Alþýðublaðið - 09.01.1949, Blaðsíða 4
alþýðublaðsð
Sunnudagur 9- janúar 1949.
Útgefandl /ilþýðuflokkurtnn
Ritstjóri: Stefán Pjetursson,
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal
Þingfréttir: Heigi Sæmundsson
Ritstjórnarsimar: 4901, 4992.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasimi: 4906.
Afgreiðslusimi: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Fráför Marshalls.
FRÉTTIN um lausnar-
beiðni George C. Marshalls,
utanrikismálaráðherra Randa
ríkjanna, mun að vonum1
vekj a mikla athygli. Með hon
um hverfur af sviði heims-
stjórnmálanna, að minnsta
kosti um sinn, óvenjulega
heilsteyptur og mikil-hæfur
■maður eins og Ernest Bevin,
utanríkismálaráðherra Breta,
komsí að orði í fyrradag, þeg
ar lausnarbeiðni Marshalls
hafði verið gerð heyrinkunn
í Washington-
Marshall á langan og merki
legan starfsferil að baki sem
herforingi og stjórnmálamað
ur, þegar hann nú dregur sig
í hlé 68 ára gamall vegna
heilsubrests- Hann v,ar í síð
ast iiðnum mánuði skorinn
upp og hefur nú gert alvöru
úr því að íaka sér hvíld frá
störfum, en talið er, að hann
hafi fyrjr löngu látið slíka ósk
í ljós við Truman forseta, þó
að ekki hafi verið fallizt á
lausnarbeiðni hans fyrr en
nú.
Truman Bandaríkjaforseti
fór miklum lofsyrðum um
Marshall, þegar hann til-
kynnti lausnarbeiðni hans,
og minnti á það geysilega
starf, er hann hefði unnið
fyrst sem formaður herfor-
ingjaráðs Bandaríkjanna á ó
friðarárunum og siðar sem ut
anrikismálaráðherra eftir að
hann ;ók við því umfangs
mikla og vandasama embætti
árið 1947. En eir.s og Ernest
Bevin lét getið, þegar kunn-
ugt var orðjð um lausnar-
beiðnj Marshalls verður
þessa ameríska sijórnmála-
manns leng-st og bezt minnzt,
að minnsta kosti utan Banda
ríkjanna, fyrir viðreisnaráæll
un bá, er við hann er kennd.
George Marshall á ef til vill
meiri þátt í því en nokkur
maður annar, að Bandaríkin,
efndu lil hinnar stórfelldu að
stoðar við Evrópuríkin, svo
að þau gæíu endurreist efna
hag sinn og atvinnulíf og bætt
sér tjón það, ex styrjöldin hef
ur valdjð þeim. Þessi viðreisn
aráæilun hefur að vísu sætt
miskunnarlausum fjandskap
af hálfu kommúnista, en við
hana eru eigj að síður tengdar
vonir hlutaðeigandi þjóða
um farsæla framtíð, og árang
urinn. sem, þegar hefur náðst
af endurreisnarsíarfinu á
grundvelli Marshalláætlunar
innar, talar skýru og óve-
fengjænlegu máli.
*
Truman Bandaríkjaforseti
lagði aherzlu á það, þegar
hann tilkynnti brottför Mar.
shalls úr utanríkismálaráðu
neytinu í Washington, að
mannaskipti þar þýddu ekki
á neinn hátt breytingu á ut-
anríkismáílastefnu hins vest
ræna stórveldis, sem nú ber
Ljótur leikur á götum Sey'kjavíkur. — Saga
bifreiðastjórans. — Lá við slysi. — Unnið til
flengingar. — Sviknir kvensokkar.
LEIKFF.LAG REYKJAVIKUB
svmr
BIFREIÐASTJÓRI skrifar
mér á þessa leið: „Enn er nauð-
synlegt að blöðin minnist á
framferði barna og unglinga á
götum Reykjavíkur. þegar snjór
er. Það hefur að vísu verið gert
oft á hverjum vetri, en svo virð
ist, sem bað hafi ekki borið til-
ætlaðan árangur, því enn stunda
unglingarnir þann stórhættu-
lega leik að hanga aftan í bif-
reiðum, þegar snjór er á götnn-
um, og láta þær draga sig.
í GÆR KOM FYRIR MIG at-
vik, sem lýsir hve hræðilegur
þessi leikur er. Ég var að aka
um Njálsgöturta og ætlaði niður
á Laugaveg um Frakkastíg.
Þegar ég beygði fyrir hornið,
fór bifreið af stað rétt fyrir
framan mig og aftan í henni
héngu tveir strákar. Ég tók
strax eftir þeim og hafði vak-
andi auga á þeim, hélt mig þess
vegna í allmikilli fjarlægð frá
bifreiðinni. Allt í einu sleppti.
annar strákurinn og sat hann á
rgssinum og snéri baki að rhinni
bifreið. Ég hemlaði eins fljótt
og unnt var, en vegna þess að
snjór var, nam bifreiðin ekki
staðar eins fljótt og venja er,
og hafði ég þá ekki annað að
gera en að sveigja bifreiðina
út af götunni, þannig, að hún
stöðvaðist við húsvegg og
skemmdist dálítið að framan.
GETA ALLIR SKILIÐ hvað
hér hefði orðið, hefði mér ekki
tekizt að sveigja bifreiðina af
götunni. Vil ég nú mælast til
| þess, Hannes minn, að þú birtir
; þetta bréf og brýnir fyrir for-
J eldrum að lesa það fyrir börn.
um sínum og tala við þau um
' það. að leggja niður þennan
ijóta leik. Álít ég meira að segja
að sá strákur, sem gerir svona
lagað, eftir að honum hefur ver
ið sagt, hve hættulegt það er,
hafi sannarlega unnið til ær.
legrar flengingar."
