Alþýðublaðið - 23.05.1948, Blaðsíða 4
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Sunnudagur 23. maí 1948
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt GröndaL
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Kitstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan bJ,
r
KOMMÚNISTUM hér a
landi sem annars staðar et
rnjög í nöp við jafnaðar-
mannastjórnina á Bretlandi,
og hefur áróðurinm gegn
henni sízt minnkað eftir að
hið endurreista alþjóðasam-
band kommúnista gaf fimmtu
herdeildum Rússa úti um
heim þá dagskipun, að jafn-
aðarmenn væru höfuðfjend-
urnir og því bæri að beina
meginbaráttunni gegn þeim.
Afstaða kommúnista til
brezku stjórnarinnar er enn
ein sönnunin um það, að hug-
sjónir sósíalismans liggja
þeim í léttu rúmi. Við erfið-
ustu aðstæður, sem saga Bret
lands á síðari öldum kann frá
að greina, hefur jafnaðar-
mannastjórnin þar hafizt
handa um stofnun sósíalist-
ísks ríkis með árangri, er vak-
ið hefur aithygli gervalls
heirns, og milljónirnar, sem
trúa á framtíðarskipulag só-
síalismans á vegum lýðræðis-
ins, tengja vonir sínar ekki
hvað sízt við störf og stefnu
brezku jafnaðarmannastjórn-
arinnar.
*
Nú fyrir skömmu fór Þjóð-
viliinn mjög svo hörðum
orðum um Breta fyrir utan-
ríkismálastefnu stjórnar
þeirra og afstöðu hennar til
nýlendnanna. Þessi málflutn-
ingur er að sjálfsögðu ólík-
legur til pólitísks framgangs,
en hann er þó í meira lagi at-
hyglisverður og lærdómsrík-
ur. Brezka jafnaðarmanna-
stjómin hefur enn ekki setið
lengi að völdum, en hún hef-
-ur þó komið því í verk að
veita þremur fyrrverandi ný-
lendum Breta, Indlandi, Cey-
lon og Burma, frelsi og sjálf-
stæði. Þá hefur hún og feng-
ið samþykkt frumvarp um
stórfellda nýsköpun í brezku
nýlendunum, og mætti sú
stefna, sem þar er mörkuð,
sannarlega verða öðrum þjóð
um til fyrirmyndar. Auk þess
hafa Bretar flutt her sinn
burt úr ýmsum löndum og
lagt þar niður sin fyrri völd
og yfirráð.
En Þjóðviljinn er ekkert
hrifinn af þessari afstöðu í
nýlendumálum. Aðdáun hans
er hins vegar öll á því stór-
veldi, sem á styrjaldarárun-
um og síðan hefur innlimað
hvorki meira né minna en 10
ríki, er áður voru sjálfstæð
og fullvalda og byggð þjóð-
um, sem háð höfðu langa og
stranga sjálfstæðisbaráttu og
mátu frelsishugsjónina öllu
öðru meira. Málgagn íslenzka
Kommúnistaflokksins níðir
og svívirðir það stórveldi,
sem afsalar sér nýlendum,
en það á ekki nógu sterk orð
itil að lofsyngja Rússland og
hefur síður en svo nokkuð
við það að athuga, þótt það
Okkar á milli sagf..
Húsmæður plataðar. — Reýkjavík fyrr og nú. -
Mæðradagur og feðradagur.
„ÞETTA ER LJÓTA platið
sagði húsmóffir viff mig í sím-
anum í gær. „Það er auglýst
stórum stöfum í öllum blöffun-
um, aff blandaffir ávextir séu að
koma, og svo er þetta bara ein-
hver revya. Eins og þaff hefur
nú veriff erfitt meff grauta upp
á síffkastiff. Svona blekkingar
ætti aff banna með öllu og eig-
inkonur þessara manna, sem
síanda fyrir svona löguffu, ættu
að taka sjálfar í lurginn á þeim
og skamma þá fyrir þetta bragff
viff okkur húsmæffur.“
ÞAÐ HAFA FLEIRI kvartað
um þetta áuglýsingabragð re-
vyunnar, enda eru slíkar aug-
lýsingar refsiverðar í lögum
annarra landa. En ég hef þegar
rekið mig á eina konu, sem við-
urkenndi, að hún hefði fyrixgef-
ið bragðið, þegar hún sá revy-
una.
