Alþýðublaðið - 08.02.1950, Side 8

Alþýðublaðið - 08.02.1950, Side 8
Gerfzt áskrifendur a<5 ASþýðyblaðinu. Alþýðublaðið inn á •. hvert heimili. Hring-' ið í síma 4900 eða 4906. Miðvikudagur 8. febrúar 1950. Börn ©g unglingar. Komið og seljið Alþýðublaðið. Allir viljia kaupa AlþýÖublaðið. Guðmundur Gissurarson kosinn forseti bæiarstjóriiarinnar. ■ - HIN NÝKJÖRNA BÆJARSTJÓRN HAFNARFJARÐAR hélt fyrsía fund sinn í gærdag, og var þar gengið frá skipan bæjarráðs og fastra nefnda bæjarins og kjöri bæjarstjórá og forseta bæjarstjórnar. Helgi Hannesson var endurkjörinn bæj- arstjóri til næstu fjögurra ára, en forseti bæjarstjórnar var kiöriiin Guðmundur Gissurarson. Helgi Hannesson bæjarfull- trúi setti fundinn, bauð hina nýkjörnu bæjarfulltrúa vel- komna til starfs og óskaði þeim farsæidar í störfum sínum fyr- ir bæjarfélagið. Þá var gengið til dagskrár og forseti bæjarstjórnar kjör inn. (Juðmundur Gissurarson var kosinn forseti með 5 at- kvæðum, en 4 seðlar voru auð- ii'. Varaforseti var kosinn Ólaf- ur Þ. Kristjánsson. Bæjarstjóri til næstu 4 ára vai’ kosinn Helgi Hannesson með 5 atkvæðum. 4 seðlar voru auðir. í bæjarráð voru kosnir EmiJ Jónsson, Óskar Jónsson og Þor- leifur Jónsson. Heiztu fastanefndir bæjarins 1 eru þannig skipaðar: Háfnarnefnd: Ásgeir Stefáns son, Emil Jónsson, Loftur Bjarnason, Þorleifur Jónsson og auk þess er bæjarstjóri sjálf- kjörínn í nefndina og er hann jáfnframt formaður hennar. Bygginganefnd: Emil Jóns- son, Asgeir Stefánsson, Sigurð- tir Valdimarsson, Haukur Jóns- son , og bæjarstjóri — sem er sjálfkjörinn og formaður nefndarinnar. Brimamálanefnd: Björn Jó- hannasson, Þórður Þórðarson, Kristmundur Georgsson, Guð- laugur B. Þórðarson, og bæjar- stj'óri, sem er sjálfkjörinn og formaður nefndarinnar. Útgerðarráð: Emil Jónsson, Björn Jóhannesson, Gunnlaug- ur Guðmundsson, Jón Gíslason og Jón Matthiasen. Fræ®sluráð: Emil Jónsson, Helgi Hannesson, Ólafur Þ. Krisfcjánsson, Ingibjörg Ög- mundsdóttir og Ingólfur Flyg- enring. Framfærslunefnd: Guðmund- ur Gissurarson, Vilhjálmur Sveinsson, og Stefán Jónsson. Barnaverndarnefnd: Stefán Júlíusson, Eyjólfur Guðmunds- son, Guðrún Nikulásdóttir, Kristinn Magnússon, og Gest- ur Gamalielsson. . KOSNIN G ANEFN D A- ÆISTANS efnir til kvöld- skemmtunar í Iðnó annað kvöld kl. 8,30 fyrir starfs- fólk listans. Eru allir þeir, sem unnu í þágu Alþýðu- flokksins á kjördegi, boðnir á skemmtunina. Aðgöngu- miðar verða áfgreiddir í skrifstofu flokksins í Al- þýðuhúsinu í dag og á moi'g- un. Liila alisherjarþing- Stjórn Sjúki’asamlagsins: Guðmundur Jónsson, Páll Sveinsson, Sigurður Kristjáns- son og Stefán Jónsson. ALGER HISS, ameríski emb- ættismaðurinn, sem dæmdur var sekur um njósnir fyrir Rússa í einu frægasta njósna- máíi Bandaríkjanna, hefur á- kveðið að áfrýja dóminum, og heldur hann ákaft fram sak- leysi sínu. LITLA ALLSHERJARÞING IÐ kom saman í gær í Lake Success til þess að ræða kæru Kínverja á hendur Rússum um aðstoð hinna síðarnefndu við kommúnista í Kína. Fulltrúi kínversku stjórnarinnar sagði, að Rússar hefðu unnið til þess í Kína, að þeir væru reknir úr sámeinuðu þjóðunum. Hvatti hann allar bandalagsþjóðirnar