FANNEY SKRIFAR á þessa
leið: „Það er óþarfi fyrir mig
að orðlengja það mjög í bréfi til
þín, Hannes minn, hve mikill
skortur er á kvensokkum í
Reykjavíkurbúðunum. Svona
hefur þetta verið í mörg ár,
og maður er farinn að venjast
því. En það er annað, sem mig
langar að minnast á í- því sam-
bandi, í von um að úr sé hægt
að bæta Sokkaskorturinn staf-
ar af gjaldeyrisvandræðum, og .
það er víst ekki tiltökumál. En i
leyfist mér að spyrja: Er það
ekki nauðSynlegt af sparnaðar-
ástæðum, að kaupa inn góðar
vörur?
ÉG SPYR vegna þess, að ég
hef reynslu fyrir því að inn
eru fluttar lélegustu og ónýt
ustu sokkar, sem til eru á
heimsmarkaðinum, svo lélegir,
að ég efast um, að nokkur er-
lend kona líti við þeim, ef hún
hefur nokkur önnur ráð. Sokk-
arnir, sem við erum neyddar til
að kaupa, eru næstum því undir
eins orðnir handónýtir. Með
þessu framferði er fé okkar
kvennanna kastað á glæ og
gjaldeyri landsins eytt í fávísi
og fánýti.
ÉG VIL vænta þess, að stjórn
arvöldin athugi það um leið og
þau reýna að miðla gjaldeyrin-
um sem viturlegast, að þær vör-
ur, sem keyptar eru inn í land-
ið, séu ekki sviknar. En ég full-
yrði, að sokkanrir, sem við kon-
urnar erum að kaupa í búðun-
um, séu sviknir.“
Hannes á horninu.
Nokkrir nýir lög-
regiuþjónar skipaðir
. Á BÆJARSTJÓRNAR-
FUNDI á (fimmtudag var sam-
þyfckt eftir tillögu lögreglu-
stjóra að eftirtaldir 9 menn
verði skipaðir fastir lögreglu-
þjónar í Reykjavík:
Elís Hann'esson, Spít. 1.
Friðrik Pálsson, Ásv. 17.
Gísli Guðmundss., Bergþ. 2.
Guðni. Jóhannsson, Drápu-
hlíð 42.
Guðm. Sigurgeirss., Mjöln-
ish. 8.
Guðm. Þorvaldss., Hverf. 37.
Njörður Snæhólm, Garða-
stræti 6.
Oskar Friðbjörnss., Skúla-
götu 60.
Tómas Bóasson, Sörl. 4.
ægishjálm yfir aðrar þjóðir
heims í barátíunni fyrir lýð
ræði og frelsi. Eftirmaður
Marshalls verður Dean G-
Acheson, fyrrum aðstoðarut
an^j'kismálaráðherra Banda-
ríkjanna- Hans var að miklu
getið, meðan hann hafði em
bætti aðstoðarutanríkismála-
ráðherrans á hendi, og kvaðst
Truman forseti vænta mikils
af honum í Jj/essu starfi í fram
tíðinni. Dean G. Acheson er
maður á bezta aldri og gam-
all samherjj Roosevelts for-
seta á sviði stjórnmálabarátt
unnar í Bandaxíkjunum.
Utanríkismálasíefna Banda
ríkjanna hefur aldrei verið
mótaðri og gleggrj en nú.
Einangxunarstefnan þar er úr
á sunnudaginn ki. 3.
í dag klukkan 3.
100. sýnmg. — Uppseit.
Ingólfscafé.
í Alþýðuhúsinu í kvöid klukkan 9
Aðgöngumíðar seldir frá kl. 5 í dag. —
Gengið inn frá Hveríisgötu. — Sími 2826.
S.U.F.
S.U.F.
í Samkomusal MjólkurstöSvarimiar í kvöld kl. 9.
A.ðgöngumiðasala frá kf. 8 í anddyri hússins.
vegis sem
Aðalskiptiborðið í skrifstoíum vomm í Sam-
banclshúsimí
numer«
(5 línur).
Benzínafgreiðslan (og bifreiðalyftan)
Hafnarstræti 23
Afgreiðslustöð vor á Eeykjavíkurflngvelli
núnier
Ennfremur er miliisamband írá aðaiskipti-
borðinu við Bifreiðaverkstæði vort við Amt-
mannsstíg 2.
Olíufélagið h.f.
Hið íslenzka steinoiíuhiutðfélag. -
sögunni, og Bandaríkin hafa
tekizt á hendur forusíu með ■
lýðræðisþjóðunum í heimin
um í stað þess að láta mál
annarra heimsálfa afskipta- ,
laus. Aðsíaða núverandi
Bandaríkjastjómax heima fyr
ir er mjög sterk eftir hinn
glæsilega en óvænta sigur
Trumans í forsetakosningun
um á liðnu hausii. Þar með
er tryggt að haldið verði á
fram á þejrrj braut, sem
mörkuð hefur verið á undan
förnum árum, svö að stefnu ;' -
og sjónarmjða Marhalls
mun gæ ia áfram á ýmsan
hátt, beinlínis og óbeinlínis,
þó að harrn dragi sig í hlé og
annar maður taki við em-
bætti hans.
Kaupum hreinar
léreftstuskur«
Alþýðuprentsmiðjan h.f*
Auglýtlð t Alþýðublaðlnu