Alþýðublaðið - 02.10.1948, Blaðsíða 5
Laugardagxir 2. október 1948
GeirG. Zoega vegamálasfjóri:
I TILEFNI AF GREIN í
Alþýðublaðinu 18. þ- m. um
Súðavíkurveg eftir Hannibal
Valdimarsson, alþingismann,
vil ég biðja fyrir þessar upp-
lýsingar.
Þykir vegagerð þessari
hafa íniðað seint og fyrirhug
að vegstæði gegnum Arnar-
dalshamar misráðlð. Er að
þessu tílefni beint til mín
nokkrum spurningum.
Vegur þessi var tekinn í
þjóðvegatölu 1941, og var
eðlilegt að miðaði seint, því
fjárveitingar voru litlar, þar
til 1946—48. Árin 1946—47
var unnið fyrir um 111 þúis.
kr., og er í geymslu afgangur
að upphæð um 83 þús. kr.,
sem bætist við 70 þús. kr.
fjárv. 1948- Er því varla von,
að langt hafi miðað, en veg-
urinn er nú fullgerður út að
Hamrinum og ógerðir að
telja má um 5,5 km. þaðan
til Súðavíkur.
Byrjað var lítils háttar
1946 að sprengja rauf í ham-
arinn efst, en það taldi ég
misráðið, því hamarihn er
svo hár, og lét hætta vérkinu.
Hafði borvél og nokkrir* menn
þá verið aðedns fáa daga að
verki. Kostnaður við' þetta
varð þó ekki yfir 5 þús. kr.
í fyrra var byrjað að bora
fyrir göngum gegn um ham-
arinn, sem þarna er 25—30
m. á þykkt, en klöppin reynd
ist svo hörð, að venjulegir
borar unnu ekki á henni. Var
þá hætt að sinni og pantaðir
aðrir borar frá Englandi úr
sérstaklega hörðu stáli, en
þeir komu hingað ekki fyrr
en um síðast liðin mánaða-
mót. og voru þá tæki þessi
send vestur.
í grein alþm. segir, að 1947
hafi verið „eytt ókjörum af
sprengiefni“ og „hver kass-
inn á fætur öðrum af sprengi-
efni hvarf í hamarinn“ o. s-
frv. Er mér óskiljanlegt,
hvaðan alþm. hefur þessar
upplýsingar, svo fjarstæðar
eru þær, því þarna var aðeins
borað stund úr 3 dögum og
eytt örfáum kílóum af
sprengiefni, en hætt, þegar
sýnt þótti, að tilgangslaust
væri að vinna áfram meðþess
um borurn. Ég ræddi mál
þetta við norskan sérfræðing
í sprengingum, sem hér var
staddur við prófsprengingar
við Ljósafoss og fór að hans
ráðum um tegund þeirra
tækja, sem pöntuð voru. Er
nú tekið að vinna.með þeim,
og er það von mín, að þau
reynist svo vel, að komizt
verði gegnum hamarinn í
haust. Ég hefði kosið að byrja
fyrr. í samráði við norska
eftir afgreiðslu í Englandi,
tókst ekki að ná þeim hingað
fyrr. í samréði við norska
verkfræðinginn varáætlað að
göngin myndu alls ekki kosta
yfir 75 þús. kr., og ef vel
tekst,' geri ég mér von urn, að
þau verði allmiklu ódýrari.
Vitanlega geta allfaf komið
einhver óhöpp fyrir við slíkt
verk eða óvænt atvik, og er
það ekki tiltökumál, þegar
fyrrifram ey leitázt við að fá
sem bezt tæki og vanda
undirbúning, en fram til
ur frúin enn, sagt hve nær af
þessa nemur kostnaðurinn
við hamarinnekki 10 þús. kr.,
svo sýnilegt er, að einhverjir
vestra, lítt kunnir þessum
málum, hafa borið alrangar
upplýsingar til alþm-, sem
hafa orðið tilefni aðaluppi-
stöðunnar í fyrrnefndri
blaðagrein.
Það er réít, að einn verk-
stjóri okkar, ssm þarna fór
um, mælti með. að vegurinn
yrði lagður yfir Arnardals-
háls, en vekfræðingi þeim, er '
umsión hafði með þessari
vegagerð, þótti réttara að
fara gegnum hamarinn, og
samþykkfi ég það og tel, að
enn hafi það ekki reynzt mis-
ráðið, þótt það að vísu hafi
tafið vegagerðina, en í því
sambandi ber að aðgæta, að
rúmlega 150 þús. kr. eru nú
óeyddar og verður varið til
framhaldsvegagerðar, vænt-
anlega einnig innan við ham-
arimi; í hausí, eftir bví semtíð
Ieyfir.
Einhverjir kunna i þó að
segja, að vinna hefði mátt
ínnan við hamarinn í sumar,
en úr því gat ekkí orðið, því
ekki var kostur á jarðýtu
fyrr en nú eða bráðlega.
Mér þykir eðlil^gt, að
menn séu óþolinmóðir að fá
akfæra vegi og telji þeim
stundum miða seint', en þá
verður þó að líta á málin með
sanngirni, og að því er veg
þennan snertir. þá hygg ég,
að þeir, sem þar eiga leið um,
þegar vegurinn er fullgerður,
muni vera þakklátir okkur,
sem réðum því, að vegurinn
er ekki lagður upp og niður
bratta brekku yfir hálsinn,
sem er í um 100 m. hæð.
Geir G. Zoega.
Fyrsia kennslubók
í hnefalelkum
á ísíenzku
NÝLEGA er komin bók í
bókabúðir bæjarins sem er
sú fyrsta sinnar tegundar
hér á landi. Er það ,,Kennslu
bók í hnefaleikum11.
