttu félaginu út í hið pólitíska verkfall sitt í fyrr/i. Þá varð reykvískum verka- mönnum ljóst með gleggri hætti en nokkru sinni áður, hver eru vinríubrögð og bar- áttuaðferðir kommúnista. Mótstaða verkalýðsins við hin þjóðhættulegú áform kommúnista þá, skaut Dags- brúnarstjórninni slíkan skelk í bringu, að nú á hún þá ósk æðsta, að einn listi, listi frá- farandi stjórnar, sé í kjöri við kosningar í stjórn félags- ins og' trúnaðarráð. * Þjóðviljinn segir.um lista Verkamanna við stjórnar- kjörið í Dagsbrún, að hann sé fram borinn að áeggjan ríkisstjórnarinnar sem póli- tískur sundrungarlisti. Listi hinnar fráfarandi kommún- istastjórnar er hins vegar titl’aður sameiningarlisti. Slík eru orð Þjóðviljans. Fn stað- reyndirnar tala öðru máli. Fráfarandi Dagsbrúnarstjórn lót hlutverk sameiningarinn- ar lönd og leið, þegar hún var að sundra félaginu í fyrra og etja því út í hið pólitíska verkfallsbrölt kommúnista. Sameiningarskraf kommún- ista er enn éin sönnunin um það, að örgustu sundrungar- sepparnir góla hæst um ein- ingu verkalýðsins. Með sam- einingu í Dagsbrún eiga kom- múnistar við það eitt, að þeir séu einráðir í stjórn félagsins og trúnaðarráði og geti fram- kvæmt fyrirskipanir hinna póltísku húsbænda sinna í Miðgarði óáreittir af nokk- urri andstöðu eða mót- spyrnu. Listi verkamanna í Dags- brún er skipaður mönnum, sem hafa sýnt í verki, að Um hvað eru verkamenn í raun og veru að velja. 1 — Vilja verkamenn verkföll og vinnustöðvanir í vor? — Að því er stefnt og um það er kosið. — Enn um verðlag á saumaskap. — Upplýsingar frá klæðskera. ÞEGAR VERKAMENNIRN- IR í Dagsbrun ganga nú til kosninga á stjórn fyrir félagið sitt, eru þeir ekki aðeins að veija því menn til að stjórna því. Þeir eru um leið að greiða atkvæði um það, hvort félag þeirra á að Ieggja út í harðvít- ug verkföll í vor, um það hvort nota á verkalýðssamtökin eins og þau voru notuð í Frakk landi í haust og í vetur með þeim afleiðingum, sem það hafði fyrir franska alþýðu. All- ir, sem vilja þjóð sinni vel og hugsa af alvöru um framtíð hennar, skilja það, að nauðsyn- legt er að reyna að stemma stigu við vasandi dýrtíð og reyna að koma framleiðslu og atvinnumálum á öruggan grundvöll, svo að tryggt sé að aldrei komi aftur tímar á borð við þá, sem áður voru með at- vinnubótavinnu og hungurkvöl á heimilum verkamanna. EN STJÓRNENDUR Dags- brúnar, þeir sem nú sitja þar, stefna ekki í þessa átt. Þeir líta á Dagsbrún sem pólitískt tæki, sem nota beri til að styðja og efla pólitísk ævintýri eins flokks, og þó að það sé til ægi- legs tjóns fyrir alþýouna, rétt- læta þeir það framferði fyrir sjálfum sér með trúnni á það, að verkamenn uppskeri marg- faldlega ávextina í Sovét-ís landi. Ef kommunistar, sem nú stjórna Dagsbrún, telja kosn- ingaúrslitin í raun og veru traustsyíirlýsingu af hendi verkamanna á þeim, verður Dagsbrún att út í verkföll í vor í von um að allt logi í verkföll- um um leið um land allt. ÞAÐ ER ÞVÍ í raun og veru um þetta, sem verkamenn eru að greiða atkvæði í Dagsbrún í dag. Maður sér líka af blaði kommúnista í gær, að þessu er stefnt, því að þar er því haldið fram, að dýrtíðarlögin séu ekkert annað en þrælalög gegn verkalýðnum og dýrtíðin hafi ekkert lækkað, þó að hver ,einn og einasti heimilisfaðir og húsmóðir í bænum viti að vöru- verð hefur lækkað. Fyrirætlan- drnar eiga að byggjast á lygi af því að það er ekki hægt að byggja þær á sannleika. En til- gangurinn helgar meðalið í því sem öðru. KLÆÐSKERI kom að máli við mig í gær og sagði: „í tvo daga hefur þú birt bréf um saumaskap og verðlag hjá klæð skerum. Þar hefur jafnvel verið talað um að klæðskerar reyndu að snuða viðskiptamenn sína. Þetta þykja okkur stór orð og ekki réttmæt. Af tilefni þess- ara bréfa skal ég taka bað fram, að upplýsingar þeirra geta ef til vill staðist. Það kost- ar að saurna tvíhneppt föt með tilleggi kr. 600,00. Þar ef eru vinnulaunin ein kr. 418,45. — Einhneppt föt kostar að sauma með tilleggi kr. 585,00. Þar af eru vmnulaunin kr. 403,75.