Alþýðublaðið - 18.09.1949, Síða 1

Alþýðublaðið - 18.09.1949, Síða 1
VeÖijrhorfiirs Sunnan og suðaustan gola. Dálítil rigning eða súld, þeg- ar líður á daginn. Forustugreinj Hin vonda samvizka gengis- lækkunarpostulanna. XXX. árgangur. f»»esPBa Sunnudagur 18. sept. 1949 210. tbl. ronfo Frambeð álþýðu- Nýstárlegt veitingahús fyrir ökumenn Nýlega var opnað í Los Angeles veitingahús fyrir ökumenn, sem myndin sýnir. Kassar ganga eftir teinum frá eldhúsinu til bilanna. Fyrst kemur matseðillinn, ökumaðurinn pantar skrif- lega og borgar, en síðan fær hann pöntun sína án þess að hrevfa sig úr bílnurn! aiigiimgiiiiiiiiaeaigcGiiiiiiiiiiii U biðja um frið! STJÓRN grísku upp- reisnarmannanna liefur nú óskað þess við grísku stjórn- ina, að hún semdi frið í borgarastyrjöldinni. Má af þessu marka, að kommún- istar telja þýðingarlaust að halda grísku uppreisninni áfram, enda munu Albanir nú ætla sér að draga úr að- stoð sinni við uppreisnar- menn. Mun Kominform telja þetta einu leiðina til að bjarga einhverju af gríska kommúnistaflokkn- um. Ekki er vitað, hvernig gríska stjórnin tekur í mála- leitun þessa. Bretar fé þrýsfilofls sprengjuflugvélar HENDERSON flugmálaráð- herra flutti í gær ræðu á sýn- ingu, sem haldin er í tilefni af 9 ára afmæli orustunnar um Bretlar.d. Sagði hann, að Bret- ar mundu innan skamms fá nýjar þrýstilofts-sprengj uflug- vélar, en þeir ættu nú þegar Landvörnum skipt eftir svæðum miili ellefu þátttökuríkjanna ------------------*------- UTANRÍKISRÁÐHERRAR Atlantshafsríkjanna, allir nema Bjarni Benediktsson, sátu í gær fyrsta fund Atlantshafsráðsins í Washington. Stóð fundurinn aðeins eina klukkustund, og var gengið frá skipan þeirrar samvinnu, sem samningsríkin ætla að hafa með sér, en hún er ekki aðeins á sviði liermála, heldur einnig í samrröngumálum og efnahagsmálum. --------------------• Fundurinn fór fram í sama ., , , sal og sáttmálinn var undirrit- Kommúmsfar missa öll ítök meðal ' sænskra sjómanna SJÓMANNASAMBAND Sví- þjóðar hélt fyrir nokkru árs- þing sitt, og fór kosning full- trúa til þess þannig, að komm- únistar biðu herfilegan ósigur. Alls voru kjörnir 75 fulltrúar á þingið og höfðu kommúnistar á síðasta þingi 30 af þeim. Að þessu sinni fengu þeir aðeins 2 kosna, en jafnaðarmenn fengu alla hina, 73 að tölu. Eru áhrif kommúnista í sjómannasam- bandinu sænska með þessu þurrkuð út. beztu orustuflugvélar heims. Fyrsta slík sprengjuflugvél er „Canberra“ vélin, en fleiri og betri koma á eftir. aður. Thor Thors sendiherra mætti fyrir hönd íslendinga, en utarfríkisráðherrar hinna ellefu ríkjanna. Auk hermálanefndanna munu fulltrúar Breta, Frakka og Bandaríkjanna sitja í Wash ington og koma saman bðru hverju til að ræða landvarnir. Varnir bandalagsins verða skipulagðar í svæðum, eitt fyr- ir Norður-Ameríku, annað fyrir Norður-Evrópu, hið þriðja fyrir Vestur-Evrópu og hið fjórða fyrir Vestur-Mið- jarðarhaf. Loks verða allar þjóðirnar í