Alþýðublaðið - 03.03.1948, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Miðyikudagur 3. marz 1348.
Útgefandi: Alþýð'uflokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Inngfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4903.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan h-f.
Lærdémar viðburS-
mna í Tékkóslóvakíu
KOMMÍJNISTABYLTING-
IN I TÉKKÓSLOVAKIU —
því að það, og ekkent minna,
eru þeir viðburðir, sem þar
hafa gerzt síðustu dagana —
ex fyrir heiminn lærdóms-
ríkur vottur þess, hvaða
hkrtverk kommúnistaflokk-
arnir leika eftir aðra heims-
styrjöldina.
*
Sem kunnugt er reyna
kommúnistar hvarvetna að
vinna sér fylgi undir yfir-
skini þess, að þeir séu sósíal-
istískur flokkur, sem sé að
berjast fyrir bættum kjörum
verkalýðsins og nýjú þjóð-
skipulagi, þar sem fram-
leiðslutækin séu þjóðnýtt.
En með þetta fyrir augum
var gersamlega ástæðulaust
fyrir kommúnista að gera
byltinguna í Tékkóslóvakíu;
tilganguir þeirra hlýtur því
að hafa verið einhver annar.
Síðan í stríðslok hefur
samsteypustjórn allra flokka
í Tékkóslóvakíu, síðustu tvö
árin undir forustu kommún-
isfa, sem ireyndust stærsti
flokkurinn við kosningarnar
þar 1946, þjóðnýtt, með full-
komlega löglegum aðferðum,
þrjá fimmtu hluta allra fram_
leiðslutækja í landinu, þ. e.
yfirleitt alla stóriðju þar.
Um það var gerður samning-
ur með flokkunum strax
eftir stríðið, og hefur hann
verið starfsgrundvöllur stjórn
arinnar. Þannig hafði sósíal-
isminn þegar raunverulega
sigrað í Tékkóslóvakíu á
lýðræðislegan og friðsamleg-
an hátt; og viðreisn atvinnu-
lífsins hafði gengið betur þar
en í flestum öðrum löndum á
meginlandi Evrópu.
Því var þess vegna fyrir
(kommúnista ekki til að
dreifa, að neina byltingu
þyrfti í Tékkóslóvakíu til að
koma á sósíalismanum eða
tryggja hann í landinu. Enda
var það annað, sem fyrir
þeim vakti.
*
Þó að Tékkar séu slavnesk
þjóð, hefur menning þeirra
mótazt miklu meira af vest-
rænum frelsishugsjónum, en
austrænu einveldi. Lýðræði
og almenn mannréttindi hafa
því verið haldin í miklum
heiðri í Tékkóslóvakíu. Og þó
að þjóðin hafi, einkum eftir
aðra heimsstyrjöldina, á-
stundað einlæga vináttu við
hið volduga stórveldi slav-
neðku þjóðanna, Rússland, til
að tryggja sér stuðning þess
gegn þýzku hættunni, sem
Tékkar fengu svo dýrkeypta
reynslu af í styrjöldinni,.
lögðu þeir ekki síður kapp á,
að eiga vingott við Vestur-
veldin. Þeir eru á mótum
vesturs og austurs í Evrópu
og vildu fá að vera sjálfstæð
Menntaskólaleíkurimi. — Smjörleysið. -—
Rjómasalan. — Raddir frá Akureyri. — Hvað
veldur? — Nokkrar snurningar.
MENNTASKÓLANEMEND-
UE skemmta Reykvíkingum
vel um þessar mundir. J>að er
gúður siður þeirra að taka upp
Ieiksýningar á hverjum vetri —
og sá siður má aldrei leggjast
niður. Það eiga þeir að sjá um,
en það eiga líka Reykvíkingar
yfirleitt að hjálpa þeim til að
sjá um. Það hefur alltaf verið
ósvikin gleðistund að sækja
sjónleiki þeirra og svo er enn.
Þó að segja megi að liér séu
viðvaningar á ferð, þá man ég
ekki að mér hafi nokkru sinni
Ieiðst í leikhúsinu hjá þeim.
