Alþýðublaðið - 08.02.1950, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 08.02.1950, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 8. febrúar 1950. ALÞÝÐUBLAÐIÐ ? Féiagslsf________i ÁRMENNIN GAR! Stúlkur! Piltar! íþrótta- og dansnám- skeið Ármanns. Æfingar verða þannig í íþrótta- húsinu: Þjóðdansar og gömlu dansarnir: Piitar og stúlkur miðvikudag kl. 9—10. Glímunámskeið: Drengir og byrjendur mánu- daga og fimmtudaga kl. 8—9. Piltar fimíeikanámskeið: Miðvikudaga og laugardaga kl. 8— 9. Stúlkur fimleikanámskeið: Mánudaga og fimmtudaga kl. 9— 10. Allar nánari upplýsingar í skrifstofu Ármanns, íþrótta- húsinu. Sími 3356. GLÍMUFÉLAGIÐ ÁRMANN fer, héðan föstudaginn 10. þ. m. til Vestur- og Norður- lands. Viðkomustaðir: Patreksfjörður ísafjörður Siglufjörður Dalvík Akureyri Plúsavík Sauðárkrókuf. H.f. Eimslipafélai Islands. M.s. Hugrún hleður til Patreksfjarðar, Þingeyrar, Súgandafjarðar, Bolungavíkur og ísafjarðar í dag og á morgun. Vörumóttaka við skipshlið. Sími 5220. Sigfús Guðfinnsson. ÚibreiSIS Alþýðublaðtð! Landskeppni íhand- knattielk milli Svía og íslendinga Þjóðieikhús og landsleikhús Framhald af 5. síðu. stóran hóp leikara. Má segja, að þar sem samgöngur hafa stórum batnað og flest Önnur ytri skilyrði mjög víða um land, hafi aldrei verið betri horfur á því en nú, að gera leikrit og leiklist að föstum þætti í menn- ingarlífi mjög mikils hluta þjóðarinnar. Virðist mér, að vel gæti nú komið til mála, að stofna á íslandi landsleikhús — (ríkisleikhús) — sem hefði sína sérstöku stjórn, en hefði nána samvinnu við Þjóðleikhús ið og einstaka leikflokka, í höf uðstaðnum, við leikfélög, ung- mennafélög, verkalýðsfélög, í- þróttafélög, kvenfélög, sam- vinnufélög og önnur menning- ar — og hagsmunafélög í kaup stöðum, þorpum og sveitum, svo að leikstarfsemin næði sem víðast til og henni yrði sem haganlegast og skipulegast fyr- ir komið. Ég ætla ekki að gera um þetta neinar ákveðnar tillögur, en vænti þess, að til þess véi’ði aðrir, sem þekkja betur til þessarar umræddu starfsemi. Sívaxandi leikáhugi og leik- starfsemi á íslandi hefur glatt mig mjög, og efast ég ekki um, að af þessu tvennu geti stafað mörg og margvísleg menning- aráhrif vítt um byggðir lands- ins. Guðm. Gíslason Hagalín. Isafjörður Framh. af 1. síðu. un, að taka aftur upp samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn, og er nú almennt litið svo á hér, að viðræður þeirra við Alþýðu- flokkinn hafi aðeins verið til málamynda og tilgangur þeirra sá einn, að skapa sér betri að- stöðu til þess að fá stöður og bitlinga hjá Sjálfstæðisflokkn- Verður háð Í5. febrúar í Luodi. EINS og áður hefur verið frá sagt í fréttum, hafði ÍSÍ og handknattleiksmenn hér á- kvéðið að taka þátt í heims- meistarákeppni í handknatt- leik, sem fram átti að fara 14.—■ 21. febrúar í Svíþjóð. Seint í janúarmánuði fékk stjórn ÍSÍ tilkynningu um það, að vegna ónógrar þátttöku í heimsmeist- aramótinu yrði það látið niður falla. Minnst sex þjóðir verða að taka þátt í heimsmeistara- móti til þess, að það megi fara fram. En nú voru aðeins 5 þjóð- ir, eða Norðurlöndin öll. Jafn- framt tilkynningunni um það, að heimsmeistarakeppnin færi ekki fram, buðu Svíar til keþþni við allar Norðurlanda- þjóðirnar þann 16. febrúar: ís- landi í Lundi, Noregi í Gauta- borg, Finnlandi í Örebro og Danmörku í Stokkhólmi. Þótti ÍS'Í "ékki tiltök að leggja í slíka ferð fyrir aðeins einn kappleik. Var þá rætt við Dani um að leika einn leik í Kaupmanna- höfn, og tókust samningar um það.. Var Svíum tilkynnt þetta. Nokkru síðar sendu þeir endan- legt tilboð um landsleik og tvo aðra leiki í Svíþjóð. Þessu boði var tekið og ákveðið að flokk- urinn færi utan. Mun lands- leikurinn fara fram 15. febrúar n. k. að Lundi. Næsti leikur verður svo bæjarkeppni í An- gelholm þann 17. Ekki er enn vitað, hvar þriðji leikurinn verður háður. Síðasti leikurinn verður svo í Kaupmannahöfn og fer fram á vegum danska handknatt- leikssambandsins. um. Enginn efi er nú talinn á því, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi lánað kommúnistum atkvæði í kosningunum til þess að tryggja kosningu eins kommúnista í bæjarstjórn. Er því til sönnun- ar á það bent, að Sjálfstæðis- flokkurinn fékk nú 31 atkvæði