Alþýðublaðið - 06.08.1948, Side 6

Alþýðublaðið - 06.08.1948, Side 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Föstudagur 6. ágúst 1948. LA PAL Skáldsaga eftír Toru Feuk Leifu? Leirs: SUMARLEYFISDÁGAR. Borgin er hálfeydd að mannfólki; en þó einkum kvenfólki. Þeir sem ekki eru í náðum hjá nefndum og ráðum fara upp í sveit. Um hina, þá náðarsælu, hver maður veit. Þeir flúga gjaldeyr'islaust um hálfan heiminn; vseri ég einn af þeim mundi ég vera feiminn við að koma aftur heim. En ég er ekki einn af þeim. Heldur ekki neinn af hinum, sem sólbaða sig í sveitinni hjá venzlafólki og vinum. Ég er maðurinn, sem allt árið situr við skrifborð sitt. í skugga, nema frá 20. júlí — 3. ágúst færi ég stólinn út að glugga. Leifur Leirs. ÍSLENZKU ÞÁTTTAKEND- URNIR í ólympíuleikjunum unnu mikla persónulegra sigra, er þeir gengu á fund konungsfjöl- skyldunnar brezku, ásamt farar stjóra sínum og forseta íþrótta- sambands íslands. Talaði fjöl- skyldan lítið við aðra gesti sína en þá íslenzku og dáðist mjög að frábærri kunnáttu þeirra og leikni á engelska tungu, enda híéít forsetinn ræðu og sæmdi drottninguna gullmerki sam- bandsins úr fægðum kopar. í rútunni. . . „Heitt þessa dagana . . .“ „Já, heitt þessa dagana.“ „Vitið þér hvað bærinn þarna upp undir fjallinu, þessi með rauða þakinu, sko þarna, vitið þér hvað hann er kallaður?“ „Nei, — en hann heitir Nes“. „Þakka yður fyrir. Er yður á móti þótt ég reyki?“ „Alls ekki, ef þér aðeins reyk ið ekki hérna inni í vagninum". Þögn. „Veiðið þér lax?“ stundum ýsur.“ „Einmitt það. — Jæja, — ég er óforbetranlegur laxveiðimað ur. Það er þá ekki kvikindi til í vatninu, ef ég næ ekki í það, skal ég segja yður. Ég var við laxveiði núna um helgina. Ég var í ánni þarna, sem fellur í vatnið þarna frammi í dalnum. Fékk þrjá átta punda, fimm tólf punda, tvo þrettán punda og einn tuttugu og tveggja punda. Tvo missti ég.-------“ „Einmitt það. Svo þér voruð við veiðar í ánni, sem fellur í vatnið hérna frammi í dalnum. „Já“. „Og þér veidduð þessa laxa þar. „Já“. „Þér hafið þá auðvitað með- ferðis. „Já, auðvitað. En þeir eru all ir lofaðir, því miður“. „Já, það var slæmt. Ég hafði nefnilega hugsað mér að bjóða yður samkomulag í málinu. Helmings skipti. . .“ „Hvað segir þér?“ „Það er nefnilega ég, sem hef ána á leigu . . .“ LesiS Álþýðublaðið! Hún lagði hendina á hurð- arhúninn til þess að læðast út. En Jón heyrði það og kom til hennar. Hann stillti sér upp fyrir framan hana og sr.éri baki í dyrnar. , Heyrðu mig nú einu sinni, Geirþrúður, áður en þú á- kveður að fara. Er það vegna þess, að ég er óbreyttur al- þýðumaður, að þú vilt ekki vera hér? Er ekki staða mín nógu góð fyrir þig- þó að þú hafir- hugsað til mín á þann máta sem þú lýstir áðan?“ Rödd hans var hranaleg, en augu hans ljómuðu af góð- leik og blíðu. Geirþrúður snéri hendur sínar hálf óstyrk. „Það er ekki það Jón. En nú mun ég flekka mannorð þitt. Og þú ert of mikils virði til þess. — En það þýðir ekki að tala meira um það —” „Jú víst þýðir það. Nú er það ég, sem get krafizt þess.