Alþýðublaðið - 21.10.1948, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 21.10.1948, Blaðsíða 6
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Fimmtudagur 21. okt. 1948. Filipus Bessason hreppstjóri: AÐSENT BREF Ritstjóri góður. Sagt er, að margur sé bljúg- ur þegar hann biður. Ekki get ég samt talið mig í þeim hópi, og ræður því skapferli mitt, en hinsvegar get ég ekki neitað að örlítið mýkri kunni ég að vera á manninn, sé ég í bónarhug, heldur en annars. Og nú langar mig til að biðja þig um að gera mér greiða. Ég er nú hniginn að aldri eins og þú og allir vita; held mér að vísu enn sæmilega, en má samt búast við að skjótt taki mér að hrörna, — eða jafnvel að ég kveðji þennan heim þá og þeg- ar. Ekki er það nú samt svo að ég ætlist til þess af þér, að þú farir að undirbúa sálumessurn- ar mér til handa, enda hef ég enga trú á þeim, fremur en Sverrir konungur forðum. Nei, bón mín er veraldarbundnari, kunningi, þótt ekki geti hún ef til vill syndsamleg talizt. Ég þykist hafa unnið og stritað allt mitt líf. Ég þykist einnig hafa farið gætilega með það litla fé, sem mér hefur áskotnazt. Kom- inn á gamalsaldur á ég samt sem áður ekki neitt í sjóði. Jörðina á ég að vísu skuldlausa með húsum og áhöfn, en vart mundi það seljast fyrir hálft verð einnar lítillar íbúðar í höf- uðstaðnum. Verður því ævi- kaupið ekki nein fúlga kölluð. Að vísu er nafn mitt heiðartegt og óílekkað; hvorki kennt við brask, skattsvik né svartamark- að, — en ekki er það samt neins virði nú á dögum á peningavísu, og get ég þess til, að til meira fjár muni nafn sumra þeirra, er við allt fyrrnefnt hafa verið bendlaðir, vera metið í bönkum og lánsstofnunum landsins. Kann ég því að vísu ekki svo illa, að ég megi ekki við una, en hins vegar þætti mér óneit- anlega skemmtilegra að ég nú hefði handa á milli nokkurt fé, er ég mætti af sjóð stofna með forsetastaðfestri reglugerð og " Leonhard Frank: " MATTHILDUR síðan dálkslöngum greinum um göfugan tilgang sjóðsins og höfðingsskap gefandans, — og mundi þá fylgja stutt æviágrip mitt, ásamt mynd og ættartölu. Nú langar mig til að bíðja þig að gera annað af tvennu, eða hvort tveggja. — spyrjist fyrir um það hjá viðeigandi stofnun- um og stjórnarvöldum, hvort mér muni lögum og venjum sam kvæmt leyfilegt að efna til happdrættis, er gæfi af sér fé í sjóð þennan, eða öllu heldur, — gerði mér kleift að stofna hann, og hvort mér mundi í því skyni veitast innflutnings- og gjald- eyrisleyfi, annað hvort fyrir bif reið, eður nokkrum rafknúnum héimilisvélum. Ef svarið verður neikvætt, sem ég geri ráð L'yrir, þar eð heiðarlegur sveitamaður á hlut að máli, bið ég þig að fara hina leiðina, — en hún er sú, að kaupa fyrir mína hönd og reikning nokkra miða í hverju einasta happdrætti, sem nú er starfrækt þar syðra, og mætti þá vel fara svo, að annaðhvort hefði ég muni til nýs happdrætt is upp úr krafsinu eða fé til sjóðstofnunarinnar. Tilgangur sjóðsins hef ég hugsað mér að yrði sá, að vernda minningu sveitamanna fyrir árásum og illgirni tízku- rithöfunda. en ekki er víst að það borgi sig að gera slíkt upp- skátt að sinni. Virðingarfyllst. Filipus Bessason hreppstjóri. Minógarspjöld Jón Baldvinssonar for- seta fást á eftirtöldum stöð um: Skrifstofu Alþýðu- flokksins. Skrifstofu Sjó- tmannafélags Reyikjavííkur. Skrifstofu VJC.F. Fram- sókn, Alþýðubrauðgerð- Laugav. 