Alþýðublaðið - 16.06.1948, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 16.06.1948, Blaðsíða 4
I 4 ______ ALÞÝÐUBLAÐIÐ Miðvikudagur 16. júní 1948. tJtgefandi: Alþýðufloltkurinn. Ritstjóri: Síefán Rjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Kitstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía MöIIer. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Affsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðöprentsmíðjan kf. MhjúpaSar áról- urslygar. YFIRLÝSING RÍKIS- STJÓRNARINNAR varðandi inneignir íslenzkra einstak- linga og félaga vestan hafs hefur sett þá menn, sem und- anfarið hafa tekið munninn fyllstan um þessar inneignir, í mikinn vanda. Kommúnist- ar hafa dag eftir dag látið Þjóðviljann fara með æsi- fregnir urn 320 milljónir króna, sem vitað væri, að ís- lenzkir auðmenn ætíu í doll- urum í Bandaríkjunum, en ríkisstjórnin hylmaði yfir; og Hermann Jónasson, formaður Framsóknarflokksins, sem í seinni tíð virðist leggja nokkrá áherzlu á það af ein- hverjum ástæðum, að hafg velþóknun kommúnista, full- yrti einn daginn á fundi úti » á landi, að nú þegár væru ,,fundnar“ 130 milljónir króna í dollurum, sem ís- lenzkir einstaklingar og fyr- irtæki ættu þar vestra. En nú hefur ríkisstjórnin upp- lýst, hvað raunverulega er vitaö um þessar inneignir; og vitneskju sína h'efur hún frá alþjóðagjaldeyrissjóðnum. — Samkvæmt henni námu inn- eignir íslenzkra einstaklinga og félaga í Bandarikj unum 26 milljónum Ij-róna 30. júni í fyrra. Nýrri upplýsingar eru ekki til; og allar tilraun- ir, sem ríkisstjórnin hefur gert til þess-að fá eigendur þessara inneigna upp gefna, hafa hingað til reynzt árang- urslausar. * Þetta er nú, eins og menn sjá, dálítið annað en það, sem Þjóðviljinn og Hermann Jón- asson hafa fullýrt. Það gerir þó nokkurn mun, hvort inn- eignirnar nema 26 milljónum króna. eins og alþjóðagjald- eyrisjóðurinn' telur. eða 320 milljónum, eins og Þjóðvilj- inn fullyrðir, eða þótt ekki væri nema 130 milljónum, eins og Hermann Jónasson segir, að þegar séu ,,fundnar“ Hermann hefur þá og líka kosið að hafa hægt um sig síðan yfirlýsing ríkisstjórn- arinnar kom; en Þjóðviljinn hefur ekki haft vit á því. í Stað jaess æpir hann í gær, að nú sé að minnsta kosti vitað hvar þær 26 milljónir, sem ríkisstjórnin nefnir með skír- skotun til alþjóðagjaldeyris- sjóðsins, ,,eru niður 'komhar“, og það sé „vissulega ekki nein smávægileg upphæð“; það sé „andvirði tíu nýsköp- unartogara"; „aðeins með því að hirða bankaeign nokkurra íslenzkra milljónara í Banda- ríkjunum”, sé hægt að borga þá tíu nýsköpunartogara, sem nú hafi verið ákveðið að kaupa til viðbótar við þá fyrri! Og að endingu klykkix Tapaðai* vimiusturKlii*. — Umræðuefni með flesí- um þjóðum. — Liíið í eigin barm. — Oþægilegar siíurningar. — Misíök leiðrétt. EG TOK EFTIR ÞVÍ, Iive oft var í.ilað um nauðsyn þess, bæði í Danmörku og Svíþjóð, að nýta vinnusíundirnar sem allra bezt, ekki aS lengja vinnutímann, því að það væri vafasamui' hagnaður, heldur að gæta þess vandlega að sem allra bezt not yrðu að hverri mínútu, sem unnið væri. Ég sá útreikn- inga um það, hve mjikið af verðmætum töpuðust við óheppilegt fyrirkomuíag í verk smiðjum og eins þegar um væri að ræða óstundyísi verkamanna við vinnu. Býörg fyrirtæki töldu það borga sig vel að flytja verkamenn til og frá vinnu í eigin