Alþýðublaðið - 02.02.1950, Side 7
Fimmtudagur 2. febrúar 1950
ALÞÝÐU8LAÐ1Ð
7
Félagslíf
KR og ÍR
Æfing í kvöld kl. 8—10. —
Mætið allir. Stjórnin.
FARFUGLAR! Munið að sækja
aðgöngumiðana að árshátíð-
inni í síðasta lagi í dag. —•
Samtaka nú og mætið öll og
takið með ykkur gesti.
Nefndin.
SKIPAHTG6RÐ
RIKISINS
„Skjaldbreið”
um Húnaflóahafnir til Skaga-
strandar hinn 7. þ. m. Tekið á
móti flutningi til hafna milli
Ingólfsfjarðar og Skagastrand-
ar á morgun og árdegis á laug-
árdaginn. Pantaðir farseðlar
óskast sóttir á mánudaginn.
Jí
Jt
Tekið á móti flutningi til Vest-
mannaeyja alla virka daga.
Aivinna
Matvöruverzlun vantar
duglegan verzlunarstjóra,
sem vildi gerast meðeig-
andi og gæti lagt fram
nokkurt fé. Æskilegt að
viðkomandi hefði unnið i
kjötbúð áður. Nánari upp-
lýsingar (þó ekki í síma) í
skrifstofunni eftir hádegi
í dag og næstu daga.
SALA OG SAMNINGAR
Aðalstræti 18.
Daglega
á
boS-
stólum
heitir
og
kaldir
fisk og kjötréttir.
K5id borð og
beHur veizlumatur
íendur út um allan bæ.
SÍLD & FISKUR.
Það er afar auðvell
Bara að hringja í 6682 og
komið verður samdægurs
heim til yðar. Kaupum og
seljum allskonar notaða
muni. Borgum kontant. —
Fornsalan, Goðaborg
Freyjugötu 1.
Verzlunarmenn ræða kjaramál sín
á almennum fundi í VR á mánudag
ALMENNUR LAUNÞEGAFUNDUR innan V.R. verður
haldinn að Félagsheimilinu n. k. mánudag, 6. febrúar. Á þeim
fundi verða kjaramálin til umræðu og væntanlega munu þá
einhverjar ákvarðanir verða teknar varðandi uppsögn á samn-
mgi.
Heimilt er að segja upp samn
ingum eftir 1. janúar 1950 með
eins mánaðar uppsagnarfresti
fyrir lok hvers ársfjórðungs.
Engin endanleg ákvörðun hef-
ur enn verið tekin af hálfu
launakjaranefndar og stjórnar
V.R. um það, hvaða breyting-
ar verði farið fram á að gera
við samninginn. Hins vegar
hafa stjórn V.R., launakjara-
nefnd og stjórnir hinna þriggja
deilda félagsins rætt kjaramál-
in sameiginlega, en engar við-
ræður hafa enn farið fram á
milli V.R. annars vegar og at-
vinnurekenda (sérgreinafélaga
kaupsýslumanna og KRON)
hins vegar.
Á s._ 1. hausti gerðu launþeg-
ar í verzlunarstétt og kaup-
sýslumenn með sér nýjan við-
auka við kjarasamning stéttar-
innar, og var hann undirritað-
ur 13. október.
KRON og öll sérgreinaíélög
kaupsýslumanna innan Verzl-
unarráðs íslands, að tveimur
undanskildum, undirrituðu
þennan samningsviðauka. Þessi
tvö félög eru Skókaupmanna-
félagið og Félag vefnaðarvöru-
kaupmanna. í desember undir-
ritaði Félag vefnaðarvörukaup
manna hins vegar samninginn
og er því skókaupmannafélágið
hú eina sérgreinafélag kaúp-
sýslumanna, sem ekki hefur
gerzt aðili að áðurgreindum
samningsviðauka.
Allmörg verzlunarfyrirtæki
í þessum bæ tilheyra engu sér-
greinafélagi og standa sömu-
leiðis utan Verzlunarráðs ís-
lands. Stjórn V.R. skrifaði flest
um þessum fyrirtækjum bréf,
þar sem farið var fram á, að
þau gerðust aðilar að viðauk-
anum. Svör hafa borizt frá all-
mörgum fyrirtækjum, og eru
fiest þeirra jákvæð. Hins veg-
ar hafa enn nokkur fyrirtæki
látið undir höfuð leggjast að
svara, þrátt fyrir ítrekuð til-
maéli.
