Alþýðublaðið - 11.12.1949, Page 1
Nýtt norskt
farþegciskip
♦
a nfjanjeHu
Biðja Aiþýðuflokkinn um sameig-'
inlegan lista við bæjarstjórnar-
kosriingarnar í janúarmánuði!
KOMMÚNISTAR óttast nú svo Tnjög hina al-
gjörðu pól'itís’ku einangrun isína, iað þeir hafa á ný
gripið til gamölkunnrar stefnu: samfylkingarboðskap-
arins. Haifa þeir kér í Reykjavík og rhörgum öðrum
bæjum á dandinu sent Alþýðuflokknum tilboð um
samvinnu og sameiginlegan lista við bæjarstjórnar-
kosningarnar, sem frarn eiga að fara í janúarmánuði
næstkomandi. Eins og að líkum Qætur er alíkt fals ekki
tekið alvarQaga iaf Alþýðuflokksmönnum neins staðar.
Norska farþegaskipið „Oslofjord" er nú í fyrstu ferð sinni yfir Atlantshafið. Er þetta eitt
.glæsilegasta farþegaskip, sem byggt hefur verið eftir styrjöldina, eins og myndin ber með
sér, en hún sýnir skipið við Löngulínu í Kaupmannaþöfn, er það kom þangað.
Ihaldiöflin fagna sigri effir
r
kosningarnar í Asfraliu
Jafnaðarmenn missa meirihluta sinn,
en hafa jafnmörg þingsæti og áður.
ÍHALDSFLOKKARNIR TVEIR ganga með sigur af hólmi
í kosningunum í Ástralíu, en jafnaðarmenn hafa tapaða nteiri-
hluta sínum þar, enda þótt þeir muni enn vera stærsti stjórn-
málaflokkur landsins. Þegar talniiigu var liætt í gær, var talið, |
að íhaldsflokkarnir tveir liefðii fengið 65 þingsæti, en jafnað-1
armenn 47. Voru þá úrslit ekki komin í nokkrum kjördæmum, '
en talið var í Ástralíu, að ihaldsöflin mundu hafa a. mv k. 10
atkvæða meirihluta í fulltrúadeildinni.
Svfþjóð er Nóaörk
af í
kynþáffnm
FLOTTAMANNASTRAUM-
IJRINN á ófriðarárunum og
eftir stríð hefur gert Svíþjóð
að Nóaörk fólks af öllum kyn-
þáttum, segir sænska blaðið
Stockholms-Tidningen, en það
ræddi þessi mál í grein fyrir
nokkrum dögum.
Blaðið skýrir frá því, að
195 230 flóttamenn frá samtals
68 löndum dveljist í Svíþjóð.
Því sem næst 100 000 þessara
flóttamanna hafa fasta atvinnu
í Svíþjóð, og árið 1948 unnu
þeir alls 24 milljónir vinun-
da§a- .... „ ■. _ Ji. L_
Kosningafyrirkomulagi var
nú breytt verulega í Ástralíu,
og var tölu þingmanna í full-
trúadeildinni breytt úr 75 í
123. íhaldsflokkarnir unnu
flest hin nýju sæti, að því er
brezka útvarpið skýrði frá í
gær, dafnaðarmenn töpuðu all-
miklu fylgi í iðnaðarfylkinu
Nýja Suður-Wales, og úrslitin
í Queensland voru einnig mjög
góð fyrir íhaldsflokkana.
Allir ráðherrar hinnar frá-
farandi j afnaðarmannastjórnar
náðu endurkosningu, þótt
margir þeirra fengju nú minni
meirihluta en áður. Meðal
þeirra var hinn kunni utanrík-
isr.áðherra Ástralíumanna, dr.
Evatt, sem sigraði glæsilega í
síðustu kosningum, en átti nú
í vök að verjast gegn konu
einni, sem var frambjóðandi
frjálslynda flokksins.
Úrslitin í kosningunum til
öldungadeildarinnar verða
ekki kunn um alllangt skeið.
Þar er ekki kosið um öll sætin
Furubotn ákærður
fyrir 21 morð
og samvinnu
við Gestapo!