61, í Verzlun Valdi mars Long, Hafnarf. og hjá Sveinbimá Oddssyni, Akra nesi. ÚtbreiSið Aiþýðublaðið! vegna lágfættari dýrin væru betri. Eftir ráðum hans hafði Fjóla keypt nautið ódýrt, þegar það var aðeins nokk- urra vikna gamall . ,,Ég ætla að vera kyrr hjá Elsu,“ sagði vinnumaðurinn og lokaði dyrunum. í forstof- unni gerði Fjóla það sama sem hún hafði gert daginn sem hún og Matthildur höfðu mætt fábjánanum henni Júl- íu á veginum. Hún sneri sér við, brosti lítið eiít og kyssti svo Matthildi. ,,Jæja, nú er hann búinn að skýra út fyrir þér kúauppeldið. Hvað þessi maður elskar þig.“ Matthildur fór upp- ;,Hann ætlar að vera kyrr hjá Elsu!“ Hún brosti af þvi að henni leið svo vel. Morguninn eftir var farið að snjóa og slyddurigning buldi á þakinu, barði niður blómin í garðinum og tætti sundur vetrarkálið og fám dögum síðar, þegar Fjóla ók Matthildi heim í bílnum sín- um, voru engjar, hæðir og fjarlæg fjöllin orðin alhvít, eini dökki díllinn, sem sást, voru svartir skógarnir. ,,Vegna ósamrýmanlegra skapgerðareiginleika,“ stóð í skilnaðarúrskurðinum. Og í raun og veru þá var það á- stæðan, hugsaði Matthildur og setti þetta innsiglaða sam- anbrotna skjal ofan í skúffu. Hún settist á arinhelluna. Einum kafli ævi hennar var lokið. Og nú ætlaði hún að hugsa um hlutina. Méðan hún var að hugsa var hún að prjóna. Ef Silaf hefði ekki komið svo upp um sig í bréfi sínu til móður hennar,' hvers konar maður hann vax, þá hefði hún fórnað sér vegna móður sinnar og sál hennar hefði glatazt- Þetta var þátt- ur í skapgerð hennar, sem hún fann að hún varð að hugsa um. Þessi rólegi sunnudagur, þegar ekkert heyrðist nema tifið í klukkunni og niðurinn í læknum, var ágætur tími til umhugsunar. Frá nýfenginni reynslu sinni vissi hún að vilji til sjálfsfórnar gat leitt til sjálfs eyðileggingar. En þá synd gagnvárt sjálfum sér dirfist engin mannleg vera að fremja. Maður verður að vernda sjálfan sig. Að syrgja einnig þegar aðrir syrgja! En að eyðileggja ást sína til að forða öðrum fr,á þjáningu — það má maður ekki gera. Nei, það má maður ekki gera. Reyna alla hluti og gera það, sem rétt er! Maður veit hvað er rétt. O, maður veit það alltaf- Maður hefur ekki allt- af rétt íil þess að láta undan eins og ,,mærin handalausa11. Hún hafði reynt það, hún vissi það og mundi alltaf muna það- í langan tíma sat hún á ar- inhillunni niðursokkin í þess ar hugleiðingar. Þegar hún stökk á fætur, hafði hún prjónað næstum hálfan sokk. Mikill snjór var í þorpinu og enn snjóaði. Á pallinum fyrir framan húsið var þriggja feta djúpur snjór. Hún varð að moka aðra götu, annars kæmust þær ekki út- Vinnurnaðurinn kom gang andi í áttina til hússins klæddur í betri