Alþýðublaðið - 17.07.1948, Side 4
"liaitigaraiáguf 17si 194S.
Kvikmyndahúsin loka. — Breyting á skemmtana-
lífinu í Keykjavík. — Sumarnótt í höfuðstaðnum.
KVIKMYNDAHÚSIN eru að
loka hvert af öðru. Gamla Bíó
hefur haft lokað svo mánuðum
skiptir og enn mun líða all-
Iangur tími þar til það opnar
aftur. Tjarnarbíó tilkynnir að
þáð hafi lokað um óákveðinn
tíma — og Tripolibíó lokar til
26. þessa mánaðar — fyrst um
sinn. Enn standa Austurbæjar-
bíó og Nýja Bíó opin, en heyrzt
hefur að þau muni líka loka,
hvað sem úr því verður.
ÁSTÆÐAN ER skortur á
kvikmyndum, sem stafar af nið-
urskurði á gjaldeyri til kvik-
mynda. Ákveðið hefur verið
að veita gjaldeyri til kvikmynda
fyrir um 800 þúsundir króna
og hefur nú verið eytt af þeirri
upphæð um 370 þúsund krón-
um eða um það bil helmingi.
Þetta er næstum því verra en
fyrir stríð og þó verður maður
að taka með í reikninginn að nú
eru miklu fleiri kvikmyndahús,
líkast til helmingi fleiri, í bæn-
um, svo að gjaldeyririnn eyðist
fljótar en fyrrum var.
LÍFIÐ f REYKJAVÍK breyt-
ist mikið við lokun kvikmynda-
húsanna. Skemmtanalífið ger-
breytist og mun mörgum þykja
sem fátt sé orðið um fína drætti
í skemmtanalífinu þegar bíóin
hafa öll lokað. Má alveg gera
ráð fyrir að á góðkvöldum í
sumar verði nokkuð fjölmennt
á Arnarhólstúni, í Hljómskála-
garðinum og í kaffihúsunum
eftir að lokað hefur verið þess-
um helztu skemmtistöðum bæj-
arbúa.
GESTUR SKRIFAR á þessa
leið: ,,Það er furðulegt ævin-
týri, að koma norðan af Akur-
eyri, úr öllu sólskininu þar og
eiga von á rækilegri sunn-
lenzkri rigningu í Reykjavík,
en stíga þar inn í enn fegurri
sólskinsheim en maður hefur
nokkru sinni skynjað fyrir norð
an. Að ekki sé nú minnzt á
hversu mikið Iilýrra loftið er
hér syðra. En það eru' áþreifan-
leg umskipti fyrir þann, sem
dvalið hefur í nábýli við íshafs-
kuidann nyrðra í vor, að renna
sundur í stórfi jótum af svita við
að ganga löturhægt neðan af
Lækjartorgi og upp í Eskihlíð,
í einni þunnri skyrtu og sumar-
jakka.“
verið hefur í dag, 12. júlí,
stökkur öllum regnveðrum
brott" af Suðurlandi. Þ. e. þau
liðnu gleymast, hin ókomnu
hafa engin áhrif þegar þau
koma. Einn suðrænn sólskins-
dagur megnar að þurrka alla
rosa-ólund. Og nú er dagurinn
liðinn og komið %:völd. Hýr,
ljósblár sólhiminn hvelfist yfir
höfuðborginni við Faxaflóa og
nágrenni hennar. Fjarst suður
yfir nesjum svífa flugvélar ótal
hringi kringum daufan hálf-
mánann. Esjufjallið rís í hinni
áttinni, handan blárra, logn-
kyrra Viðeyjarsunda. Og þarna
vesturfrá glóir jökulhettan
gamla, eins og hvít rjómakaka í
jóláljósi.“
„YS BORGARINNAR er
mikill, þótt friður náttúrunnar
í kring sé meiri, — og áþreif-
anlegri. Allir í strætó, — virðist
vera einkunnarorð kvöldsins.
