Alþýðublaðið - 14.07.1948, Qupperneq 7
Miðvikudagur 13. júlí 1948.
ALÞÝÐUBLAÖiÐ
7
E.s. „Horsa"
fer frá ReykjaViik föstudiaginn
16. júií tdl Viestur- og Norð'Ur-
daindsins.
Viðkomustaðir:
ísafjörður
Siiglufjörður
Afcureyri.
Hi. 'Eknskiipafélag íslands.
Félagslíf
Ferðafélag íslands ráð
WíW' géfir að- fara isfcemmti
ferð itdil Nörður og
Ausfuriandsins 20 júM. Þessi
ferð fátti að fara aðeins rtil
Norðurlandsms (til Mý'vatns,
Dettáfoss, Ásbyrigis og víðar)
og þá 9 daiga ferð, en tilætlun
in e-i' að fara aliia ilieið austur
á Fljótsdalsihériaði iog vera 10
daga í ferðinnii. Þátttakendur
igefi sig friam strax og tafci far
rniðá fyrir !hiádegi á ilaugardag.
Óbyggðaferðdn h'efst næ-st-,
kcm-andi iaugafdag kl. 2 ie.-h.
Faríð að Hagawatni, -Hvítar-
vatni, á Þjófadali, Hveravelli.
K'erlingarfjöiM, í Kairl'sdrátt,
gengið á Bláfell, Kerlingai-
fjöll: Skoðað- hiver-asvæðið og
farið víða ium á miiilili Hofs og
Lar.igjö'kiuQs. Farmiðar séu tekn
ór fyrir 15 þ. m.
Vestfjarðafönkn: Þessi 'ifierð
hefst 22. júlií 'Og er 9 da-ga ferð.
Farið 'um eyjarnar á Breiða-
firði, Barðaströnd og í Vatns-
idal' yfir Þor-skaifjarðarheiði i
Rejkh.clasivieitimia. Fármiðar
séu tekn-ir fyrir 19 iþ. m.
Oræífaíerðin er fulliskdpu-ð.
Ferð að Kirkjubæjarklaustri
'Og xifðandi í Lafcagigi. Er xáð
gert að fara- þess'a ferð héðan
20 júM.
Aðrár upplýsángar á sfcrif-
'stofunni í Túngötu 5.
VERKFALLI franska flug-
v a 11 a s t a r fs :r. a n n a er fokið og
hefst f'lug í Frafcklandi á ný
í dag.
Minningarorð:
ÉG MINNIST Péturs Magn
ússonar frá skólaárunum,
fyrst hvað hann var sterkur
og síðan hvað hann var mik
ill drengur. Hann hafði bæði
virðingu og vináttu sinna
skólabræðra; hann var traust
ur námsmaður, góður söng-
maður og mákill íþró'ttamað-
ur. Hann var fullorðinslegur
þegar á unglingsaldri, og
hafði það skap, sem enginn
ófriður fylgdi. Hann var gam
ansamur og góður féiagi. en
hafði sig ekki mikið frammi
í skólamálum; má segja að
þess þyrfti ekki með, því til
hans var engu að síður leitað
trausts sakir dómgreindar
hans og drengskapur. Var
hann sjálfum sér líkur alla
ævi, engir sveipir né hávaðar,
heldur eins og vatnsmikið
fljót, sem fellur með þungum
nið til sjávar. Hefur sú lífs-
léið nú reynzt styttri en vér
hefðum allir á kosið, því
Pétri var margt gefjð, ssm
þezt er í arfleifð Islendinga,
festa bóndans, réttsýni lög-
mannsins og góðvild og hjálp
fýsi kr-istinnar menningar.
Pétur var sonur hins ágæta
manns séra Magnúsar Andrés
sonar á Gil-sbakka og Sigríðar
Pétursdóttur, konu ha-ns.
Hann fæddist árið 1888, lauk
stúdentsprófi!911 og lögfræði
prófi 1915. Hann- var istarfs-
maður Lands'bankans í 5 ár
þar á eftir, en stundaði síðan
lögfræðingsstörf í rúmlega 20
ár. Hann raut mikils trausts
sinna skjólstæðinga, þótti
bæði ráðhollu-r og úrræða-
góður; urðu margir þe'rra
aldavinir hans. Byggðist hið
mikla traust, sem hann jafn-
ar. naut, ekki isízt á r-eynslu
þessara ára.
Á Pétúr hlóðust skjótt
margvísleg störf og fleiri en
hann sóttist sjálfur eftir.
Vildu margir nýir og gamlir
v.iniir hans hafa hamn með
í ráðum, og er það þjóð-
kunnugt, að andstæðingar
hans í stjórnmálum földu
venjulega vel fyrir séð. að
honum væru faldar trúnaðar
stöður. Að sjálfsögðu var
hann þó skammaður í ráð-
herrastöðu, svo sem jskylt
þykir í okkar fámenna landi,
en slíku er misjafnlega trúað.
Pétur var bæjarfulltrúi í
Reykjavík 1922—28. Hann
var forsjóri Ræktunarsjóðs-
Pétur Magnússon.
ins frá því hann var stækk-
aður 1924 og síðar eirm af
bankastjórum Búnaðarbank-
ans til 1937. Var Pétur bóndi
að langfeðgatali og alinn upp
við búskap til fullorðinsára,
enda ,sá ekki móta fyrir nein
um samskeytum á bæjarfull-
trúanum,. lögmanninum og
trúnaðarfuHtrúa bænöanna.í
öllu var hann sannur og heill.
