Alþýðublaðið - 07.01.1950, Síða 6

Alþýðublaðið - 07.01.1950, Síða 6
0 ALÞVÐUBLAÐIÐ Laugardagur 7. janúra 1950. PERLUDÉ . Á hverfanda hveli stendur höllum fæti hálffullur gaji blístrandi brot "■ úr bes-boop langloku með brengluðu hljóðfalli kúrir ljóðdísin og uppi á kvistinum á kodda viðlagsins en uppi í Mofellssveit spangólar mórauður flökkurakki að ferhyrndum mána er veður funkisský á íékkneskum togleðursbússum og færeyska ráðskonan uppi í afdalnum æpir upp yfir sig je minn almáttugur allt skal vera moderne á íslandi-------- CONTRA OG PRÓ Dr: Álfur Orðhengils: Ef vér athugum þá menning- arstrauma, sem við vöðum upp í klof þessa dagana, þá f-er ekki hjá því, að við komumst að raun um, að þetta er kolmó- rauður fjandi; leysingaflaumur og beljandi ofan úr fjöllum allra landa, — jafnvel austan úr Kákasus og vestan úr Am- ríku, berandi með sér leðju og leir og alls konar óþverra. Verði svo framvegis, að þessir gtraumar fái að leika hér laus- um hala, má fastlega við því búazt, að vor gömlu og góðu þjóðlegheit fari á bólakaf í aur- ieðju austurs og vesturs svo að engan tind beri upp úr, nema Snæbjörn með rímurnar. Á skal að ósi stemma er haft eftir einum mesta gáfumanni vorum og verkfræðingi í forn- öld, sem vissi hvað hann söng Dg dró ekki framkvæmdirnar, Mættum við muna þetta nú, og hefjast þegar handa um að bjarga þjóðlegheitunum, en það verður ekki gert nema með einum gevoldugum stíflugarði andans og framleiðslunnar og dugar þar ekkert hálfkák né gervimennska. Heiti ég því, í nafni þjóðlegheitanna, á alla þá, sem hugsa eins og afar þeirra hvað bókmenntir snertir, að mynda nú með sér félagsskap í iíkingu við „Stef“, er þegar hefjist handa um slíka stíflu- gerð, — og láti hendur standa fram úr ermum. Ég hef hugsað mér stíflugerð- ina þannig í fáum dráttum, að sett verði á laggirnar fámennt verndarráð, sem athugi vand- lega alla andlega framleiðslu og geri síðan, annaðhvort með stjórnarleyfi eða Bessaleyfi, kröfu á hendur hverjum þeim höfundi, sem hállast út fyrir þjóðlegheitin, og gjaldi hann verndarráðinu prósentur af öll- um vergum tekjum, er hann kann af framleiðslunni að hafa, — ella af vergum tapi. Mundi þetta verða til þess, að menn skoðuðu tvisvar það, sem þeir skrifuðu, áður en þeir létu það á þrykk út ganga. Ég mun einhvern tíma á næstunni gefa út frumdrög að gjaldskrá að þessu hnígandi og þá um leið ræða þetta nánar og hlutverk STÍFLUNNAR frá þjóðmenningarlegu sjónarmiði. Virðingarfyllst. Ðr. Álfur Orðhengils. Hann les Alþýðublaðið Kaupum flöskur og glös. Efnagerðín Valur. SÆKJUM HEIM. Hverfisgötu 61. Sími 6205. grands gamla. Aðskilnaðurinn yrði ekki eins grimmilegt verk við þannig aðstæður. Gerði hún sér grein fyrir þessu? Að minnsta kosti hætti hún skyndilega, féll fram að fótum elskhuga síns og snerti hann rneð höfði sínu og brjóstum. Um leið hristi djúpur grátur allan líkama hennar, og mitt í honum vældi hún eymdarlega: „Fyrirgefðu mér! Sýndu mér miskunn! Ég elska þig. Ég á engan að nema þig. Ástin mín, íífið mitt, gerðu þetta ekki! Yfirgefðu mig ekki! Hvað held- urðu að verði um mig?