Alþýðublaðið - 13.03.1948, Síða 4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Laugardagur 13- mar?»iÍ948.
Útgefanöi: Alþýðuflokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt -Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Afgreiðsla
fjárlaganna
AFGREIÐSLA FJÁRLAG
ANNA er orðin næsta um-
fangsmikil, ,enda má segja,
að hún taki alþingi æ lengri
tíma með hverju ári, sem líð
ur. Það, hversu seint gengur
að afgreiða fjárlögin ár
hvent, er þó vafalaust ekki
síður því að kenna, hvaða
vinnubrögð eru við höfð í
þessu efni, en vaxandi bákni
fjárlaganna í mynd talna og
blaðsíðufjölda.
Nú orðið tekur fjárlaga-
frumvarpið hverju sinni all-
verulegum breytingum frá
því að það kemur frá hendi
fjármálaráðherra og þangað
til alþingi hefur afgreitt það:
Raunar er alltaf sagt, og
vissulega með nokkrum
sanni, að meginatriði f járlaga
frumvarpanna séu óbreytt.
En breytingarnar á hinum
ýmsu liðum hafa þó sín rniklu
áhrif. Safnast þegar isaman
kemur, og sjónarmið alþingis
í sambandi við afgreiðslu
fjárlaganna eru mörg og
margvísleg. Fjárveitinga-
nefnd hefur sín sjónarmið og
einstakir þingmenn sín sjón-
armið; a-llir eiga bágt með að
sætta sig við, að ekki isé geng
ið til móts við óskir þeirra,
sem flestar hníga að hækkun
gjaldaliðanna, og það er leit-
azt við að gera öllum tll hæf
is að meirá eða minna Ieyiti.
Frumvarpið til fjárlaga
fyrir árið 1948 fer fram á
hærri fjárlög en nokkru sinni
fyrr eins fjármálaráðherra
býr það í hendur alþingis.
En þó fer því fjarri, að al-
þingi telji nógu langt gengið.
Fjárveifinganefnd vill hækk
un á gjaldaliðum frumvarps
ins, sem nemur nær fjórum
milljó.num. Einstakir þing-
menn vilja fá tiltekna liði
hækkaða og nýja liði tekna
upp.
Flokkur st j órnarandstöð-
unnar vill hækka útgjöldin,
nokkuð á annan milljónatug
og segir, að hækka megi
áætlaðar tekjur um nokkrar
milljónir. Það er líka auðvit
að hægurinn hjá að gera á
pappírnum- En sá galli er á,
að það er ástæða til þess að
ætla, að tekjurnar séu áætl-
aðar of háar, en ekki of lág-
ar!
Þannig eru viðhorfin varð
andi afgreiðslu fjárlaganna
nú. En þetta er svo sem ekki
nýtt. Saga undanfarinna ára
er aðeins að endurtaka sig
einu sinni enn.
*
Það liggur í augum uppi,
Bifreiðarstjóri skrifar um ófæra Suðurlands-
braut. — Hvers vegna fór rannsóknarnefndin
ekki á slysstaðinn fyrr en daginn eftir? —
Prentnemi skrifar um misnotkun á prentfrelsi.
BIFREIÐASTJÓRI skrifar
mér á þessa leið. „Það virðist
eins og vegayfirvöldin hafi ekki
farið um Suðurlandsbrautina
milli Laugavegar og Tungu upp
á síðkastið. Að minnsta kosti er
alveg óhugsanlegt að þau létu
dragast svona lengi að láta
gera við hana ef þau vissu
hvernig vegurinn er. Svo má
segja að hann sé ekki aðeins ó-
fær heldur er hann líka stór-
hættulegur. Vegurinn er allur
sundur étinn og holurnar djúp
ar, sérstaklega við báðar vegar
brúnir. Bifreiðar verða að
sveigja stöðugt inn á veginn og
veldur það aðalléga árekstrum
og mildi að ekki verða þarna
slys daglega.
