Alþýðublaðið - 14.07.1948, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 13. júlí 1948.
. ---------- - —■ ' . . -’Jm-BKTTTr.TH
Jonas Guðmundsson
{ Þing 11.0. í
SAN FRANCISCO
4. júlí.
ri ^
Myndin sýnir tvo af fulltrúum íslands á þingi I.L.O. í San Franc-
isco, stjórnarfulltrúana, þá Jónas Guðmundsson, skrifstofustjóra
í félagsmálaráðuneytinu, og Jón Ólafsson, starfsmann í sama
ráðuneyti.
EF efna skal það hálfgild
ings loforð, sem gefið var rit
istjóra Alþýðublaðsins áður
en. ég fór hingað vestur, um
@ð senda Alþýðublaðinu línu
héðan, er ekki seinna vænna,
því senn líður að brottfarar-
degi.
Hinn 17. júní s- 1. var sett
sér i San Francisco í Kali
forníu 31. þing alþjóðavinnu
málatofnunarinnar (Interna-
tional Labour Organisation)
eða I.L.O., eins og stofnun
þessi oftast er nefnd.
Af hálfu íslands, sem er
meðlimur þessarar stofnunar,
sækja þetta þing ég og Jón
Ólafsson, fulltrúi í félags
málaráðuneytinu, en hann
heíur dvalizt á vegum I.L.O.
síðan í desember s. -1 til þess
að kynna sér starfsemi stofn
unarinnar.
Alls eru nú 58 ríki talin
vera meðlimir í I.L.O., og af
þeim munu 56 eiga fulltrúa
á þinginu. Ungverjaland og
Júgóslavía eiga hér ekki full
trúa að þessu sinni, þótt þau
Iséu talin meðlimir.
Svo telst fróðum mönnum
til, að atkvæðisbærir fulltrú
ar á þinginu muni vera um
210, en aðstoðarmenn og
starfsfólk ýmis konar, sem
fullírúum þessum fylgir, er
talið vera nær 200 manns,
svo að alls eru hér rúmlega
400 manns, er taka þátt í
þessu þingi.
Þingsetningin fór fram í
óperuhúsinu hér í borginni,
en í því húsi var fyrsta þing
sameinuðu þjóðanna sett, er
sá félagsskapur va.r stofnað
ur. Fyrstu dagana var þingið
í hálfgerðum húsnæðisvand
ræðum; því það rakst á þing
Rauða kross Bandaríkjanna,
sem fyrir var í húsnæði því,
sem I.L.O. var ætlað. En nú
er íyrir löngu úr því bætt,
og þingið er nú háð í húsa
kynnum verzlunarháskólans,
miklu húsi og myndarlega
búnu. Upp úr 20. júní hófust
því regluleg fundahöld og
hafa’ staðið óslitið (síðan.
I.L.O. þingið skiptist í
þrjár deildir eða þrjá hópa.
Eru stjórnarfulltrúar allir i
einum flokknum, og er þar
misjafnlega gott samkomulag
eins og geta má nærri. At-
vinnurekendafulltrúar eru í
öðrum flokki og kemur sæmi
ílega saman, áð því er virðist,
en verkamannafulltrúar eru
í þeim þriðja, og er samkomu
lagið bezt þar og eindrægnin
mest.
Hver „grúppa" eða deild
kýs sér sína stjórn sérstak
lega, og veittist íslandi sá
heiður, að fulltrúi þess var
kjörinn varaforseti í deild
ptjórnarfulltrúanna í þing
byrjun. Aðalíorseti þeirrar
deildar var kjörinn Rudolfo
Volenzuela, hæstaréttardóm
ari írá Argentinu.
Aðalforseti sjálfs þingsins
er hinn kunni, trausti fyrrv.
ráðherra Justin Godart. Hann
stjórnar fundum þingsins
með skörungskap miklum,
enda veitir tæpast af því að
fast sé haldið á fundarstjórn,
því hér hafa menn stundum
mikið að segja.
Til þessa hafa störfin ná-
lega eingöngu verið í nefnd-
urn. Merkast þeirra mála,
sem nú eru á dagskrá þings-
ins, má vafalaust telja sam
þykktina um félagafrelsi,
verndun þess og rétt manna
til að mynda félagsskap. Um
það mál fjallar 80 manna
nefnd, og eru 40 úr hópi
stjórnarfulltrúa en 20 úr hópi
verkamanna og 20 úr hópi at
vinnurekenda. ísland á full-
trúa í þeirri nefnd. Þegar
þetta er ritað, hefur nefndin
lokið við að ganga frá sam-
þykkt um félagafrelsi og
verndun þess, og rétt verka-
manna og atvinnurekenda til
að mynda félagsskap, og fer
sú samþykkt nefndarinnar
fyrir allsherjarþingið sjálft.
Má gera ráð fyrir, að hún
verði samþykkt litið eða
ekkert breytt.