Frétzt hefur, að nokkur fyr-
irtæki, sem meðlimir eru í
þeim sérgreinafélögum, er
gerzt hafa aðilar að samnings-
viðaukanum, hafi ekki greitt
starfsfólki sínu þær uppbætur
á launin, sem samið var um að
greiða. Er það miður farið, ef
rétt reynist en V.R. getur hins
vegar ekkert aðhafzt í slíkum
ti'lfellum, nema því aðeins að
meðlimir þess kæri öll samn-
ingsbrot, sem upp kunna að
koma. Launakjaranefnd V.R.
ásamt stjórn félagsins, hefur
ráðið lögfræðing í sína þjón-
ustu til þess að sjá um, að eng-
in mistúlkun á samningum við
aívinnurekendur geti leitt til
þess, að verzlunarlaunþegi
vérði sviptur þeim kjarabótum,
sem honum ber samkvæmt
gerðum samningi. Væntir
launakjaranefnd V.R. þess, að
ailar deilur, sem upp kunna að
rísa vegna mistúlkana á samn-
ihgi, verði leystar á réttum
vettvangi.
Bifreiðainn f I u t n i n g u r i n n
Framhald af 5 síðu.
Einnig beindi hann þeirri
fyrirspurn til fjármálaráð-
herra, hvort rétt væri, að
bifreiðaeftirlitið hefði á sín-
uin tíma fengið fyrirmæli
um að inrtheimta þennan
söluskatt, en þau fyrirmæli
síðar verið afturkölluð. Fjár-
málaráðherra færðist undán
að svara þessu, en taldi, að!
erfitt myndi að innheimta.
umræddan söluskatt af þesss^L reiðum í grundvelli þeirra,
um bifreiðum og ekki víst,
að til þess hefði verið ætlazt
af löggjafanum! Fyrrverandi
fjármálaráðherra gaf engái*'
upplýsingar um þetta mál ogi:
vék af fundi, meðan umræðr
urnar stóðu yfir.
Finnur Jónsson kvað engan
vanda að setja öruggar reglur
um innheimtu söluskatts aL
þessum bifreiðum og ekkert efc.
unarmál, að til þess hefði verið
ætlazt af löggjafanum. Sagði
að láta þá sleppa við sölú-
skattinn, er selja nýjar bif-
reiðir óuppteknar við þreföldu
eða fjórföldu verði, en inh-
heimta hann hins vegar a£
eldri bifreiðum, sem ganga
kaupum og sölum. ;S;|.
Haraldur Guðmundssoxi
ræddi í þessu sambandi um
erfiðleika lækna í Reykjavík á
að eignast bifreiðir, og taldi
hann óhjákvæmilegt að bæta
úr því. Sigurður Bjarnason á-
leit sömuleiðis nauðsynlegt að
læknar og aðrir embættismenn
utan Reykjavíkur ættu þess
kost að eignast bifreiðir.
Björn Ólafsson fjármála-
ráðherra upplýsti í sambandi
við þessar umræður, að hann
hefði látið afnema reglurn-
ar um innflutning bifreiða,
sem keyptar væru fyrir sjó-
mannagjaldeyri, frá og með
síðustu áramótum. Eigi að
síður kvað hann eitthvað
. verða enn flutt inn af bif-
þar eð viðskiptanefnd hefði
gefið ýmis bindandi loforð
áður en hann ákvað að fella
reglurnar úr gildi. Sagði
f jármálaráðherra, að hann
teldi engar líkur á því, að
íslendingar hefðu efni á að
flytja inn fólkshifreiðir eða
jeppa á þessu ári, nema því
aðeins, að jeppar yrðu taldir
til nauðgynlegra landbúnað-
artækja.
Umræður þessar spunnust út
af fyrirspurn, sem Jónas Rafn-
hann, að ekki næði neinni átí, ar hafði framsögu fyrir á fundi
sameinaðs þings í gær.
Leikfélag Hafj-^arfjarðar
hefur sýningu á
gamanleiknum
„Ekki er gotl að
maðurinn sé einn"
í kvöld kl. 8.30.
Vegna jarðarfarar
verður aðalskrifstofu okkar
lokað frá hádegi í dag.