Onnur umferð á skák- “ Þess 85 ekki stjórn Mao Tsetungs. þingi Reykjavíkur í ANNARRI UMFERÐ á skákþingi Reykjavíkur, sem tefld var í fyrrakvöld, fói'u leikar þannig, að Þórir Ólafs- son vann Gunnar Ólafsson, Árni Snævarr vann Guðmund S. Guðmundsson, Sveinn Krist- insson vann Óla Valdimarsson, Guðmundur Ágústsson vann Ingvar Ásmundsson, Benóný Benediktsson vann Pétur Guð- mundsson, Lárus Johnsen vann Bjarna Magnússon, Guð- jón M. Sigurðsson vann Þórð Jörundsson, Eggert Gilfer vann Hjálmar Theódórsson, Stein- grímur Guðmundsson vann Hauk Sveinsson, Árni Stefáns- son og Jón Ágústsson gerðu jaíntefli, en biðskákir urðu milli Baldurs Möller og Björns Jóhannessonar, og Frið- riks Ólafssonar og Kára Sól- mundarsonar. Þriðja umferð verður tefld í kvöld. Þá tefla saman: Björn og Guðjón, Kári og Baldur, Lárus og Friðrik, Benoný og Stein- grímur, Sveinn og Gilfer, Guð- mundur Ágústsson og Árni Stefánsson, Árni Snævarr og Jón Ágústsson, Haukur og Þórður, Pétur og Bjarni, Óli og Hjálmar, Ingvar' og Þórir og Gunnar og Guðmundur S. Guð rhundsson. Helgafell gefur bókasaíni Islend- inga í Kaupm.höfn rúm 100 bindi .— .................■».— ---- Þar á meðal aJíar bækur, sem forlagið hefur gefið út eftir íslenzka höfundá síðustu árin. , —......» BÓKAÚTGÁFA HELGAFELLS hefur nýlega gefið Bóka- safni Islendinga í Kaupmannahöfn nxjög virðulega bókagjöf, eða samtals á annað huxxdrað bindi. Eru þar á meðal allar þær bækur eftir íslenzka höfunda, scm forlagið hefur gefið út á síðustu áx-um, en einnig eru þeirra á meðal nokkrar þýddar úrvalsbækur. Blaðinu hefur nýlega boriztF------------- bréf frá Ólafi Albertssyni gjald Aíþingi mun innan skamms hækka e!!i- og örorkulífeyri upp í 4332 kr. ALLAR LÍKUR eru nú á því, að alþingi muni innan skamms hækka elli- og örorkulífeyri úr 3972 krónum, sem hann er nú, í 4332 krónur. í gær urðu all- miklar umræður um þessi mál í sameinuðu þingi út af tillögu kommúnista um þessi efni. Var samþykkt rökstudd dagskrá um tillögú þeirra, en jafnframt var frá því skýrt, að heilbrigð- is- og félagsmálanefnd efri deildar hefði orðið sammála um að leggja til breytingu á tryggingalöggjöfinni, sem mundi hafa í för með sér áður- nefnda hækkun. Plefur þá elli- og örorkulífeyrir alls hækkað um 20%, eða sama og uppbæt- ur opinberra starfsmanna. Hafði lífeyririnn þegar verið greiddur með vísitölu 315 og sjúkrasamlagsgjald greitt f.yrir bótaþega, svo að hækkunin nú nemur 10%. Flaraldur Guðmundss. gerði í umræðum þessum samanburð á þessum lífeyri og launum Dagsbrúnarmanna. Kaup verka mannsins er nú 74 kr. á dag og miðað við 300 vinnudaga eru árslaunin 22 200 kr. Fyrir fimm manna fjölskyldu er þetta 4440 kr. á mann, eða litlu hærra en lífeyririnn verður nú fyrir ein- staklinga. Þó gat Haraldur þess að sem betur fer hefðu fáar fjölskyldur ekki aðrar tekjur en hér var greint, þó dæmin séu til um þessar tekjur verka- manna, en lífeyrisþegar hafi einnig margir hverjir aðrar nefnda hækkun. Hafa þá elli- kera íslendingafélagsins í Höfn, en hann er einn aðalforgöngu- maður að stofnun bókasafnsins, og biður hann blaði ðað færa Helgafelli og öðrum bókafor- lögum, sem hafa sent bækur til