Alþýðublaðið - 17.12.1949, Page 6

Alþýðublaðið - 17.12.1949, Page 6
s ALÞYBUBLABIÐ ' Laug'ardagur 17. des. 1949 Ein af hinum sígildu, einföldu og fögru sögum, sem hrífa hvern lesanda. eftir er nú öll komin út á ísienzku 'í þýðingu eftir Einar Braga Sigurðsson. Síðara bindið er komið í bókaverzlanir. Ditta mannsbarn er saga konunnar á öll- um öldum, isagan iaf 'þolinmæði hennar, fórn'arlund og ást. Hún er ógieymanieg bók, harmi þrungin, en fögur. Ditta mianhsbarn er þýdd á fjölmargar tungur. AHs sfcaðar 'hefur hún hrifið lesendur. Páar persónur heimsbókmenntanna hafa orðið eins vinsæJar og Ditta. Kynnist D i 11 u og þið munuð verða hrifin. Gefið vinum yðar D i 11 u í jóiagjöf. Bókabúð Máls og Menningar. Laugavegi 19. — Sími 5055. og skálar fyrir jólin. Vinsamlogast pantið tímanílega. Blómaverzlunin Hvatniniir, Njálsgötu 65. — Sími 2434. AIPHONSE DAUOET' S A P P Tilboð óskast í hita- og hreinlætislagnir (efni og vinnu) í 100 íbúðir í íbúðarhúsum Reykja- víkurbæjar við Bústaðaveg. Teikningar og útboðslýsingar fást á skrifstofu Vatns- og Hitaveitunnar gegn 100 króna skila- tryggingu. Reykjavík, 16. des. 1949. Helgi Sigurðsson. „Komdu! Flýttu þér! Þú ert með humarinn", hrópaði feiti maðurinn, og hin óstyrka rödd Fanny bætti við: „Var það hún litla ungfrú Bouchereau, sem stöðvaði þig á veginum?“ Jean hrökk við, er hann heyrði nafn Bouchereaus. Nafn þetta kom honum til að hugsa um Castelet og flutti hann að rúmstokk móður hans. ,,Já“, sagði teiknarinn og tók körfuna af honum. „Já, sú háa, sú, sem stjórnaði hestinum, er frænka læknisins. Það er bróð- urdóttir hans, sem hann hefur tekið að sér. Þau búa í Vélizy á sumrin. Hún er lagleg“. „Ó, mjög lagleg! Sérstaklega þessi óskammfeilni svipur!“ Og Fanny horfði á élskhuga sinn, á meðan hún skar brauð- ið. Hún var full óróa vegna hins fjarræna svips augna hans. Frú Hettéma var að taka ut- an af svínsfleskinu. Hún lýsti hátíðlega yfir vanþóknun sinni á þeirri venju að láta ungar stúlkur flækjast úti um skóga að vild. „Þið getið sagt mér, að þetta sé enskur siður og hún hafi verið alin upp í Lon- don, en það er alveg sama. Það er samt ekki viðeigandi“. I , Nei, en mjög heppilegt fyr- ' ir ævintýri“. „Ó, Fanny. . . .“ „Fyrirgefðu! Ég gleymdi því alveg, að herrann trúir á sak- lausar stúlkur“. „Svona, svona! Hvernig væri nú að snúa sér að matnum?“ sagði Hettéma, sem var farinn að gerast hræddur. En Fanny þurfti endilega að segja frá öllu, sem hún vissi um ungar stúlkur af háum stigum. Hún kunni nokkrar góðar sögur um það efni. Sögur þessar gerðust í klaustrum og heimavistar- skólum. Stúlkur fóru frá þess- um stofnunum alveg úttaugað- ar, fölnaðar, fullar viðbjóði á karlmönnunum og jafnvel ó- hæfar til að eignast börn. „Og síðan gefa þeir ykkur þær, bjánarnir ykkar! Saklaus stúlka! Ja, heyr á endemi! Eins og nokkuð sé til, sem heitir saklaus stúlka! Haldið þið ekki, að allar stelpur, jafnt af háum stigum sem lágum, viti ekki frá fæðingu, hvar hann Davíð keypti ölið! Ég sjálf átti ekkert eftir ólært, þegar ég var tólf ára gömul, og þú ekki heldur, Olympe, eða er það ekki rétt?“ „Auðvitað“, sagði frú Hett- éma og yppti öxlum, en at- hygli hennar beindist óskipt að örlögum máltíðarinnar, þegar hún heyrði að Jean var tekinn að reiðast og hann lýsti því j yfir, að stúlkurnar væru mis- ' jafnar og í sumum fjölskyldum væri enn hægt að finna . . . „Ójá, fjölskyldum!“ sagði ástmey hans af fyrirlitningu. „Mér þykir fjári gaman að heyra þig tala um fjölskyldur, cérstaklega þína eigin!“ „Þegiðu! Ég banna þér . . .“ ,, Broddborgari!1 ‘ „Skepna! Til allrar ham- ingju lýkur þessu bráðum. Ég á ekki eftir að búa mikið leng- ur með þér“. „Farðu, farðu! Snautaðu burt! Ég verð bara glöð!“ Þau vörpuðu móðgunum hvort að öðru frammi fyrir barninu, sem fullt var af ill- girnislegri forvitni. Barnið lá á maganum í grasinu. Hræði- íegur blástur í veiðihornið, sem margfaldaðist hundraðfalt af bergmálinu frá tjörninni og laufþykkni skógarins, drekkti skyndilega rifrildi þeirra. „Eruð þið búin að fá nóg af þessu? Viljið þið, að ég geri það aftur?