ÞUNGIR SIÍATTAR hvíla á
okkur sem höfum atvinnu af
bifreiðaakstri og viðhald vagn-
anna er afskaplega dýrt. Það
er því krafa okkar til yfirvald-
anna að svo mikið viðhald sé á
vegunum, að hægt sé að telja þá
færa, en. það er ekki hægt að
segja um þennan slæma kdíla
Suðurlandsbrautar. — Auk
slysahættunnar, sem þetta veld
ur, höggvast sundur hjólbarð-
arnir og eins og nú er hljóta
menn að skilja, að þetta er mik
ið tjón fyrir okkur sjálfa, en
einnig fyrir afkomu þjóðarinn-
ar, sem er í gjaldeyriserfiðleik
um. Það er því hraksmánarleg
eyðsla samfara þessu. Og einn
ig það má ekki láta óátalið.“
J. H. SKRIFAR mér á þessa
leið í gær. ,,Þú birtir í dag skil
merkilegar og sannarlega tíma
bærar hugleiðingar af tilefni
hinna tíðu flugslysa hér, og seg
ir að lokum, að orsök slyssins á
Hellisheiði verði athuguð eins
og hægt er. þetta telja allir nauð
synlegt og sjálfsagt. — En hvern
ig stendur á því, að rannsókn
. arnefnd lögreglu og flugsérfræð
inga fór ekki á slysstaðinn til
rannsóknar fyrr en daginn eftir
að flakið fannst, en þá hafði
fjöldi manns spígsporað á slys
staðnum og rótað í brakinu?“
PRENTNEMI SKRIFAR:
„Bæjarpósturinn gerir grein er
nefnist: „Ég kaus frelsið“ að um
ræðuefni. Þjóðviljinn heldur því
fram, að vikublaðið ,,Fálkinn“
hafi farið út af hlutleýsislínu
sinni með því, að birta áður-
nefnda grein. Þetta má vel
vera, en hvers vegna mótmælti
Þjóðviljinn þá ekki þegar
,,Fálkinn“ birti grein er nefnd-
ist: „Hver tekur við af Stalin?“.
Grein þessi var samansoðið hól
um ýmsa af fremstu möúnum
Rússlands. Þetta held ég að
hafi verið engu að síður áróð-
ur. En af því að greinin var
Rússum í vil, þá hefur það lík-
lega verið gott og blessað. En
hvað hlutleysi ,,Fálkans“ við-
kemur hefur mér,' sem lesanda
hans, virzt, að ,,Fálkinn“ fylgi
hinni gullvægu hlutleysisreglu,
að birta greinar, sem túlka mis
jafnar skoðanir. Eftir slíkan lest
ur er lesandanum mögulegt að
draga sínar eigin ályktanir".
„HVORT AÐ GREIN SÚ,
er Bæjarpósturinn ræðst á er
rétt eða röng, skal ég ekki dæma
um, en hún virðist hafa komið
við auman blett hjá Rússa-vin
unum og það finnst mér benda
til þess að eitthvað sé rétt í
greininni, því annars held ég,
að þeir hefðu látið hana, sem
vind um eyrun þjóta. Annars
væri það óskandi að Þjóðvilj-
inn færi að lækka segl orða-
flaums síns og stóryrða, því mér
finnst það vera misnotkun á
hinu dásamlega prentfrelsi, sem
enn ríkir hér, að birta slíkt dag
eftir dag.“
að fjárlögin eiga hverju sinni
að spegla viðhorfin á
sviði fjármálalífs og atvinnu
lífs þjóðarinnar. Það verður
að leggja á það áherzlu, að
iföstu skipulagi verði komið á
framkvæmdir ríkisins á
hverjum tíma og hinu óskyn
samlega og óhagkvæma kapp
hlaupi um framlög til þessa
og hins hætt; en heildar-
áætlun gerð og henni fylgt.
Alþingi hefur afgreiðslu
fjárlaganna að viðfangsefni,
en vand:,nn af framkvæmd
þeirra er því óviðkomandi;
hann kemur í hlut ríkis-
stjórnarinnar. Sé stjómar-
völdunum ekki auðið að
framfylgja fjárlögunum í
fleiri eða færri atriðum eins
og fyrir er mælt, telst það
sök ríkisstjórnarinnar, enda
þótt . í raun réttri ætti að
færa hana á reikning alþing
is.
Það ber að leggja á það
áherzlu, að reynt verði að
bæta úr þeim ágöllum, sem
nú eru á afgreiðslu fjárlag-
anna. í stað togstreitunnar
verður að koma iskipulag, og
sá aðili, sem ábyrgð ber á
framkvæmd fjárlaganna verð
ur að hafa óbundnari hend-
ur um, hver þau fjárlög
verða, sem hann á að starfa
samkvæmt, en nú er.
