Alþýðublaðið - 01.06.1949, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 01.06.1949, Blaðsíða 8
Gerlzt áskrifendur að Alþýðublaðinu. Alþýðublaðið inn á hvert heimili. Hringið í síma á900 eða 4908. Börn og unglingar. Komið og seijið AX.ÞÝÐUBLAÐIÐ I Allir vilja kaupa f ALÞÝÐUBLABIÐ I Miðvikudagur 1. júní 1940 gsi raiii Sumardvöl á vegum KFUK sfcaia ifrir sumar- slarf siii si Wmi- í Kjós KKISTILEGT FÉLAG UNGRA KVENNA, sem átti fimmtugsafmæli 29. apríl síð- ast liðinn, hefur ákveðið að reisa skála fyrir sumarstarf sitt að Vindáshlíð í Kjós, en þar h'efúr sumarstarfið farið fram undanfarin ár. Teikning að skálanum er tilbúin og fjárfestingarleyfi fengið fyrir býggingu nokkurs hlutá hans. Verður reynt að vinna eins og lííint er að byggingu lians í sjásfhoðavinnu. Kvikmynd hefur Guðlaugur Þorláksson gert af starfsemi félagsins og verður hún sýnd í húsi KFUM og K í kvöld. ann- að kvöld og á föstudagskvöldið, en gjöfum til skálabyggingar- innar veitt móttaka á eftir. Að- gangur að kvikmyndasýning- unni verður hins vegar enginn og verða miðar afhentir frá kl. 5—7 þann dag, sem sýnt verður. Er öllum heimill að- gangur og engu síður þeim, cem ekkert geta af mörkum lagt til starfsins, því að félagið viil gjarnan kynna starf sitt sem bezt með þessari mynd. ETARFIÐ í SUMAR Sumarstarfinu í sumar verð- ur þannig hagað, að dvalar- flokkur fyrir telpur 9—12 ára verður vikutíma í skíðaskála Vals og hefst það þann 16 iúní. Fyrir stúlkur 13 ára og eldri verður dvalarflokkur í Vind- áshlíð um miðjan júní, og verð u : hann nánar auglýstur síðar þegar sýnt er, hvenær hentug- ast verður að hafa hann þar. Þótt sumarstarfið sé mikill [>áttur í starfsemi félagsins fer starfsemi þess þó að langmestu leyti fram í Reykjavík um vetrarmánuðina. Hvern sunnu dag eru fundir fyrir litlar telp- ur kl. 3,30 og auk þess sauma- fundir einu sinni í viku fyrir hverja „sveit“ — en telpu- Undan farin sumur hefur K.F.U.K. haldið uppi sumarstarfi í Vindáshlíð í Kiós, en engan skála haft, svo að stúlkurnar hafa orðið að búa í tjöldum. Nú hefur félaaið ákveðið að reisa skála. Mvndin er tekin í sumardvöl stúlkna bar í fvrra sumar. Fyrra bindi „Ferðaminninga“ hans kemur út í dag, sfðara bindið í haust, í DAG kemur út á vegum ísafoldarprentsmiðju fyrra bindið af ritsafni Sveinbjarnar heitins Egilssonar, sem mun hafa verið einna víðförlastur af íslendingum sinnar samtíðar, en síðara bindi ritsafnsins kemur út næsta haust. Nefnist bókin „Ferðaminningar“, og ritar Gils Guðmundsson ritstjóri ýtarlegan formála að henni um Sveinbjörn, ævi hans og ritstörf. deildinni er skipt í 12 „sveit- k’“. Unglingadeildin —• fyrir stúlkur yfir fermingu — hefur fundi á hverjum fimmtudegi k'. 