Alþýðublaðið - 25.10.1949, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 25. október 1949
ALÞYÐUBLAPIf)
7
Sendiherra Dana
þakkar hjörgun
íæreysku skips-
hafnarinnar
í GÆRDAG kom sendiherra
Dana hér á landi á skrifstofu
Slysavarnafélagsins og færði
félaginu og björgunariiðinu frá
Sigiufirði persónulegar þakkir
fyrir björgun skipshafnarinnar
af færeyska skipinu „Hav-
£ruen“, sem strandaði við Al-
menningsnöf í síðustu viku.
VINNAN, tímarit Alþýðu-
cambands íslands, ágúst- og
Beptemberhefti, er komið út og
flytur meðal annars greinarnar
Gengislækkun er engin lækn-
ing eftir Helga Hannesson, Al-
jíjóðavinnumálaþingið eftir
Magnús Ástmarsson, Hval-
veiðistöðin eftir Sæmund Ói-
afsson og fleira.
Októberhefti Vinnunnar er
væntanlegt innan skamms.
Nýtt hefti tímaritsins „Morgunn'
mmmit
Fljót og góð afgreiðsla.
GUÐL. GÍSLASON
Laugavegi 63.
Sími 81218.
Smur? brauð
og sniffur.
Til í búðinni allan daginn
Komið og veljið eða símið
SÍLD & FISKUB.
Dívanar
allar stærðir, ávallt fyrir-
liggjandi.
Hásgagnavinnustofan,
Sergþórugötu 11, súni
81830.
Daglega
á
boð-
stólum
heitir
og
kaldir
I ‘.ooi f » « » R rt 3 ,
fisk og kjöíréttir.
MORGUNN er merkilegt
tímarit. Ættu sem flestir að
Lesa það. Það birtir þjóðimii
nýjungar sálarrannsókna frá
ýmsum tímum, en marga fýsir
að heyra þær.
Sannleiksleitandi menn, inn-
an lands sem utan, hafa um
langt skeið leitast við að fá
sannanir fyrir því, að mennirn-
ir lifi líkamsdauðami.
Sannanir þær, sem leitendur
telja sig hafa fengið og fá, hafa
létt og létta mörgvim Sorga-
bunga þeirra.
Rannsóknarmennirnir hafa
komist að mörgu því við rami-
:ióknir sínar, sem kalla má
Tt.erkar líkur fyrir áframhaldi
lífsins, ef ekki allt að því sann-
anir.
Syrgjandi menn trúlitlir
fagna öllum líkum fyrir fram-
haldslífi; en nægileg er þeim
mönnum vissan ein.
Margir rannsóknarmenn
hafa öðlast vissuna. Þeir hafa
miðlað og miðla múgnum aí
bekkingu sinni.
Tilfærð eru orð í síðasta
hefti Morguns eftir . John
Worth Edmonds, Bandaríkja-
mann, hæstaréttardómara og
þingforseta. Birtust þau í New
York Herald 1853. En þau: eru
þessi:
,,Ég hóf rannsóknir með
þeirri vissu, að hér væri um
svik að ræða cg ætlaði að af-
hjúpa svikin hjá miðlunum og
birta almenningi þau. En fyrir
rannsóknir mínar hef ég kom-
izt að gagnstæðri niðurstöðu og
finn nú jafnsterklega skyldu
mína að birta almenningi nið-
urstöðurnar af tilraunum mín-
um. Þess vegna er það, fyrst
og fremst, að ég læt opinber-
lega uppi niðurstöður mínar.
Fyrst og fremst segi ég, því að
ég hef einnig aðra ástæðu, en
hún er sú, að mig langar til að
veita öðrum hlutdeild í þekk-
ingu, sem ég held að ekki geti
ajá því farið, að gera þá að
hamingjusamari og betri
mönnum."
