Alþýðublaðið - 23.11.1948, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 23.11.1948, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐURLAÐÍÐ Þi-iðjudagur 23- nóv. 1948. Skýrsla Sfefáns Jóh. Stefánssonar forsætisráðherra á 21. þingi Alþýðuflokksins: ÞAÐ HEFUR VERIÐ VENJA undanfariS og frá henni verður ekki vikið, að flytja flokksþinginu skýrslu um helztu stjórnmálin á síð- asta kjortímabili, og þá sér- Etaklega með hliðsjón af af- skiptum og áhrifum Alþýðu- flokksins á þau. Verður í skýrslu þessari reynt að draga fram höfuðdrætti í viðburðum síðustu tveggja ára og skýra frá því á hvern hátt Alþýðuflokkurinn hafi beitt áhrifum sínum og leit- azt við að framkvæma, eftir því sem aðstæður frekast leyfðu, þau umbótamál, er alþýðu mættu að mestu gagni verða og sem í samræmi væri við markaða stefnu flokksins í dægurmál- um, bæði á undanförnum flokksþingum og einnig af miðstjórninni milli þinga. Lætur að líkum að þar verði að stikla á stóru, því að tvö síðustu árin hafa verið all viðburðarík og verður því eigi unnt að rekjia stjórn- málasöguna til hlítar, og því látið nægja að drepa á höfuð- atriðin, sem frá sjónarmiði flokksins eru þýðingarmest og einkenna stjórnmálin á kjörtímabilinu. Kjörtímabilið hefur verið viðburðaríkt bæði innan lands og utan og Alþýðuflokk urinn hefur meira en nokkru sinni fyrr haft afskipti af málum, fyrst og fremst vegna þess að hann .tók að sér að mynda ríkisstjórn, og einnig í samræmi við stefnu sína, að láta sem flest nytjamál til sín taka- Verða svo flokks- mennirnir að dæma um það á hvern hátt hefur tekizt hjá miðstjórn og trúnaðarmönn- um flokksins, og þá ekki sízt ráðherrum hans, að inna af höndum þau þungu störf, sem þeim voru lögð á herðar á þessu tímabili. Stjómarmyndunin EINS OG ÉG GAT UM í skýrslu minni til síðasta flokksþings, stóðu sakir þá þannig, að í landinu ríkti stjórnarkreppa, og sásit þá eigi fyrir endann á því, hvernig henni myndi ljúka. Lél ég þá svo um mælt, að Alþýðuflokkurinn hefði Jýst því yfir, í samræmi við stefnu sína og starfsaðferðir fyrr og síðar, að hann myndi láta málefnin ein ráða afstöðu sinni til ríkisstjórnar, og að hann áliti það skyldu sína, einmitt eftir síðustu alþingis- kosningar, að taka á sig á- byrgð ef því væri að skipta á framkvæmd málefna, en þó því aðeins að það gæti orðið í samræmi við höfuðstefnu flokksins í innanlands- og ut- anríkismálum. Vegna þess að það er í fyrsta sinn, sem Alþýðuflókk urinn hefur tekið á sig þá þungu ábyrgð að mynda rík- isstjórn, þykir mér hlýða að skýra frá aðdraganda stjórn- armyndunarinnar. Eins og kunnugt er sagði ráðuneyti Ólafs Thors af sér hinn 10. október 1946 eftir að flugvallarsamningurinn við Bandaríkin hafði verið samþykktur á alþingi 5. okt. s- á. Strax eftir þessa lausn- arbeiðni fór forseti íslands þess á leit að stjórnin gegndi störfum þar til annað ráðu- neyti yrði myndað. Að því búnu sneri forsetinn sér til allra formanna þingflokk- anna, en enginn vildi á því stigi málsins takast á hendur að gera tilraun til stjórnar- myndunar- Varð það því að ráði að mynda hina svoköll- uðu tólf manna nefnd, sem í áttu sæti 3 fulltrúar frá hverj um stjórnmálaflokki. Tólf manna nefndin sat lengi á rökstólum og bar þar margt á góma. Lét hún safna upplýs- ingum og þar á meðal fól hún fjórum hagfræðingum að framkvæma rannsókn á á- standi og horfum í fjármálum og atvinnumálum landsins. Á meðan tólf manna nefnd in sat að störfum hófust