Alþýðublaðið - 13.03.1948, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 13.03.1948, Blaðsíða 6
6 ALÞYÐUBLAÐIÐ Laugardagur 13. marz 1948. Filipus Bessason hreppstjóri: AÐSENT BRÉF: Ritstjóri sæll. Svo kann nú að virðast, sem tiiefni bréfs þessa sé livorki mikið né merkilegt, en það er, í fáum orðum sagt, fyr irbæri nokkurt, sem mér þykir hafa endurtekizt æði oft á al- þingi voru að undanförnu, og verða þær endurtekningar þá æ tíðari með degi hverjum, ef marka má þingfregnir útvarps ins, — en það hefur mér aldrei komið til hugar að efast um. Á ég þar við spurningar þær hinar mörgu, sem þingmaður einn lætur í eilífu rigna að 'höfuðrfíótum háttvirta þing- manna, eins og eldinum og brennisteinsaltpétrinum að Sódóma forðum. Ég vil taka það fram, að ég hef jafnan borið mikið tráust til þingmanns þessa, því margt hefur hann fyrir oss búendur vel gert. En þrátt fyrir það dylst mér ekki, að spurningar á þess um vettvangi geta kostað nokk uð fé, það er síðan verður sótt í vasa almennings, og vil ég því fara að dæmi hans, að nokkru leyti, og bera fram eftirfarandi fyrirspurnir; 1. Hversu margar spurningar hefur þingmaður þessi borið fram á þingi, síðan hann tók þar fyrst sæti? 2. Hve mörgum þeirra hefur verið svarað? 3. Hversu Iangan tíma hafa spurningar hans og svör við þeim dregið frá öðrum, — ef til vill nauðsynlegri, — þing- störfum, og hversu miklu nem ur sá kostnaður, er fyrr nefndur tími til spurninga og svara, hef ur bakað ríkissjóði? 4. Hversu stór upphæð er það, sem hugsanlegt er að kunni að hafa sparazt, vegna marg- nefndra fyrirspurna, og hvað er það annað, er til hagnaðar má telja, og komið hefur á móti kostnaðinum? Vona ég að þú komir þessum fyrirspurnum á framæri. ■— V irðingarf yllst. Filipus Bessason. hreppstjóri. Leifar Leirs: MEÐ HOND UNDIR KINN ég þenki oft djúpt um þrákelni og heimsku mann- anna, er þykjast stöðugt að frelsi og lýðræði keppa, en þekkja svo hvorugt, er þeir það óvænt hreppa. Og láta þá jafnvel fremur í fangelsi hneppa sig en frelsisins þráða og lýðræðisgæfunar njóta. — Hvern skrambann er hægt að gera við þvílíka þrjóta? Já, — til eru þeir, sem halda svo langt í heimskunni, að heldur kjósi þeir dauða en hið óvænta frelsi; uppnefna það og kalla harðstjórn og helsi. Hart er það, maður, að verða í fjötrum þá fávita til frelsis að kvelja og berja til þegnskaparvilja, og myrða þá, svo að megi þeir lýðræði skilja. FLÖSKUBROT. Köld borð og heilur veizhimalur sendur út um allan bæ. SÍLD & FISKUR Daphne du Maurier: DULARFULLA VEITINGAHUSIÐ lesið AHiýSublaSið óttaslegin á hana, fékk hún ógeð á sjálfri sér og gat ekki haldið áfram. Hún settist upp í rúminu og fór með fæt urna fram úr og ,niður á gólf, hana snarsvimaði við á- reynsluna og blóðið hamr- aði í gagnaugunum. ,,Hvað ætlarðu að gera?“ Patience frænka tók í hana óstyrkum höndum, en frænka hennar ýtti henni til hliðar og fór að fara í fötin. ,,Ég þarf iað gera dálítið fyrir sjálfa mig“, sagði hún stutt í spuna- ,,Frændi þinn er niðri. Hann leyfir þér ekki að yf- irgefa húsið.“ „Ég er ekki hrædd við hann“. ,,Mary, þín sjálfrar vegna og mín vegna, reiftu hann ekki til reiði aftur. Þú veizt hvað þú þegar ert búin að þola- Allan itímann síðan hann kom með þig hefur hann isetið niðri, hvítur og þungbúin, með byssu á hn jánum; dyrn- ar á veitingahúsinu eru læst ar með slagbrandi- Ég veit að þú hefur séð og þolað ó- segjanlega hræðilega hluti, en Mary, skilurðu ekki, að ef þú ferð niður núna getur ver ið að hann særi þig aftur — það getur meira að segja ver ið, að hann drepi þig? . . . Ég hef aldrei séð hann svona. Ég get ekki ábyrgzt hann í þessum ham. Farðu ekki nið ur Mary. Ég grátbið þig um að fara ekki niður.