Alþýðublaðið - 05.05.1948, Side 4

Alþýðublaðið - 05.05.1948, Side 4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ Miðvikuclagur 5. maí 1348. Útgefanöi: AlþýðufloM&urinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Augíýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h.f. urinn 1. maí FRÉTTARITSTJORI ÞJOÐ- VILJANS hefur fengið það hiutverk að skrifa um hátíða holain 1. maí. Er frásogn hans ásamt myndum allt að því þrjár síður í Þjóðviijan- um í gær, en í öllu þessu mikla lesmáli verður lítt vart við sannleikann. Greinarhöf- undur hefur varla samið rit- smíð sína 1 alvöru, en aftur á móti gætir þess glögglega, að hann, eða sá, sem sagði hon- um fyrir verkum, hefur verið í meira lagi sár og reiður. Greinarhöfundurinn ætti að láta athuga í sér sjónina við þénanlegt taskifæri, því að sé það satt, að hann hafi aðeins séð nokkrar mannver- ur á útifundinum á Arnar- hóli, og engan, sem bar merki Alþýðuflokksins um daginn, er þetta dýrmæta skilningar- vit hans í meira en litlu ólagi. Aftur á móti virðist maður- inn hafa séð tákn og stór- merki í sambandi við hátíða- höld kommúnista, svo að segja má, að ein vitleysan hafi boðið annarri heim. Honum sýndist kröfugangan fjölmennari en nokkru sinni fyrr og fas kommúnisfa og fylgihnatta þeirra miklum mun ákveðnara en í fyrra! Sér í lagi fannst greinarhöf- undi farg mikið fyrir verka- lýðnum í göngunni, og andi einingar og samheldni sveif yfir fylkingunni eins og dúfa! Auk alls þessa virðast hátíða- höld kommúnista hafa orkað því, að kraftaverk gerðist á ítósa gamla ívarssyni, því að hann gerði sér lítið fyrir og kastaði ellibelgnum frammi fyrir ásjónu fréttaritstjórans! 'T' Það hafa kannski verið prentararnir níu og þvotta- konurnar fjórar, sem voru svo fyrirferðarmiklir fulltrúar verkalýðsins i kröfugöngu kommúnista í augum frétta- ritstjóra Þjóoviljans? Eða taldi maðurinn það ef til vilh atburð, sem einstæður mætti íeljast, að 100 félagsmenn af 3000 í sitáersta verkalýðsfé- lagi landsins, Ðagsbrún, skyldu rölta þennan spöl und- ir félagsfána sínum í bless- uðu bMöviörinu á laugardag- inn? Um eininguna í sambandi við kröfugönguna þarf ekki að f'jölyrða. Mönnum með fulla sjón duldist ekki, að kröfugangan í ár var mun þunnskipaðri en kröfugöng- umar undanfarin ár og að verkalýðurinn sá ástæðu til þess að halda upp á daginn á annan hátt en þann að rölta um bæinn undir forustu kom- múnista og að boði þeirra. Ýrnis fjölmennustu samtök reykviskrar alþýðu létu ekki sjá sig i kröfugöngu komm- Hvar eru vafnsbílarnir? — Endurminningar nm skemmtiferðaskip. — Ferðalög til Færeyja, Örkn- eyja og Grænlands. HVAR ERU vatnsbílarnir? Þessari spnrningu hafa margir varpað fram undanfarna daga, þegar þurrt hefur verið í veðri. Það er skammt öfganna á milli hér í Reykjavík, annað hvort er allt remiandi blautt eða svo þurrt, að rykskýin fjúka á milli húsanna, rétt eins og I eyðimörk væri. En vatnsbílarn ir blessaðir hafa enn ekki sézt. Þeir eiga að bjarga okkur frá þessum ósóma, ryki í eyrum, augum og hálsi, og borgararnir verða fljótt óþolinmóðir, ef ekk ert er gert við þessu. Ég sendi spurninguna áfram til viðeig- andi bæjaryfirvalda, og vonast eftir svari innan skamms. NÚ ER LANGT SÍÐAN út- lendu skemmtiferðaskipin hafa komið til Reykjavíkur, senni- lega