Alþýðublaðið - 21.02.1950, Side 4

Alþýðublaðið - 21.02.1950, Side 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Þriðjudagur 21. febrúar 1950 Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Fréttastjóri: Beneðikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson. Ritstjórnarsímar: 4091, 4902. Auglýsingar: Emilía Möller. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Alþýðuprentsmiðjan h.f. Kosningabomba (hurchills INN í kosningabaráti.una á Bretlandi hefur á síðustu stundu verið kastað bombu, sem mjög virðist hafa aukið á óvissuna um það, hvernig kosn- ingarnar muni fara. Sú kosn- ingabomba, sem hér er átt við, er ræðan, sem Churchill flutfi í Edinborg í vikunni sem leið; en með þeirri ræðu var alþjóða- stjórnmálunum og þá fyrst og fremst átökunum milli austurs og vesturs, blandað alveg ó- vænt og skyndilega inn í hina brezku kosningabaráttu. Þetta vakti þegar í stað því meiri undrun, sem ekki var vit- að að neinn verulegur ágrein- ingur hefði verið milli brezku jafnaðarmannastjórnarinnar og hinnar borgaralegu stjórnar- andstöðu um steínuna út á við, og sízt af öllu um afstöðuna til Rússlands; enda hafði kosninga- baráttan snuizt algerlega um innanlandsmál, íhaid og jafnað- arstefnu, einkafrarntak og þjóð- nýtingu, þar til Churchill flutti Edinborgarræðu sína. En eftir þá ræðu varð breyting á þessu; og alþjóðastjórnmálin virðast nú í lok kosningabaráttunnar vera orðin eitt aðalmálið, sem um verði ksoið. Churchill gerði, sem kunnugt er, kalda stríðið milli austurs og vesturs að umtalsefni í Edin- borgarræðu sinni og gaf í skyn, að flokkur hans myndi, ef hann fengi meirihluta við kosning- arnar, beita sér fyrir ráðstefnu Vesturveldanna og Rússlands með það fyrir fyrir augum að binda enda á þetta taugastríð og ófriðaróttann, sem því fylgir. Vel má vera, að Churchill hafi með tiliiti til kosninganna þótt það nauðsynlegt, að koma einu sinni fram sem friðarhöfð- ingi; því að sem kunnugt er hef- ur það orð. á legið síðustu árin, að hann væri nokkuð herskár í ræðum sínum gagnvart Rúss- iandi; og ef til vill hefur hann óttast, að það orð kynni að draga úr fylgi íhaldsflokksins á kjördegi. En hvað sem hæft kann að vera í því, þá er hitt augljóst, að það er alltaf líklegt til fylgisauka hjá fólki, sem ótt- ast stríð meira en allt annað, að gefa því vonir um varanleg- an frið; og því verður því ekki neitað, að Edinborgarræða Churchills var klókindalegur íeikur á taflborði kosningabar- áttunnar. Hann lét í það skína. að jafnaðarmannastjórnin hefði ekki gert allt það, sem unnt væri til þess, að tryggja friðinn, og að íhaldsstjórn undir forustu hans myndi gera betur. Hún myndi að minnsta kosti reyna með nýrri ráðstefnu áð binda enda á kalda stríðið og bægja ófriðarhættunni frá dyrum brezku þjóðarinnar. * ' Þeir Attlee og Bevin svöruðu þessari ræðu Churchills strax og svöruðu henni mjög hispurs- laust. Þeir bentu á, að það hefði aldrei staðið á Bretlandi, þegar um það hefði verið að ræða að leita samkomulags við Rúss- land og tryggja friðinn; en þær samkomulagstilraunir, sem hvað eftr annað hefðu verið gerðar, hefðu því miður borið hörmulega lítinn árangur. Hvorugur þeirra vísaði hug- mynd Churchills um nýja ráð- stefnu á bug; en báðir bentu hins vegar á, að það væri ekki á valdi Bretlands eins, að stofna til slíkrar ráðstefnu, sem snerta myndi öryggi og framtíð margra annarra ríkja. Slík mál yrði að ræða á vettvangi hinna sameinuðu þjóða. Aðrir forustumenn brezka alþýðuflokksins, svo sem Morri- son og Sir Stafford Cripps, hafa verið harðorðir um Edinborgar- ræðu Churchills og sakað hann um loddaraleik með vandamál, sem hann viti þó jafnvel og aðrir, hve örðugt sé að leysa. Og úti um heim hefur ræða hans ekki vakið neina hrifn- ingu. Truman Bandaríkjafor- seti vék sér í balaðaviðtali al- veg undan því, að láta uppi nokkurt álit á henni; og