Af öðrum málum, sem þetta
þing fjallar um, má nefna
þessi:
Samþykkt um lágmarks-
kaupgjald.
Samþykkt um sömu laun
fyrir sams konar störf.
Samþykkt um vinnumiðl-
unarstofnanir.
Samþykkt um bann við
næturvinnu unglinga og
kvenna.
Auk þessa fjallar þingið að
sjálfsögðu um fjármál stofn-
unarinnar og önnur skipulags
málefni hennar.
*
Einn þáttur í starfi þingsins
eru umræður um greinar-
gerð framkvæmdastjóra stofn
unarinnar. Greinargerð fram
kvæmdarstjóra er allmikil
bók, sem útbýtt er í þing-
byrjun. Eru umræður þessar
eins konar eldhúsdagsumræð
ur, og skammast menn þá
gjarnan nokkuð, en öllu hef-
ur því verið vel í hóf stillt
til þessa. Á þinginu í Genf í
fyrra gerðust Argentínumenn
all hávaðasamir við þær um
ræður, og hefur nú Peron séð
það ráð vænst að senda einn
af hæstaréttardómurum sín-
um, vænan mann og virðu
legan, til að stjórna liðinu að
þessu sinni. Það má segja, að
ekki hafi nema einu sinni
hvesst verulega á þinginu það
sem af er, en það var þegar
stjórnarfulltrúarnir frá Tékkó
slóvakíu og Póllandi og
verkamannafulltrúinn frá
Ítalíu, sem aldir eru komm-
únistar, lögðust gegn því, að
kjörbréf hins fræga franska
verkalýðsleiðtoga Leons Jou-
haux yrði tekið gilt. Er ræðu
þeirri, sem Jouhaux hélt við
það tækifæri, viðbrugðið hér,
og birtist hún i ýmsum blöð-
um hér í San Francisco.
Töldu þessir fulltrúar, að Jou
haux gæti ekki talizt fulltrúi
franskra verkamanna, þar
sem hann tilheyrði ekki leng
ur gamla franska verkalýðs-
sambandinu, en það blofnaði
fyrir nokkru, eins og kunn-
ugt er, og héldu kommúnist
arrJr gamla félagsskapnum,
en Jouhaux og aðrir sósíal-
dernókratar úr verkalýðssam-
tökunum stofnuðu nýtt sam
band. Kjcrbréf Jouhaux var
samþykkt að Iokum án at-
kvæðagreiðslu.
*
í gær fór fram kosning í
stjórn I.L.O. Skyldi kjósa 8
fulltrúa í stjórnina og hlutu
þessi ríki kosningu: Argen-
tína, Ástralía, Cuba, Dan-
mörk. Ítalía, Pólland, Peru og
Tyrkland.
Sjálfkjörin samkvæmt lög-
um stofnunárinnar, td að eiga
fulltrúa 'í stjórninni eru:
Bretland, Bandaríkin, Kína,
Kanada, Indland, Frakkland,
Brazilía og Belgía.
Auk þess kjósa fulltrúar
verkamanna 8 menn-í stjórn-
ina og fulltrúar atvinnurek-
enda aðra 8 menn, og verða
þannig 32 menn í stjórninni.
Flvert hinna kjörnu rikja
hefur rétt og skyldu til að
benda á annað ríki, sem ekki
nær kosningu sem varafull-
trúa sinn, og er ráðgert, að
Danmcrk bendi á ísland sem
varafulltirúa fyrir sig. Sú á-
bending þýðir það, sam-
kvæmt þeirri reglu, sem gilt
héfur innbyrðis milli Norður
landaþjóðanna, að ísland fær
aðalfulltrúasæti Norðurlanda
í stjórninni að þrem árum
liðnum. Um þetta er þó ekki
hægt að segja með vissu nú,
því ríkisstjórnir Danmerkur
og íslands verða að fjalla um
málið fyrst.
(Niðurlag á morgun.)
Guðmundur Einarsson frá Miðdal:
Bók þessi er 184 bls. að stærð með fjölda Ijósmynda og teikninga. í bók-
in.ni eru frábærar lýsingar af Heklugosum frá fyrstu tíð, adhiliða áhrifum beirra
á land og lýð, hörmungum og tánum, sem þau háfa greypt í mieðvitund þjóðar-
dnnar. Lýsing á hinu síðasta Hekliugosi siem er rffiuð undir gieðhrifum frá gos-
inu og hinu mi'kilúð'lega umhverfi þess.
Bókin er á þrem tunigumálum, íslenzku, ensfcu og dönsku. Þýðingar á
dönsku eftir Kristin Ármannson og á ensfcu eftir Bjarna Guðmundsson.
Bófcin er áhrifamikil landfcynndng áhinni sérstæðu náttúru íslands,
Handa vinum yðar erlendis er ekki kostur á betri gjöf.
t--
\M<
BOKAÚTGAFA