færra en við alþingiskosning- arnar í haust, en kommúnistar 32 atkvæðum fleira. En saman- lagt var fylgi þeirra í haust 731 atkvæði, og nú 732 atkvæði. BIRGIR ' Fararstjóri verður Sigurður Gi ’Norðdahl, en þjálfari Sig- urður Magnússon. Keppendur verða þessir: Sólmundur Jóns- son, Magnús Þórarinsson, Haf- steinn Guðmundsson, Valur Benediktsson, Sigurður G. Norðdahl, Kjartan Magnússon, Shorri Ólafson, Sveinn Helga- son, Birgir Þorgilsson, Kristján Oddsson, Gunnar Haraldsson, Sigurhans Hjartarson, Jón Er- léndsson, Ingi Þorsteinsson. Flokkurinn fer með flugvél að kvöldi 13. febrúar n. k. Minn hjartkæri sonur, bróðir og mágur, Oddyr Björnsson, verður jarðsunginn frá þjóðkirkjunni í 10. b m. kl. 1,30 e. h. Jónína Jónsdóttir. Björney Björnsdo Karólína Björnsdóttir. Lárus Jónsson. Athugasemd HR. RITSTJÓRI! Vegna um- mæla í grein eftir Jón Sigurðs- son, varðandi verkfall flugvéla- virkja, sem birtist í blaði yðar 5. þ. m., þar sem loftskeyta- menn hjá flugfélögunum eru bornir þeim alvarlegu sökum, að hafa gerzt verkfallsbrjótar í áður nefndu verkfalli, þá vildi ég undirritaður fara þess á leit, að þér birtuð frá mér eftirfar- ,andi athugasemd: Það hefur enginn loftskeyta- maður hjá Loftleiðum h.f. unn- ið að áfyllingu benzíns á flug- vélar þess féíags, eða unnið nokkur þau störf, sem heyra undir verksvið flugvélavirkja, enda mér með öllu óskiljan- legt, hvernig flugvélavirkja- störf gætu orðið unnin af loft- skeytamönnum. Þar sem báðir loftskeyta- menn Flugfélags íslands h.f. eru fjarverandi, get ég að vísu ekki svarað fyrir þá, en sam- kvæmt áreiðanlegum upplýs- ingum, munu þeir heldur ekki hafa unnið nein slík störf, enda trúi ég því ekki, að öðru ó- reyndu. Ég hef alltaf átt ánægjulegu samstarfi að fagna við flug- virkja og hef fyllstu samúð með kröfum þeirra. Það er mér því ennþá óskiljanlegra að verða fyrir slíkum ásökunum frá þeirra hendi. Mér finnst ómaklegt að ráð- ast að stétt okkar í víðlesnu blaði að tilefnislausu, á sama tíma og engin athugasemd er gerð við það, að flugvél fer til Keflavíkur og tekur þar benzín með hátíðlegri viðhöfn að við- stöddum boðsgestum, og þanu- ig, að því er virðist gert opin- bert gys að verkfalli flugvéla- virkjanna. 7. febr. 1950. Ólafur Jónsson, yfirloftskeytamaður Loftleiðir h.f. Erlendar innsfæður bankanna í janúar- lok 21,4 millj. kr. !: í LOK JANÚAR nam eign bankanna í erlendum gjaldeyri 38,5 millj. kr., en þar koma til frádráttar ábyrgðarskuldbind- ingar þeirra, sem námu 17,1 millj. kr. Nettóeign bankanna erlendis var þannig 21,4 millj. kr. í lok janúarmánaðar. Er hér í fyrsta skiptið miðað við nýja gengið á dollar og öðrum gjald- eyri, sem hækkaði síðastliðið haust. Yið Iok desembermánaðar s.I. áttu bankarnir 18,6 millj. kr. inneign erlendis miðað við nýja gengi fyrrgreinds gjald- eyris, og hefur gjaldeyriseign- in þannig aukizt um 2,8 millj. kr. í janúarmánuði, án þess að gjaldeyrisástandið í heild batn- aði, nema síður væri. Varð til- finnanleg lækkun á inneigninni í punda-gjaldeyri í mánuðin- um. 1 Framlög Efnahagssamvinnu- stofnunarinnar í Washington eru ekki innifalin í ofangreind- um tölum. í lok janúarmánað- ar var búið að nota 64,8 millj. kr. af Marshallfé, auk Marshall lánsins, sem fór til sérstakra nota. Frá því að Marshalláætl- unin kom til framkvæmda og til miðs árs 1949 hafa íslandi verið úthlutaðar 56,2 millj. kr. af Marshallfé að meðtöldu skil- yrðisbundnu framlagi í sám- bandi við freðfiskútflutning til Þýzkalands — auk Marshall- lánsins. Er því nú, auk þessar- ar upphæðar, búið að nota 3,6 millj. kr. af væntanlegu fram- lagi á árinu 1. júlí 1949 til jafnlengdar 1950, sem ekki er vitað fyrir víst, hve hátt verð- ur. Hér er miðað við dollar- gengið, sem skráð hefur verið síðan í september í haust, og er 44% hærra en e»dra gengið. ; ;; , ■ ‘ \ ■ dskenntan A-Iisians Kosninganefnd A-listans efnir til kvöldskemmtunar í Iðnó fimmtudaginn 9. febrúar kl. 8% fyrir starfsfólk listans. Allir þeir, sem unnu í þágu Alþýðuflokksins á kjördegi, eru boðnir. — Aðgöngumiðar eru afgreiddir í skrifstofu ílokksins í Alþýðuhúsinu við Hverfisgotu (II. hæð) í dag og á morgun (fimmtudag). ulf; Kosninganefnd A-lisfans

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.