Alþýðublaðið - 14.07.1948, Síða 4
'■4
"■ ;, -;;---------—
fS
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Miðvikudagur 13. júlí 1948.
Úfgefanðl: Alþýðnflobkurlnn.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Bitstjórnarsimar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasimi: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
r AIþýð«prentsmiðjan h.f.
Kærleiksheimili
kommúnismans
ÚT AF kærleiksheimili
kommúnismans í Austur-Ev-
rópu. þar sem, að því er
kommúnistar um heim allan
herma, fullkomið þjóðfrpitö
ríkir. smáþjóðirnar eru jafn-
réttháar stórveldinu. og úlf-
•urinn leikur sér yfirleitt við
lamb''ð. bafa undanfarið bor-
izt fréttir, sem inokkuð stinga
í stúf við þetta og töluverða
athygli hafa vakið.
*
Fyrir svo sem hálfum
mánuði fékk heimurinn. sér
(til undrunar. að heyra það,
að ekki væri allt með þeim
friði og samlvndi á þessu
héimili og sagt hefur verið af
hinum austrænu trúboðum.
Stiórn og kommúnistaflokki
Júgóslavíu var skyndilega og
alveg óvænt vikið úr samfé-
Oagi' hinna heilögu og harðort
bannfæringarskjal fjöl-
skylduföðurins austur í
Moskvu og hinna betri barna
hans birt um margvísleg af-
brot hins útskúfaða.
Kom mönnum úti um heim
þetta meira en lítið óvart. bví
að talið hafði verið., að Tito
marskálkur hefði verið föð”'-
Stalin gott barn, já, meira að
setf’a hars bezta barn. En nú
fengu beir að heyra. að það
væri öðru nær: Tito og flokk-
ur hans hefði sýnt Stalin
hinn mesta fjandskap og ó-
virt her hans; þótti af þeirri
ástæðu nauðsvnlegt að benda
Tito á það í bannfæringar-
skjalinu, að það væri að of-
meta möguleika Júgóslavíu
tjl þess að halda siálfstæði
sínu. að ætla sér að fara sínu
fram þar án föðurle«rar
handle:ðslu og hjálpar Stal-
ins og Sovétríkjanna!
*
Svo er að sjá, sem Tito
hafi ekki látið skipazt við
bessa umvöndun. því að nú
hafa borizt nýiar og alvar-
legrj fréttir út af hmu knmim
únistíska kærle’ksheimili, í
þetta sinn um mjög alvarleg-
ar ráðstafanir til þess að
beygja h’nn óþæga son undir
aga og forsjá föðurins í
Moskvu.
Þau börnin- sem þægust
hafa revnzt. eiga nú að
hjálpa til við hirtmguna. En-
ver Hoxa, bróðirinn í Alban-
íu. hefur neitað að eiga nokk
ur skipti meir við Tito, nema
hann bæti ráð sitt, og við-
skintasamnir^ar, sem þeir
höfðu gert með sér. hafa ver-
ið rofnir, vöruflutningar
stöðvaðir og ®endimenn Titos
reknir frá Albaníu. Og Anna
Pauker hin skelegga systir
Titos í Rúmeníu. sem á
marga, ágæta olíubrunna,
sem hún hefur miðlað syst-
kinunum af undanfariðntitar
„Þar eru illa siðaðir hundar.“ — Gamalt orðtæki
— og dómur um húsbændur. — Farbegar á Esju.
— Hvers vegna fá ekki íslendingar að fara með?
„ÞAR ERU illa siðaðir hund-
ar.“ Þannig var stundum mælt
í gamla daga, þegar rætt var
um þæi til sveita. í>ar með átti
allt að vera sagt, illa siðaðir
hundar á einhverjum bæ áttu
að vera dæmi þess að siðseminni
væri ekki þar fyrir að fara og
þar með voru húsbændurnir
settir skör lægra um alla hegð-
un og menningu én þeir, sem
höfðu vel siðaða hunda. — Blað
kommúnista geltir ofsalega í
gær. „Það eru illa siðaðir hund-
ar á þeim bæ,“ glefsandi, gelt-
andi rakkar, sem urra að fólki
svo að skín í gular tennurnar.