8,30 e. h. og Aðaldeildin, fyrir þær, sem órðnar eru 17 ára, hefur fundi hvert þriðju- dagskvöld kl. 8,30. Auk þessa eru svo ýmsir smserri fundir svo sem Biblíulestrarflokkur. í sambandi við fimmtugsaf- mæli félagsins var gefið út af- mælisrit. FLUGVÉLAR LOFTLEIÐA flugú í gær átta ferðir innan Iands með fólk á fimm staði. Tvær ferðir voru farnar til Vestmannaeyja, tvær vestur á ísafjörð, tvær til Flateyrar, ein að Sandi og ein til Pat- ic-ksfjarðar. Benedikt Gröndal var föð- urbróðir Sveinbjarnar Egils- sonar og varð helzti hvata- maður þess, að hinn víðförli frændi hans ritaði minningar sínar frá farmennskuárunum. ,,Ferðaminningar“ Sveinbjarn- ar byrjuðu að koma út árið 1922 og voru gefnar út í heft- um. Lauk útkomu fyrra bindis þeirra árið 1925. Varð þá nokkurt hlé á útgáfunni, en útgáfa síðara bindisins hófst 1930 og lauk 1932. „Sjó- ferðasögur" Sveinbjarnar komu hins vegar út 1934, en þær mega heita beint áfram- hald af „Ferðaminningunum“. Báðum þessum bókum var á- gætlega tekið bæði af ritdóm- urum og alþýðu manna. „Ferðaminningarnar“, sem nú eru byrjaðar að koma út verða heildarútgáfa af ritum Sveinbjarnar Egilssonar. Verð- ur hún í tveimur bindum, og flytur fyrra bindið allan fyrri hluta fyrstu útgáfu „Ferða- minninganna“ og upphaf síðari hlutans, en síðara bindið mun flytja niðurlag „Ferðaminn- Lnganna“, „Sjóferðasögurnar’1 og að auki fjórar frásagnir, er Sveinbjörn birti í blöðum eft- ir 1934. Sveinbjörn Egilsson fæddist 1863, en fór í siglingar 1885 og stundaði farmennsku í tvo ára- tugi. Lagði hann ýmis störf fyrir sig fyrst eftir heimkom- una, en 1914 varð hann skrif- stofustjóri Fiskifélags íslands og ritstjóri „Ægis“. Skrifstofu- stjórastarfinu gegndi hann til 1934, en ritstjórninni til 1937. Hann lézt 1946 83 ára að aldri. Aðalfundur Alþýðu- flokksfélags ísa- ijarðar var haldinn í fvrrakvöld ALÞYÐUFLOKKSFE- LAG ÍSAFJARÐAR hélt aðal- fund sinn í fyrrakvöld. I stjórn félagsins voru kosnir Hanni- bal Valdimarsson alþingis- maður formaður, Birgir Finns son bæjarfulltrúi varaformað- ur og meðstjórnendur Eyjólf- ur Jónsson, Kjartan Guð- mundsson og Marías Guð- mundsson. í varastjórn voru kosnir Finnur Finnsson, Guðmundur L. Jónsson og Guðmundur G. Kristjánsson. Fundurinn var mjög fjöl- sóttur og áhugi mikill hjá fé- íagsmönnum. Á fundinum kom fram skrifleg áskorun frá meirihluta félagsmanna, sem í bænum eru, til Hannibals Valdimarssonar um að segja sig úr Þjóðvarnarfélaginu. Kostnaðor við virðuiega en einfalda út- för verður ekki meiri en S200 krónor® Óskar Jónsson. KR-mólinu lýkur í KIRKJUGARÐSSTJÓRNIN í Reykjavík hefur nú akveð- ið að taka að sér að sjá um útfarir að öllu leyti fyrir þá, sem þess óska, o? mun kostnaðuripn af hverri jarðarför ekki verða nema 1200 krónur að óbreyttu kaupgjaldi og öðru verðiagi al- mennt, hvort sem um er að ræða líkbrennslu eða jarðsetriingu. Kirkjugarðsstjórnin sér einungis um þær útfarir, sem fram fara frá Fossvogskirkju. Þær útfarir, sem kirkju-* ‘ garðsstjórnin sér um, verða með sama fyrirkomulagi . og tíðkazt hefur hér undanfarin ár, og er innifalin í hinu til- tekna gjaldi kostnaður af allri þjónustu að undanskilinni hús- kveðju; verður líkkista lögð til, umbúnaður í kistu, lík- flutningur og líkgeymsla, en