Áfengisverzlun ríkisins
Engar vörur,
ekkerf fif
ans, halda áfram að auglýsa öðru
hverju, til þess að minna fólkið á það,
hvar vörurnar muni fást, þegar þær
koma aftur. Firmanafn, sem er á vörum
fjöldans, er margfaldur arður fyrir hóf-
legt auglýsingaverð, sem vel er vaxúð.
áuglýsið í AiþýðublaÖinu.
Hringið í síma 4900 og 4906.
Hæfileikakönnun
og siarfsval
(Frh. af 5. síðu.)
Gáfnaprófin eru því, eins og
fyrr var sagt, aðeins fyrsti lið-
ur hæfnisprófanna.
Aðrir liðir hæfnisprófanna
sýna í aðalatriðum sérhæfileika
einstaklinganna. Sum þessara
prófa eru einungis gerð fyrir
konur, t. d. hjúkrunarhæfnis-
próf. Önnur aðeins fyrir karl-
menn, t. d. próf, er sýna vissar
tegundir verktækni o. s. frv.
En flest þessara prófa gilda
jafnt fyrir konur og karla.
Að gáfnaprófunum loknum
eru venjulega gefin hin svo-
nefndu áhugapróf. Það eru
próf, er sýna áhuga manna á
eðli hvers starfs. Þessi áhuga-
próf eru mikilvæg, þar sem
undantekningarlítið fara sam-
an áhugi og hæfileikar. Yerða
þessi próf oft til þess að leið-
rétta misskilning, sérstaklega
hjá unglingum, sem halda sig
stundum hafa áhuga á ein-
hverju sérstöku hlutverki, þótt
svo sé ekki í rauninni. Slík
sjálfsblekking stafar af því, að
ýmis þau hlunnindi, er starfið
veitir, svo sem launakjör,
mannvirðingar, félagslíf o. fl.
o. fl. — eru lokkandi og löngun
til þess að verða þeirra aðnjót-
andi kemur þeim til að halda,
að þeir hafi áhuga á starfinu
sjálfu. Og svo, þegar á reynir,
verða þeir fyrst blekkingarinn-
ar varir. En próf. þessi leiða í
ljós hinn sanna áhuga.
Þá koma skapgerðar- og per-
sónuleikapróf. Skapgerð manns
er mjög áríðandi í starfsvali.
Síðast eru hin almennu
hæfnispróf, sem eru mjög fjöl-
breytt og sýna hæfileika til
flestra nútímastarfa, t. d. hand-
iðnar, kennslu, læknis- og
hjúkrunarstarfa, ritstarfa o. fl.
o. fl. Einnig eru nákvæm próf
til athugunar á sérgáfum, svo
sem listhneigð.
Þar sem líkamlegt ástand
mannsins hefur mjög mikil á-
hrif andlega, þá hafa stofnan-
ir þær, er með hæfnispróf fara,
sambönd við lækna, þannig að
prófandinn fær, áður en rann-
sóknin byrjar, nákvæma
skýrslu um heilsufar þess, er
rannsaka á.
Hæfnispróf eru mjög sterk-
ur þáttur í mennta- og at-
vinnukerfi flestra menningar
þjóða nútímans. Með tilliti til
hagsmuna þjóðar vorrar höfum
við ekki andleg efni á því að
evða starfskröftum einstak-
linganna með svo hæpnum leik
að láta tilviljun ráða mestu ura
framtíðarstörf þeirra.
Með hæfileikarannsóknum á
réttum aldri, sem fer eftir and-
legum þroska hvers manns,
ætti að vera hægt að hjálpa
æskunni um bezta veganestið
sem fáanlegt er — það er raun-
hæft sjálfsmat.
Fimm sækja um
bæjarstjóraemb-
ættið á Akureyri
^ '
UMSÓKNARFRESTUR unj
bæjarstjóraembættíð á Akur»
eyri var útrunninn í gær. Firnm
umsóknir bárust. Eru þær frá
þessum mönnum: Steini Stein-
sen rí húverandi bæjarstjóra,
Guðmundi Guðlaugssyni fram-
kvæmdastjóra á Akureyri,
Bergi Sigurbergssyni viðskipta-
fræðingi, Reykjavík, Jóni Þor»
steinssyni lögfræðingi, Akur-
eyri, og Stefáni Ágúst Krist-
jánssyni sjúkrasamlagsstjóra,
Akureyri. i
HAFR. i