Alþýðublaðið - 07.07.1949, Side 4

Alþýðublaðið - 07.07.1949, Side 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ Fimmíudagurinn 7. júlí 194!;. Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjórj: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Fingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4908. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h-f- MEÐ GEORGI DIMITROV er fallinn í valinn sá maður, sem kommúnistar um heim all an hafa hampað mest síðasta hálfan annan áratuginn, þeg- ar undan eru skilin sjálf skurð- goðin austur í Moskvu. Dimitrov, sem síðan í lok fyrri heimsstyrjáídarinnar! hafði verið eitt af aðalhand- bendum Moskvukommúnism- ans utan Rússlands, .fyrst í heimalandi sínu, Búlgaríu, síðan sem erindreki alþjóða- sambands kommúnista víðs- vegar um Evrópu, varð fyrst þekktur utan hins þrengri hóps kommúnista af írækilegri vörn sinni fyrir dómstól þýzku nazistastjórnarinnar í Leipzig; fyrir sextán árum, er hann var ; ákærður um að hafa staðið að' ríkisþingshússbrunanum víð- fræga í Berlín, sem, eins og síðar kom á daginn og marga grunaði þá þegar, var verk nazista sjálfra. Málaferlunum í Leipzig i lauk, eins og menn muna, með j því, að Dimitrov var sýknað- ur og nokkru síðar afhentur Rússum; en mjög vafasamt verður að teljast, að hann hefði, þrátt fyrir sakleýsi sitt, sloppið með lífi í það sinn, ef frjálslynd blöð og með þeirn almenningsálitið í Evrópu hefði ekki tekið svari hans og heimtað hann sýknaðan af hinni röngu ákæru. Það er sér- stök ástæða til að minnast þessa í dag af því, að Dimitrov þakkaði blöðum og almennings áliti Vestur-Evrópu þessa hjálp fjórtán árum síðar, þeg- ar hann var orðinn forsætis- ráðherra Búlgaríu, með því að hafa að engu mótmæli þeirra gegn dauðadóminum yfir búlgarska bændaforingjanum Nikola Petkov, sem áreiðan- lega var jafnsaklaus dreginn fyrir dóm í Sofiu og Dimitrov í Leipzig forðum. Og Dimitrov blygðaðist sín jafnvel ekki fyrir, að hælast um það eftir á, að hafa látið taka Petkov af lífi, þrátt fyrir mótmæli blaða og almennings vestur í Evrópu. Dimitrov var dubbaður til aðalritara í alþjóðasambandi kommúnista eftir að hann hafði verið látinn laus úr prís- und nazista; og með þeirri trún aðarstöðu var honum falið það hlutverk af húsbændum sín- um austur í Moskvu að kenna kommúnistaflokkunum úti um heim hina svokölluðu „sam- fylkingarpólitík“, sem mörg- um er í fersku minni. Var þessi pólitík fyrst og fremst falin í því, að láta vel að jafn- aðarmönnum og öðrum róttæk um og frjálslyndum flokkum, sem kommúnistar höfðu áður svívirt, og reyna á þann hátt að svíkjast inn í raðir þeirra, í von um, að sundra þeim og auka sitt eigið fylgi. Dimitrov líkti þessari póli- Aíliafnasamir íþróttamenn. — Erlendir gestir cg áhrifin af komu þeirra. — Um barnalelk- velli. — Slökkvistörf. ÍÞRÓTTAMENN OKKAR eru athafnasamir í sumar, að líkihdum hafa þeir aldrei verið eins athafnasamir. MikiII fjöldi þeirra fer utan og keppir þar á leikvönguhi og stendur sig vel. En áður hef ég bent á það, að það er ekki ómerkilegasti vott- urinn um vaxandi mátt þjóð- arinnar, hve íþróttamenn henn- ar íaka stórfelldum framförum á filíölulega fáum árum. Það sýnir að þrátt fyrir margar misfellur í fari unga fólksins býr kraftur, áræði og reglusémi í því. Gefur það góð fyrirheit um dugmikið fólk þegar sú virna styrjaldaráranna og gróð- ans er rúnnin af, sem svo mjög hefur gætt undanfarið. ÞAÐ ER GAMAN AÐ fá hingað erlenda fþróttaflokka og í sumar hafa til dæmis komið tveir knattspyrnu.flokkar, frá Englandi og frá Hollandi. Pilt- arnir læra af þessu öllu, sækja sig meir og öðlast þá menningu, sem heilhrigð og góð íþrótta- hreyfing