sunnudaga- fötin sín. Hann losaði hana við að moka- Hann klifraði upp á þakið. Mikill snjór féil niður allt í krin,gum húsið- Á meðan lagaði hún kaffi. Á hverjum sunnudegi kom hann þangað niðureftir ng losaði þær báðar við erfið- ustu verkin. Og hann hafði smíðað tólf nýjar býkúpur fyrir móður Matthildar, sem langaði að auka býflugr.a- rækt sína. Matthildur setti rauðu hlíf ina yfir kaffikönnuna- En nú kom hann, og hún hellti í bollana. Þau sátu við borðið eins og hjón, sem e.ru- að drekka kaffið sitt í ró og næði. Matthildur var með ullarsjalið sitt. Þau töluðu lítið. Hún sjmdi honum það, sem hún var að prjóna. Ann- ar sokkurinn var búinn. Þeir áttu að vera handa honum- Aldrei hafði neinn búið til nokkurn hlut handa honum. ,,Eru þeir virkilega handa mér, Matthildur?“ Þegar dimma tók fór hann. ,,Það getur ekki haldið svona áfram miklu lengur. Og fólkið er farið að tala.“ Hún hélt áfram að prjóna. En veturinn var rétt að byrja og hann kom á hverj- um sunnudegi. Það var alltaf eitthvað, sem þurfti að gera. Um vorið gróðursetti hann mestallt í garðinn þeirra og málaði baunastilkana og girð ingarnar með grasgrænni ol- íumálningu. Brátt kæmi að því, að hann yrði að fara í selið, sagði hann. Þá væri hann e.nn einu sinni kominn upp í fjöllin- Guð minn, hugsaði hún, hvernig endar þetla? Daginn eftir kom hávaxinn maður með snöggt, hvítt efri- vsrarskegg út úr lestinni og hélt leiðar sinnar inn i þorp- ið. Hann spurðist fyrir á veit ingahúsinu. Veitingamaður- inn benti: ,,Þarna í hvita hús inu.“ Matthildur opnaði dyrnar fyrir hann. Maðurinn talaði bjagaða þýzku, og hún jafn- vel enn ver.ri e.nsku. Hún spurði hann, hvort hann tal- aði frönsku. „Nei.“ En hann gat þó sagt henni, hver væri tilgangur farar hans. Hann var að koma frá hollenzku Austur-Indíum- Vinur hans Weston sem hafði verið i Ba- tavíu í síðusíu þrjú árin, hafði beðið hann að komast að þvi hvernig frú Silaf liði. En dr. Silaf hafði ekki verið mjög kurteis. „Við erum skilin.“ Hann ætlaði að segja vini sínum það. Ilann ætlaði að senda honum skeyti um það. Og hvað ar.nað mætti hann senda honum skeyti um? Var hún við góða heilsu? Gekk allt vel hjá henni? Hann bað hana að fyrirgefa. En að komast að þessu hafði verið tilgangur ferðarinnar. Vir.ur hans bjóst við skeyli, sem gæfi fullar upplýsingar. — ,,Sehnsúchtig! Er það orðið? Sehrsúchtig?“ Hún fann hjartað hamast í brjósti sér- Henni fannst það vera alls staðar, berja á rif- beiniri í sér, í hálsinurn á sér, í eynmum og í hnakkanum. ,,Það er alll í bezta gengi hjá mér.“ Hún hafði orðið snjó- hvít- Hann var mjög feginn að heyra það. Þess vegna ællaði hann með hennar leyfi að játa dálítið fyrir henni um MYNDASAGA ALÞÝÐUBLAÐSINSs ORN elding Í)RN: Mér þykir illt til þess a vita, ef prófessorinn skyldi vera í vanda staddur, — og það veit ég, að hann er. Við verðum að lenda og láta skeika að sköpuðu- KÁRI: Ef hann æitti ekki fallega horfa öðru vísi við.---------- dóttur, maður, kynni málið að

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.