Alþýðublaðið - 25.10.1949, Page 8
Gerizt áskrifendur
að Alþýðublaðinu.
Alþýðu'blaðið inn á hvert
heimili. Hringið í síma
4900 eða 4906.
Þriðjudagur 25. október 1949
Börn og unglingar.
Kamið og seljið
ALÞÝÐUBLAÐIÐ ;
Allir vilja kaupa
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Ný framhaldssaga
Aiþýðublaðsins
Dagur sameinuðu þjóðanna í gær
s,Sapphos$ eftir AI-
phonse Daudeí.
NY FRAMHALDSSAGA
hefst í Alþýðublaðinu í dag.
Heitir hún „Sappho“ og er
eftir Alphonse Daudet, einn af
hinum frægu skáldsagnahiif-
undum Frakka á síðari hhiía
nítjándu aldar.
,.Sappho“ er meðal allra
beztu skáldsagna Daudets,
enda þegar fyrir löngu þýdd á
fiest Evrópumál. Hún er saga
um ævintýrakonu í París og
ástríðufullar ástir, sem við
hana eru bundnar. Munu allir
lesendur blaðsins fylgjast af
athygli með þessari sögu frá
upphafi til enda.
Maður fellur í stiga
og bíður bana
Dagur saméinuöu þjóðanna var hátíðlegur haldinn víðs vegar
um heim í gær, en þá voru fjögur ár liðin frá því að sáttmáli
sameinuðu þjóðanna gekk í gildi. í New York lagði Truman
Bandaríkjaforsti hornstein að hinu fyrirhugaða stórhýsi sam-
einuðu þjóðanna á Manhattaney. Hér í Reykjavík var dagsins
minnzt í ríkisútvarpinu með ræðum þeirra Ólafs Jóhannesson-
ar prófssors, Thor Thors sendiherra, fulltrúa íslands á þingi
sameinuðu þjóðanna, og Daða Hjörvars. Á myndinni sést Thor
Thors á tali við fulltrúa Síams á þingi sameinuðu þjóðanna.
Hundruð síma- og rafsfrengja og
fleiri leiðslur undir Lækjargöíu
----------------—-•»-—.
Búast má við tíðum uppgreftri á götunni
vegna bilana á þessum ieiðslum.
-------»■
Á KOSNINGADAGINN var í fyrsta sinn ekið um hina
nýju Lækjargötu, það er að segja aðra brautina, þá sem lokið
var við fyrir helgina, en austari biautin er enn ófullgerð. Kom-
ið hafði til mála að steypa götuna, en frá því var horfið vegna
ráðleggingar bæjarverkfræðings, sem taldi malbikun lieppi-
legri, meðal annars með tilliti til þess, að urmull af rafmagns-
línum, símalínum og öðrum leiðslum liggur undir götunni á
víð og dreif, og verður því að rífa hana upp í hvert sinn, sem
eitthvað ber út af með þetta neðanjarðarkerfi.
ÞAÐ SLYS varð í Kjós á
sunnudaginn, að Jón Ólafsson
bóndi á Vindási féll í stiga.
Hlaut hann mikinn áverka á
höfði við fallið og var strax
fiuttur til Reykjavíkur og
lagður í Landakotsspítalann,
en þar lézt hann í fyrrinótt.
Jón var að koma niður af
[ofti barnaskólahússins frá því
að kjósa. Var stiginn handriðs-
laus og dimmt í ganginum.
Jón í Vindási var tæplega
fimmtugur að aldri. Hann læt-
ur eftir sig konu og tvö ung
börn.
......’•1
Einmennings-
keppni í bridge
í GÆRKVELDI hófst ein-
tnenningskeppni í bridge, og
eru þátttakendur 96, eða fleiri
en nokkru sinni fyrr.
Keppt verður í sex riðlum,
og áttu tveir fyrstu riðlarnir
að spila í gærkveldi, en tveir
þeir næstu í kvöld.
Keppt er um bikar, • sem
Bridgefélag Reykjavíkur hef-
ur gefið. Sigurvegari í ein-
menningskeppni í fyrra var
Syeinn Ingvarsson.
Maður horfinn
í eina viku
FYRIR VIKU hvarf maður
að nafni Georg Hans Knudsen,
og hefur ekkert til hans spurzt
síðan. Síðast sást tii mannsins,
er hann fór út úr Matardeild-
[nni í Keflavík, en hann er bú-
settur hér í bænum.