“ Og hinn fyrirferð- ar mikli Hettéma, með purp- urarauðar kinnar og þrútinn háls, sem gat ekki fundið neina aðra leið til að fá þau til að sjá hvort annað í friði, beið með veiðihornið þrýst að vör- um sér, er hótaði að spýja .á nýjan leik. IX. KAFLI. Orðasennur þeirra voru venjulega skammlífar og hurfu við áhrifin frá hljómlist og áköfum gælum Fanny, en í þetta skipti var hann reiðari henni en endranær. Og hann hélt sömu hnyklunum í brún- um sínum í nokkra daga cg hált áfram að þegja af fyrir- litningu. Hann settist strax við að teikna eftir máltíðir og neitaði að fara nokkuð með henni. Það var sem hann skamm- aðist sín skyndilega fyrir hið auvirðilega líferni sitt, líkt og hann væri hræddur við að verða aftur á vegi litla vagns- ins, er ekið væri niður stíg- inn, og hins tállausa æskubros, sem hann hugsaði stöðugt um. Síðan varð sýnin óljós og ruglingsleg sem horfinn draum ur. Það var sem leiksviðsút- búnaður hefði verið færður til í ævintýraleik. Sýnin óskýrð- ist og smáhvarf á bugðum skógarstígsins, og Jean sá hana ei lengur. En í sál hans varð eftir undirlag þunglyndis. Fanny hélt að hún vissi, hver orsökin var, og hún ákvað að reka það á brott. „Ég er búin að því“, sagði hún glaðlega við hann dag nokkurn. „Ég er búin að hitta Déchelette. Ég hef skilað hon- um peningunum. Hann er samþykkur þér, að það sé betra þannig. En guð veit, að ég skil ekki, hvers vegna svo er. Jæja, það er nú búið. Hann ætlar að muna eftir litla snáðanum, þegar ég er orðin ein míns liðs síðar meir. Ertu ánægður? Ertu enn þá reiður mér?“ Og hún lýsti heimsókn sinni í Rómarstræti og undrun sinfti, er hún hitti þar fyrir venju- legt borgaraheimili, þar jem ró og friður ríkti ásamt mjög mikilli og strangri reglusemi, í stað austurlenzka lestamanna gististaðarins, þar sem hávaði og ringulreið ríkti og allt var fullt af æstu fólki. Þar var ekkert svall lengur, engir grímudansleikir framar. Og eitthvert sníkjudýrið, bálreitt yfir að vera neitað um aðgang að húsinu, hafði skrifað skýr- inguna á breytingu þessari með krít yfir litlu dyrnar að vinnusalnum: „Lokað vegna giftingar11. „Og þetta er sannleikurinn, elskan mín. Déchelette varð alveg vitlaus í skautahallar- stelpu, Alice Doré að nafni, ekömmu eftir að hann kom til Parísar. Hann hefur haft hana hjá sér í mánuð, og hún hefur stjórnað öllu heimilinu. Já, hvorki meira né minna! Hún er mjög blíð og góð lítii stúlka, eins og ljúfasta lamb. Þau hafa mjög hægt um sig saman. Ég lofaði, að við skyldum koma og heimsækja þau. Það verður dálítil tilbreyting fyrir okkur frá veiðihornum og bátssöngv- um. Hvað segirðu nú um heim- spekinginn og kenningarnar hans? Enginn morgundagur, enginn lausamennskubúskap- ur! Já, ég stríddi honum held- ur en ekki!“ Jean lét hana fara með sig heim til Déchelette, sem hann hafði ekki séð, síðan þeir hitt- ust við Madeleinekirkjuna. Þá hefði hann orðið mjög undr- andi, ef einhver hefði sagt hon um, að sá tími myndi koma, er hann myndi umgangast þennan kaldhæðna fyrrver- andi elskhuga ástmeyjar sinn- ar, fullan lítilsvirðingar, án þess að finna til nokkurs við- bjóðs og myndi næstum verða vinur hans. Hann undraðist, að hann kunni svo vel við sig, jafnvel við þessa fyrstu heim- sókn. Jean hreifst af hinu blíðlega viðmóti og hinum ein- læga, góðlega hlátri manns þessa með Kósakkaskeggið, er var þrunginn slíkri heiðríkri ró, sem kvalirnar í lifrinni röskuðu ekki, - kvalirnar, sem slógu blýgráum blæ á húð hans og mynduðu bauga undir aug- un. Og hversu auðvelt var ekki að skilja þá ástúð, sem hann blés Alice Doré í brjóst, stúlk- unni með löngu, mjúku hvítu hendurnar, sem hafði til að bera venjulega Ijósa fegurð, er Glæsileaf úrval vim Braga Brynjólfssyni

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.