Alþýðublaðið - 29.01.1950, Síða 11
Sunnudagur 29. janúar 1950
ALÞÝÐUBLAfílÐ
11
Ármenningar
Skemmtifundur verður hald-
inn í Breiðfirðingabúð, mið-
vikudaginn 1. febrúar kl. 8,30.
Skemmtiatriði og dans.
Skemmtinefndin.
Svigmót K.R.
Skíðadeild K. R.
t gengst fyrir opin-
beru skíðamóti 5. febrúar n.
k. Keppt verður í svigi í öll-
um flokkum karla og kvenna
(A. B, C, D og unglingaflokk-
um). Þátttaka tilkynnist fyrir
l. febrúar til Haraldar
Björnssonar c/o Verzlunin
Brynja.
Stjórn skíðadeildar KR.
Sálarrannsóknarfélag
r
Islands
heldur fund í Iðnó mánudag
30. jan. kl. 8.30.
Fundarefni: Brot úr trúar-
sögu minni, erindi eftir Jakob
Jóh. Smára, skáld.
Stjórnin.
fer frá Reykjavík mánudag-
inn 30. þ. m. til Leith, Frede-
rikstad og Menstad í Noregi.
H.F. Eimskipafélag fslands.
HANNES Á HORNINU
(Frh. af 4. síðu.)
ræða . brauð handa börnum
manns annars vegar, en svona
hefur þó hingað til farið fyrir
mér, og á ég þó níu börn, fimm
þeirra eru uppkomin, en fjögur j
undir sextán ára aldri. Þessum
fimm hef ég hjálpað til lærdóms
og hinum mun ég hjálpa eftir
getu, þó að efnin séu lítil og
fari versnandi. En í þessu starfi
mínu hef ég aldrei notið neins í
stuðnings, hvorki í smáu né
stóru frá flokksbæjarfélagi yð- j
ar.
EF TIL VILL á ég enga kröfu
á því, en mörgum stéttarbræðr-
um mínum, sem nú berjast við
atvinnuleysi, finnst þó að
barnamenn, sem berjast í bökk-
um og varla það, eigi meiri
heimtingu á stuðningi með
vinnu frá bæjarfélaginu en
pólitískir jábræður yðar, ein-
hleypir eða með lítil heimili, en
þeim er hyglað af yður og flokki
yðar. — Ég skil að þér eruð
fulltrúi einstrengingslegra einka
hagsmuna í þessum bæ, en ekki
okkar barnamannanna. Það er
yðar afstaða, og þér ráðið henni,
alveg eins og ég ræð minni af- ,
stöðu á kjördegi. í því efni hef-
ur bréf yðar engín áhrif, þetta
bréf, með skjálfandi bókstöfum,
eins og það sé skrifað af upp- 1
gefnu gamalmenni.“ I
Framh. af 7. síðu.
arvöldum þessa lands og þar
með meirihluta bæjarstjórnar
Reykjavíkur, sé hvernig hann
brást við húsnæðismálum
(jæjarins á þeim tíma, þegar
nógur var gjaldeyrir til inn-
clutnings á byggingarefni. Nú
er þetta orðinn hlutur, sem
verður að reyna að bæta úr
eftir því sem föng eru á.
Það skal viðurkennt, að lán
báu, er eiga að hvíla á íbúðum
Bústaðabygginganna eru hag-
stæð, svo langt sem þau ná. En
það virðist vera aðaltakmarkið
við þær byggingar að tilvon-
andi eigendur eigi að vinna að
húsunum sjálfir. Nú taka eig-
endur ekki við íbúðunum fyrr
en húsin eru fokheld og hita-
lagnir lagðar, en þá er stærsti
hlutinn af þeirri vinnu, er ó-
faglærðir menn geta almennt
unnið, búinn, nema þar sem
svo kann að vera, að iðnaðar-
menn fái íbúðir. Væri ekki
réttara að Reykjavíkurbær
meo aðstoð stjórijarvaldanna
ynni taktfast að því að mynda
grundvöll fyrir almennri lána-
starfsemi með sérstöðu til
þeirra er byggja íbúðir til al-
menningsnota eða þeirra er nú
eru mest aðþrengdir með hús-
næði? Enn fremur þyrfti að
auka alla almenna lánastarf-
semi til bygginga, því allir vita
að veðdeild Landsbanka ís-
lands er mjög svo ónóg og
sama er að segja um aðrar þær
lánsstofnanir sem opnar eru til
byggingalána.