EN HVAÐ ER um að sakast.
Þetta fer eftir húsbændunum.
Tónn þeirra og tal um nágrann-
ann, jafnvel tónn þeirra og tal
innbyrðis á heimilinu, hleypir
kergju í hundkvikindin svo að
þeir rjúka upp með grimmd og
gelti út af hvað litlu sem er,
glefsa að gestum og rjúka á
hvern þann, sem að garði ber.
— Það er sagt að það þýði ekk-
ert að sveia illa siðuðum hundi,
hann geyi því meir.
>,HJALTI“ hefir skrifað mér
bréf af tilefni umræðnanna um
ferðalög með skipum til út-
landa. Hann svarar nokkrum
orðum „Ferðalang", en ræðir
svo nokkuð kosti, sem á því séu
að fara til Skotlands. Bréf
Hjalta fer hér á eftir:
„ÉG SAGÐI ÞAÐ, og fullyrði
enn: Loch Long er til, fallegur
f jörður eitthvað nálægt 50 ensk-
ar mílur vestur af Glasgow. Hef
komið þangað sjálfur og á fal-
lega mynd af firðinum, og svo
getur hver sem lítur á sæmilegt
Skotlandskort sjálfur séð þar
prentað skýru letri að fjörður-
inn heitir Loch Long. Þótt
„Ferðalangur11 hafi ekki komið
þar, verður fjörðurinn samt
ekki afmáður.“
„HITT ER RÉTT hjá honum,
að Loch Lomond er ekki fjörð-
ur, eins og ég vissi raunar áður,
en bílstjórinn, sem ók mér um
þessar slóðir, fullyrti.við mig,
að Loch Lomond væri líka
fjörður. Og sama er mér. Þetta
er eitt hið fegursta hérað, er ég
hef séð, og ég vil að sem flestir
landar mínir fái líka að njóta
þess. Esjan getur flutt ferðafólk-
ið til Loch Long, og þaðan er
örstutt til „bonnie banks of
Loch Lomond“.
„MÖRG RÖK hníga að því að
heppilegast væri að beina vænt-
anlegum hópferðum okkar til
Skotlands. Það mun vera þriðj-
ungi styttri leið en til Noregs
eða Danmerkur, og því ódýrasta
ferðin, sem völ er á. Vestur-
strönd landsins er Ijómandi fal-
leg, landið grænt, fjöllótt og
víða skógi vaxið, allt fyrirmynd
þess, sem okkar land á að verða
eftir 50—100 ár, ef næstu kyn-
slóðir bregðast ekki vonum okk
ar um ræktun og skóggræðslu.
Langar sjóferðir, oft um úfinn
sjó, eru andstyggilegar og þreyt
andi fyrir sjóveikt fólk eins og
„Iandkrabbana“ okkar, konur
og karla, sem fyrst og fremst
eiga að fá að njóta hópferðanna.
En við þurfum að fá margar slík
ar ferðir á hverju sumri með
Esju eða Heklu.“
„VÆRI EKKI HÆGT að
byrja strax í sumar? Esja tekur
148 farþega, en aðeins 90 út-
lendingar komu með fyrstu ferð
inni. Fjárhagsráð ætti að geta
veitt smávegis gjaldeyri til að
gera útgerðinni kleift að fylla
ávallt í skarðið með íslenzkum
farþegum, svo að allt farþega-
rúm skipsins sé notað í hverri
ferð. Ríkisskip hlaut að vita að
aðeins 90 útlendingar kæmu
hingað. Þá átti að gefa 58 ís-
lendingum kost á fari og sömu
kjörum og Skotunum, að þeir
fengju að búa í skipinu meðan
staðið var við í Glasgow, og
hverjum þeirra 5—10 sterlings-
pund í nesti.“
>,NÆSTA SUMAR og eftir-
leiðis ætti svo að nota allan
gjaldeyri, sem aflast vegna
ferðalaga útlendinga hingað, til
hópferða handa því fólki, sem
vill „sigla" — í fyrsta skipti á
ævinni.“
nú með öllu að láta Tito hafa
nokkra olíu, nema hann biðji
föður Stalin fyrirgefningar,
hætti að óvirða her hans og
lá'ti sér sktljast nauðsyn þess,
að fylgj'a föðurlegri hand-
leiðslu hans. ef Júeóslavía
eigi að geta haldið sjálfstæði
sínu.
