Alþýðublaðið - 22.02.1949, Side 1
iVeðurhorfur: - ' " - " m ■■ jj!W Forustugrein
Gengur í allhvassa suð- austan átt með slyddu síð- WU X tÍÁVÍT Ákvörðun Noregs
degis, en léttir sennilega til með norðaustan átt, 1 ii ii if R1 If i il 1 i 1 Íi -í' F-íru
, þegar líður á kvöldið.
XXX. árgangxtr. Þriðjudagur 22. febr. 1949. 42- tbl
r
Akvörðun norska stórþingsins í þessari viku?
Myndin var tekin við se^ningu norska stórþingiins í janúar. Fyrir miðri myndinni sést Hákon
konungur í hásæti. Lengst til vinstri sést norska ráðuneytið, í fremstu röð þess, við súluna,
stendyr Einar Gerhardsen forsætisráðherra.
UmmæSi þekktra
brezkra blaða i gær
FREGNIR . FRÁ LONDON í
GÆR hermdu, að brezk blöð
fögnuðu því mjög, að Noregur
hefði nú tekið-há ákvörðun að
ganga .í. Norður-Atlantsbafs.
bandalagið, og láta þau í Ijós
þá skoðun, að sú ákvörðun muni
hafa mikil áhrif á Danmörku,
sem nú væntanlega fari að for-
dæmi Noregs.
„News Chronicle" sagði í
gærmorgun, að athygli manna
beindist nú að Danmörku; en
sennilegt mætti teljast, að hún
færi að fordæmi Noregs. Um
afstöðu Svíþjóðar sagði blaðið,
að hún væri vel skiljanleg með
tilliti til þess, að Svþjóð hefði
tekizt að halda hlutleysi sínu í
báðum heimsstyrjöldunum.
„Daily Telegraph“ sagtSi í
gærmorgun, að ákvörðun Nor-
egs myndi verða þung' á metun-
um, er til þess kæmi, að Dan-
anörk tæki ákvörðun sína.
Fannst dauSur í fang
elsi í Aþenu í gær
DEMETRIOS PAPARIKA,
þekktur grískur kommúnisti,
sem verið hefur í fangelsi í
i.,,_Framhald á 7, síðu.
ákvörSun um máfi, ti! baka
--------ý...
Stórþingið ræðir málið síðar í þessari viku,
er Lange flytur því skýrslu sína
-———■—«*•—------------—-
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í gær.
ÞING NOKSKA ALÞÝÐUFLOKKSINS í OSLÓ sam-
þykkíi á sunnudaginn í einu hljóði, að lýsa sig fylgjandi því,
að Noregur gerðist aðili að varnarsamtökum hinna vestrænu
Iýðræðisríkja á jbeim grundvelli, sem slíkum samtökum væri
markaður af handalagi hinna sameinuðu þjóða og með varð-
veizlu friðarins fyrir augum. Minnihluti þingsíns, sem á laug-
ardaginn hafði borið fram tillögu um að freSta ákvörðun um
þetta mál, tók tíllögu sína aftur á sunnudaginn.
Lange, utanríkismálaráðherra Norðmanna, lét svo um
mælt við blaðamenn í Osló í morgun, að norska stjórnin hefði
nú ákveðið, að Noregur gerðist aðili að Norður-Atlantsliafs-
bandalaginu til þess að tryggja öryggi sitt; en ennþá væri ekki
hægt að segja, hvenær það yrði, og að sjálfsögðu yrði það
ekki fyrr en stórþingið hefði sagt sitt orð í málinu; en hann
myndi flytja því skýrslu um vesturför sína síðar í þessari viku.
Með samþykkt norska Al-
þýðuflokksþingsins er norrænt
varnarbandalag til fulls úr
sögunni, og spurningin er nú,
hvað Danmörk gerir. Hedtoft,
forsætisráðherra Dana, hefur
ekkert viljað láta hafa eftir sér
um það, en. segir, að utanríkis-
málanefnd danska ríkisþingsins
muni ræða málið á miðviku.
daginn. Víst er, að þeirri hug-
mynd hefur verið hreyft, að
Svíþjóð og Danmörk gerðu
með sér varnarbandalag, en litl.
ar Ikur þykja til þess, að sú
hugmynd verði tekin alvarlega.
Sænsk blöð segja, að hern-
aðarleg aðstaða Svíþjóðar hafi
versnað við ákvörðun Noregs,
og að hún muni verða mjög
erfið, ef til nýrrar styrjaldar
dregur; en sennilega muni Sví.
þjóð þó eftir sem áður halda
fast við hlutleysisstefnuna.