Málefni bænda voru honum
hugstæð, enda varð har.n
landbúnaðarráðherra í þeirri
ríkisstjórn, er hann síðar tók
sæti í.
Það átti fyrir Pétri að
liggja, að halda áfram banka
störfum. Árið 1941 var hann
skipaður bankastjóri við
Landsbankann, en sagði emb
ættinu lausu meðan hann var
ráðherra. Lét hann þó tilleið-
ast að taka aftur við sama
starfi, er Magnús Sigurðsson
lézt, og voru miklar vonir
settar á áframhaldandi starf
hans í þeirri vandasömu
stöðu, enda er það éinsdæmi
að hafa tvisvar verið sóttur
til þess starfs og með jafnal-
mennu samþykki.
Ekki hygg ég að Pétur hafi
að fyrra bragði lagt kapp á
að komast á þing; hitt má
segja mér, að hann hafi þar
látið að óskum félaga ,-sinna,
sem þótti flokkurinn þá betri
ef hann væri með í forust-
ur.ni. Varð hann fyrst land-
kjörinn þingmaður 1930 og
síðar þingmaður Rangæ:nga
t’l 1937, og síðar landkjörinn
þingmaður Reykvíkinga frá
1942 og til dauðadags. Ráð-
herra var hann, sem kunnugt
er, í stj órn Ólafs Thors og fór
í nágrenni Reykja'víkur óskast til leigu í 1—2 mlánaða-
túna. Tilboð m-erkt „Suma-rbústaður“ óskast sent afgr.
bl'aðsinis fyrir f-immtudagskvöld.
þá með landbúnaðar- og fjár-
mál.
Stjórnmálasaga Péturs
Magnússonar verður ekki
sögð hér, þótt hún væri löng
og merk. Lét hann s;g mestu
varða fjármál og landbúrað-
armál, en var víða liðtækur
vegna víðtækrar þekkingar á
þjóðarhögum. Munu almenn-
ingi sérstakl-eg.a kunnar út-
varpsræður hans, sem báru
vott glöggykyggni, víðsýni
og þjóðhollustu. Það leyndi
sér ekki, að hor.um var ekki
annar áróður gefinn en fortöl
ur. Finnist einhverjum það
þurfa málsbóta, má benda
að skynsamlegar fortölur eru
f j öregg lýðræðisskipulags i ns,
en síðari tíma hraðskotaáróð-
ur og hrópyrði verður þess
bani, ef hanr., nær að sefja
fólkið. Pétur átti rnikið og
gott samstarf við forustu-
menn af öllum stéttum og
naut sömu virðingar og vin-
sælda á þingi sem annars
staðar. Það má þó máske með
nokkrum sanni segja, að fyrir
almenringi skorti á „sigur-
sveigin-n“ í hans opinbera
starfi. en það er vegna .þess,
að Pétur hrósaði aldrei sigri.
Svo ekki valdi missk'lningi,
á ég við að hann ofmetnaðist
aldrei af úrslitunum. Til frek
ari skýringar vil ég berdg á,
hve oft hann var tilnefndur í
sátta- og samninganefndir og
lagð.l saman nótt og dag þar
til deilur levstust. En því
varð honum oftast vel ágengt,
að málsaðilar óttuð-ust ergan
eftirleik eða blaðabásúnur.
Fráfall Péturs Magnússon-
ar er m’kill missir fyrir þjóð-
ina og hina ágætu konu hans,
Ingibjörgu Guðmundsdóttur
og mannvænlegu börn. Þeim
sendum vér irnilega samúðar
kveðju og honum þakkir fyr-
ir drengilsgt starf.
Á. Á.
Norræn heimilisiðnaðarsýning í
Listamannaskálanum.
♦ ----—
Þing norræna heimiSisiðnaðarsam-
handsins háð hér þessa dagana.
----------------•------
ÞESSA DAGANA er háð í Réykjavík 6. heimilisiðnað-
arþing Norræna heimilisiðnaðarsambandsins og síðastlið-
inn sunnudag var opnuð heimilisiðnaðarsýning í Lista-
mannaskálanum með þátttöku allra Norðurlandanna.
Matthías Þórðarson, fyrrv.
þjóðminjavörður, bauð gest-
ina velltomna, en síðan fluttu
N orður lar. daf ullt rú arni r
kveðjur að h-eiman til ís-
lenzkra heiml'siðnaðarfélaga
og sambanda. Svend Möller
arldt-ekt frá Danmörku, Toi-
ni-Inkeri Kaukonen frá Finn
landi, Kr. Grepstad skóla-
stjóri, Noregi, og Bo
Hammerskiold ladnshöfð-
ingi. Svíþjóð. Mælti einn
þe!xra, Norðmaðurinn Ragn-
ar Nordby. á íslenzku. Að því
búnu tóku gestirnir að skoða
sýninguna, en þar er margt
fagurra og smekklegra muna.
Er deild íslendinga þar eðli-
lega stærst, þar eð vandkvæð
um hefir verið bundið að
koma svo mörgum sýningar-
munum frá Norðurlöndum
hingað. En engu að síður er
um fjölbreytni mikla að
ræða hvað öllum deildum við
víkur.
Síðastliðinn laugardag fóru
þingfull-trúarnir skemmtifór
til Gullfoss og Geysis, en á
már.-ud. kl. 10 árd. var þingið
sett í Alþ’r.gishúsinu.
Verða fundir þess háðir til
14. júlí, og flytja norrænu
gestirnix' þar erindi og fyrir-
lestra. Síðasta heimilisiðnað-
arþ!ng Norðurlanda var háð
í Síokkhólmi árjð 1937.