“ Hún fór að dragast niður á gólfið og hélt dauðahaldi í pilsið hennar Mary, og greip hendur hennar og kyssti þær. Þetta var aumJeg og dapur- leg sjón. „Patience frænka, ég er búin að þola nóg vegna holl ustu minnar við þig, þú get ur ekki búizt við, að ég þoli öllu meira. Hvað isem Joss frændí hefur verið þér ein- hvern tíma, Þá er hann ekki mann- legur Iengur. ÖII tár þín mu,nu ekki geta bjargað hon um úr klóm réttvísinnar; þú verður að skilja það. Hann er skepna, geggjaður af morð fýsn og brennivíni. Hann myriti marga menn, á strönd- ínni. Skilurðu það ekki? Fólki var drekkt j sjónum. Ég get ekkert annað séð. Ég get ekkert annað hugsað fram í andlátið.“ Hún hækkaði röddina hættu'lega mikið og var ekki langt frá að fá taugaáfall. Hún var enn of veikburða til að geta hugsað áfram hald- andi og sá sjálfa isig hla-up- andi á þjóðveginum, og kalla hástöfum á hjálp, sem áreið anlega myndi koma bráðlega. Patience bað hana of sent um að þegja; hún skeytti ekki ,um varnarmerki henn- ar. Dyrnar voru opnaðar, og veitingamaðurinn á Jamaica krá stóð á þröskuldinum. og istarði á þær. Hann var þreytulegur og grár, skurður inn fyrir ofan augað var enn þá blóðrauður. Flann var ó- hrenn og dökkir skuggar undir augunum. ,,Ég helt, að ég heyrði raddir úti í garðinum“, sagði hann. ,,Ég fór að rifu á glugga hleranum, niðri í dagstof- unni, en ég sá engan. Heyrð- uð þið nokkuð úr þessu her bergi?“ Enginn svaraði. Patience frænba hristi höfuðið, hið veinjulega óstyrka bros, sem hún setti upp í nærveru hans færðist með erfiðismunum yfir andlit hennar án þess hún vissi af því. Hann settist á rúmið, og fálmaði við sængurfötin, og eirðarlaus augu hans flöktu frá gluggan- um að dyrunum. „Hann kemur“, sagði hann; ,,hann er neyddur til að koma- Ég er búinn að koma sjálfum mér fyrir kattarnef. Ég hefi risið upp á mófi hon- um. Hann varaði mig ein.u sinni við, og ég hló að honum. Ég hlustaði ekki á hann. Ég vildi spila upp á eigim spýtur. Við erum sama sem dauð, öll þrjú sem sitjum hérna núna —- þú, Patience, og Mary og ég. Ég segi ykkur það, við erum búin að vera; það er komið að leibslokum. Hvers vegna létuð þið mig fara að drekka? Af hverju brutuð þið ekki hverja einustu horn- grýtis flösku, sem til var í húsinu og læstuð mig inni og létuð mig liggja? Ég hefði ekki skert hár á höfði ykkar, hvorugri ykkar. Nú er það of sei-nt. Það er komið að lok- um“. Hann leit á þær til skiptis, blóðhlaupin augun lengst inni 1 höfðinu, og hihar þreknu herðar voru saman kíttar. Þær störðu á hann aftur án þess að skilja nokk- uð, málla-usar og skelfdar af svipn-um á andliti háns, sem þær höfðu séð fyrr. „Hvað átitu við?“ sagði Gullni lúðurinn hans Bangsa Síðan hefur Surtur vélina á flug. Um það leyti, sem þeir Gutti grís og Maggi mús koma á vettvang. „Maggi mús só þig á gangi, svo að við fórum að leita ykkur uppi“, segir Gutti. „En hvar er hann?“ „Hann er þarna uppi í flugvélinni. Það var hann Sturtur, sendiboði jóla- sveinanna. Hann kom hingað þeirra erinda að sækja bréfin okkar og koma þeim til þeirra, svo að við fáum jólagjafirnar okkar í tæka tíð“. Og síðan seg ir hann þeim upp alla söguna. MYNDASAGA ALÞYÐUBLAÐSINS: ÖRN ELDING KÁRA tekur að hitna við hjartað, þegar hann lítur stúlkuna, sem þarna er á ferð. „Hvernig stend- ur á því, að þér eruð hérna einar á ferð?“ spyr hann. STÚLKAN: Haldið þér, að ég kunni iað vera í hættu stödd? Ó, ég er svo hrædd! Maðurinn, sem með mér var, er horfinn á brott. Hjálpið mér! KÁRI: Með ánægju, maður.----- ÖRN OG GEORG ræða enn um kjarnorkustöðina inni á fjöll- unum, í borginni, þar serp hvorki þekkist lög né réttur.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.