“ Hann ætlaði að segja meira, en Geirþrúður greip fram í fyrir honum og hróp- aði, blóðrjóð í framan af æs- ingu og reiði. , Hvers vegna kærir þú þig um mig — ég, sem hef alltaf reynt að gabba þig og svíkja þig. -“ Jón broti á umburðarlynd- an hátt. „Það er ekki aðeins þinn fagri líkami, sem ég hef dáð- st að og elskað. Yndislega andlitið — hárið — augun — þú öll. Það er aðeins hið ytra. Það sem ég elska hjá þér er dálítið meira virði en hitt allt. Kjarkur þinn! Þín trygga og hugrakka sál! Held urðu að ég viti ekki allt? að ég vissi ekki, þegar þú varst að skrökva að mér, sæi ekki þegar þú varst að reyna að snúa á mig með þínum indælu brögðum? Þú hefur ekkert gert, sem ég hefi ekki séð í gegnum“. Hún stappaði fætinum niður í gólfið, bál- reið og augu hennar skutu gneistum. Hún líktist næst- um sjálfri sér eins og hún var og Jón horfði með at- hygli og vaka|ndi áhuga á andlit hennar. „Jafnvel reiði þín sýnir hugrekki þitt, vina mín. Þótta full skapgerð þín þolir enga £ ánauð. Þú berzt af miklu hug. rekki, en þú berzt árangurs- laust. Með játningu þinni hef úr þú gengið mér á hönd. Ifvorugt okkar getur lengur verið frjálst. Ég er sá eini, serji hef átt allan hug þinn og tilfinningar. Þú hefur lagt það allt í mínar hendur ég ég ætla mér að halda því. Þáð er ég, sem hef vakið þig til lífsins. án mín hefðurðu aldrei komizt í þessi spor. Þgss vegna ber ég ábyrgðina fyíir þér og öllu lífi þínu. Þú ert mín, og getur aldrei losn að“. Geirbrúður titraði og gekk eitt skref aftur á bak. Með ga.íopnum augum leit hún fráman í Jón. Andlit hennar sjálfrar var náhvítt. Nú brosti hún ekki til hans né sendi honúm gleitnisleg augnatillit. Hún var aðeins einmana kona, sem barðist við tilveruna, og reyndi að verjast því. sem hún ekki skildi. Jón hvíslaði: ,.Þú ert svo yndisleg Geir- þrúður. bæði í reiði þinni og sorg. —“ „Þú veist ekki ailt Jón —“. Hún talaði hægt og með rykkjum, eins og hún eygði eitthvað langt undan, sem hún yrði að endurtaka mjög vandlega. Jón horfði með athygli á hana. Hann sá, að hún var eins og hljóðfæri. Það var undir þeim komið, sem lék á það. hvaða tónum hann náði. Hann langaði að taka hana í fang sér eins og þreytt barn. En hann stillti sig og stóð kyrr eins og áð- ur. Hann vissi að það þurfti ekki annað en að rétta fram hendina, gæla við hana, þá yrði hún hans. En það vildi hún ékki. Ástríðueldurinn í henni hafði dvínað um stund. Enginn annar en hann myndi geta laðað fram eins lireina tóna, jafn viðkvæm og hún var. Hann hefði ef til vill ekki þurft annað en að kyssa hana, til þess að hún yrði hjá honum. En hann Vildi, að hún kæmi af frjálsum vilja — þá myndi hann aldrei fram ar sleppa henni. Þegar ha?m sá fölt andlit hennar og minntist gleðisnauðrar æsku hennar varð honum þungt um hjartaræturnar. Þegar ann- að ungt fólk var að dansa og leika sér. hafði hún án þess að ærðast tekið á sig alla vinnuna heima. ÁiþýðublaðiS vantar unglinga til blaðburðar í Laugarneshverfi Alþýðubiaðið Sími 4900. KÁRI: Þú lætur mig flækjast þetta fótgangandi, en ekur sjálf ur í einkajeppa lengst af leið- inni, maður. Hvernig kom þér og stelpunni saman? ÖRN: Prýðilega. Allra bezti kven maður. Og þá er pabbi hennar ekki af lakara taginu. Forstjóri kjarnorkuframleiðslustöðvar! Stígurðu á axlirnar á mér, þrællinn þinn? Bíddu bara við!

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.