Það lætur hreint ekki svo lágt
í öllu þessu prúðbúna fólki og
öllum þessum vögnum. Verst ef
þetta verður eins og í gær-
kveldi: — rann saman við morg
uninn. Og það jafnvel uppi
undir Öskjuhlíðinni í nýja borg-
arhverfinu, fjarlægu Austur-
strætisiðunni. Það er ekki til
mikils eða ofraunar mælst, þótt
óskað sé eftir því, að ettthvað
af þessum næturkrafti öllum
yrði fremur notað til að ryðja
burtu hermannaskálahverfinu
við Reykjanesbrautina hér uppi
við Öskjuhlíð. Þarna eru engir
mannabústaðir ‘ framar, aðeins
verkstæði og geymslur, með
rauðbrúnryðguð þök. Hinum
megin við brautina gnæfa Hlíða
hverfisbyggingarnar, vænar að
stærð eins og Hótel Borg, og
utan og innan eins og skýskafar
í Paradís. En það er von að
fólkið vilji heldur í kvöld fara
niður að höfn, á hátíðina utan
um skipið Heklu.“
„NÚ ERU ÞRJÁR HEKLUR
á fslandi, sem prýða það, fjall,
flugvél og skip, að ógleymdum
öllum þeim stúlkum, sem heita
Heklur. Geysir í Haukadal hef-
ur fengið samnafna úr fljúgandi
stáli, og sömuleiðis allir gull-
faxarnir í gæðingahópi hesta-
mannanna. Gljáandi, rennileg
skymaster-fluga sveif í dag hér
uppi í djúpblárrj víðáttunni,
Útgefandi: Alþýðuflckkuriim.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsimar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
AIþýð*»orentsmiðjara fc-f.
ísland sem ferða-
mannaland
HVAÐ EFTIR ANNAÐ
hefur verið ritað og rætt um
líkurnar á því, að ísland geti
orðið fjölsótt ferðamanna-
land. Umræður um það mál
eru sér í lagi tímabærar nú,
eftir að styrjöldinni er lokið
og þjóðirnar byrja að rétta úr
kút hennar. ísland hefur
sannarlega mikla möguleika í
þessu efni. Náttúrufegurð er
hér meiri en í flestum öðrum
löndum. Landið er ríkt að
merkum sögustöðum, og þjóð
in á sér forna menningu, sem
varpað hefur Ijóma á nafn
ísland,s. Loks ber þess að
geta, að Ísland er mjög vel í
sveit sett í þessu sambandi.
Það liggur á mótum gamla
og nýja heimpns. Sjóferðin
hingað frá nágrannalöndun-
um er ekki löng en tilkomu-
mikil, og eftir að flugferð-
irnar komu til, er hafinn nýr
þáttur í sögu íslenzkra sam-
gangna, bæði innan lands og
til annarra landa.
❖
Nú er svo komið, að farið
er að skipuleggja skemmti-
ferðir útlendinga hingað til
landis, og fyrsti hópur þeirra
hefur þegar heimsótt landið
fyrir forgöngu hlutaðeigandi
íslenzkra aðila. Þar með er
hafin starfsemi, sem í fram-
tíðinni getur orðið umfangs-
mikil og veruleg tekjulind
fyrir land og þjóð.
íslendingar eiga nú á að
skipa miklum og góðum kosti
farþegaskipa, og flugfloti ís-
lendinga fer hraðvaxandiÞað
er því engin hætta á, að ekki
verði auðgert að flytja er-
lenda ferðamenn að og frá
landinu. Aftur á móti eru
ýmis verkefni óleyst hér
heima fyrir í sambandi við
móttöku og dvöl erlendra
ferðamanna. Hér er tílfinn-
anlegur skortur á gistihúsum,
sem svari þeim kröfum, er
. erlendir ferðamenn óhjá-
kvæmilega gera. íslendingar
hafa ekki mikla þjáliun í um-
gengni og fyrirgreiðslu við
útlendinga, er ætlast til þefSs,
að þeim sé látin í té þjónusta
eins og fáanleg er í þeim
löndum, sem orðin eru fræg
ferðamannalönd.