EINN af meðlimum mið-
stjórnar norska kommún-
istaflokksins, Aasmund
Beckholdt, hefur nú skrif-
að miðstjórn flokksins form
legt bréf, þar sem hann ber
fram þær ákærur á liendur
Peter Furubotn, sem Löv-
lien—Strand-Johansen klík-
an hefur fram að færa. Er
Furubotn þar ákærður um
samvinnu við þýzku leyni-
lögregluna, Gestano, á
stríðsárunum, og í sam-
bandi við það er Furubotn
lýstur samsekur henni um
21 morð! Auk þess er Furu-
botn sakaður um að hafa
tckið upp samvinnu við
Breta og Bandaríkjamenn
eftir styrjöldina.
að þessu sinni, og er því talið
líklegt, að jafnaðarmenn haldi
meirihluta sínum -þar. Þetta
getur orðið erfitt fyrir íhalds-
stjórn þá, sem væntanlega tek-
ur nú við völdum, en það
breytir engu um það, að Chief-
ley verður nú að biðjast lausn-
ar fyrir sig og ráðuneyti sitt.
íhaldsflokkarnir tveir, frjáls
I lyndi flokkurinn svokallaði, og
I landsflokkurinn, munu nú
; sennilega mynda samsteypu-
j stjórn, væntanlega undir .for-
1 ustu Menzies.
Þessi fregn mun að vonum
vekja furðu almennings í land
inu, sem séð hefur kommún-
ista berjast gegn Alþýðu-
flokknum og forustumönnum
hans með hatri og ofstæki und-
anfarin ár. En hræðsla komm-
únista við algera einangrun
sína á stjórnmálasviðinu nú,
vegna þjónustu foringjaklíku
þeirra og Þjóðviljans við
Rússa, er svo mikil, að þeir
grípa til samfylkingargrím-
unnar á ný.
„Samfylkingin“ svokallaða
er nú orðin vel þekkt pólitískt
bragð, sem kommúnistar hafa
notað til þess að komast inn í
aðra flokka og kljúfa þá. Með
þessu móti hefur þeim tekizt
að lama aðra stjórnmálaflokka
í löndunum austan járntjalds-
ins og ná þar öllum völdum í
sínar liendur.
Hér á íslandi boðuðu kom-
múnistar ,,samfylkingarstefnu“
á árunum fyrir stríð og náðu
þeim árangri, að brot ú.r Al-
þýðuflokknum stofnaði með
þeim „Sameiningarflokk al-
þýðu — sósíalistaflokkinn“.
Saga þess flokks talar sínu
máli um það, hvað kommún-
istar eiga við með „samfylk-
ingu“. í byrjun var rúmlega
hálf stjórn þess flokks skipuð
öðrum en kommúnistum, en
nú á nýafstöðnu þingi flokks-
ins voru aðeins tveir eða þrír
menn eftir úr þessum hóp, en
18 stjórnarmeðlimir voru
tryggir Moskvukommúnistar.
ALGER EINANGRUN.
Kommúnistar juku fylgi sitt
hér mjög á stríðsárunum, eins
og þeir gerðu í flestum lönd-
um álfunnar. Eftir styrjöldina
hefur þjónusta þeirra við
Moskvuvaldið hins vegar orð-
ið æ ljósari, og hafa allir hinir
flokkarnir lýst yfir því, að
þeir vilji enga samvinnu við
I þá hafa, nema hvað Hermann
Framhald á 8. síðu.
John Boyd Orr viil,
að „friðarhús"
sé reisi í London
SIR JOHN BOYD ORR,
hinn heimskunni brezki
mannvinur, sem sæmdur
var friðarverðlaunum No-
bels í ár, er nú staddur í
Osló til þess að veita verð-
laununum mótttöku. Til-
kynnti hann í gær, að liann
ætlaði að verja friðarverð-
laununum til þess að láta •
reisa sérstakt „friðarliús“ í
London.
Sagði Sir John Boyd Orr,
að fyrir honum vekti, að
friðarhúsið gæti orðið bæki
stöð alþjóðlegrar starfsemi
í þágu friðarins.
Hundrað „njósnar-
ar" handteknir
í Póllandi
TALSMAÐUR pólska utan-
ríkismálaráðuneytisins, Grosz
hershöfðingi, hefur skýrt frá
því, að pólska lögerglan hafi
haft hendur í hári hundrað
manna njósnaraflokks r sam-
bandi við handtöku ritara
, franska ræðismannsins í Stett-
ín.
Sagði Grosz, að njósnarar
þessir hefðu starfað í þágu
Frakka og fleíri ríkja, sem
væru fjandsamleg Pólverjum.
Kvað hann sannað, að njósnir
þessar hefðu í senn verið
atjórnmálalegs, ' hernaðarlegs
og fjármálalegs eðlis. Lagði
hann einkum áherzlu á, að er-
lend ríki reyndu mjög að afla
upplýsinga um alla nýja flug-
velli í Póllandi.