samkvæmt nýrri heilbrigðis- samþykkt, Sem gengur bráð- lega í gildi, er bannað að láta lík standa lengur uppi í heima- húsum en tvo sólarhringa, — þá kostar kirkjugai’ðsstjórnin söng við útfarir, prestsþjón- ustu, kistulagningu í heima- húsum, svo og allt annað, er að útförinni lýtur. Líkkistur af nákvæmlega sömu gerð og tíðkast hefur, munu verða lagðar til, en kirkjugarðsstjórn hefur tekið á leigu verkstæði Tryggva Árnasonar, Njálsgötu 9, og ráðið einn mann, Kjartan Jóns son, til þess að sjá um frágang á þeim, umbúnað og sumpart kistulagningu í heimahúsum og sjúkrahúsum, ef þess er óskað. Kirkjugarðsstjórn tekur þetta að sér til þess að losa bæjarbúa við óþarfa fyrirhöfn og kostnað við jarðarfarir með því að koma hentugu skipu- lagi á útfaiúr. Mun hún leggja allt kapp á að gera jarðarfar- irnar virðulegar en einfaldar, og séð verður um, að hægt sé, ef mikið liggur við, að ná tali af einhverjum starfsmanni hennar hvenær sem er. Kirkjugai’ðsgjald það, er all- ir skattgreiðendur borga ár- lega, sagði framkvæmdastjóri kirkjugarðsstjórnar, er hann ræddi við blaðamenn í gær um þessi mál ásamt formanni hennar og ritara, rennur til framkvæmda og bygginga í Fossvogi og að öðru leyti til reksturs og viðhalds báðum kirkjugörðunum, en hinar nýju byggingar við Fossvogskirkju- garð bæta mjög úr brýnni þörf. Áður en líkhúsið þar var reist, var engin líkgeymsla til í Reykjavík, og í góðar þaríir kemur að hafa kirkju við kirkjugarðinn, þar eð óhjá- kvæmilega mun að því stefnt í framtíðinni, að fella niður með öllu húskve'ðjur í heimahúsum og útfarargöngur. Þá gat framkvæmdastjóri þess, að mikið hefði verið rætt um það, hve útfarir væru dýrar, en taldi, að þeir, sem þær hafa haft með höndum, hefðu ekki tekið meiri ómaks- laun en almennt gerist við hliðstæðan atvinnurekstur. SÍÐARI HLUTI frjáls- íþróttamóts KR, sem fram átti að fara á sunnudaginn, en fresta varð vegna óhagstæðs veðurs, verður í kvöld kl. 8 á íþróttavellinum. Keppt verður í þessum í- þróttagreinum í kvöld: Stang- arstökki, kringlukasti, 200 m hlaupi, 1500 m hlaupi, lang- stökki kvenna, 3000 m hlaupi, sleggjukasti, 4x100 m boð- hlaupi kvenna og 400 m boð- hlaupi. Meðal þátttakenda í kringlu- kasti eru Gunnar Huseby og Norðmaöurinn Bjarne Mölster, en í 1500 m hlaupinu Óskar Jónsson og Norðmaðurinn Olav Höyland. Samkvæmt fregnum frá veðurstofunni, var hlýnandi veður Norðanlands í gærkvöldi, í Gi'imsey var 1 stigs hiti og þoka og dálítil rigning á Akui’- eyri. Kirkjugarðsstjórn skipa nú þessir menn: Þorsteinn Sche- ving Thorsteinsson frá dóm- kirkjusöfnuðinum, Kristján Þorgrímsson frá Laugarnes- söfnuði, Ingimar Brynjólfsson frá Nessöfnuði, Sigurbjöi’n Þorkelsson, sem er formaður stjórnarinnar, frá Hallgríms- söfnuði, Einar Einarsson frá Fríkiidsjusöfnuðinum og Gunn- ar Einarsson, sem er ritarx tilnefndur af íslands. Fram- Felix Gúð- stjórnarinnai', Bálfararfélagi kvæmdastjóri mundsson. er

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.