*
tJr þessu verður að bæta,
og það mun óhjákvæmilega
„SVONA DAGUR eins og
taka nokkurn tíma, svo að
naumast er seinna vænna að
hefjast handa. Það ber að
stefna að því, að ísland verði
fjölsótt ferðamannaland, og
stjórnarvöldum landsins á
hverjum tíma, svo og almenn
ingi, ber að hyggja að því. að
hér er’ um að ræða stórmál,
sem mörgum aðilum ber að
leggja liðsemd.
Það er sannarlega engin
ástæða til þe^ss að láta sér
bregða við það, þótt ein-
hverju reynist ábótavant í
þessu efni í upphafi. Slíkt er
ekki nema eðlilegt, þegar að
því er gætt, að þessi starfsemi
Framhald á 7. síðu.
er hér enn á byrjunarstigi.
En það ber að leggja áherzlu
á hitt, að hlutaðeigendur læri
af mistökunum og að gerðar
verði nauðsynlegar ráðstaf-
anir til þqss, að ísland geti
orðið fjölsótt ferðamanna-
land. Þegar við náttúrufeg-
urð og sögustaði landsins bæt
ast gistihús, er isvari fyllstu
kröfum erlendra ferðamanna,
þurfum við sannarlega engu
að kvíða. Þá mun ísland
tstandast í þe^su efni sam-
keppni við önnur lönd, og þá
er lagður hér grundvöllur að
nýjum og arðvænlegum at-
vinnurekstri.
Stundum leikur tilveran á Golíat, en
oítar leikur Golíat á tilveruna — eða
náungaim. Alltaf er hann spaugilegur
og alltaf er eitthvað nýtt að koma
fyrir hann. Ungir jafnt sem gamlir
fylgjast af ánægju með ævintýrum
Goliats á 2. síðu blaðsins daglega.
Aðeins í Alþýðublaðinu,
Gerizt áskrifendur. - Símar: 4900 & 4906.
Nokkrar sfú
vantar nú þégar.
Góð kjör. Herbergi fylgir.
Upplýsingar á skriísíofunni.
Hótel Borg
S.K.T
ELDRI DANSARNIR í G.T..húsmu
í kvöld kl. 9. — Aðgöngiimiðar
■kL 4—6 e. h. í dag. Sími 3355.
r
Aællunarferðir
Reykjavík — Vík í Mýrdal r
Frá Reykjavík, mánudaga, miðviifcudaga og föstudaga
fcl. 10. — Frá Vík, þriðjudaga, fimmtudaga og laugar
daga fcl. 9,30. — AfgreiSslan á Ferðaskrifstofunni,
Ath. að hótelið í Vík tekur á móti dvalargestum.
Brandur Stefánsson
Vifc.
verða frá Ferðaskrifstofu ríkisins, að sumardvala
Iieimilinu að Jaðri, þannig, þar til öðru visi verður
ákveðið:
Rúmhelga daga, nema Iaugardaga: Kl. IV2 e. h. frá
Reykjavík og kl. 6 e. h. frá Jaðri.
Laugardaga: Kl. IV2 e. h. og fcl. 3V2 e. h. frá Reykja
vík og fcl'. 6 e. h. frá Jaðri.
Sunnudaga: Kl. 10 f. h. og fcl. IV2 e. h. frá Reyfcja
Yfk', og frá Jaðri kl. 6 e. h. og kl. 8V2 e. h.
Ferðir þessar hefjast í dag, laugardaginn 17. júlí.
vmvmvmvmvmYmvmvrvmvmvmvmvT
Úfbreiðið ALÞÝÐUBLAÐID