á að hafa.. Hollending- arnir hafa nú leikið einn leik hér og voru þó öll skilyrði af- arslæm á íþróttavellinum í fyrrakvöld. Sérstaka athygli knattspyrnuunnenda vakti það hvernig Hollendingarnir nýttu sér látbragðalist, í leiknum og hve hún kom KR-ingum oft á óvart. NÝLEGA VAR frá því skýrt í erlendu blaði, að Hollending- arnir ætluðu að keppa hér. Var því illgirnislega spáð, að beir myndu vinna alla fyrstu leik- ina, en tapa þeim síðasta, þeg- ar þeir væru orðnir þreyttir á veizluhöldum, en það væri sið- ur íslendinga að halda erlend- um íþróttamönnum margar veizlur og stórar og bjóða þeim í erfið ferðalög. EF TIL VILL eru veizluhöld okkar fyrir erlenda keppendur of mikil, eða hafa verið. Þetta hefur stafað að gestrisni íslend- inga, sem viðkomandi blaði er víst alveg framandi tilfinning, Hins vegar eru það ekki nema eðlilegt, að stórar þjóðir eigi erfitt með að skilja það, að smá- þjóðir skuli geta unnið þær í íþróttum eða á annan hátt. Rétt er þó íyrir okkur, að lík- indum, , að draga nokkuð úr veizluhaldagestrisni, en láta þetta aðalsmerki okkar íslend- inga heldur koma fram á ann- an hátt. ATHUGULL SENDI MÉR þetta bréf fyrir nokkru: „Það hefur verið mikið rætt og ritað um leikvelli fyrir börnin hér í bænum. Hefur sérstök leik- vallanefnd verið skipuð af bæj- arstjórn og eitthvað verið gert, én meira verður gert. — En væri ekki hægt að fá nokkuð marga leikvelli fyrir börnin með því að taka leiguámi nokkrar af þeim óteljandi ó- byggðu íóðum, sem svo víða eru hér í bænum — og leyfa börnunum að leíka sér þar. SKAMMT FRÁ ÞVÍ húsi, sem ég bý í, er stór óbyggð lóð, sem mætti með litlum tilkostn- aði brcyta í leikvöll fyrir allan þann fjölda af börnum, sem hér búa í nágrenninu. Ég fór fram á það við umráðamenn lóðarinn ar að mega girða hana.og setja einn sandkassa og rólu fyrir börn þessi, sem annars verða að leika sér á götunni, en fékk neitandi svar. ÞANNIG ER NÚ skilningur sumra á leikvöllum fyrir yngstu borgara bæjarins. — Lóðirnar eru látnar vera ónotaðar árum saman og þær eru ofgóðar handa börnunum að leika sér á. — Á þessu verður að verða breyting og það ekki eftir mörg ár heldur strax á þessu ári. — Bæjarstjórnin verður að hafa forgöngu í þessu máli, — en gerir hún það? í FRÁSÖGN ALÞÝÐU- Frh. á 7. síðu. tík sjálfur við Trojuhestinn fræga, sem Grikkir gáfu- Trojumönnum eftir að þeir höfðu fullvissað sig um, að þeir gætu ekki unnið borg þeirra með áhlaupi að utan. En í Trojuhestinum, sern var risa- stór tréhestur, voru faldir fjöl- margir grískir hermenn með alvæpni, og er hann hafði ver- ið fluttur inn í borgina, svik- ust þeir að Trojumönnum á nætúrþeli og réðu niðurlögum þeirra. Var þessi samlíking Dimi- trovs einkar einkennandi fyrir pólitískt siðferði hans og ann- arra kommúnista bæði fyrr og síðar. ■h Samfylkingarpólitík Dimi- trovs nægði þó hvergi til þess, að lyfta kommúnistum til valda. Það var, ekki fyrr en í lok síðari heimsstyrjaldarinn- ar, að sá draumur þeirra rætt- ist í Austur-Evrópu, og þá var það hvorki henni né afrekum þeirra sjálfra að þakka, held- ur byssustingjum rauða hers- ins, sem ruddu þeim brautina upp í valdastólinn og vörðu þá þar gegn kröfum fólksins, sem hafði vænzt allt annarrar og betri stjórnar eftir stríðið. Sjálfur var Dimitrov þá gerður að forsætisráðherra í Búlgaríu, sem hann hafði ekki séð í meira en tuttugu ár. En jafnvel þótt hann velti sér þar í völdum í nokkur ár og léti hina fyrri andstæðinga óspart kenna aflsmunar í skjóli hinna rússnesku byssustingja, er mörgum það efamál, að hann hafi um það er lauk haft mikla ánægju af þjónustunni við hina austrænu húsbændur. Það verður að vísu sennilega ekki