um tíu ár, og unglingar eru komnir á legg, sem ekki muna eftir stóru skipunum á vtri höfn inni, bátunum sem fluttu útlend ingana upp að Ægisbryggjunni, og hinum útlendu hópum, sem flæktust urn götur borgarinnar, leigðu hesta og skoðuðu söfnin. Þetta voru að vissu leyti skemmtilegir dagar, það var j jafnan hátíðasvipur á bænum, I þetta var tilbreyting fyrir bæj arbúa og það gaf af sér gjald- eyristekjur. ÞAÐ VORU mikið til sömu skipin sem komu aftur og aftur hingað á ferðum sínum um Norð urhöf. Þetta voru svo að segja allt evrópísk skip, sem fluttu ameríska ferðamenn. Sum skip anna fórust á stríðsáruilum, en önnur; eru enn þá í ferðum. Þann ig fórst enska skipið Arandora Star og hóllenzka skipið Rotter dam yar rifið. Snæska skipið Kungsnolm, sem hér var mjög. vinsælt, var í þjónustu banda- manna á stríðsárunum og gekk undir nafninu John Ericson. FERÖASKRIFSTOFUR ÞÆR, sem gengust fyrir þessum hóp- ferðum er hingað komu, munu hafa fullán hug á því að byrja íerðirnar á ný, svo að útlit er á að skipin muni aftor koma til Reykjavíkur á sumrih. En það geta liðiö nokkur ár, þahgað til fyrstu skipin varpa akkerum á ytri höfninni á ný, bæði a£ því að enn er svo mikill skcrtur á skiprúmi, að erfit't mui’ að íá skip til norðurferða, er auk þess eru bæði ferðaskrifstofurnar og ferðamennirnir svo hrædd við tundurdufl, sem enn eru á reki á hafinu við ísland og' Noreg, að stórum skipum verður varla hætt í skemmtiferðir á þessar slöðir um sinn. SUMARIÐ ER NÚ AÐ KOMA, og mikill ferðahugur er í mörgum íslendingum. Ferða- skrifstofa rikisins og Ferðafélag ið munu gangast fyrir miklum fjölda skemmtiferða um landið í sumar, og ættu þessir aðilar að auglýsa óspart „Ferðizt um ísland fyrst“ til þess að slökkva þrá þeirra, sem ekki kalla það að ferðast, ef ekki er farið út fyrir landsteinana. EN ÞA» ERU ÝMSAR FERÐ IR út fyrir landsteinana, sem við gætum farið án mikils gjald eyriskostnaðar. í nágrenni okk- ar eru mörg lönd, sem eru heill andi ferðalönd fyrir okkur, en við höfum gersamlega vanrækt. Hversu margir íslendingar hafa til dæmis komið til Færeyja? Hvað væru margir fúsir til að eyða sumarfríinu á ferð með Esju um Vestmannaeyjar til Færeyja, fara þar í land á nokkr um stöðum, en búa í skipinu og borða þar? Eða ef haldið væri lengra suður á bóginn á gamlar víkingaslóðir til Orkneyja og siglt þar um! SLÍKAR HÓPFERÐIR á ís- Ienzkum skipum mundu án nokkurs efa verða geysi vinsæl ar. Eða hvað segðu menn um viku ferð meðfram ströndum Grgenlands á hinni nýju Heklu? Eða siglingu til Jan Mayen og þaðan til austurstrandar Græn- lands? Slíkar sumarleyfisferðtr mundu án efa verða vinsælar og þær mundu bæta úr því, hvað við íslendingar erum skammarlega ókunnugir þess- um nágrannalöndum. Okkur ferst að tala, þótt menn frá ná- grannáþjóðunum séu fáfróðir um ísland! Frá fréttariíara Alþýðiiblaðsins AKUREYRI. BRAUÐ hefur ekki feng- ist hér í búðum, hvorkí í gær né dag vegna verkfails bakarasveina. HAFR. Happdrætti Háskóla íslartds. Dregið verður í 5. fl. happ- drættisins á mánudag. Við- skiptamenn æítu að athuga, að ekki eru nema 3 söludagar eft- ir, miðvikudagur, föstudagur.og laugardagur, en á laugardag er víðast lokað á hódegi. 