GLEÐILEIKURINN, sem
Menntaskólanemendurnir sýna
nú, er frá upphafi til enda bráð
skemmtilegur, en hann hefur
líka sérstakan boðskap að
flytja. Það eru ekki bara hlátr-
ar og fyndni, heldur líka ádeila.
Þó að segja megi að ekki séu
margar fjölskyldur eins og sú,
sem fer um sviðið í Iðnó nuna a
kvöldin, þá eru þær þó til, til-
gerðarlegar, hégómlegar, sam-
haldslausar, á reki. — Og bak
við alla kímnina er eins og mað
ur sjái sársaukadrætti. En þann
ig eru líka góð leikrit oft.
UM FÁTT ER NÓ meira tal-
að en smjörleysið. Fólk veit um
smjörkaupin frá Danmörku.
Þeim mun lokið að sinni. Hús-
mæðurnar hérna í Reykjavík
skammast út afs mjörleysinu.
Og þær skammast líka út úr
því, að fá ekki rjóma. Ég
sá í Akureyrarblaði bullandi
skammir út af smjörleysinu
þar. Þar segir meðal annars að
það sé blóðugt að sjá rjóma-
brúsana standa í röðum á leið
til Reykjavíkur, en akureyrsk-
ar húsmæður geti ekki fengið
smjör.
JÁ, ÉG GÆTI TRÚAÐ því
að húsfreyjunum á Akureyri
sviði þetta í augum. Og mig
langar að spyrja: Liggur hund-
urinn þarna grafinn? Er ástæð-
an fyrir því að ómögulegt er að
fá íslenzkt smjör sú, að rjóminn
sé seldur. Það er oft hægt að
snúa út rjómalögg hér í búðun
um, en smjör aldrei. Ef svo er,
hvernig stendur þá á því?
Rjóminn er fyrst og fremst not-
aður í kaffi hér í Reykjavík.
Og rjómalaust kaffi vorkenni
ég engum að drekka, því bezt
er það svarti Auk þess er það
alveg víst, að það eru ekki
nema sárafáir sjúklingar, sem
þurfa að hafa rjóma, en smjör
þurfum við öll að hafa.
í AKUREYRARBLAÐINU er
drepið á það, að skýringin á
þessari taumlausu rjómasölu og
smjörleysinu sé sú, að framleið-
endurnir vilji miklu heldur
selja rjómann vegna þess að
þeir fái miklu meira fyrir hann
heldur en smjörið, þó að það sé
dýrt. Og meðan svo sé að farið
sé ekki von á góðu. Ég veit ekki
um sönnur á þessu. Ég veit ekki
hvort rjóminn, sem seldur er,
er svo mikill að nægja myndi
til allmikillar smjörframleiðslu,
en ef svo er, þá tel ég rangt að
farið. Vildi ég að stjórnarvöld-
in athugi þetta og það nú þegar.
HÁVÆRAR RADÐIR eru um
það, að smjör sé selt í allstórum
stíl á svörtum markaði. Ég hef
mikla tilhneigingu til að halda
að þetta sé ekki rétt. Að vísu
geri ég ráð fyrir að eitthvað af
smjöri fari þessa leið til neyt-
endanna, enda mun það vera
rétt að bændur hafi varla frið
fyrir upphringingum og bréfa-
skriftum fólks í Reykjavík, sem
er að biðja um smjör — og býð-
ur þá gjarna mjög hátt verð.
Getur þá nokkur láð bændum
það, þó að þeir selji smjör nokk
uð á þennan hátt? Ég geri það
ekki. Mórallinn er ekki svo
góður hjá okkur.
Strætisvagnastjórar
hafa samið
SAMNINGAR tókust aðfara
nótt an'ánudagsins fyrir milli-
göngu sáttasemjára rkisins
milli bílstjóra á strætisvögnun-
um og Reykjavíkurbæjar.
Voru ýinsar breytingar gerS
ar frá fyrri samningi, og er nú
aðeins einn launaflokkur í stað
þriggja áður. Þá fá vagnstjór-
arnir greidda alla helgidaga-
vinnu, og sú breyting verður
á, að vagnarnir byrj-a ekki
akstui’ á sunnudagsmorgnum
fyrr en kl. 10 í stað kl. 9 áÖur.
Nokkrar fleiri breytingar
munu og ihafa verið gerðar.