Það yrði tvímælalaust til
góðs fyrir framkvæmdir rík
isins og afkomu landsins, að
að hætt yrði að hafa þann
hátf á afgreiðslu fjárlaganna,
sem nú er. Núverandi ’fyrir-
komulag á afgreiðslu fjárlag
anna er sannarlega ekki
æskilegt fyrir framkvæmda
■stjórn ríkisins eða þegna
þjóðfélagsins — og síður en
svo fyrir alþingi, þegar öllu
er á botninn hvolft-
Gamanleikur i 3 þáttum eftir Noel Coward.
SÍÐASTA SÝNING
mánudag og þriðjuda'g kl. 8 síðd. í Iðnó. — Að-
göngumiðar seldir að báðum sýningunum í Iðnó
í dag kl. 2—6 og á mánudag eftir kl. 2.
H A F N A P F J A (? Ð A R
KARLI1SN 1 KASSANUM
Sýning á morgun (sunnudag) kl. 2.30.
Aðgöngumiðasala í dag frá klukkan 2.
Sími 9184.
DAI ISLEIKUR
í Tjarnarcafé í kvöld til ágóða fyrir barna- hjálp sameinuðu þjóðanna. — Dansleikurinn hefst kl. 9. — Húsinu lokað klukkan 10.30.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 5—7.
íjarnarcafé
Idri-dansarnir
í Aiþýðuhúsinu við Hverfisgötu í kvöld
hefst kl. 10.
Aðgöngumiðar frá kl. 5 í dag. Sími 2826.
IIARMONÍKUHLJÓMSVEIT Ieikur.
Leiðbeiningar frá
Keflavíkur-
flugvellinum
SKRIFSTOFA Keflavíkur-
flugvallarins hefur beðið blað-
ið fyrir eftirfarandi leiðbein-
ingar til þeirra, sem hafa í huga
að skoða flugvöllinn:
Skólar og aðrar stofnanir,
sem hafa ihug á því að skoða
Keflavíkurflugvöllinn, skulu
snúa sér til Ferðaskrifstofu
ríkisins, sem gefur allar upp-
lýsingar í þessu sambandi.
Æskilegt er að slíkar ferðir
séu tilkynntar með minnst eins
dags 'fyrirvara og að í hverri
hópferð séji ekki fleiri en 50—
60 manns, ef óskað er eftir veit-
ingum á flugviellinum.
r i
Hamarinn" vekur
mikla athygli
Einkaskeyti frá AKUREYRI.
LEIKRITIÐ „Hamarinn“
éftir Jafcob Jónsson var leikið
á laugardags- og súnnudags-
kvöld við húsfylli áhorfenda
og urðu margir frá að hverfa
síðara kvöldið. Lei'kurinn vek-
ur mikla athygli.
' — HAFR —
Málarameistarafé-
lagið safnar til
barnahjálparinnar
MALARAMEISTARAFÉ-
LAG REYKJAVlKUR hélt
aðalfund sinn síðast liðinn
sunnudag.. Formaður félags-
ins var kosinn Einar Gíslason
og er þetta í 17. sinn, sem
hann gegnir því starfi.
Aðrlir í stjórninni eru: Sæ-
mundur Sigurðsson, varafor-
maður, Jökull Pétursson, rit-
ari og Karl Ásgeirsson, gjald-
keri, allir endurkosnir, og
Óskar Jónsson, aðstoðar-
gjaldkeri.
A aðalfundinum vair sam-
þykkt að gefa 1000 krónur til
alþ j óða bar nahj álpar innar,
en auk þess gáfu fundarmenn
1100—1200 krónur, og er
stjórn félagsins nú að safna
meðal þéirra félagsmanna,
sem ekki hafa enn þá gefið í
söfnunina.
Félagið er 20 ára um þess-
ar mund'ir, og í tilefni af því
efnir það til hófs að Hótel
Borg laugardaginn 6. marz
næst komandi.
Á RÍKISRAÐSFUNDI í
gær var Ezra Péturssyni
lækni veitt héraðslæknisemb
eettið í Breiðabólstaðarhér-
aði.