Edmonds farast sVo orð um
sálarrannsóknirnar:
,,Hér er á ferðinni mál, sem
veitir syrgjendunum huggun
og uppörfun þeim, sem eru að
láta hugfallast, mál, sem gerir
götuna að gröfinni sléttá og
eyðir óttanum við dauðanh.“
„Dóttir Edmonds, Laura,
gerðist einnig merkilegur 'mið-
111. Þótt hún kynni ekkerVann-
að tungumál en ensku og prlít-
ið í frakknesku, var talað af
vörum hennar í transinum ó 9
eða 10 tungumálum, og það af
eins mikilli leikni og innfædd-
ir menn væru að tala .eigið
tungumál sitt. á
Sannanlega var talað af vör-
um hennar meðan hún var í
dásvefni, á þessum tungurn:
Spönsku, frakkr.esku, grísku,
ítölsku, portúgölsku, latínu,
ungversku og indverskum mál-
iýzkum.“
Hvað er nú líklegra en að
framliðnir menn hafi lagt
miðlinum orð í munn? —
Liggja aðrar skýringar ií@er en
þær, að ósýnilegar verur séu
hér að verki?
Tiifærðar frásagnir eru birt-
ar hér, svo að fleiri geti lesið
þær en þeir, sem fá Morgun í
hendur.
Verða nú birtar fyrirsagnir
nokkurra greina í nefndu
hefti Morguns, til þess að 'les-
endur sjái, um hvað heftið
fjallar; og einnig langar mig
til að vekja athygli á gamalli
venju, sem fylgt e^, enn í al-
gerðu hugsunarleysi. Þeirri
veniu á að hverfa frá. Venjan
er þessi, menn rita setningar-
brot, viðlag eða forsetningar-
lið með stórum stafi.
Afmarka ég nú fyrirsagnirn-
ar eins og vera ber:
„Prófessor Haraldur Níels-
son, eftir Svein Víking.
Draumur, sem vakti undrun
mína.
Um lyftingafyrirbrigði, eftir
Einar Loftsson.
Draumar og dularfull fyrír-
bæri úr eigin reynslu, eftir
Lárus Thorarensen frá Akur-
eyrí.
Lögmál afturgöngunnar, eft-
ir A. Conan Doyle.
Akveðinn fyrírboði um út-
för og amdlát, eftir Einar Jóns-
son frá Gunnarholti.1*
Sumir eldri rithöfundar
skráðu fyrirsagnir þannig:
„Skýringar yfir tvær vísur í
Víga-Glúmssögu og eina í
Njálssögu eftir yfirkennara
Halldór Kr. Friðriksson.“
Þama er kommunni sleppt.
Annar höfundur ritar:
„Halastjörnur og stjörnu-
hröp eftir Þorvald Thorodd-
sen.“
Þriðji ritar fyrirsögnina svo:
„Skýrsla um noklcurar til-
raunir til jurtaræktunar á ís-
landi, eftir landlækni Schier-
beck.“
Útlátalítið er að breyta nú
til og hafa það, sem réttara er
og eðlilegra.
Þá er að minnast enn einu
sinni á sögnina að gefa. Sífelld-
lega er þessi sögn misnotuð í
bókum, tímaritum, blöðum og
útvarpi. Er það undrunar vert,
hvað ritfærum mönnum er
tamt að misnota sögn þessa.
Dæmi: „Það þarf að gefa guð-
leysingjum fræðslu." — Rétt-
ara og fegurra er, það þarf að
fræða o. s. frv. Forsætisráð-
herra gaf skýringu á mál-
inu, því ekki skýrði málið?
„Flokkurinn gaf fyrirheit um
þetta“ — í stað — flokkurinn
hét þessu. „Kennarinn gaf
þeim áminningu“ — í stað á-
minnti þá. Ekkl eru þessi dæmi
úr Morgni tekin. En næsta
dæmi er tekið úr nefndu hefti
Morguns. Tilfærileg aukasetn-
1 ing: — „sem vísindin geti enn
sem komið er enga skýringu
gefið á“ — í stað þess að orða
þetta rétt og eðlilega, sem vís-
indin geta enn ekki skýrt.
Prófarkalestux heftisins gæti
verið betri.
Hallgrímur Jónsson.
218 flugvélar lentu á
Keflavíkurflugvelli
í sepfember.
í SEPTEMBERBÁNUÐI
lentu 218 flugvélar á Keflavík
urflugvelli. Millilandaflugvél-
ar voru 182. Aðrar lendingar
voru, einkaflugvélar svo og j
æfingaflug björgunarflugvéla!
vallarins. i
Með flestar lendingar voru
eftirfarandi flugfélög: Trans-
Canada Air Lines 47, flugher
Bandaríltjanna 42, American
Overseas Airlines 25, British
Overseas Airways Corporation
17 og Trans Ocean Air Lines
10.