Það myndi skapa heilbrigð-
ari grundvöll fyrir allri bygg-
ingastarfsemi í bænum.
Síðustu tvo áratugina hafa
einustu hagkvæmu byggingar-
lánin til almenningsíbúða verið
úr byggingasjóði verkamanna,
er byggingafélög verkamanna
hafa notið lána úr. Bygg-
ingasjóðurinn var á sínum
tíma stofnaður að tilhlutan Al-
þýðuflokksins með stuðningi
Framsóknarflokksins. Síðustu
átta árin hefur sjóðurinn haft
lítil fjárráð svo að starfsemi
bvggingafélaganna hefur ekki
notið sín þess vegna. Nú hafa
nokkrir þingmenn Alþýðu-
flokltsins borið fram á alþingi
frumvarp um aukna starfs-
möguleika fyrir bygginga-
sjóðinn, og væri vonandi að all-
ir þeir flokkar, er telja hús-
næðismál almennings sig
varða, styðji þetta nauðsynja
mál. Ég þykist vita, að fyrr-
verandi og núvérandi borgar-
stjóri, sem báðir eru alþing-
ismenn, styðji þarna gott mál,
þar sem þeir hafa verið mjög
vinveittir starfsemi bygging-
arfélags verkamanna hér í
Reykjavík.
Þær borgir á Norðurlöndum
er hafa beitt sér fyrir byggingu
almennings íbúða, hafa fyrst
unnið aþ hagkvæmri lánastarf-
semi fyrir byggingar, látið svo
eðlilega samkeppni bygginga-
iðnaðarmanna annast fram-
kvæmdir undir eftirliti. Nú er
Oslóarborgar að reyna þá að-
ferð að láta byggingamennina
byggja húsin á sinn reikning
undir eftirliti, en þeir verða svo
að afhenda íbúðirnar til Oslóar-
borgar til sölu. Þar með ræður
bæjarstjórnin hverjir fá íbúð-
irnar til kaups. Þá eiga okur-
sölur ekki að geta farið fram.
Væri nú ekki reynandi fyrir
Reykjavíkurbæ að hefja virki-
lega sókn í lánastarfsemi fyrir
byggingar bæjarbúa? Hefja svo
byggingu ca. 300 í'úmmetra
íbúða í sambyggingum eða
lausri byggð í frjálsri sam-
keppni, þar sem bygginga-
mennirnir fengju að ljúka
I byggingunum, en þær síðan
*eldar til viðkomandi eigenda
á hæfilegu verði undir eftirliti
, bæjarstjórnar Reykjavíkur?
j Þar með væri trygging fyrir að
ekki væru okursölur, og þeir
fengju íbúðir. er hafa þess þörf.
Þetta myndi auka hraða á
framkvæmdum, og gefa heil-
brigðari sar^keppni en nú er.
En urn leið losa bæjarsjóð við
byggingavafstur, sem verður
1 enn kostnaðarsamara en þarf
að vera. Svo væri nú meiri
þörf á auknum skilningi og
ramvinnu á millum hinna
mörgu byggingafélaga, ein-
staklinga og þess opinbera,
bæði hjá bæ og ríki.
Það er oft rætt um að ein-
hæfa meira byggingar en hér
er gert og þá oft vitnað í ná-
grannalöndin. Það er vitað að
Svíar og Finnar byggja þann-
ig hús, en Norðmenn og Danir
mjög lítið. Það eru mestmegn-
is timburhús, sem eru unnin í
verksmiðjum. Við þekkjum öll
hér í Reykjavík sænsku húsin.
Við vitum að það er eitt mesta
víxlspor, sem stigið hefur ver-
ið hér í byggingamálum, þegar
gjaldeyri þjóðarinnar var varið
í þau innkaup. Allar þessar
bjóðir byggja mörg hús af sem
líkastri gerð, þegar um heilan
byggingaflokk er að ræða, og er
það sambærilegt við bygginga-
félög hér og nú Reykjavíkur-
bæ með Bústaðavegshúsin.