„MIKILL MUNUR er á, hvað
menn geta gert sér til skemmt-
unar í þessum bæ nú,eða fyrir
10 árum,“ sagði maður nokkur,
sem leit inn í ritstjórnina í gær.
„Nú úir allt og grúir af kvik-
myndum, revyum, leikritum,
fyrirlestrum, upplestrum, söng-
skemmtunum og dansleikjurn,
og hér er risinn upp skemmt-
garður, svo að nokkuð sé nefnt.
En samt sem áður finnst niér
bezta skemmtunin í Reykjavík
alltaf vera að ganga um bæinn
og skoða hann. Þó ég hafi búið
hér í yfir 20 ár, finn ég alliaf
eitthvað nýtt til að skoða og
eitthvað gamalt og ljótt til aö
hneykslast á, því að mörg
gömlu hverfin eru óneitanlega
óskaplega ljót og illa byggS.
Það er raun að sjá, að smákofar
skuli halda ágætum lóðum inn
að hjarta bæjarins, meðan stein-
risarnir teygja sig út um holt ng
hæðir, en bærinn hefur ekki
nokkur ráð á að fylgjast með í
götulögnum og hver nýr götu-
spotti kostar stórfé. Það verður
eitthvað að gera til að hindra
brask með lóðir inni í bænum,
tryggja það, að nú verði ekki
byggt lengra út, heldur endut-
nýjað inn á við.“
MÆÐRADAGURINN er í
dag. Þessi dagur hefur undan-
farin ár verið merkjasöludagur
til styrktar mæðrum, aðallega
til sumardvalar. Þetta er gbtt
mál og ætti enginn maður að
láta sjá sig á götunum í dag
nema með mérki. En það á að
gera meira úr mæðradeginum.
Hann á að verða algerður yfir-
ráðadagur mæðranna. Þær eiga
að nota daginn óspart til að
lyfta sér upp og hvíla sig frá
störfum eins og unnt er. Látið
mennina búa um, gefið þeim og
krökkunum eitthvað kalt og létt
að borða ef heimilisfaðirinn vill
ekki skreppa út með alla fjöl-
skylduna. Svo ættu allir feður
að gefa mæðrunum smágjöf,
myndarlegan blómvönd, ef
þeim dettur ekkert betra í hug.
íslenzkar mæður eru yíirleitt
ekki nógu ákveðnar við að lyfta
sér upp, leggja heimilisáhyggj-
urnar á hilluna eina kvöld-
stund. Þær skiptast, eins og
einhver gárunginn sagði, í kon-
ur, sem aldrei gera neitt (fáar,
sem betur fer) og hinar, sem
eru sívinnandi, fara fyrstar á
fætur og síðastar í rúmið. Heim
ilisvélar og ýmis tækni er nú
til að létta þeim störfin, og von-
andi verður hægt að veita þeim
slík þægindi sem flestum.
EF SVO FER, að konurnar
gera sér mat úr mæðradeginum
og taka öll völd í sínar hendur
og nota þau sjálfum sér til
skemmtunar, þá munu karl-
mennirnir koma fram með gagn
kröfur. Þá munu þeir krefjast
þess, að stofnað yrði til „feðra-
dags“. Þá mætti engin merki
selja, ekkert gera opinberlega
(enda verða þeir að greiða fyrir
merkin hvort sem er). Hátíðin
á að felast í því, að mæðurnar
segi ekkert nema „Já, elskan,“
allan daginn, framreiði beztu
máltíð, sem þær geta, segi ekki
orð þótt húsbóndinn fái sér lögg
með kunningjunum og gefi hon-
um smágjöf (þó ekki blóm og
ekki bindi). Slíkir dagar eru til
erlendis, bg h'afa sennilega Verið
lögboðnir fyrir langt og mikið
starf og áróður „karlréttindafé-
laga“. Það verðúr áð varðveita
jafnrétti í heiminum.
SPURNINGIN ER,
hvort velturitstjórar Morgun-
blaffsins eru ekki utanveltu.