Bi- dault, forsætisráðherra Frakka, hefur í ræðu beinlínis mótmælt því, að til nokkurrar ráðstefnu Vesturveldanna og Rússlands verði stofnað án samráðs við þjóð sína. Og víst mun mörgum verða á að hugsa, að eitthvað muni þurfa meira en eina ráð- stefnuna enn til þess að lægja þær öldur, sem nú rísa milli austurs og vesturs; því að ekki verour það sagt, að á ráðstefnur hafi skort eftir stríðið. Ef þær væru einhlítar til að tryggja friðinn, þá ætti honum nú ekki að vera eins hætt og raun ber vitni. Sjálfsagt er Churchill það og jafn vel ljóst og öðrum, Edin- borgarræðu hans ber því fyrst og fremst að skoða sem kosn- ingabombu, miðaða við það, að vinna stundarfylgi fólks, sem óttast nýtt stríð og tekur fegins hendi hverri tálvon, sem að því er haldið, um tryggan og varan- legan frið. Hvort Churchill hef- ur reiknað það rétt, að þessi ÞAÐ ER STAÐREYND, að at- vinnuvegir íslendinga eru hættulega einhæfir og snúast að of miklu leyti um fiskveið- ar einar. Þetta verður til þess, að afkoma þjóðarinnar verður háð hættulegum sveifl- um, því að útflutningurinn, og þar með vörumagn, sem flutt er inn í landið, getur breyzt svo gífurlega frá ári til árs eftir fiskaflanum. Ef það verður nokkru sinni hugs- anlegt að gera fiskveiðar að nægilega öruggum atvinnu- vegi til að byggja jafna af- komu á þeim, verður það að minnsta kosti ekki í náinni framtíð. MENN ERU ÞVÍ SAMMÁLA um það, að hér verði, ef þess er nokkur kostur, að rísa upp aðrir atvinnuvegir, er veiti þjóðarbúinu meiri kjölfestu en fiskveiðarnar geta gert. Er þar fyrst og fremst talað um stóriðnað, en til þess að hann nái tilgangi sínum, verð- ur hann að byggjast á innlend- um hráefnum og annað hvort að framleiða útflutningsvöru eða spara stórkostlega inn- kosningabomba verði honum til fylgisauka, skal þó hér alveg ó- sagt látið. En til skamms tíma hefði það áreiðanlega þótt for- spá, að brezka þjóðin teldi Churchill líklegastan til þess að stilla til varanlegs friðar í hinni erfiðu sambúð austurs og vest- urs eftir ófriðinn. ---------—:—------- Nemendasyning leikskóia Ævars R. Kvaran SÍÐASTLIÐINN sunnudag efndi leikskóli Ævars R. Kvar- an til nemendasýningar í Skátaheimilinu. Fyrsta atriðið var upplestur Elínar Ingvarsdóttur og var : gerður að honum góður róm- ur. Þá sýndu tveir nemendur skólans skilmingar, og vakti það atriði mikla athygli, enda er íþróttin sjaldséð hér. Þau Sólveig Jóhannsdóttir og Lúð vík Hjaltason fluttu þátt úr sjónleiknum: ,0g man þá tíð“, eftir Engen 0‘Neill, og þótti þeim mjög vel takast. Að síð- ustu var látbragðsleikur, all- langur, samfylldur þáttur, og fögnuðu áheyrendur honum á- kaft. Mun þetta í fyrsta skipti sem sú grein leiklistar er sýncl sértök hér á viði; hafði Kle- menz Jónsson leikari séð um æfingu á þættinum, en Kle- mens er fastur kennari við skól ann. Þótti nemendasýning þessi vel takast og skólanum til sóma. á laugardaginn ÁRSHÁTÍÐ verkamannafé- lagsins Dagsbrúnar verður á laugardagskvöldið kemur í Iðnó og hefst kl. §,00. Verður þar fyrst sameiginleg kaffi- drykkja, en skemmtikraftar frá „Bláu stjörnunni11 munu ann- ast skemmtiatriði. Síðan verð- ur dans. vantar ungling til .blaðburðar við Laugaveg. Talið við afgreiðsluna. - Sími 4900, ÁlþýðublaðlS Góð hugmynd, sem misíókst fyrir handvömm. En aftur harf að hefjast handa. MARGIR REYKVIKINGAR glöddust yfir því, þegar tilkynnt var, að landsmót í skautakeppni færi fram á Tjörninni. Sýndi það sig líka, að fólk hafði hug á að njóta þessa óvenjulega við- burðar, enda var veður goít og fagurí. á suimudag. Skauta- brautin hafði verið rudd og fægð á sunnudagsmorgun og var hún við Tjarnargötuna, hringmynd- uð. Fólk fór að flykkjast á Tjörnina og á götur í grennd við j hana strax klukkan 1 og er á- í ætlað að allt að 10 þúsundir manna hafi komið á staðinn. FÓLK FLYKKTIST út á ís- inn og var mikil hætta samfara því. Það brast líka og brakaði í