upplýst fyrst um sinn, hvers vegna Dimitrov varð snemma á þessu ári að leggja niður for- sætisráðherraembættið í Sof- iu og hverfa aftur austur til Moskvu; en ekki var mönnum þá grunlaust um, að. það væri að minnsta kosti takmörkuð náð, sem hann nyti austur þar, eins og fleiri leppar Moskvu- valdsins . suður á Balkanskaga, og raunar víðar, um þessar mundir. Ujartanlegia þafcka ég öllum þeim, sem •sýnd'u mér ógléyma'nlega vinsem'd á 70 ára afmæli imínu 30. júní, með gjöfium og skeytum. Guð blesisi ykkur öll. Marnrét Benjamínsdóttir, Patreksfirði. Innilegar þakkir til þeirna vina og kunn- ingja, er heiðruðu mig með kveðjum og heilla- óskum á áttræðisafmæli mínu. Jón Bjömsson, Öldutorgi 6, Hafnarfirði. Alúðarþakkir fyrir kveðjur, heimsóknir og höfðing- Iegar gjafir á gullbrúðkaupsdegi okkar, 30. júní s. 1. Sólveig Pétursdóttir 02 Stefán Kristinsson, Hafnarvík, Iirísey. r. - fEKB—fo. Hafi á þeim sjóoieiki, kvlkmyfidir, viki- vaka, söog, uppléstra og 'fyrirlestra. SEXTÁNDA ÞING Ungmennafélags fslands, sem haldið var í Hveras'erði á síðast liðinni viku. skoraði á öil ungmeuna- félög, að vanda sem bezt til dairskrárliða á samkomum sínum og benti í bví sambandi sérstaklega á leikstarfsemi, kvikmýnd- ir, söng, upplestur vikivaka og fyrirlestra, og vildi, að þjóð- leikhúsið leiðbeindi ungmennafélögum um leikstarfsemi. Þingið gerði ályktanir um ýmis mál. Meðal annars skor- aði það á alþingi að láta hið fyrsta fara fram þjóðarat- kvæðagreiðslu um bann við innflutningi og sölu áfengis og taldi mikla óhæfu, að áfengis- sala væri slík tekjulind fyrir ýmis samkomuhús í Reykja- vík, að þau freistist til að neita bindindismönnum um hús- næði til skemmtana. Þingið taldi, að íþróttaskól- inn í Haukadal ætti að hljóta réttindi til að útskrifa glímu- kennara, og vildi, að héraðs- samböndin hafi samvinnu við héraðsskólana um skipulagn- ingu íþróttamálanna. Auk þess vildi þingið, að stofnaður yrði menntaskóli í sveit. Þá taldi þingið ungmenna- félögin eiga að leggja áherzlu á skógræktarmál, hefði UMFÍ sérstökum skyldum að gegna við Þrastaskóg og fól sam- bandsstjórn, að láta gróður setja trjáplöntur þar og á- kveða framtíðarskipulag skóg- arins í samráði við kunnáttu- menn. Þingið lýsti ánægju sinni yf- ir því samstarfi, sem tekizt hefði milli UMFÍ og annarra ungmennasambanda á Norður- löndum, og leggur áherzlu á, að auka beri samvinnu og kynningu milli UMFÍ og þeirra. Enn fremur taldi þingið, að sækja verði það mál sem fast- ast, að íslenzkum handritum, sem geymd eru í söfnum er- lendis, verði skilað íslending- um hið fyrsta, og þakkaði þann skilning, er fram hefur komið meðal danskra ungmennafé- laga og lýðháskólamanna. Endurskoðunarákvæði Kefla- víkursamningsins vildi þingið að notfært yrði í því skyni, að rekstur flugvallarins komist í hendur íslendinga. Taldi þing- ið einnig hið mesta nauðsynja- mál fyrir efnahagslegt sjálf- stæði þjóðarinnar, að landhelg- innar verði gætt vandlega og hún færð út, ef kgstur er á. Félagsiíf Ferðafélag femplara ráðgerir að efna til flugferð- ar til Hornafjarðar með við- komu að Kirkjubæjarklaustri og Fagurhólsmýri n. k. laugar dag kl. 3 e. h. Á Hornaf. verður gist, en á sunnudagsmorgun verður ekið austur í Almannaskarð og Lón. í bakalleið að Hoffelli og viðar. Flogið til Rvíkur um kvöldið. Áætluð Þórsmerk urferð fellur niður vegna vatna, en í þess stað verður farið að Hreðavatni í Borgar- firði kl. 2 á laugardag og gist þar. Á sunnudag að Laxfoss- um, Reykholti, Húsafelli og víðar. Komið heim á sunnu- dags kvöld. Þátttaka tilkynn- ist í BÓKABÚÐ ÆSKUNN- AR, sími 4235, fyrir kl. 6 á föstudag.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.