FUJ Á AKUREYRI hélt
aðalíund. sinn 5. þ. m. í
stjórn voru kosin: Þorsteinn
Svanlaugsson form., Hjör-
leifur Hafliðason varaform.,
Guðm. Mikaelsson gjaldkeri-
Tryggvi. Sæmundsson ritari,
Bára Þorsteinsdóttir meðstj
í varastjórn: Þorvaldur Jóns
son, Jósteinn Kónárðsson,
Árni Magnússon, Jón Sig-
urðsson, Kolbeinn Helgason.
í trúnaðarráð auk aðalstjórn
ar: Jóhannes Júlíusson, Hjör-
dís Jónsdóttir, Gunnar Jó-
hannesson og Baldur Aspar.
HAFR.
leggi ok kúgmiarinnar og
frelsissviþtingarinnax á ná-
grannalönd sín hvert af öðru
og geri þau að nýlendum sín-
um.
*
Fjandskapur kommúnista í
■garð brezku jafnaðarmanna-
stjórnarinnar þarf engum að
koma tá óvart, Bretar hafa á
þremur árum orkað meiru til
sósíalistískrar uppbyggingar
en Rússa hafa komið í verk
á þremur áratugum. Og til
viðbótar er sá munur á
brezku jafnaðarmannastjórn-
inni og rússnesku kommún-
istastjórninni, að Attlee,
Morrison, Bevin og Sir Staf-
ford Cripps framkvæma só-
síalismann með aðferð lýð-
ræðisins, en rússneska þjóð-
in verður að gjalda gervi-
sósralisma Stalins og hjálpar-
kokka hans með frelsi sínu
og mannréttindum. Brezka
jafnaðarmannastjórnin býður
ekki upp á „sósíalisma“ fanga
búðanna, einræðisins og kúg-
unarinnar, heldur hinn sanna
sósíalisma frelsis, mannrétt-
inda og framfara.
Það er vel farið, að Þjóð-
viljinn heimski sig öðru
hvoru á níði sínu um brezku
j af maðarmannast jór nina. Sá
málflutningur verður tilefni
til samanburðar á ríki lý.ð-
ræðisjafnaðarmannanna á
Bretlandi og kommúnistanna
á Rússlandi. Þjóð með dóm-
greind íslendinga ætti að
vera auðvelt að skera úr um,
hvort þar sé nokkur munur á.
KRR.
IBR.
ISI.
5. leikur Reykjavíkurmófsins
í meisfaraflokki
fer fram mánudaginn 24. maí og hefst kl. 20.15.
Þá keppa
Dómari: Þorsteinn Einarsson.
Nú er það spemiandi! — Tekst Val að vinna
Reykjavíkur og Islandsmeistarana frá í fyrr|a.
'Enginn má sitja heima.
ALLIR ÚT Á VÖLL!
Mótanefndin.
Bekkjarráð Iðnskólans í Reykjavík:
í Reykjavík broífskráðir 1948.
Fundur verður haldinn með þeim iðnskólanem-
endum, sem útskrifuðust í vor — á niorgun mánu-
daginn 24. maí klukkan S.3.0 í Iðnskóláhúsinu (Bað-
stofunni). Fundarefni:
Tekin ákvörðun h-vert fara skuli í Bekkjarráðs-
ferðalag. Þátttaka ■ .1. ferðalagið tilkynnist. á fundinum.
Bekk-jarráð Iðnskólans 1948.
Eggerl Guðmundsson hefur opnað
málverkasýningu
í vinnuslofu sinni, Hálún 11.
Sýningln verður opin daglega frá ki. 1—10.
Tilkynning
K| i r r
r yr r
fil
Brimabófaféfag Islands
hefur stofnað til umboðs í hinum nýja Kópa-
vogshreppi.
Umboðsmaður er oddviti, Fimibogi Rútur
Valdemarsson, Marbakka.
Húseigendur í hreppnum og aðrir, sem þurfa
að tryggja hús og lausafé, snúi sér til hans
varðandi allar tryggingar, hvort sem um er
að ræða nýjar tryggingar eða framlengingar
á eldri tryggingum.
Skylt er að vátryggja hús í smíðum.
Umboðsmaður Seltjarnarneshrepps Sigurður
Jónsson í Mýrarhúsum innheimtir iðgjöld
sem þegar eru fallin í gjalddaga.