ísnum og var hreinasta mildi að hann skyldi ekki alveg bresía sundur og fólkið steypast í vatn ið. Þegar tími sá var kominn, ! þegar mótið átti að hefjast, var l fólkið beðið að fara af braut- inni, en það stóð allmargt á henni sjálfri, en þrengdi auk þess mjög að henni úr öllum átt- um. IíALLAÐ VAR til fólksins í hátalara, en annaðhvort heyrði það ekki í hátalaranum eða það vildi ékki hlýða, því að það fór ekki, en stóð sem fastast. Leið þannig tíminn, að fólkið beið og keppendur biðu og forstöðu- menn mótsins biðu. Beið þannig hver eftir oðrum með beirn áf- leiðingum, að forgöngumenn- irnir hættu loks við að láta mót- ið fara fram, en fólkið tíndist burt. VISSI SVO ENGINN NEITT fyrr en sagt var í útvarpinu um kvöldið, að mótið hefði farið fram. Virðast forgöngumennirn- ir hafa látið einhverja keppend- urna keppa, en þó ekki alla, því að margir þeirra munu ekkert hafa vitað um keppnina eítir að hún gat ekki farið fram klukk- an 2. Svo fór um sjóferð þá. flutning til landsins og minnka þannig útflutningsþörfina. FÉLAG IÐNREKENDA hefur nú skrifað viðskiptamála- ráðuneytinu um mál þetta í sambandi við Marshall aðstoð- ina. Er félagið mjög hlýnnt því, að leitað verði aðstoðar amerískra sérfræðinga, ef þess er kostur, til þess að rannsaka ónotaðar auðlindir landsins. Verður að telja sjálf- sagt að nota slíka aðstoð, í fullkominnj samvinnu við innlenda kunnáttumenn, ef hún stendur til boða, svo að það verði sem fyrst Ijóst, hvaða möguleikar á stóryðju eru fyrir hendi í landinu. IÐNAÐURINN hefur vaxið gíf- urlega hér á landi hin síðari ár. Þessl vöxtur hefur verið mjög ör, og ekki ávallt beinzt inn á heppilegar brautir, eins og iðnaðarmenn sjálfir eru fyrstir manna til að viður- kenna. Ýmis konár smáiðnað- ur, sem hér hefur risið upp, á vafasaman tilverurétt og þrífst hér í skjóli innflutnings haftanna. Hins vegar er megin þorri þeirra iðnfyrirtækja, er hér hafa komizt á fót, hin þarflegustu og mikill vinning- ur fyrir þjóðarbúið. Þetta á að sjálfsögðu við mestallan fiskiðnaðinn, en auk þess við mikinn meirihluta annarra verksmiðja. STÓRIÐNAÐUR, annar en fiskiðnaðurinn, mun byrja að rísa hér á næstu árum.með á- burðarverksmiðjunni og se- mentsverksmiðjunni, en nýja Sogsvirkjunin mun skapa skilyrði fyrir enn frekari verksmiðjurekstri. Allt þetta er gert fyrst og fremst með Marshallaðstoð. En hér þarf önnur og meiri átök til þess að hægt sé að tala um stór- iðju hér, hvað þá útflutnings- iðnað. Rannsókn á möguleik- um slíkrar stóriðju hér er því hin þarfasta og þyrfti að ger- ast í nánustu framtíð. HVAÐA VON hér er á stór- iðju, skal látið ósagt. Vatns- orkan er fyrir hendi, og eng- inn skyldi fullyrða, að hér séu ekkj ófundnar auðlindir. En einskis má láta ófreistað — hér mega engar auðlindir standa ónotaðar. HÉR ER UM HNEYKSLI að ræða. Engin stjórn virðist hafa verið á þessu fyrirhugaða skautamóti. Hins vegar var hugmyndin alveg prýðileg og allmikill viðburður og upplyft- ing í viðburðasnauðu lífi bæjar- búa. Forgöngufólkið hefði þegar um morguninn átt að setja verði við brautina og láta þá gæta hennar og segja fólkinu hvar það mætti vera. Það hefði líka átt að hafa þarna betri hátalara en raun var á, því að margir hafa fullyrt við mig, að þeir hafi alls ekki heyrt neina beiðni um það að víkja frá. En fyrst allt þetta mistókst, áttu for- göngumennirnir vitanlega að fresta mótinu, og ekki halda það aftur með leynd seinna úm dag- inn. Segja má.því að hver silki- húfan hafi verið uþp af armarri. ÞAÐ VAR MJÖG leiðinjegl að þetta skyldi mistakast. Hér var brotið upp á mjög skemmti Iegri nýjung. Hér var hafinn góður og gagnlegur siður, sem hefði átt að geta oröið langlifur. Allt mistókst fyrir haudvömm, En allir vænta þess að forgöngu mennirnir hefjist aftur handa og hafi þá allan undibrúning betri. Hannes á horninu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.