Alþýðublaðið - 11.05.1950, Síða 1

Alþýðublaðið - 11.05.1950, Síða 1
^eðurSiorfurs Sunnan og suðvestan kaldi eða stinningskaldi. Þykkt loft og rigning eða súld öðru livoru. Forustugreln: Tólf stunda hvíld á togurura. 7 f; XXXI. árgangur. Fimmtudagur 11. maí ’950. 104. tbl. jarn- og Frakka og Þjóð- verja sameinaður? ROBEST SCHUMAN, utan- l'íkisráðherra Frakka, hefur lagt fram tillögu um að sam- eina járn- og stáliðnað Þýzka- lands og Frakldands undir eina alþjóðlega stjórn. Með þessu mundu hinar niiklu kolanámur Þjóðverja og hinar auðugu járnnámur Frakka komast undir eina stjórn, og aldahvörf verða í iðnaðarþróun Vestur- Evrónu. Tillaga þessi hefur vakið geysilega athygli og er mikið um hana skrifað í blöðum um alla vestanverða álfuna. Yfir- Ie:tt taka blöð hægri flokkanna tiilögunni með fögnuði og telja hana boða stórt skref í fram- farasögu beggja landa. Blöð sósíalistaflokkanna taka hins vegar aðra afstöðu til málsins. Jafnaðarmenn í Frakklandi og Þýzkalandi bend á, að slík sam- eining mundi verða auðvalds- ráðstöfun, sem mundi skapa sterkara auðvald og sterkari völd yfir mikilvægum iðnaði. Þau te\í aþetta því aðeins fram kvæmanlegt, að verkalýðurinn fái mikla íhlutun í þessum mál- tun ölsk líra skráð hér bráðlega ÍTÖLSK LÍRA verður mjög bráðlega skráð hér, að því er Björn Ólafsson viðskiptamála- ráðherra skýrði frá á alþingi í gær, en landsbankinn hefur enn ekki treyst sér til að skrá gengl lírunnar síðan gengis- lækkunarlögin tóku gildi. Gylfi Þ. Gíslason spurðist fyrir um þetta á þingi í gær, og skýrði Útvarpsræða Stefáns Jóh. Stefánssonar í gærkveldi: unin veldur slórfeildri dfrfí Gengislækkunin í framkvæmd: SKATTAR OG TOLLAR verða á þessu ári 32 milljón- um króna meiri en áætlað var, þegar fjárlögin voru upp- haflega samin í fyrraliaust. í gær lagði fjárveitinganefnd . fram áætlun um tekjur ríkissjóðs þetta ár, og er það í rau:i og veru skrá yfir þá skatta, sem ríkisstjórnin gerir rá'J fyrir að fá greidda á árinu. Vörumagnstollur lækkar úr 23 milljónum í 21 milljón. Þetta þýðir það, að stjórnin býst við minni innflutningi til landsins. Verðtollur hækkar liins vegar um 20 milljón- ir, úr 58 í 78 milljónir, þrátt fyrir minnkaðan innflutning, og stafar þessi gífurlega hækkun af því, að verðlag vör- unnar stórhækkar við gengislækkunina. Þá lækkar bif- reiðaskattur um milljón, en söluskatturinn hækkar um 11,5 milljónir, úr 36 milljónum í 47,5 milljónir. Loksins er gert ráð fyrir því, að tekjur af Áfengisverzlun ríkis- ins hækki um 4 milljónir, en ekki er útskýrt, hvort það boðar hækkyn áfengisveivlsms. Þannig eru efndirnar á loforðunum um að gengislækk- unin mundi losa þjóðina við skatta og tollabyrðina. í stað þess hefur gengislækkunin í för með sér 32 milljóna skatta- og tollahækkun ofan á hina gífurlegu vérðhækk- un á öllum hlutum, sem almenningur verður að greiða. frá því, að þegar hefði verið búið að lækka krónuna gagn- vart líru fyrir gengislækkun- ina, þar sem hún var seld á 2,245 aúra í stað 1,5 eyris. Ekki mun ákveðið hvernig hún verður nú skráð. hafi græft 1 nnir, að Kveld milljón á mjö" MORGUNBLAÐIÐ brást mjög reitt við frásögn Al- þýðublaðsins af stórgróða Kveldúlfs af sölu á síldar- mjöli eftir gengislækkun- ina. Þó kemst blaðið ekki hjá því að viðurkenna, að Kveldúlfur hafi flutt út eftir gengislækkunina síld- armjöl og því grætt veru- lega á því, þótt blaðið við- urkenni ekki, að magnið hafi verið eins mikið og Al- þýðublaðið hélt fram. Morgunblaðið viðurkenn- ir, að Kveldúlfur hafi átt og flutt út eftir gengiskekk unina 500 lestir af mjöli. Verð á þessu mjöli, sem átti að fai’a á