Alþýðublaðið - 16.06.1948, Page 1
yeðiarhorför:
Austan kaldi, víSast úrkomu
Iaust, en skýjaö.
*
] -; . *
Foröstugrein:]
Aflijúpaðar áróðurslygar.
*
❖
XXVIII. árg.
Miðvikudagur 16. iúní 1948.
133. tbl.
Skiphrotsfólkiö af ^Kökenhmm^ 'gengur á land
Mynd þessi er af fyrstu skipbrotsmönnunum af danska skipinu ,,Köbenhavn“, sem björguð-
ust þegar það fórst. — Samkvæmt frásögn norska blaðsins Arbeiderbladet í Osló mun
manntjón ekki hafa orðið eins mikið og í fyrstu var talið. Samkvæmt skýrslum lögregiunnar í
Álaborg hafa borizt fyrirspurnir um 51 mann, s em ekki heíur bjarg'azt, og hafa 33 lík þegar
þekkzt. Líklegt er þó, að fleiri en þetta hafi far izt með skipinu, en fyrstu tölurnar voru of háar.
Rætt um sama stjórnarfyrirkomiilag í
Palestfou og nsí er í Sviss.
BERNADOTTE GREIFI er nú í Kaíró og ræðix við
leiðtoga Araba um hcrfur á viðræðum um frið í Palestinu.
Hafa heyrzt raddir um það í Kaíró, að Arabar kynnu að
vera fúsir til að fallast á svipað stjórnskipulag fyrir Pale-
stínu og nú er í Sviss, og mundu Gyðingar þá ráða fyrir
þeim kantónum, sem þeir væru fjölmennastir í. Þetta
munu Gyðingar ekki vera líklegir til að fallast á, þar sem
þeir telja, að Arabar mundu stjórna slíku ríki í heild, og
þannig geta fyrirbyggt frekari innflutning Gjrðinga.
Leiðtogar Arababanda-
lagsins sátu fund í Kaíró í
gær, en ekki er kunnugt um
árangur þess fundar. Heríor-
ingjar Arabaríkjanna gengu
ÞRIGGJA amerískra her-
flugvéla var í gær saknað
yfir Norður-Atlantshafi. Voru
þetta fljúgandi virki úr ame-
ríska flughernum, en þau
voru á leiðinni frá Azoreyj-
um til Korsíku. Hafði skeyti
borizt frá einni þeirra þess
efnis, að hún væri að snúa
við, og hefði eldur komið upp
í einum af hreyflum flugvél-
arinnar. Ekkert hafði í gær-
kvöldi frétzt frá hinum
tveimur.
á fund leiðtoganna og munu
hafa gefið þeim skýrslu um
ástandið á vígstöðvunum í
[ landinu helga.
Bernadotte greifi hefur
skýrt frá því, að hann sé ekki
viss um að Gyðingar og Ar-
abar fáist til að setjast að
einu samningaborði. Þrátt
fyrir þetta mun hann halda
áfram að reyna að finna ein-
hverja leið til friðar í land-
inu helga. Hann hefur nú
eftirlitsmenn í höfnum Pale-
stínu og á nokkrum fleiri
stöðum, og fylgjast þeir með
því, að vopnahlésskilmálarnir
séu haldnir.
í gær fóru 2000 enskir her-
menn frá Haifa á þrem skip-
um, en fleiri fara í dag.
Vampire flugvélarnar
verða 2 fíma frá
Bretlandseyjum iil
r
Islands!_____
BREZKU Vampire orustu-
flugvélarnar, sem koma hing-
að til lands fyrsta góðviðris-
dag í júlí, munu 'að öllum
líkindum aðeins verða tvo
tíma á leiðinni frá Bretlands-
eyjum til íslands. Verður
flug þeirra án nokkurs efa
hraðamet á þessari flugleið.
Það er mjög mikilsvert
fyrir orustuflugvélar þessar,
að veður sé gott á flugleið-
inni yfir hafið. Verður því
send Mosquitoflugvél á und-
an orustuflugvéiunum, þegar
veðurútlit virðist gott. Áhöfn
þessarar flugvélar mun svo
senda nánari veðurfregnir,
þegar hún á eftir klukku-
stundar flug til íslands.
Maðör slasast á
Kleifaheiði.
nanoaniaai
i SÍ'Si H E
Skráðganga, iiatlð á AústyrveSSi og
Araarhóli, tíaus é Lækjsrtorgi og
Síi.iólfsstræti.
UNDIRBÚNINGI' þjóShátíöarinnar á morgun er nú að
mestu leyíi lokið, og verður hún rajög á sömu lund og und-
aniariii ár. HátÍðahö’din við Austurvöll að deginum til hefj-
ast idukkan 2 eftir hádegi að lokinni almennri skrúðgöngu,
sem hefst viS háskólann og endar við Alþingishúsið. Um
kvöldið Hel'dur svo háííðin áfram á Arnarhóli, og verður
dansað á Lækjartorgi og Ingólfsstræti.