Ég býst við, að þegar byggt
er úr varanlegu efni komi tæp-
lega til greina meiri einhæfni
en bundin er við ákveðinn
byggingaflokk. Öðru máli er að
gegna um einstaka hluta til
húsa eins og hurðir, eldhúsinn-
réttingar og fleira, sem hefur
verið framleitt hér í fjölda-
framleiðslu og tekizt vel. Enn
fremur breytt vinnulag við
byggingar og bætt skipulag.
Það er ótalmargt, sem hægt
væri að ræða um viðvíkjandi
byggingum íbúðahúsa, t. d. inn
flutning efnis, starfsemi f-jár-
tiagsráðs o. fleira, sem er í
mjög sundurlausu formi, en
tíminn, sem mér er ætlaður,
leyfir það ekki. En eitt vil ég
pamt minnast á, og það er, að
bæjar- og ríkisstofnanir séu
ekki hafðar það þunglamaleg-
ar í afgreiðslu mála, að þær
verki á byggingariðnað eða
aðra starfsemi hér í bæ sem
aukin dýrtíð.
Kjósendur góðir, þið kjósið
Alþýðuflokkinn vegna þess að
það er flokkurinn, sem hefur
haft og mun hafa mest áhrif á
bætta lífsafkomu ykkar.
Kjósendur, ef þið látið Sjálf-
stæðisflokkinn halda meiri-
hluta í bæjarstjórn, þá eigið
þið það víst, að þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn er búinn með
aðstoð Framsóknarflokskins
að skerða gengi launa ykkar,
þá tekur Sjálfstæðisflokkurinn
á leigu húspláss í hinum nýu
stórhýsum, er Samband ís-
lenzkra samvinnufélaga er að
byggja, fyrir eina deild til við-
bótar fyrir ráðhússtarfsemi
sína.
Húunæðrafræðsla
Framh. á 4. síðu.
ar. Styðjum Alþýðuflokkinn í
baráttu hans fyrir þessu stóra
áhuga- og velferðarmáli okkar
húsmæðra. Kjósum Alþýðu-
flokkinn á sunnudaginn kemur.
Húsmóðir.
Farfugladeildar Reykjavíkur verður haldin að Röðli
föstudaginn 3. febrúar næstkomandi og hefst með borð-
haldi kl. 18,30 stundvíslega. Mörg skemmtiatriði og að
lokum dans.
Aðgöngumiðar seldir í verzl. Verðandi og bókabúð Isa-
falldar Laugaveg 12.
Skémmtinefndin.
Heimilispósturinn
ANNAÐ HEFTI Himilis-
póstsins hefur borizt blaðinu.
Utan á kápu beggja megin eru
litprentaðar myndir af Alfreð
Elíassyni flugstjóra og Kristínu
Snæhólm yfirflugfréyju. Efni
heftisins er skipt í tvo kafla:
lesírarefni fyrir konur og lestr-
arefni fyrir karlmenn. Lestrar-
efni fyrir konur er: ,',Vikivaki“,
kvæði eftir Guðmund Kamban;
viðtal við Kristínu Snæhólm;
„Höfuðverkur eða undirbún-
ingsnámskeið í stjörnuspá
£ræði“, saga eftir Karl ísfeld;
..Vísur um Nikkolínu“, eftir
Ingimund; „Eins og nágrann-
inn“, saga eftir Henri Duver-
nois; „Skilnaður“, saga eftir
Jan S. Thomson; „Kaup-
mennska“. saga eftir Mary
Ellen Chase; krossgáta og
bridgeþrautir. — Lestrarefni
fyrir karlmenn er: „Richelieu
kardínáli“, kvæði eftir Grím
Thomsen; viðtal við Alfreð Elí-
asson; ,,Eftirmyndin“, saga eft-
ir Ilenri Duvernois; „Also
sprach —“, þáttur eftir Ingi-
mund; „Kvennaslægð“, saga
eftir Agatha Christie; , Konu-
vísur“, eftir Ingimund; skrítlu-
síðan „Á takmörkunum" og
krossgáta. í miðju heftinu er
„Kvikmyndaopnan11; auk þess
eru margar myndir og skrítlur.