um- ræður, óformlegar þó, milli fulltrúa frá Alþýðuflokknum, Framsóknarflokknum og kommúnistum- Hinn 21. nóv. 1946 barst Alþýðuflokknum bréf frá þingflokki kommún- ista þar sem farið var fram á að Alþýðuflokkurinn til- nefndi menn til þess að starfa að því ásamt mönnum frá kommúnistum að þessir tveir flokkar kæmu sér sam- an um ákveðinn málefna- grundvöll, er báðir flokkarn- ir gætu fylgt fram við samn- inga um stjórnarmyndun. Hinn 28- s. m. barst bréf frá formanni þingflokks Fram- sóknarflokksins um að Al- þýðuflokkurinn tilnefndi menn til þess að koma sér saman um tillögur að sameig inlegum málefnagrundvelli til myndunar ríkisstjórnar. Bréfum þessum svaraði þing- flokkur Alþýðuflokksins 29- nóv. 1946 á þá lund, að flokk- urinn teldi óviðeigandi að til- nefna menn af sinni hálfu til sérsamninga við hina tvo flokkana, er bréfin höfðu rit- að, eins og þá væri málum háttað, þar sem tólf manna nefndin sæti á rökstólum, en hins vegar væru menn frá Al- þýðuflokknum fúsir að eiga óformleg viðtöl við fulltrúa frá þessum flokkum. Upp úr þessu hófust siðan óformleg samtöl milli þessara þriggja flokka, er ég hef áður nefnt, og 3. des. 1946 barst bréf frá þingflokki kommún- ista, þar sem sagt var að ólík- lega horfði um samninga í tólf manna nefndinni, og töldu kommúnistar því rétt að samtölum hinna fyrr- greindu þriggja flokka yrði hraðað sem mest mætti verða. Þessu bréfi svaraði A1 þýðuflokkur 4. desem- ber s. á- og skírskotaði til fyrri bréfa sinna. Þegar um- ræður milli hinna svonefndu vinstri flokka höfðu staðið um stund, komu kommúnist ar fram með tillögu um það að mynduð yrði það sem þeir kölluðu vinstri stjórn. Full- trúar Framsóknarflokksins Stefán Jóh. Stefánsson á flokksþingi Alþýðufiokksins. tóku það fram af sinni hálfu að þeir teldu eðlilegt. að Framsóknarflokkurinn hefði forustu um slíka stjórnar- myndun. Undir það tóku full trúar kommúnista og sögðu um leið áð þeir myndu sætta sig við Hermann Jónasson sem forsætisráðherra slikrar stjórnar. Við fulltrúar Al- þýðuflokksins sögðum að við þyrftum að ráðfæra okkur við þingflokkinn, en í honum var samþykkt 7. des- 1946, að flokkurinn væri ekki reiðu- búinn að slá neinu föstu um það á þeirri stundu hvaða flokkur, hvað þá heldur mað- ur, ætti að hafa forustu um myndun slikrar stjórnar ef til kæmi, og að enn v'æri ekki slitið störfum tólf manna nefndarinnar. Það var svo að sjá sem kommúnistar skiptu sér um þessar mundir í tvær deildir: Önnur undir forustu Brynj- ólfs Bjarnasonar tók mjög lík lega í allar viðræður ^ um myndun stjórnar með Ólafi Thors, en hin undir forustu Sigfúsar Sigurhjartarsonar leitaði eftir stjórnarmyndun undir forustu Hermanns Jón- assonar. Um miðjan desember 1946 fluttj, forsætisráðherrann Ól- afur Thors þau skilaboð frá forseta íslands, að hann teldi ekki ástæðu til að tólf manna nefndin starfaði lengur. Rétt á eftir, eða 17. desember s. á., fól forseti íslands Ólafi Thors að gera tilraun til stjórnar- myndunar, og tók hann það að sér- Ólafur Thors sneri sér þá þegar til Alþýðuflokksins og kommúnista og óskaði að ræða við þá um endurreisn hinnar fyrri stjórnar. Flokk- arnir tilnefndu báðir menn fil viðræðnanna. Eftir því sem séð varð um áramótin '1946 —1947 voru nokkrar líkur til að saman drægi um málefni með Ólafi Thors, Alþýðu- flokknum og kommúnistum. Ólafur Thors hafði rætt við báða flokkana um stefnumál varðandi eig.nakönnun, við- skiptamál o. fl. og voru nokkr ar horfur á að til samkomu- lags gæti dregið, en hins veg- ar var mjög mikill ágreining- ur við kommúnista út af ut- anríkismálum og þá einkum um stöður, störf og verka- skiptingu. 