ALVARLEGT SLYS varð
í gær á Kleifaheiði, er Sig-
urður Jónasson frá Sauð-
lauksdal var að skipta um
hjólbarða á bifreið simni.
Hrökk hringur í höfuð hon-
um og slasaðist hann hættu-
lega. Var hann fluttur í
sjúkrahús á Patreksfirði og
er líðan hans iIJ
Hin almenna iskrúðganga
hefst klukkan-1.30. en það er
hálfííma seiinna en verið hef-
ur undanfarin ár. Á undan
skrúðgöngunni verður borin
fánaborg félagasamtaka í
Reykjavík. Fánar verða seld
ir um daginn við kostnaðar-
verði á vegum þjóðhátíðar-
rjefndar, og leggur nefndin á-
herzlu á. að börinán í höfuð-
borginnli fjölmenni; í skrúð-
.gönguna.
Klukkan 2 hefst guðsþjón-
usta í dómkirkjunni, og pré-
dikar síra_ Jakob Jónsson.
Forseti íslands, Sveinn
Björnsson, verður meðal
kirkjugesta. Verður hátölur-
um komið fyrir við Austur-
völl, svo að mannfjöldiain þar
geti fylgzt með guðsþjónust-
unni. Sigurður Skagfield óp-
erusöngvari. syngur við
messugerðina.
Klukkan 2.30 leggur for-
seti íslands blómsveig á fót-
stall minnisvarða Jóns Sig-
urðssonar á Austurvelli, og
Lúðráisveit Reykjavíkur leik-
ur þjóðsönginn. Áð því loknu
kemur Fjallkonan fram á
svalir Alþingishússins og á-
varpar þjóðina. Fjallkonan
er Anna Borg leikkona, en á-
varp hennar er Ijóð, sem
Tórnas Guðmundsson skáld
hefur ort. Að loknu ávarpi,
Fjallkonunnar flytur Stefán
Jóh. Stefánsson ræðu af svöl-
um Alþmgishússins.
Að loknum hátíðahöldun-
um við Austurvöll verður
haldið suður á íþróttavöll, en
þar fer fram fyrri hluti í-
bróttamótsins^ sem kennt er
v;ð 17. júní. Á leiðinni suður
á íþróttavöll verður stað-
næmzt við leiði Jóns S;gurðs
sonar og lagður á það blóm-
svei.cfur, sem bæjarstjórn
Reykjavíkur hefur gefið, en
kórairnir í Reykjavík syngja:
Sjá roðann _ á hnjúkur um
háu. Forseiti ÍSÍ, Benedikt G.
Waage, setur íþróttamótið
með ræðu. Forseti íslands,
Sveinn Björnsson, verður
meðal ff-esta á íþróttamótinu.
Hátíðan á Amarhóli um
kvöldið hefst klukkan 8 með
bví að Lúðrasveit Reykja-
víkur leikur undir sitjórn Al-
berts Klahn, en því næst set-
ur Hjálmar Blöndal, formað-
ur þjóðhátíðarnefndar, hátíð-
ima. Karlakor Rfcykj avíkur
syngur undir stjórn Sigurðar
Þórðarsonar, borgarstjórinn í
Reykjavík, Gunnar Thorodd
sen, flytur ræðu, Karlakór-
inn Fóstbræður syngur und-
ir stjórn Jóns Halldórssonar,
Sigurður Skagfield óperu-
söngvari svngur með undir-
leik Lúðrasveitar Reykjavík-
ur og þjóðkóriinn syngur und
ir stjórn Páls Isólfssonar 7
lög. Dansað verður til klukk-
an 2 um nóttina, og leikur
hljómsveit Bjarna Böðvars-
sonar fyrir dansinum á Lækj
artorgi., og á Ingólfsstræti
leikur hljómsveit IOGT-
hússins, en þar verða dans-
aðir gömlu dansarnir. Lúðra-
sveitin Svanur leikur einnig
á báðum stöðunum nokkur
dans- og göngulög undir
stjórn Karls O. Runólfsson-
ar. Dagskrá hátíðahaldanna
verður seld á götunum um
dagiam- og hefur hún að
geyma allar þær upplýsingar,
sem nauðsynlegar eru hátíð-
argestum, svo og Ijóð þau,
sem sungin verða.
Pafreksfjarðarhrepp-
ur ætlar að kaupa
tvo nýja togara
HREPPSNEFND Patreks-
fjarðarhrepps hefur samþ. að
festa kaup á tveim togurum
af nýjustu gerð. Tveir togar-
ar eru nú gerðir út frá Pat-
reksfirði, þeir Gylfi og Vörð-
ur, sem báðir eru svokaliaðir
,,sápu“-togarar, smíðaðir í
Þýzkalandi rétt fyrir stríð.
Þeir eru báðir einkaeign.
Sótt um þrjá fogara
á Akranesi
BÆJARSTJÓRN AKRA-
NESS hefur nú samþykkt að
sækja um einn af hinum nýju
togurum, sem keyptir verða
til landsins. Þá var upplýst á
fundi bæjarstjórnarinnar, að
Haraldur Böðvarsson & Co.
hafi sótt um tvo nýja togara.