4 5. fl. eru 402 vinningar, samtals 138 500 krónur. únista. En auðvitað munar ekkert um það, þótt Bandalag starfsmanna ríkis cg bæja, Sj ómannafélag Reykjavíkur, Verkakvennafélagið Fram- sókn, Bifreiðastjórafélagið Hreyfill, Bakarasveinafélag Islands og mörg önnur félög láti sig vanta i kröfugöngu .fulltrúaráðs verkalýðsfélag- anna“ í Reykjavík! Fréttarit- stjóra Þjóðviljans finnst slíkt aðeins til bóta! -í- Og til viðbctar langloku fréttaritstjórans flytur Þjóð- viljinn grein eftir útvarps- sérfræðinginn frá Hofteigi, sem sennilega hefur verið guðfræðingurinn, er frétta- stjórinn sá í kröfugöngunni. Utvarpsgagnrýni. Þjóðviljans þótti léleg, meðan Magnús orðabókarhöfundur sá um hana, en þó hefur Bjaxna frá Hofteigi tekizt mætavel í ör- j fáum greinum að sanna sann- | leiksgildi hins fornkveðna, að lengi igetur vont versnað. ' Utvarpsþáttur Þjóðviljans ii gær er einstök ritsmíð að endemum. Utvarpsráð er þar enn einu sinni -borið þeim gervisökum kommúnista, að það hafi ,,bannað verkalýðn- um“ útvarpið 1. maí. Forseti Alþýðusambandsins og for- maður Bandalags starfs- manna ríkis og bæja eru með öðrum orðum ekki fulltrúar verkamanna og launþega að dómi Þjóðviljans og Bjarná Barnaskemmfun v-erður haldin í Iðnó fimmtudaginn 6. þ. m. (uppstigningardag) og heist kluikkan 3 e. h. TIL SKEMMTUNAR VERÐUR: 1. Ávarp til æskunnar: Ja'kob Kristinsson fv. fræ ðslum'álas t j óri. 2. Samleikur á píanó: Þórunn S. Olafsdóttir :.s og Esther Kaldaións (báðar 10 ára). 3. Éinsöng’ur: Þór.unn S. Ólafsdóttir með und- irlei'k Esther Kaldalóns. 4. Sjótíleikur: Brúðarslæðan (R. J.). Álfaæv- intýrið. Barnaflokkur Svövu Fells. 5. Kvikmynd. Viggó Nathanaelsson. Aðgöngumiðar verða seldir í dag 1 Iðnó og Ferðaskrif- stofu ríkisins. Allur ágóðinn nennur í sjóð til fyrirhug- aðrar byggingar æskulýðshallar í Reykjavík. verður haldinn í MjóIkÚrstöðvarsalnum miðvikudaginn 5. maí klukkan 9 e. h. K.K. sextetíinn leikur. Aðgöngumiðar seldir frá klukkan 6—7 og við innganginn. Knaífspyrmifélagið Víkingur og sfarfssfúíkur óskasf í sjókrahiís Hvífabandsins. vaníar ungling íil blaðburðar í þessi hyerfi: VESTURGÖTU. * LAUGARNESHVERFI." MELAMA. Talið við afgreiðsluna. j frá Hoftei-gi! En ekki teks-t Bjarna betur, | þegar hann gerir útvarps- fréttirnar 1. maí að umtals- efni. Það er hneykslanlegt að minnast á ræðu brezka for- sætisráðherrans, því að mað- urinn var svo ókurteis að gagnrýna Rússa og segja skýrt og skorinort álit sitt á kommúnistum! Þá er frásögn af því, að kommúnistar í Ber- lín hafi boðið upp á bjór og pylsur — vissulega það skásta, sem þeir hafa nokk- urs staðar haft upp á að þjóða,. — hvorki meira né minna en tilburðir til að gera „hátíðahöld alþýðunnar“ í iBeriín hlægileg! 1 En greinarhöfu-nd skortix auðvitað sjálfan hvorki kurt- eisi né háttprýði. Hin gagn- merka ræða Stefáns Jóh. Stefánssonar í Tatvarpinu 1. maí vérður honum tilefni þeirra ummæla, að forsætis- ráðherrann hafi ,,ekki átt meira erindi í útvarpið en humdur ofan úr sveit“! Smekklegur maður og orð- prúður, guðfræðingurinn frá Hoftei-gi! Að loknum lestri Þjóðvilj- ans í gær þarf enginn að vera í vafa um, hvað þessum ó- sköpum veldur. Kommúnist- ar hafa orðið fyrir vonbrigð- um, það er sársauki á bak við fúkyrðin-. Engum -blandast hugur um, af hverju blaðíð er svona reitt.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.