*
Þannig er ástandið á kær-
leiksheimili kommúnismans
í Austur-Evrópu í dag. Full-
komið þjóðfrelsi á að ríkja
þar, og hvergi nema þar; en
joað er að vísu því skilyrði
iDundið. að hinar „frjálsu
þjóðir“ kommúnismans sitji
og standi eins og einvaldur-
inn í Moskvu vill. Láti þær
sér detta í hug eitthvað ann-
að, fá þær strax að vita. að
þær „ofmeti möguleika sinn
til þess að halda sjálfstæði
án hjálpar Sovétríkjanna",
og nægi það ekki. er gripið
til hungurssvipunnar, hætt
að selia þeim nauðsynjar og
þeim bannaðar allar bjargir!
í Þjóðviljanum hefði þetta
nú sennilega ekki þótt til
fyrirmyndar, ef“ það hefðu
verið Bandaríkin, sem þannig
hefðu komið fram við okkur
eða einhverja aðra vestræna
smáþjóð; sennilega hefði þá í
því sambandi eitthvað verið
minnzt á kúgun og heims-
valdastefnu. En af því að það
er Rússland og eitt af hinum
lofsungnu. „frjálsu“ lepp-
ríkjumi þess í Austur-Evrópu,
vill Þjóðviljinn sem minnst
um þetta skrifa. Það gæti
annars vakið ýmsar efasemd
ir og hugsanir hjá lesendun-
um, sem ekki þættu líklegar
kommúni'smanum til fram-
dráttar hér á landi í framtíð-
inni. 1
Yegna minningarathafnar
um Pétur Magnússon fcanka.sijóra vierða' iskrif-
stofur vorar lokiaðar fúá fel 12 á hádeigi í dag.
Sjóvátryggingarfélag íslands h.f.
Eimsfeipafélagshúsinu o,g Borgartun 7.
Yegna jarðarfarar
verður skrifstofum vorum ilofcað mdvðvikudag'
inn 14. júií frá 'fel. 12 á hádagi.
Fjárhagsráð.
Vegna minningarafhafnar
um Pétur Magnússon, hanfcastjóra verða bank
an'ir lofcaðir frá kl. 12 í dag.
Útvegsbanki íslands h.f.
Búnaðarbanki Islands.
Lokað
frá hádegi í dag
Skrifstofa héraðslæknis.
Skrifsfofa mín
verður iokuð frá hádegi í dag vegna minn-
ingarathafnar -um Pétur Magnússon banka-
istjóra.
Finnbogi Kjartansson
Austu'rstræti 12.
Lolað vegna sumar
fúá 17. júllí — 2. ágúst's.
Velaverkst. Sig. Sveinbjörnsson h.f.
Skúlatúni 6. í
Tryggingasfofnun ríkisins
AthygM skal vakin á því, að nýtt hóta'ár hefst
frá 1. júlí 1948 og hefjast greiðslur þ. 15. þ. m.
Skulu þá allir þeir ier njóta barnalifeyris og fjöl-
sfcyldubóta sýna Mfsvottorð eða önnur þau gögn,
er umboðið tefcur gilt um þú'setu bai-nanna, er
þeir vitja bótanna í fyxsta 'sinn ó nýja bóitaárinu.
Áfmannafryggingarnar í Reykjavík
Tryggvagötu 28.