Á laugardaginn lýsti rann-
EÓknarlögreglan eftir mannin-
um, en ekkert hefur til hans
frétzt, þrátt fyrir'eftirgrennsl-
anir.
Þetta upplýsti borgarstjóri á
bæjarstjórnarfundi nýlega, og
má það furðulegt teljast, að
ekki skyldi. betur vera frá þess
iim leiðslúm gengið, áður en
gatan var endurbyggð, en eftir
[ýsingu bæjarverkfræðings er
hann hefur sent bæjarstjórn,
að dæma, eru það hundruð
margvíslegra strengja, og
leiðslna, sem liggja á víð og
dreif hingað og þangað undir
götunni, sums staðar langsum
undir henni og sums staðar
bvert yfir hana. Auk síma- og
rafmagnslína, eru frárennslis-
rör, hitaveita, gas, og loks er
íteyptur skurður fyrir lækinn,
sem rennur undir götunni.
Jón Axgl Pétursson deildi á
það, að ekki skyldi betur vera
frá þessu gengið, fyrst búið
var að rífa götuna upp. T. d.
hefði mátt leggja síma- og raf-
magnsleiðslurnar í sérstakan
stokk, þannig að ekki þyrfti að
grafa hér og hvar í götuna, ef
um bilanir eða breytingar
verður að ræða á leiðslunum í
framtíðinni, en eins og gefur
að skilja, getur það valdið
miklu raski og kostnaði, ef
ieita þarf undir götunni að bil-
um hnútana búið sem nú er,
að þær eru á víð og dreif og
skipulagslaust undir götunni.
Hefði þetta verið gert, virð-
ist líka, að hyggilegra hefði
verið að steypa götuna í stað
þess að malbika hana, en
reynslan af malbikuðu götun-
um hér er vægast sagt ekki
góð, éins og kunnugt er. Hins
vegar heldur bæjarverkfræð
tngur því fram, að malbikaðar
götur geti verið jafngóðar
þeim steyptu, ef malbikunin
tekst vel, og kann það að vera,
e'n slík malbikun hefur þá ekki
átt sér stað fram að þessu hér.
---------->-----------
Háskólafyrirlestur
utn Sigrid Undseí
IIALLVARD MAGERÖY,
cand. mag., sendikennari, flyt-
ur fyrirlestur í I. kennslustofu
háskólans miðvikudaginn 26.
október kl. 8 e. h. um Sigrid
Undset. — Öllum er heimill
uðum leiðslum, þegar svo er aðgangpr.
U leikarar fasfráðnir að þjóðleik-
húsinu og 12 í einstök hlutverk
Auk beirra er ráðion leiksviðsstjóri,
leiktjaldamálari og veitingastjóri.
AÐ UNDANFÖRNU hefur þjóðleikhússtjóri starfað aS
ráðningu leikara að þjóðleikhúsinu, og hafa nú verið ráðnir að
því fjórtán fastir leikarar, en auk þess hefur verið samið við
tólf leikara, sem taka munu að sér einstök lilutverk. Auk þess
munu einstakir leikarar verða ráðnir í hlutverk eftir því sem
þörf gerist. Grunnkaup fastráðinna leikara skiptist í fjóra
flokka, — 1. fl. kr. 11 100 í grunnlaun; 2. fl. kr. 9,600; 3. fl.
kr. 7 800 og 4. fl. kr 6 600. Þeim leikurum, sem ráðnir hafa
verið til þess að taka þátt í leikstarfi án fastrar ráðningar, verð-
ur greitt kr 150 í lágmarkslaun fyrir leikkvöld og kr. 25 fyrii*
hverja æfingu, og ábyrgist þjóðieikhúsið þeim 50 leikkvöld á
hverju starfstímabili.
Fastráðnir leikarar þjóðleik-
hússins verða: Arndís Björns-
dóttir, Haraldur Björnsson,
Herdís Þorvaldsdóttir, Hildur
Kalman, Inga Þórðardóttir,
Indriði Waage, Jón Aðils, Lár-
us Pálsson, Gestur Pálsson,
Regína Þórðardóttir, Róbert
Arnfinnsson, Valur Gíslason,
Þóra Borg Einarsson, Ævar
Kvaran.