“ Hann tók að láta undan fyrir geðshræringu hennar. Ó, hann óttaðist einmitt slíkt! Tárin virtust stíga upp frá augum hennar til augna hans, og hann hnykkti til höfðinu, til þess að tárin rynnu ekki úr barmafull- um augum hans. Hann reyndi að róa hana með heimskuleg- um orðum og með því að hamra rifellt á þessari skynsamlegu röksemd: ,,Nú, fyrst ég verð hvort sem er að yfirgefa Frakk- iand.! Hún spratt á fætur og stam- aði grátandi út úr sér orðum, Gem opínberuðu honum alla von hennar: „Ó, en ef þú hefðir ekki — ekki farið! Ég hef—hefði sagt við þig: „Bíadu, leyfðu mér að el-elska þig dá-dálítið lengur.“ Heldurðu, að nokk-nokkur maður verði tvis-tvisvar sirin- um fyrir því að vera elsk-elsk- aður eins heitt og ég elska þig? Það er nógur tíminn fyrir þig að giftast seinna. Þú ert svo ungur, en öllu er lokið fyrir mér innan skamms. Lífsþrek mitt mun verða á þrot-þrotum, og þá munum við skilja á eðli- legan hátt.“ Hann reyndi að rísa á fæt- ur. Hann hafði nægilegt hug- rekki til þess, einnig til að segja við hana, að það yrði allt gagnslaust, sem hún reyndi að gera í þessu máli. En ftún neyddi hann til að setjast aftur með því að hjúfra sig að hon- um, halda í hann dauða haldi og láta hann þannig draga sig á hnjánum eftir forinni, sem enn var þarna. Hún lagðist á hné fyrir framan hann, vafði örmum sínum þétt um hsnn, ctrauk stranglegt andlitið með höndum sínum, vafði hári hans um fingur sér og reyndi að kveikja að nýju kaldar glæður ástar hans með vörunum og augnatilliti, — sínum barnslegu blíðuatlotum. Hún minnti hann með hvísli á fyrri ham- ingju þeirra, — á gleðistund- irnar síðari hluta sunnudagsins. Allt þetta var ekki neitt í sam- anburði við þá hamingju, sem hún myndi veita honum eftir þetta. ■ Og á meðan hún hvíslaði slík- um orðum í eyra honum, runnu stór tár niður eftir andliti henn- ar, sem var afskræmt af ang- istar- og hræðslusvip. Hún hélt áfram að berjast og æpti með rödd, sem heyra má í draum- um: ,,Ó, það getur ekki verið! Segðu mér, að það sé ekki satt, að þú sért að yfirgefa mig.“ Og þessu fylgdu fleiri grátstun- ur, óp og köll á hjálp, líkt og hún sæi á hníf í hendi honum. Böðullinn var varla hugrakk- ari en fórnardýrið. Hann ótt- aðist ekki frekar reiði hennar en blíðuatlot, en hann var varn- arlaus gagnvart þessari örvænt- ingu, þessum gráti, er kvað við í skóginum og dó út yfir forar- vatni tjarnarinnar, er þrungið var hitasóttarpest. Sólin skein á vatnsflötinn, rauð og dapur- leg. Hann hafði búizt við að þjást, en ekki svona ákaft. Og hann þurfti á allri hinni ofur- björtu dýrð sinnar nýju ástar að halda til þess að verða fær um að bæla niður tilhneigingu sína til að lyfta henni upp og regja við hana: „Ég verð kyrr! Ég verð kyrr! Svona, svona!“ Hversu lengi héldu þau þannig áfram að eyða þreki hvors annars? Nú sást ekki orð- ið nema rauð rönd af sólinni, er stöðugt minnkaði úti við rsjóndeildarhringinn. Tjörnin var nú með blýgráum blæ og íinna mátti, að hin óholla gufa upp frá tjörninni var nú að læðast inn yfir skógana, mýr- arnar og hlíðarnar hinum meg- in. Hann sá ekkert í vaxandi myrkrinu nema þetta föla and- lit, er leit upp til hans, — þenn- nn opna munn, sem rak upp endalaus harmakvein. Það dró úr ópum hennar nokkru síðar, þegar aldimmt var orðið. Þá heyrðist niður endalauss tára- flóðs, — ein slíkra táraskúra, er fylgja á eftir hinu æstasta ofviðri. Við og við heyrðist djúpt og lágt andvarp: „Ö, ó!