---------- -.
Aðvörun til togara
um línu- og
nelaveiði
VITAMÁLASTJÓRI ' hefur
gefið út eftirfarandi aðvörun
til togara um^línu- og neta-
veiði.
Milli Garðskaga og Reykja-
ness er línu- og netasvæði, sem
takmarkast af línum dregnura
milli eftirfarandi staða:
a. Garðskagaviti.
b. 65° 16,0' n. b. og 23°26,0'
s. 1.
c. 63° 42,7' n.b. og 23° 25,0'
s. lg.
d. Reykjanesviti.
Á tímabilinu frá 1. febrúar
til 15 maí ár hvert er f jöldi báta
(um 150) að veiðum með línu
eða netjum á þessu svæi, sem er
þá oft svo þéttskipað veiðar-
færum, ag togari að veiðum
þar, getur valdið miklu tjóni á
þeim. Sömuleiðis eiga togarar á
hættu að fá net eða línu í skúrf
una og neyðist til að biðja um
aðstoð.
Þess vegna eru togarskip-
stjórar vinsamlegast beðnir um
að vera ekki að veiðum á þessu
svæði fr.á 1. febrúar til 15. maí.
Venjulegast er varðskip við
gæzlu svæðisins og gefur það
allar nánari upplýsingar.
Amerískur háskóli
veifir erlendum
kvenstúdentum
námsstyrk
BRYN MAWIt háskóladeild-
in í Pennsylvania hefur til-
kynnt að hún muni úthluta f jór
um nómsstyrkjum að upphæð
1150 dollurum hvern, til fjög-
urra erlendra stúlkna, er kynni
að óska að stunda nám við skól
ann. Þessi upphæð nægir fyrir
kennslugjaldi, húsaleigu5' og
fæði. Umsækjendur þurfa að
lesa og tala ensku og þurfa aS
hafa stúdentspróf.
Umsóknir þurfa að vera
komnar fyrir 1. apríl næstkom-
andi. Og verður að fylgja um-
sóknunum greinargerð um
menntun umsækjenda, ásamt
vottorðum, svo sem skírnar-
vottorði, prófskírteini, skóla-
skjölum, meðmælabréfum frá
kennurum, heilbrigðisvott-
orði, ljósmynd og skýrsla um
framtíðaráætlun umsækjenda.
Umsóknin skal senda til ame
ríska blaðafulltrúans Lauga-
vegi 24 Reykjavík. Þar verða
einnig veittar frekari upplýs-
ingar.
Kópavcgcr...
Framh. af 5. síðu.
aldrei hefur dottið í hug að
þræta fyrir að það sé komm-
únistar.
B-listinn, listi sjálfstæðis-
manna, er að áliti margra
hreppsbúa undarleg samsetn-
ing, og held ég, að kjósendur
hafi skilið, hvað þar var á ferð-
inni, þegar þeir hlýddu á ræðu
efsta manns listans á sunnu-
daginn var. Vonandi verður sú
ræða í Mogganum í dag.
Þeir kjósendur í Kópavogs-
hreppi, sem vilja vinna að bætt
um hagsmunum íbúanna og
hreppsfélagsins sem heild,
kjósa A-listann, og þá Einar
Vidalíng og Pétur Guðmunds-
son í hreppsnefnd.
Kópavogsbúi.
Skemmdarverk í
Auslur-Þýzkaland I
RÚSSAR í BERLÍN hafa nú
skýrt frá víðtækum skemdar-
verkum, sem þeir segja, að átt
hafi sér stað í Austur-Þýzka-
landi, og er flugumönnum Vest-
urveldanna kennt um. Þeir nota
þessi skemmdarverk til að af-
saka stofnun „öryggismálaráðu
neytis“. Jafnaðarmannablað í
Berlín segir um þetta, að það
hafi ekki tekið nema fimm ár
að fá nýja Gestapó-lögreglu í
Þýzkalandi, því að nú sé hún
komin.