Hnefaleikadeild KR., sem
gaf út bókina undir umsjá
hinna tveegja þjálfara sinna,
Ingólfs Ólafssonar og Þor-
steioís Gíslasonar, hefur hér
stigið mikilvægt spor í þágu
íþróttarna. Höfundur bókar
innar er Edvin L- Haistet, en
Hjörtur Halldórsson hefur
þýtt hana, og virðist hafa
leyst sitt erfiða hlutverk með
prýði. Ég segi sitt erfiða hlut
verk, því innan hnefaleik-
anna var orðjð svo mikið af
alls konar orðskrípum og út
lendum orðum að ekki varð
við unað lengur. Hjörtur virð
ist aftur á móli finna þarna
mjög rammísler.zk nöfn, sem
í fyrstu virðsist nokkuð erfið
er, verða áreiðanlega vel þokk
uð, þegar fram í sækir- Orð
eins og t. d. krókur fyrir
hook, lyftivörn — guarding,
stokkvörn — blocking o. s-
frv.
Hnef aleikaíþ r ót t in hef ur
verið mjög umdeild manna
á meðal, og eru meim ekki
á eitt sáltir um tilgang henn
ar; en með útgáfu á, kennslu
þók þessari gefst báðum að
Eftir Val Vestan.
I. • , • / jP , •
Þetta er fyrsti islenzki „reyfarinn“, sem Hjartaásútgáfan gefur út, en fastlega má
gera ráð fyrir því, að lesendur útgáfunnar vilji fá „meira að heyra“ af því tagi, því
að þetta er reyfari, sem segir sex! Hér er mikið af spennandi ævintýrum, skemmti
legur frásagnarháttur og sagan vel byggð upp. Hún gerist á heriiámsárunum og
kemur víða við. Það leikur ekki á tveim tungum, að Týndi 'hellirinn muni verða
í röð allra vinsælustu Hjartaásbóka, og er þá -ekki lítið sagt.
Eftir Thomas Duke.
Saga þessi hefur verið framhaldssaga í Hjartaásnum og hlotið miklar og maklegar
vinsældir. Er hún sérpfentuð* samkvæmt óskúm lesenda víðsvegar að; Þetta er spenn-
andi og blóðheit skáldsaga, sem. gerist að mestu leyti undir glóðheitri Afríkusól.
Hvílið hugann við Hjartaás-bók.
\
ilum, unnendum og andstæð
ingum, kostur á að kynna
sér íþrótt þessa til hlítar.
Ég álít að menn eigi erf-
itt með að dæma um á-
kveðna íþrótt án þess að
kyr.ma sér grundvallarreglur
hennar. Leikmennirnir túlka
að vísu íþróttina, en eins mis
jafnlega og þeir eru margir.
Sömu sögu er að segja um
hnefaleikana í hringnum.
Það eru til menn sem álíta
hnefaleikana (Boxið) ill-
mannlega íþrótt, þar sem
slagsmálamenn svala reiði
sinni undir löggæzlu hring-
dómarans; en um þetta sagði
fyrrverandi ólympíumeistari
í hnefaleikum, Otto von
Porat, Norðmaðurinn, sem
hér dvaldi s- 1. sumar á veg-
um hnefaleikadeildar Ár-
manns það, að maður, sem
beitir reiði eða illsku í hringn
um hefur tapað. Hvor þess-
ara aðila hefur á réttu að
standa, geía menn bezt
kynint sér með því að lesa
bókina og dæma síðan.
Ég get ekki stillt mig um
að nota hér tækifærið og
skora á aðrar deildir hinna
ýmsu íþróttafélaga að gefá
út kennslubækur í íþrótta-
greinum sínum og fara þar
að dæmi hnefaleikadeildar
KR.; því að augíjóst er, að of
víða yantar okkar ágætu í-
þróttamann hin.a tæknilegu
hlið íþróttarna, en í því efná
gæli góð bók orðið gagnkvæm
og góð hjálp; og það er ég
einnig viks um að hin nýút
konuia bók „Kennslubók í
hnef alei.kum11 verður.
I hpk þíssarí eru tekríar til
rækilegrar yfirvegunar öll
hin iæknilegu atriði íþróttar
innar. allt frá byrjunarstöðu
til leikni og forsjálni. í sjálfri
keppninni.
Eggert G- Þorsíeinsson.
Tilkynning
fil umbo&manna Brunabofafélags ís-
lands og húsaváfryggjenda uian Rvíbur
i
i;
Samkvæmt útreikningi Hagstofunnar hækkar vísi-
tala byggingarkostnaðar í kaupstöðum og kauptúnum
upp í 581 og í sveitum upp í 544, miðað við 1939. Vá-
tryggingarverð húsa hækkar að sama skapi frá 15. októ-
ber 1948 og nemur hækkunin í kaupstöðum og kaup-
túnum rúmlega 34% og í sveitum rúmlega 4% frá nú-
verandi vátryggingarverði, þó hækkar ekki vátrygging-
arverð þeirra 'húsa í kaupstöðum og kauptúnum, sem
metin eru eftir 1. október 1946 og í sveitum, sem metin
eru eftir 1. júní 1946. — Vátryggjendur þurfa því, vegna
hækkunar á vátryggmgarfjárhæð eigna þeirra að greiða
hærra iðgjald á næsta gjalddaga en undanfarin ár, sem
vísitöluhækkun nemur.
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS.
vantar unglinga til btaðburðar í þessi hveríi;
Skerjafjcrð,
Seltjarnarnes.
Skjólin.
Hátt kaup. — Talið við afgreiðsluna.
Auglýslð í áiþýðublaðinu