Alþýðublaðið - 13.02.1948, Side 4

Alþýðublaðið - 13.02.1948, Side 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ Hugrakkir brautryðjendur. — Upp með harkið og niður með hæstarétt! — Talað við ,,kolIega“. EF MENN HAFA haldið það, að fólksbifreiðastjórar í Reykja vík væru ekki karlar í krapinu, þá hefur það nú sýnt sig að þeim hinum sömu hefur skjátl- azt hrapallega. Þeir gerðu verk fall gegn hæstarétti, og ég lield að mér sé óhætt að segja, að það séu alger einsdæmi í sögu verkalýðsmálabaráttunar, að stétt hefji verkfall gegn æðsta dómstóli þjóðarinnar. En um þetta má segja eins og sagt er, að einu sinni verður allt fyrst. Og það fer kannske bara vel á því, að fólksbifreiðastjórar ríði á vaðið á svo myndarlegan og hugrakkan hátt. MÉR BETTUR EKKI í hug að halda það, að bifreiðastjór- um hafi gengið annað til en frelsisást og hugsjónir. Það er hróplegt ranglæti að þeim skuli ekki leyft að „harka“. Það er allt of lítið að hafa ekki nema 40 praktiserandi bifreiðar í gangi á næturna, og það er hið hróplegasta ranglæti af hæsta- rétti að álíta að stjórnarvöld landsins geti takmarkað „hark- ið“. En sumir' ei’u að halda því fram að ýmsar stoðir hafi aðr- ar hnigið undir ákvörðunina um verkfallið. ÉG ÓK NOKKUÐ í leigubif reiðum daginn fyrir verkfallið. Það var bölvuo ófærð og harsl á götunum. Tveir bifreiðastjór- ar sögðu mér, að það væri í raun og veru alls ekki hægt að keyra. Það væri mikið um á- rekstra og svo eyddist svo mik ið benzín í svona færð, að það borgaði sig ekki að aka með sama taxta og gilti og væri mið aður við miklu minni benzín- fiotkun en væri á svona snjóa- dögum. Og ég veit af reynzlunni að þetta er alveg rétt athugað. „EN AF HVERJU hættið þið þá ekki og takið ykkur frí með an færðin er svona slæm?“ Þann ig asnaðist ég til að spyrja. Og ég bætti við. „Þið, sem eruð svo friðsamir og gerið aldrei verkfall ættuð bara að fá ykk- ur frí í tvo þrjá daga.“ Og ekki varð ég minni asni við viðbót- ina. „Já, þú segir nokkuð?“ svar aði vinur minn. Svo varð hann hugsi og svo borgaði ég honum og fór. — Næsta morgun þurfti ég enn að fá bifreið — en greip í tómt og svo fékk ég skýringuna. Samstundis greip mig kvölin._Skyldi það hafa ver ið ég sem átti upptökin? Ég nefndi þetta við mann og hann sagði að ég væri ,,innbildskur“. Og það er ég víst. ÉG LEGG EKKI í vana minn að vera að rífa í mig „kolIega“ mína og geri það aldrei að fyrra bragði. Hins vegar sný ég upp á nefin á þeim dálítið harkalega ef þeir grípa eftir eyrnasneplinum í mér. Ég fæ oft bréf með bullandi skömm- um um „kollegana“, en ég birti þau ekki. Jónas í Þjóðviljanum birti í gær bréf, þar sem hann var ákaflega lofaður fyrir fram göngu í svívirðingum um mig og Víkverja. Þetta er svo sem ekki tiltökumál. Og sjálfsagt er að sá hljóti lof sem til þess vinn ur. ÉG VIÐURKENNI LÍKA, að Jónas er stórveldi, einkennilega magnaður stríðsjarl þegar tekið er tillit til þess, að hann virðist allt af vera að sofna. Það er svona eins og allt hugrekkið sé í fingrunum á honum. Annars er þetta nagg út í „kollegana“ ef til vill vottur um efnisfátækt. Og er það þó varla trúlegt þeg- ar Jónas á í hlut. Hann er ný- frelsaður og nýfrelsaðir menn eru jafnan ofstækisfyllstir, að minnsta kosti verður þeim sjald an svarafátt. Hannes á horninu. í SÍÐAST liðinni viku gerði Bóas Eydal, Borg Njarð vík, Norður-Múlasýslu óvirk 3 tundurdufl á eftirgreindum' stöðum par eystra: Þorvalds stöðum, Núpssandi og Strand höfn. í sömu viku' gerði Skarphéð inn Gíslason, Hornafiíði, ó- virk 2 tundurdufl á Tjarnar- sandi og Byggðarholtsfjöru í Lónsvík. Skv. upplýsingum frá Skipaútgerð ríkisins. Útgefandi: Alþýðuflokknrinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Beneðikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsimar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Affsetur: Alþýffuhúsiff. Alþýffuprentsmiffjan h-f. Vartiugaverf verfcfall ÞAÐ leikur ekki á tveim- ur tungum, hve þýðingarmik ið vopn verkfallsrétturinn er fyrir verkalýðinn í baráttu hans fyrir bættum kjörum. En jafnvíst er hitt, að hann er tvíeggjað sverð, sem, ef mlisbeitt er, getur skaðað ekki aðeins allan almenning, heldur og verkalýðinn sjálf- an. Því