Að sjálfsögðu kom ákvörðun
norsku stjórnarinnar og norska
Alþýðuflokksþingsins þeim Hed
toft og Erlander, sem voru gest-
ir á flokksþinginu, ekki á ó.
_________ (Frh. á 7. síðu.)
FJJ. vilf samvinnu vi
ræðisríkiti m ©ryggi Ss!
Eo vill hvorki herskyldsi oé eiieodan her
eða herstöðvar hér á landi á friðartímum
FJÖLMENNUR FUNDUR í Félagi ungra jafnaðarmanna
í Reykjavík samþykkfi í gærkveldi í einu hljóði að lýsa yfir
þeirri skoðun sinni, að athuga bæri gaumgæfilega hvernig
hezt mætti tryggja öryggi og sjálfstæði íslands í samvinnu
vlð hin vestrænu og engilsaxnesku lýðræðisríki, en að óskyn-
samlegt og ótímabært væri hins vegar að taka afstöðu með
eða móti Norður-Atlantshafsbandalagi fyrr en viíað væri um
sátímála þess.
í þessu sambandi tók fundurinn fram að hann væri and-
vígur því að hafa erlendan her og herstöðvar hér á friðar-
tímurn og teldi ekki að íslendingar gætu íekið upp herskyldu.
Stefán Jóh. Stefánsson for.
sætisráðherra var mættur á
fundinum og flutti þar ýtarlega
framsöguræðu um öryggi ís.
lands, en síðan urðu miklar og
fjörugar umræður. Að þeim
loknum bar stjórn félagsins
fram til ályktunar svohljóðandi
tillögu, sem samþykkt var í
einu hljóði:
„Félag ungra jafnaðarmanna
í Reykjavík telur brýna nauð.
syn bera til þess, að stjórnar.
völd íslands á hverjum tíma at.
hugi gaumgæfilega hvernig
try-ggja megi sem bezt öryggi
og sjálfstæði landsins og sltír-
skotar í því sambandi' til álykt.
unar flokksþings Alþýðuflokks-
ins síðast liðið haust um þetta
efni.
Félagið telur nauðsyn á vin.
samlegri og friðsamlegri sam.
vinnu íslands við hin vestrænu
og engilsaxnesku lýðræðisríki
sökum sameiginlegra stjórnar.
hátta þessara þjóða, en lýsir
Frh. á 8. síðu-
SOVÉTSTJÓRNIN hefur nú
kraflzt þess af frönskum
stjórnarvjíldum, að þau fram-
selji . .henni þrjú rússnesk
vitni í málaferlum Victors
Kravschenko í París sem
stríðsglæpamenn. Franska
stjórnin hefur engu svarað
þessari kröfu enn.
Málaferli þessi hafa vakið
mikla athygli undanfarið en
þau eru þannig ti-1 komin, að
rússneski flóttamaðurinn Vict
or Kravschenko, höfundur
Framh. á 8. síðu.
lidslaust við Suðaustur-
and og Vestmannaeyjar |
53 staurar brotolr á Rao^árvöIIom os* í
Landeyjum. Viðgerð ekki Sokið í dag.
-------«————
L í FÁRVIÐRINU í fyrrinótt hrotnuðu 53 símastaurar á
Rangárvöllum og í Landeyjum, og er nú símasambandslaust
þar fyrir austan og sömuleiðis við Vestmannaeyjar. Talði er
að viðgerðinni verði ekki lokið á einum degi.
Á öðrum stöðum á landinu
urðu engar stórvægilegar bilan-
ir á línunni, að því er skrifstofa
andssímans tjáði blaðinu í gær,
en á löngu svæði á Rangárvöll-
uni og í Landeyjunum hefur
línan margslitnað vegna ísing-
arinnap, sem hlaðizt hefur á
hana, og enn fremur hafa 33
staurar brotnað í Landeyjum og
20 staurar á Rangárvöllum, og
er því algerlega sambandslaust
við Vestmannaeyjar og Suð.
austurland.
í gær yar blindliríð og stór-
viðri fyrir austan og ekki hægt
að hefja viðgerðir, en vinnu-
flokkur fór þó austur með efni
til viðgerðarinnar, og verður
byrjað á henni jafnskjótt og
veðrinu slotar. Þá er talið, að
ekki verði nærri hægt að ljúka
viðgerðinni á einum degi, en
þó kann ,að vera, að unt verði
að koma sambandinu á áður en
fullnaðarviðgerð hefur farið
fram. í dag mun þó ekkert sam-
band verða, fyrr en þá seint í
kvöld, ef viðgerðarmennirnir
hafa getað byrjað í morgun.