bifréiðum, því að með því væri betur tryggt að verka- rnenn tefðust ekki á Ieiðinni. ÉG KYNNTIST ÞESSU fyrst og fremst í herbúðum verka- mannanna sjálfra, í fagblöðum þeirra og með viðræðum við starfsmenn verkalýðsfélaga. Verkamenmrnir og iðnaðarmenn drnir skildu nefnilega mjög vel, að týndar mínútur tug- þúsunda verkamanna við vinnu þýddu minnkandi vinnu fyrir þá, minnkandi framleiðslu, og þar með minni mat, minni fatn að, allt rninna, nema eitt, meiri og' hærri skatía. En það er ekki aðeins á Norðurlöndum, sem maður heyrir talað um þetta. Af fréttum frá Frakklan-Ji, Rússlandi og ekki sízt Bretlandi á undanförnum árum, getum við ráðið, að þar er sama um- ræðuefnið hátt á baug'i. EN SVO LÍTUM VIÐ alltaf í eígin barm. Hvernig er þetta hér? Heyrist þetta nokkurn tíma rætt hér? Ekki hef ég séð neitt um það opinberlega og heldur ekki heyrt rætt um það í útvarpi eða séð það í blöðum. Hvernig stendur á því? Er hefð in sú enn við iíði, að auka fríin, stytta vinnutímann úr 3 stundum, lengja kaffihléin á vinnustöðum og í skrifstofurn? Það var ekki óeðlilegt hér á ár- um, þó að verkalýðshreyfingin berðist fyrir styttum vinnu- tíma. Það var sjálfsagður hlut ur. En þegar vissu takmarki er náð, er sigur unninn. Og á sömu braut er ekki hsegt afi halda endalaust. OKKUR ríður ekki minna á á því að framleiða sem mest en öðrum þjóðum. Framleiðsla okk ar er ákaflega einhæf og þess vegna verðum við að vinna að því öllum árum að auka sem mest þessa einhæfu framleiðslu. Sannleikurinn er sá, að allir verða að leggja si% fram við framleiðsluna, svo að^ við getum haldið þeim gæðum, sem við búum nú við og oætt um þar sem enn kreppir a3, eins og til dæmis í húsnæðis- málunum, en þar þarf mikið á- tak og þau vandræði þrengja nú að eins og alls staðar annars staðar í heiminum. En þetta tekst ekki, ef við leggjum ekki áherzlu. á það að nýta hýerja mínútu af þeim tíma. sem við eigum að vinna samkvæmt við- ) teknum reglum og ákveðnum samninguni. EN HVAÐ SEGJA vinnuver' og verksmiðjur hér? Hvað segja verkstjórar og verka- menn? Hvenær mæta verka- menn, forstjórar og verKstjórar til vinnu? Hvað vantar niarga til vinnu á laugaraagsmorgn- um? Hve margir koma til vinnu fyrir hádegi á mánudögum? Hve margar þúsundir klukku- stunda tapast hér í Reykjayík á hverri einustu viku? ÉG SÉ Á BLÖÐUNUM, að Reumerthjónunum hefur verið fagnað vel hér heimá. Það er líka mikill fengur fyrir okkur ao fá hingað svo göfuga lista- menn sem þau eru. Ég sötti ís- 1 endingaskemmtu n í Kaup- mannahöfn um daginn og hlust- aði þar á Reumert. Ég vonaði að ég kæmist heim áður en hjónin hætíu að leika hér og mér varð að von minni. Það er ógleymanlegt að fylgjast með list þeirra í Iðnó þessi kvöld og þó hygg ég að enn athyglis- verðara verði að sjá Strindbergs Framhald á 7. síðu og vei'ksniiðj'a ver&ur lofcuð til 29. þ. m. vegna .sumarlsyfa starfsfóteins. h'nasmiðjan h.f. úr ManiHa-hampi geíum við útvegað frá einni stærsfu verksmiSj'u Bretlari'ds í sinni gr.ein. Leitið frekari uppjýsinga hjá oss. Garoa'Stræti 2. — Sisni 5430. íii síidarssliends Þeir síldarsaltendur, sem ætla að salta síld á þessu sumri, þurfa samkvæmt 8. grein laga nr. 74 frá 1934 að sækja um leyfi til Síldarútvegs- nefndár. Saltendur þurfa að upplýsa eftirfarandi: 1. Hvaða söltunarstöð þeir hafi til umráða. 2. Af hvaða skipum þeir fái síld til söltunar. 