safnsins, beztu þakkir íslend- inga þar. Áður hafa nokkur bókaforlög hér heima gefið bækur til saf ns- ins, og má þar nefna ísafold og Norðra, sem í haust sendu myndarlega bókapakka til Hafnar, og hefur þess áður ver- ið getið hér í blagðinu. Segir Ólafur í bréfi sínu, að með þessari nýjustu bókasend- ingu, sem kom frá Helgafelli um jólin, —■ en í henni voru rúmlega 100 bindi —, hafi safn- ið aukizt svo, að nú sé fært að stofna lestrarfélagið, þótt að sjálfsögðu verði enn reynt að j auka bókakostinn eftir föngum. Og tekur safnið með þökkum við hverri nýrri bók, sem því kann að berast að heiman, frá útgefendum eða einstaklingum. „Ætlun okkar,“ segir Ólafur að lokum, „er að reyna líka að kaupa eitthvað af bókum, en fjárhæðin, sem við höfum yfir að ráða, er ekki svo stór, að um margar bækur geti verið að ræða, þegar tillit er tekið til verðlags á íslenzkum bókum.“ Vonandi verða þó margir út- gefendur enn til þess að senda safninu bækur, svo að það geti orðið sem öflugast og fjöl- breyttast. Eins og kunnugt er, eru fjöl- margir íslendingar búsettir ytra, sem ekki hafa um margra ára skeið haft neina aðstöðu til þess að fylgjast með íslenzkum bókmenntum, en með stofnun slíks bókasafns, sem hér um í'æðir, ætti að minnsta kosti öllum íslendingum, sem í Kaupmannahöfn búa, að gefast kostur á því að kynnast síðari ára bókmenntum þjóðar sinn- ar. Bjöm Ámgrínuson á Dalrík lálinn BJÖRN ARNGRÍMSSON á Dalvík lézt nýlega eftir langa og erfiða vanheilsu. Björn var tæplega fimmtug- ur að aldri. Hann var formaður Verkalýðsfélags Dalvíkur, mjög stéttvís og traustur verka lýðssinni. Síðustu árin veitti hann forstöðu Pöntunarfélag- inu á Dalvík. haidið og Framsókn kjósa Sieinsen afíur bæjarsíjora á Akureyri Frá fréttaritara AlþbL AKUREYRI í gær. HIN NÝJA BÆJARSTJÓRN kom saman á fyrsta fund sinn í dag (þriðjudag) og var Þor- steinn M. Jónsson kosinn for- seti í einu hljóði. Fyrsti vara- forseti var kosinn Sverrir Ragra ars og annar varaforseti Stein- dór Steindórsson. Þá var gengið til kosningar bæjarstjóra, og hlaut endur- kosningu Steinn Steinsen. Var kosið þrisvar sinnum, og hlaut hann loks sjö atkvæði. Studdu hann Sjálfstæðis- og Framsókn armenn, en komúnistar sátu hjá og Alþýðuflokkurinn við þi’iðju atkvæðagreiðslu. í bæjarráð voru þessir kosn- ir: Steindór Steindórsson, Ja« kob Frímannsson, Tryggvi Helgason, Helgi Pálsson og Jón Sólnes. 1 Sigurhátíð Alþýðu- j flokksins í Hafnar- firði á laugardag : HÁTÍÐASAMKOMA Al- þýðuflokksins í Hafnarfirði f tilefni af hinum glæsileg^ kosningasigri við bæjarstjórn- arkosningarnar verður haldin £ Alþýðuhúsinu næstkomandi laugardag. Flófið hefst með sameigin-’ legri kaffidrykkju, og enn fremur verða fjölbreytf skemmtiatriði, sem auglýst verða nánar hér í blaðinu á fimmtudaginn. i Allt stuðningsfólk A-listan er velkomið til þessa fagnaðar meðan húsrúm leyfir. BANDARÍKJAMENN til- kynntu í gær, að þeir hefðu við- urkennt stjórn Bao-Dais í Indó- Kína sem löglega stjórn lands- ins og landið þar með sem full- valda ríki. Bretar höfðu þegar viðurkennt Bao Dai, eins og sagt er frá á öðrum stað í blað- inu. :

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.