er það nauðsynlegt, að þjóðfélagið satji lög og reglur um notkun hans', og að þeir, sem verkalýðurinn trúir fynir sínum málurn, gæiti sín. vel fyrir því, að misnota hann. * Því miður verður það ekki sagt, að slík gætni hafi verið viðhöfð, ;er verkfall það var ákveðið, sem leigubílsitjórar í Reykjavík eiga nú í. Eftir því, sem upplýst hefur verið af samgöngumálaráðuneyt- inu, er það greinilegt brot á gerðu samkomulagi við sjálf an félagsskap bílstjóranna. Það hefur sem sagt verið upplýst, ac5 því er virðiat með óhrekjandi rökum, að þær takmarkanir á næturakstri Ieigubílstjóranna, sem þeir telja sig vera að mótmæla með verkfallinu, hafi verið gerðar með fullkomnu. sam- komulagi við félagsskap þeirira. Það er og sannast að segja, að hingað til hefur því ekki verið móitmætt. Hins vegar er það kunnugt, að þetta samkomulag og sú reglugerð, sem á því var byggð, vegna gjaideynis- skorts og þar af leiðandi ben- zínisiskorts, hefur verið brot ið. En það er fyrst í þessari viku, eftir að hæstiréttur hafði kveðið upp dóm, sem .staðfestii rétt stjórnarvald- anna til þess, að takmarka n æturaksturi n n, sem reglu- gerðinni um hann er opin- berlega mótmælt af Ieigubíl stjórunum, og það* með verk falli. Gerir það málstað þeirra óneiitanhega enn þá varbuigaverðani; 'því að verk fallið er ger.t sem eins konar mJóitm'æXi gegn. hæstaréttar- dómimum og þar með gegn lögum og rétti. * Það er í sjálfu sér enginn stórviðburður, og almenning ur mun ekki fi.nna mikið til þess, þó að ekki sé hægt að fá bíl í sexstíu klukkustundir, og jafnvel þótt Iengur væri. En hiitt er alvarlegt, að til- tölulega fámenn stétt skuli leyfa sér að beita vopni verk fallsins ekki aðeins á móti gerðu samkomulagi við fé- lagsskap hennar, heldur og á móti lögum og rétti í land- inu. Og það bendir citvírætt til, að í verkfallinu séu öfl að verki, sem framandi eru íslenzkri löghlýðni og ís- lenzkri ábyrgðartilfinningu. Það er vafalaust rétt hjá Ieigubíls.tjórunum, að tak- markanirnar á næturakstri þeirra valdi þeim töluverð- urn tekjumissi; en hinu verð ur heldur ekki mótmælt, að þær takmarkanir eru gerðar af knýjandi nauðsyn, vegna þess gjaldeyrisskorts, sem þjóðin á i bili við að stríða; og af hans völdum verða all ar stéttir nú að sætta sig við nokkur óþægindi. En alveg án tillits til þess, hefðu laigu bílstjórárnir og félagsskapur þeirra átt að hafa önnur sihni óánægju á framfæri. Samgöngumálaráðuneytið sýndi það þegar í haust, er reglugerðin um næturakst- urinin var , sétt, með sam- komulagi vjð bílstjórafélagið eftir að úpphaflegur benzín skammtur þeirra hafði þó verið aukinn stórlega sam- kvæmt tilmælum þeirra, að ríkisstjórnin vill hafa við leigubílstjórana vinsamlega samvinnu, .eins og við allar stéttir- En hvorki hún né nokkur, isem hugsar um fram tíðarvelferð þjóðarheildar- innar, getur tekið því með samþykki, að lítill hópur gangi í berhögg við lög og rétt til þess að knýja fram sínar sérhagsmunakröfur. Töstudagur 13. febiúar 1348 (innanhúss) Meistaraflokks karla hefst í kvöld að Háloga- landi kl. 8. Þá keppa og F Ferðir frá Ferðaskrifstofu ríkisins við Arn- arholtstún frá kl. 7.15 og frá Hafnarfirði kl. 7 við Álfafell. — Fylg'ist með frá byrjun. Knattspymuféiagið Haiáar Heimsfræg frönsk barnabók, öðru nafni: Bó'kin’ er gefin út til ágóða fyrir byiggingarsjóð Tón- iisitarskólans í Reykjavík. Hver, sem eignast o« gsfur eintak af „Ka'ttakiúbbnum“, hefur lagt •siinn skerf í Tónlistarskóiabygginguna. Gefið öllum kröklLum Kattaklúbbiim. — Fæst í bókabúðum og sendum um allan bæ. Toniistarfélagið . Sími 5314. Fundur um dreifíngu innflufningsins hafinn 23 FULLTRÚAR frá kaup- stöðum utan Reykjavíkur komu í gær saman á fund hér í Reykjayík til þess að ræða skiptingu innflu'tningsins milli hinna einstöfcu landshluta. Byrjaði fundurinn, sem kom saman að Hótel Borg, á því' að kjósa fimm manna nefnd til þess að samræma tiJlögur. hinna ýmsu fulltrúa, og verða þær síðan iagðar fyrir fund- inn. Jakob Frímannsson kaup- félagsstjóri á Akureyri var kosinn fundarstjóri, og Svavar Guðmundsson, eimiig frá Ak- ureyri, var kjöriiin ritari. iesil iklþýðubiaðið

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.