Farþegar með millilandaflug
vélunum voru samtals 5156.
Til íslands komu 172 farþegar,
en héðan fóru 197. Flutningur
með millilandaflugvélum var
ÞöMoim hjartanlega auðsýnda samúð viti andlát
ag jarðarför eiginkonu og móður,
Þófumtar Bergþórsdéttur,
Ártúnisbrekku..
Sveinbjöm Jónsson oa feörn.
ÝðnblaðiS
er afgreitt til fastra áskrifenda og í lausasölu hjá
þessum mönnum:
Verzhin Gunnar Jónssonar, Oííustoðinni, Hvalfirði.
Sveinbimi Oddssyni, AkranesL
Daníel Eyjólfssyni, Borgarnesi.
Jóni Gíslasyni, Hellissandi.
Jólianni Kristjónssyni, Óiafsvík.
Magnúsi Sigurðssyni, c/o K. St., Stykklshólmi.
Sæmundi Bjamasyni, Fjósum, Dalasýsiu.
Ebeneser Ebeneserssyni, Bíldudai.
Kolbeini Guðmundssyni, Flateyri.
Verkalýðsfélaginu Súgandi, Súgandafirði:
Póli Sólmundarsyni, Bolungarvík.
Ólafi Guðjónssyni, Hnífsdal.
Jónasi Tómassyni, ísafirði.
Jóni Gíslasyni, Súðavík, Álftafirði.
GuSm. Þ. Sigurgeirssyni, Drangsnesi, Steingrímsf.
Friðjóni Sigurðssyni, Hólmavík.
Jens P. Eiríkssyni, Sauðárkróki.
Jónasi Hálfdánarsyni, Ilofsós.
Jóhanni Möller, Siglufirði.
Lórusi Frímannssyni, Dalvík.
Þorst. Jónssyni, Hafnarstræti 88, Akureyri.
Sigurjóni Ármamissyni, Húsavík.
Guðna Þ. Árnasyni, Raufarhöfn.
Guðm. Einarssyni, Þórshöfn, Langanési.
Ingólfi Jónssyni, Seyðisfirði.
Ólafi Jónssyni, Norðfirði.
Guðlaugi Sigfússyni, Keyðarfirði.
Jóni Brynjólfssyni, Eskifirði.
Þórði Jónssyni, Fáskrúðsfirði.
Ásbirni Karlssyni, Djúpavogi.
Bjarna Guðmundssyni, Hornafirði.
Birni Guðmundssyni, Vestmaimaeyjum.
Arnbirni Sigurgeirssyni, Selfossi.
Jósteini ILristjánssyni, Stokkseyri.
Verzl. Keykjafoss, Hveragerði.
Jóni I. Sigurmundssyni, Eyrarbakka.
Árna Helgasyni, Garði, Grindavík.
Verzl. Nonna & Bubba, Sandgerði.
Alþýðubrauðgerðinni, Keflavík.
Þorláki Benediktssyni, Garði.
Birni Þorleifssyni, Ytri-Njarðvík.
Sigríði Erlendsdóttur, Kirkjuvegi 10, Hafnarfirðí.
Nýir kaupendur fá blaðið ókeypis til næstu mán-
aðamóta. — Snúið yður til útsölumanna Alþýðu-
blaðsins eða afgreiðslunnar í Alþýðuhúsinu, —
Hverfisgötu 8—10, Reykjavík, og gerist áskrif-
endur að Alþýðublaðinu.
64 685 kg. Til íslands var flutn
ingur 29 844 kg, en 5 425 kg
voru send héðan. Flugpóstur
var 20 016 kg. Hingað kom af
flugpósti 589 kg, en héðan voru
send 227 kg af flugpósti.
Nokkrir þekktii- menn voru
meðal farþega ' á millilanda-
flugvélum þeim, sem höfðu
yiðkomu á flugvellinum. Þeirra
á meðal Lord Tedder, flugmar-
skálkur brezka flughersins,
franski tízkusérfræðingurinn
M. Jacques Fath og Miss Mar-
go Fontaine, balletdanskona
við Metropolitan Opera House
í New Yorfe.
Grumman Mallard flugbátur
hafði viðkomu á flugvellinum,
er hann eign egypzka flughers-
ins og var á leið til Englands.
Auglýsið í
Atþýðublaðinu!