svokallaðri Atlants hafsnefnd, sem mun fj.alla um samgöngur og fleira skylt, en það er eina nefndin, sem ís- lendingar eiga sæti í. Fulltrúar bandalagsríkjanna höfðu fjallað um skipulag þessara mála fyrir fundinn i Washington í gær, og gekk miklu fljótar að afgreiða mál þetta en búizt var við. Ráð bandalagsríkjanna mun koma saman einu sinni á ári. Farþegaskipið „Var- onic”, með 700 farþega um borð, brann í höfninni TÆPLEGA 200 manns! fóru'st í gær, er farþega- í ökipið „Naronic“ brann á; !h'öfninn.i í Toronto í Kan- ada. Kcen eldurinn upp snemma morguns, er flest ir farþeganna, sam voru í síkemmtiferð, voru í fasta Isvefni. Lá skipið við bryggju, og margir gátu komizt í land, en áðrir 'hentu sér í sjóinn. Alls um. 700 manns, farþegar og áhöfn, í skipinu. „Nai-onic“ er 7000 smálesta skemmtiferðaskip, sem flutt hefur ferðamenn um vötnin miklu, sem liggja á landamær- um Kanada og Bandaríkjanna. Hafði skipið tekið farþegana, sem flestir voru Bandaríkja- i menn, í Cleveland við Erie-! vatn, en Toronto stendur við Ontariovatn og er skipgengt á milli vatnanna. Skipið lá í höfn, sem áður getur, er eldurinn kom upp i borðsal þess. Breiddist hann fljótlega út til farþegaklef- anna. Síðustu fregnir í gær- kvöldi hermdu, að tæplega 200 hefðu farizt, en 60 verið fluttir í sjúkrahús, sumir þeirra alvarlega brenndir. Starf brunaliðsins gekk mjög illa, þar sem erfitt var að kom- ast að eldinum. Kanadiska stjórnin hefur fyrirskipað rannsókn á slysi þessu, sem er hið hörmuleg- asta er fyrir hefur komið á amerísku vötnunum í meira en 100 ár. Forsætisráðherra Kan- ada, St. Laurent, hefur sent aðstandendum hinna látnu samúðarkveðj u. ----------»---------- Feiri jáiningar á samsærum og land- ráðum í Budapest TVEIR hinna ákærðu í Bu- dapest hafa nú bætzt við þá, sem játað hafa á sig samsæri og morðfyrirætlanir. Er annar þeirra fyrrverandi herforingi, sem sagði frá því, að hann hefði stjórnað samsæri í sam- bandi við Júgóslava, og var ætlunin að taka fasta og myrða ráðherra landsins. Áttu Júgó- slávar að sjá fyrir hermönn- um, klæddum ungverskum , búningum. Pétur Halldórsson. FRAMBOÐ Alþýðuflokksins í Norður-Múlasýslu hefur nú verið ákveðið. Verður listi flokksins þar skipaður þannig: Þorsteinn Sveinsson, liéraðs- dómslögmaður, Reykjavík. Pétur Halldórsson, deildar- stjóri í Tryggingarstofnun rík- isins, Reykjavík. Sigurðnr Sigfússon, verka- maður, Vopnafirði. Sigurður Ragnar Sigurðsson, sjómaður, Vopnafirði. Hinn maðurinn, sem játaði, var fyrrverandi sendifulltrúi í Júgóslavíu. Tito hefur nú sagt um rétt- arhöldin ‘í Budapest, að þau séu til þess gerð að sverta Júgó- slava, en þeir muni berjast gegn óvinum sínum í Ung- verjalandi eftir mætti. Fundur í Washingion UTANRÍKISRÁÐHERRAR Frakka,. Breta og Bandaríkja- manna, þeir Schuman, Bevin og Acheson, komu saman á fund í Washington í gærkveldi og ræddu málefni Austur-As- íu. .^S

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.