þjóð og helzt brú á milli
beggja þessara beima. Hjá
engum mun þessi .stefna hafa
verið eins gerhugsuð og hjá
Benes, hinum aldna itals-
manni lýðræðisins í Tékkó-
slóvakíu og núverandi forseta
landsins; en íenginn vafi leik-
ur á að yfirgnæfandi meiri-
hluti þjóðarinnar fylgdi
þeirri stefnu hans.
En Rússland leit öðrum
augum á stöðu Tékkóslóvakíu
í Evrópu. Sjálfstæði hennar
og frelsi lá því í léttu rúmi.
Það heimtaði innlimun lands-
ins í leppríkjakerfi sitt í
Austur-Evrópu með þá þriðju
heimsstyrjöld fyrir augum,
sem það og allir kommúnist-
ar telja óhjákvæmileiga og eru
nú í írafári að undirbúa. Þess
vegna gerðu kommúnistar
byltinguna í Tékkóslóvakíu,
*
Niðurstaðan er þá þessi:
Til tryggingar sósíalisman-
um og bættum kjörum verka-
lýðsins þurftu kommúnistar
ekki að gera byltinguna í
Tékkóslóvakíu. Með slík
markmið fyrir augum þurfti
Auglýsið í Alþýðublaðinu
VICTOR kvikrnjmdavélar hafa gefizt sérstaklega
vél hér á ilandi. Framleiðsla þeirra í Englandi er
nú hafin í stórum stíl, og getum við útvegað sýn-
ingarvélar og búnað þaðan nú þegar, ef gja'ldeyr-
is- og innflutningsleyfi eru fyrir hendi.
Verðið er fyllilega isamkeppnisfært.
VICTOR kviikmjuida-sýningavélin er fræg fyrir
öryggi, einfaldleik í meðferð, góða endingu, að
fara vel með filmurnar, skýr litbrigði og góðan
tón. — Við munum sjá um viðhald og viðgerðir
vélanna og kappkosta að hafa ávallt fyrir hendi
nauðsynlegustu varahluti.
Umboðsmenn á íslandi fyrir
Vietor Animatograph Corporation (Lonclon) Ltd.
Radio & Rðflækjasfofan
Óðinsgötu 2. Sími 3712. Sím'nefni ROR. Box 735.
Að gefnu tilefni vill skömmtunarskrif-
stofa ríkiskis vekja athygli iðnrekenda og
verzlana á því, að óheimilt er að selja
nerna samkvæmt einingarkerfinu þær ís-
lenzkar iðnaðarvörur, er urn ræðir í aug-
lýsingu skömmtunarstióra nr. 1 1948, og
að fenginni skriflegri heimild skömmtun-
arstjó'ra, enda séu slíkar vörur greinilega
merktar með orðunum: „íslenzkur iðnað-
ur“.
Eftir 5. marz n. .k verða þeir, sem brjóta
þessi ákvæði látnir sæta ábyrgð sam-
kvæmt lögum og reglugerð.
Reykjavík, 28. febr. 1948.
SKÖMMTUNARSKRIFSTOFA RÍKISINS.
ekki að brjóta á bak aftur
lýðræðið og þingræðið í land-
inu, — og því síður að fyrir-
skipa myndir af Stalin- í öll-
um skólum þess.En til þessað
svipta Tékkóslóvakíu sjálfs-
ákvörðunarrétti sínum, gera
hana að leppríki Rússlands
og verkfæri í nýrri heims-
styrjöld var þetta allt nauð-
synlegt. Því var byltingin
gerð; og því verður tékkneska
þjóðin nú um fyrirsjáanlega
framtíð að sætta sig við er-
lent ok, fangelsanir, ritskoð-
un, réttleysi og hvers konar
öryggisleysi, eins og þegar
þýzki nazisminn hélt henni
undir oki sínu á ófæiðarárun-
um.
Að vera slík fimmta her-
deild Rússlands, — það er
hlutverk kommúnistaflokk-
anna, hvar í heiminum sem
er á okkar dögum. Við verka-
lýð og, sósíalisma á mold-
vörpustarf þeirra ekkert
skylt. Hafi mtenn ekki ;séð það
áður, þá geta þeir séð það a£
framferði þeirra í Tékkósló-
vakíu. í