2. janúar 1947 barst Alþýðuflokknum bréf frá kommúnistum þar sem þeir lögðu til að kommúnistar tilnefndu mann til stjórnar- forustu af Alþýðuflokksins hálfu eða Alþýðuflokkurinn marni úr hópi kommúnista- Hinn 3. s- m. ritaði þingflokk- ur Alþýðuflokksins kommún- istum bréf og benti þar á að Ólafur Thors hefði fyrir til- mæli forseta íslands tekið að sér stjórnarmyndunartilraun, og að umræður stæðu yfir um það mál milli hans og fulltrúa Alþýðuflokksins og Komm- únistaflokksins, og að komm únistar hefðu ekki síður látið í það skína í þeim umraiðum að vel gæti komið tjl mála að þeir gengju á ný inn í sljórn Ólafs Thors. En hvað snerti tillögu kommúnista um að tilnefna mann af þeirra hálfu til stjórnarforustu eða að þeir tilr.efndu man,n úr hópi Alþýðuflokksins, þá tók þing floldcurinn fram að hann vildi sjálfur ráða hverjir veldust til þeirrar forustu og yfirleitt vildi flokkurinn sjálfur ráða vali fulltrúa af sinri hálfu, án þess að komm únstar ættu þar hlut að máli og gerði ráð fyrir að komm- únistar vildu á sama hátt ráða sínum trúnaðarmönn- um og gæti því Alþýðuflokk- urinn eigi sagt neitt um þetta á þessu stigi. Þingflokkur Al- þýðuflokksins varð þess var að hinn 4. janúar 1947 skrif- uðu kommúnistar Kjartani Ólafssyni bæjarfulltrúa i Hafnarfirði, að þeir hefðu samþykkt að styðja hann sem forsætisráðherna og þar með sem annan fulltrúa í sex manna stjórn, er Alþýðuflokk urinn, Framsóknarflokkur- inn og kommúnistar myr.d- uðu, að því tilski.ldu að sam- komulag næðist um mál- efnagrundvöll. Óskuðu þeir eflir því að Kjartan Ólafsson lýsti yfir við forssta íslands að hann væri reiðubúinn að gera til- raun til stjórnarmyndunar. Þá barst Kjartani Ólafssyni bréf sama dag frá Hemanni Jónassyni og Steingrími Steinþórssyni, þar sem þeir bein.a þeirri áskorun til hans að hann reyni að mynda stjórn, og séu þeir reiðubún- ir að vinna að því í sínum flokki, að afla honum stuðn- ings, ef samkomulag náist um málefni. Kjartan Ólafs- son tilkynnti mér strax að har.n hefði fengið þessi bréf og óskaði eftir fundi í mið- stjórn flokksins sem fyrst- Sagði ég að það væri sjálf- sagt. _ Að kvöldi hins 7. janúar 1947 átti Ólafur Thors sam- tal, ásamt fulltrúum frá sín- um flokki, við fulltrúa frá A1 býðuflokknum og kommún- istum. Tilkynnti Ólafur Thors þá Alþýðuflokknum, að kommúr.istar bæru fram kröfur, er sér fyndust með cllu óaðgengilegar. Þeir krefðust þess að embættis- maður tæki við störfum utan- ríkisráðherra af Ólafi Thors, að Pétur Magnússon hefði ekki viðskiptamál áfram, cg þeir væru ásáttir um að Al- býðuflokkurinn tæki við þeim, en hins vegar neituðu þeir að hann fengi fjármálin, og vildu heldur að þau væru áfram hjá Sjálfstæðisflokkn- urn, að koommúnistar fengju sendiherrann í Moskvu, einn bankastjóra í Landsbankan- um og aðalmann í fjárhags- ráði því, sem þá var ráðgert að stofna og mun hafa verið ætlazt til að það yrði Einar Ölgeirssön. Átti fjárhagsráð þetta að hafa eftirlit með fjár festingu, innflutningi og verð lagseftirlit og e. t. v- aðal- stjórn á sérstökum iseðla- banka, er koimnúnistar ósk- AlþýðubW vantar unglinga til blaðburðar í þessi hverfi: Vesturgötu Laugaveg Talið við afgreiðsluna. Alþýðublaðið. Sími 4900.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.