Aðrir leikarar, sem ráðnir
hafa verið, eru þessir: Anna
Guðmundsdóttir, Baldvin Hall
dórsson, Bryndís Pétursdóttir,
Emelía Borg, Emelía Jónasdótt
ir, Guðbjörg Þorbjarnar, Inga
Laxness, Ingibjörg Steinsdótt-
ir, Klemenz Jónsson, Nína
Bveinsdóttir, Steinunn Bjarna-
dóttir, Valdimar Helgason.
Þá hefur og Yngvi Thorkels-
son verið ráðinn leiksviðs-
stjóri, en hann hefur starfað í
Bandaríkjunum í tuttugu ár,
rem leikari, ljósameistari, leik-
sviðsstjóri og leikstjóri. Lárus
Ingólfsson hefur verið ráðinn
aðalleiktjaldamálari og bún-
ingateiknari; frú Kristín Jó-
hannsdóttir sem veítingastjóri
og Sigurður Gröndal eftirlits-
maður í veitingasölum, Hall-
grímur Bachmann ljósameist-
ari og Jón Þórarinsson ráðu-
nautur um tónlist.
Leikæfingar hefjast þann 1.
nóvember í ár, og verður ,,Ný-
ársnóttin“ og ,,Fjalla-Evindur“
fyrstu leikritin, sem tekin
verða til meðferðar. Hefur
Indriði Waage . leikstjórn í
,,Nýársnóttinni“ á hendi, en
Haraidur Björnsson í „Fjalla-
Eyvindi.
Öllum undirbúningi að þjóð-
leikhúsinu miðar nú vel á-
fram, og er flest það, sem til
þarf, komið til landsins, eða er
á leiðinni. Útvegaði þjóðleik-
hússtjóri 3,1 millj. kr. lán í vor,
og telur hann líkindi til, að það
nægi til þess að ljúka öllum
undirbúningi. Tekjur eru þjóð
leikhúsinu ekki tryggðar af
hálfu hins opinbera, en 25% af
almennum skemmtanaskatti
renna í rekstrarsjóð, og auk
þess 25% í byggingarsjóð, unz
greidd hafa verið að fullu lán
vegna byggingarinnar. Hins
vegar gerir þjóðleikhússtjóri
ráð fyrir að rekstur þess muni
kost ca. 3 millj. kr. árlega og
verður að miða aðgangseyri að
nokkru leyti við það. Telur
þjóðleikhú^stjóri, að ekki muni
aðgangseyrir samt verða hærri
þar, en nú tíðkast að leiksýn-
ingum, — og að sumu leyti
lægri.
Svo margar umsóknir um
fastar áskriftir að frumsýning-
um hafa þjóðleikhúsinu nú
borizt, að orðið hefur að taka
það ráð, að fastai' áskriftir
gildi á víxl að fyrstu og ann-
arri sýningu, þar eð ekki þyk-
[r tiltækilegt, að einnngis fast-
ir gestir komizt að á þeim sýn-
ingum. Beiðnir um fastar á-
ckriftir verða að berast bréf-
Lega.
Þá hefur verið gert merki
þjóðleikhússins, og verðuv það
sett á leikskrár og öll plögg og
bréf þess. Gerði Stefán Jóns-
son teiknari merkið. ;
Háskólahátíðin !
á Iðugardag !
HÁSKÓLAHÁTÍÐIN var
síðast liðinn laugardag, og fór
eetning skólans fram í hátíða-
cal skólans að forseta íslanda
viðstöddum.
Við þetta tækifæri íluttí
Alexander prófessor Jóhannes-
son rektor ræðu og minntist I
upphafi Páls Eggerts Ólasonar
dr., sem er nýlátinn. Enn frern-
ur gat rektor þess, að þrír dó-
sentar, þeir Björn Guðfinnsson
dr., Björn Magnússon dr. og
Sigurbjörn Einarsson dr.,
hefðu verið skipaðir prófessor-
ar við háskólann og að fransk-
ur og norskur sendikennari
kæmu nú að skólanum.
Leiðrétting. )
í fréttinni um björgun skips-
hafnarinnar af færeyska skip-
inu Havfruen, sem strandaði
við Almenningsnöf á dögunum,
misrituðust nöfn tveggja
manna, er að björguninni
stóðu. Þeir heita Þórarinn Dúa-
son og Sveinn Ásgeirsson.