“ „ÞAÐ GETUR VERIÐ, að bréfritarinn hafi hins vegar, í öðru tilfellinu,. hitt á ldæð- skera, sem hafi átt gamlar I birgðir af tilleg'gi og því getað selt þao ódýrara, en þó tel ég. það vafasamt. Hitt er aftur á móti. kunnugt, að hraðsauma- stofur hafa lægri vinnutaxta en klæðskerar, og má vera að bréf- ritararnir hafi í síðari tilfellun- um farið til hraðsaumastofu og fengið saumað þar fyrir úægra verð en hjá klæðskera. Þetta þætti mér vænt um að þú tæk- ir fram til þess að forðast mis- skilning og ómaklegt ámæli í garð okkar klæðskeranna.“ MÉR ER AÐ SJÁUFSÖGBU Ijúft að gera það, en bréfritari minn fullyrðir, að hann hafi ekki farið í hraðsaumastofu. Hins vegar hef ég fengið upp- lýsingar um það, að verðlags- stjórí hefur leyft klæðskerum að taka 50 krónum meira fyrir föt, sem saumuð eru úr efni, sem komið er með til þeirra, heldur en þau, sejn saumuð eru úr efni, sem klæðskerar selja sjálfir. Má vera að munurinn liggi, að minnsta kosti að ein- hverju leyti, í þessu.. Ilannes á horninu. þeir kunna og vilja vinna fyr ir félag sitt á þeim grund- velli, sem er starfsvið félags- stjórnarinnar á hverjum tíma. Dagsbrúnarmenn þekkja Sigurð Guðmundsson að því að vinna heilt að mál- um þeirra, þegar honum eru slík störf falin, og væna hann aldrei um að vera viljalaust verkfæri í stjórnmálabarátt- unni. En Dagsbrúnarmenn vita meira. Þeir hafa fyrir sér dóm reynslunnar yfir frá- farandi stjórn félagsins. Hún hefur verið athafnalítil og á- hugalítil um þau ýmsu störf, sem hafa verið í verkahring hennar og hún af verkalýðn- um var kjörin til að rækja. En hún hefur verið önnum kafin við að sinna störfum hliðstæðum þeim, sem kom- múnistar halda fram, að Sig- urður Guðmundsson og fé- lagar hans muni fyrst og fremst láta til sín taka, ef þeim verður falin stjórn fé- lagsins. Hún hefur verið pójli- tískit verkfæri Kommúnista- flokksins. Hún hefur að vald- boði hans att félaginu út í pólitískt verkfallsbrölt, sem kostaði reykvíska verkamenn atvinnu og afkomu um lengri tíma. Að valdboði hans er hún að undirbúa nýja pcli- tíska verkfallsöldu, nýja að- för að aitvinnulífi og efnahag íslenzku þjóðarinnar. Starfs- Kvennadeíid Slysavarnsrfélags íslands í Reyk|avík, 'heldur fund mánudaginn 25. þ. m. í Tjarnarcafé kl. 8,30 s. d. Til skemmtúnar: Upplestur frk. Gunnþórun Halldórsdóttir. Heklukvikmynd Kjartan O. Bjarnason. Söngur nreð guítarundirleik Dans. Fjölmennið sundvíslega. Síjórnin. Hvernig er vexti og viðgangi kristn- innar lýst í Opinberunarbókinni? — Um þetía efni talar pastor Johannes Jensen í dag kl. 5 í Aðventkirkjunni (Ingólísstr.). Allir velkomnir. Handbók í logsoðy og rafmagnssuðu, fæst á skrifstofu Landssambands iðríaðarmanna,' í Kirkj u'hvoli. vantar ungling til blaðburðar í SKERJAFIRÐI. Talið við afgreiðsluna. Kaupnm hreinar léreftstu&kur. Alþýðupreritsmiöjan h.f. Kaupendur Álþýðublaðsins eru vinsamlega beðnir að láta afgreiðslu blaðsins vita, ef vanskil verða á blaðinu, enn fremur að tilkynna bústaðaskipti. menji Dagsbrúnar taka kaup sitt úr sjóði félagsns, en störf sín vinna þeir flest í þjónustu Kommúnistaflokks- ins. Skrif Þjóðviljans þessa dagana sýna bezt, að þessa aðstöðu vill Kommúuista- flokkurinn ekki missa. * Dgsbrún hefur verið gerð að pólitísku höfuðvígi kom- múnista í Reykjavík. Falli það vígi, er Kommúnista- flokkurinn orðinn áhrifalítill í stjórnmálum og verkalýðs - málum höfuðstaðarins. Þá eru og valdadagar kommún- ista í Alþýðusambandi ís- lands taldir. Þar með Væri runnin út í sandinn sú fyrir- ætlun kommúnista að beita verkalýðshreyfingunni fyrir pólitiskan vagn sinn og láta hana bera ábyrgð á óhæfu- verkum þeim, sem þeir vinna í blhadri baráttu sinni gegn rikisstjórn landsins og stjórn skipun þjóðarinnar. Kommúnistar óttast, að verkalýður Reykjavíkur bindist fyrr en síðar samtök- um um þetita nauðsynjaverk. Þeir vita, að þeir eru í minni hluta í Dagsbrún, ef and- stæðingar þeirra standa sam- an. Þess vegna froðufellir Þjóðviljinn nú af heift yfir verkamannalistanum við stjórnarkjörið í Dagsbrún.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.