3. Hvaða eftirlitsmaður verði á stöðinni. 4. Hve margt síldverkunaríólk vinni á stöð- inni. 5. Eigi umsækjendur tunnur og salt, þá hve mikið. _ , ( Umsóknir burfa að berast nefndinni fyrir 25. þ. m. Nauðsynlegt er, að þeir saltendur, sem óska að. fá keyptar tómar tunnur og salt frá Síldarútvegsnefnd, sendi pantanir íil skrifstofu nefndarinnar á Siglufirði nú þegar. SÍLDASÚTYEGSNEFND. Auglýsið í AlþýðubiaSlnu Þjóðviljinp út með því, að þessar 26 milljónir sýni „hví- líkt traust milljónararnir hafa borið til íslenzku ríkisstjórn- arinnar“, þ. e. til yfirhylm- ingar hennar! * 4= Um þetta dæmalausa rugl Þjóðviljans. sem auðsýnilega er sett fram til þess eins, að draga athygli almennings frá því, hvernig yfirlýsing ríkis- stjórnarinnar hefur afhjúpað lygar Þjóðviljans um 320 milljónir króna, sem vitað sé að íslenzkir auðmenn eigi i dollurum vestan hafs, ætti ekki að þurfa að eyða mörg- um orðum. En þó skal hér bent á þetta: í fyrsta lagi: Séu þær 26 milljónir, sem í sannleika er nú vitað, að íslenzkir ein- staklingar og félög eiga vest- an hafs, vottur þess, „hvílíkt traust milljónararnir hafa borið til íslenzku, ríkisstjórn- arinnar“, eins og Þjóðviljinn. segir, þá er bezt að ganga úr skugga um það, hvaða ríkis- stjórn það hefur verið. Ekki hefur það verið núverandi ríkisstjórn; þyí að bersýni- lega hafa þessar inneignir orðið til vestanJiafs áður en hún tók við. Með öðrum orð- um: Það hefur þá verið fyrr- verandi ríkisstjórn, ríkis- stjórnin, sem Þjóðvijinn hef- ur aldrei þreytzt á að lofa af því, að þeir Áki og Brynj- ólfur áttu sæti í henni! Og í öðru lagi: Víst þyrfti ekki nema ,,að hirða“ þessar 26 milljónir „nokkurra ís- lenzkra milljónara í Banda- ríkjunum“ til þess að borga þá tíu nýsköpunartogara, sem enn hefur verið ákveðið að kaupa. En hvernig vill Þjóðviljinn fara að því ,,að hirða“ þær? Það er nefni- lega alls ekki satt, sem hann segir, að nú sé vitað, hvar þær ,,eru niður komnar“; þvert á móti hefur hingað tii reynzt með' öllu ómögulegt að vita það, né heldur hitt, hverjir eru eigendur þeirra! Það er svo margt, sem mátt hefði gera með milljónum stríðsgróðans, ef öllu hefði verði til skila haldið. Það hefði líka mátt borga átta ný- sköpunartogara með þeim 20 milljónum króna, sem Áki sólundaði við byggingu nýju síldarverksmiðj anna á Norð- urlandi umfram áætlaðan kostnað. En þær milljónir eru gengnar okkur úr greip- um fyrir fullt og allt. Útilok- að er hins vegar ekki, að við náum einhverju af þeim 26 milljónum, sem geymdar eru vestan hafs; en það verður áreiðanlega ekki kommúnist- lum að þakka; enda b«r ekki á öðru en að þeir Áki og Brynjófur væru hinir, róleg- ustu í ráðherrastólum sínum meðan verið var að skjóta þessum milljónuni undan. -i- Þjóðviljinn ætti yfirleitt, að sjá sóma sinn í því, að þegja úr þessu um inneign- irnar í Bandaríkjunum, eins og Hermann Jónasson. Báðir eru uppvísir að því, síðan ríkisstjórnin gaf'út yfirlýs- ingu sína, að hafa farið nieð staðlausu stafi um þessar inn- eignir. Og hvað sem þær kunna að vera mikið meiri en þær 26 milljónir, sem nú er vitað um — um það veit enginn — þá hefur hvorugur gert svo mikið sem tilraun til þess að finna stóryrðum sínum og fullyrðingum um það nokkurn stað, þótt hvað eftir annað hafi verið á þá skorað að gera það. , , 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.