“ Það var líkt og einhver hræði- leg sýn kallaði þessi andvörp fram og hún ræki þessa sýn á brott, sem kæmi svo stöðugt aftur. Síðan varð alger þögn. Því var öllu lokið. Dýrið var dautt. Nú tók kaldur norðanvindur að blása. Það skrjáfaði í lauf- inu, og vindurinn bar með sér bergmál frá fjarlægri klukku, er sló. „Komdu! Við skulum fara. Vertu ekki lengur hérna.“ Hann reisti hana varlega á fætur og fann, að hún var sem vax í höndum hans, — eins undirgefin og barn. Hann fann, að hún skalf af krampakennd- um, nístandi grátstunum. Hon- um virtist sem hún hefði nokk- urn beyg af manninum, er hafði reynzt svo sterkur, og bæri nokkra virðingu fyrir styrk hans. Hún gekk samstíga við hlið honum. Hún virtist ó- framfærin og reyndi ekki til að leiða hann. Það hefði mátt halda, að þau væru sveita- fólk, er væri að snúa heimleið- is eftir langan og þreytandi vinnudag undir berum himni, þar sem þau gengu þannig ó- Etyrkum fótum í þungbúinni þögn eftir stígnum, en gult end- urskin jarðarinnar vísaði þeim rétta leið heim. Ljós birtist í opnum dyrum á húsi Hochecornes, þegar þau komu út úr skóginum. Og þau sáu bregða fyrir tveim mönn- um að baki ljósinu, er líktust dimmum skuggum. „Ert þetta þú, Gaussin?“ r.purði Hettéma og gekk í átt- ína til þeirra ásamt eftirlits- manninum. Þau heima fyrir höfðu tekið að gerast áhyggju- full vegna þess, að Jean og Fanny höfðu ekki snúið heim og végna organna, sem þau höfðu heyrt úr skóginum. Hochecorne hafði einmitt ætl- að að fara að ná í byssuna sína og leggja af stað í leit að þeim. „Gott kvöld, herra minn og frú. Sú litla er mjög ánægð með í’kikkjuna. Eg varð að leggjá hana í rúmið við hlið hennar.“ Þetta varð síðasta sameigin- lega verkið þeirra — þessi öl- musu gjöf fyrir skömmu. Hend- ur þeirra höfðu mætzt í síðasta rkipti utan um Iítinn líkama deyjandi telpunnar. „Gott kvöld, gott kvöld, Hochecorne.“ Og þau flýttu sér 511 þrjú í áttina til hússins. Héttema undraðist ennþá mjög þessi hljóð, sem höfðu kveðið við í skóginum. Hljóð þessi höfðu stigið og hnigið og stigið svo aftur á ný. Maður hefði get- að haldið, að einhver væri að drepa einhverja skepnu þar. „En heyrfSuð þið ekkert?“ Hvorugt þeirra svaraði. Jean stanzaði við hornið á garðstígnum. „Borðaðu kvöldmatinn,“ hvíslaði hún biðjandi. „Lestin er farin. Þú getur náð í lestina klukkan níu.“ Hann fór inn í húsið með þeim. IJvað þurfti hann að ótt- ast? Slíkur ofsi brýzt ekki fram ívisvar í röð. Það minnsta, sem hann gat gert, var að veita þenni þessa litlu huggun. Dagstofan var hlý. Það log- nði glatt á .lampanum, og fóta- tak þeirra á hliðarstígnum hafði aðvarað vinnukonuna um komu þeirra. Hún var nú að bera súpuna á borð, „Loksins eruð þið komin,“ sagði Olympe, sem þegar var

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.