innanlandsmark- að, var 1005 kr. hver smá- lest. Hins vegar mun verð á útflutta mjölinu hafa ver- ið 70 sterlingspund eða 3061,90 kr. á smálest. Ef dregið er frá útflutnings- gjald og annar kostnaður, má áætla gróða Kveldúlfs 2000 kr. á smálest eða 1 000 000 kr. fyrir þær 500 lestir, sem Morgunblaðið gengst við. Morgunblaðið getur ekki rakað þessa staðreynd af andliti Kveldúlfs, þótt það hefði beztu sænsk rakvéla- blöð til afnota. Blaðið hefur viðurkennt gengislækkun- argróða kr. 1 000 000, og hver veit hve miklu allur gróðinn er, ef/allt vífri upp íýst? Kostnaður við utan- er nú 4706800 UT ANRIKISÞ J ONU ST AN kostar nú rúmlega helmingi meira en fyrir gengislækknn- ina, að því er fram kemur í til lögum fjárveitinganefndar varðandi þetta atriði. í fjárlög um, eins og þau verða nú af- greidd, er kostnaður utanrík- isþjónustunnar áætlaður 4 706 800 krónur, og er hað 2 270 000 hærra en áætlað var síð- P.st liðið haust. Hafa öll sendi- ráðin hækkað stórkostlega, ferðakostnaður fer úr 75 000 í 125 000, kostnaður við samn- inga við önnur ríki og þátttöku í alþjóða ráðstefnum fer úr 500 000 í 1 100 000 o. s. frv. Sendiráð íslands í Moskvu er nú áætlað 650 000 kr. Upp- haflega fór utanríkisráðherra fram á 900 000 kr., en fjárveit- inganefnd mun hafa tekið illa í svo háa upphæð, og var að lokum sætzt á a ðláta sendiráð ið komast af með 650 000, en þetta sendiráð er eftir sem áð- ur langdýrasta sendiráð lands- ins. Myndun núverandi ríkisstjórna var stórt skreí til hægri í íslenzkum stjórnmálum MYNDUN NÚVERANDI RÍKISSTJÓRNAR var mikið skref til hægri í íslenzkmm stjórnmáluim og hafa ráðstafanir stjórnarinnar orðið til þess að koma af stað stórfelldri dýrtíð í landinu, án þess að reynast nokikur bjargráð fyrir þá, s:em þær áttu að bjarga, sagði Stefán Jch. Stefánsson í skefeggri ræðu, er hann flutti í út- varpsumræ ðunum í gærkvöldi. Stefán sýndi fram á það, hver áhrif gengislækkunin hefur þegar haft, gerði grein fyrir andstöðu Alþýðuflokksins við þessar ráðstafanir og deildi mjög harðlega á hinar íhalds- sömu aðgerðir núverandi stjórnar. Stefán Jóhann end- aði ræðu sína á því áð segja, að þröngsýni og íhald mundi ekki verða við völd að eilífu í þessu 'landi, frjáls lyndi og framfarir imundu aftur taka við og þá mundi aftur morgna. Stefán sýndi fram á, að geng islækkunin hefði alls ekki reynzt sá alladínlampi, er lýsa mundi þjóðinni fram á veg, eins og sjálfstæðismenri lýstu fögrum orðurn, er ráðstöfun þessi var lögfest. Reyndin hefði hins vegar orðið stór- íelld hækkun á verðlagi lífs- nauðsynja almennings, en eng ar uppbætur hefðu komið þar A móti og það hefði reynzt rétt, sem alþýðuflokksmenn sýndu fram á, að hin nýja vísitala gæfi hvergi nærri rétta mynd af verðlaginu. Þá lýsti Stefán Jóhann því, hverja áherzlu fram- sóknarmenn hefðu lagt á nauðsynlegar hliðarráðstaf- anir með gengislækkuninni. Sýndi hann fram á, að svo til engar slíkar ráðstafanir hefðu verið settar í gengis- lækkunarfrumvarpið og síð an hefði hver máttarstoð þessara hliðarráðstafana á fætur annarri fallið á al- þingi. Mörg dæmi um íhaldsstefnu ríkisstjórnarinnar nefndi Stef- án Jóhann, og rakti hann með- al annars Björgvinshneykslið fræga, er stjórnin hefur veitt landflótta ævintýramanni út- flutningsleyfi fyrir fjórum skipum og að auki veiðarfær- um fyrir hundruð þúsunda króna. Stefán Jóhann taldi upp nokkur af þeim umhótamálum, sem þingmenn Alþýðuflokks- ins liefðu borið fram á alþingi, tii stjórnarflokkarnir hafa nú sameinazt um að svæfa eða drepa. Hann minntist á breyt- tngar á almannatryggingalög- unum, alþýðunni til hagshóta, frumvarpið um útvegun fjár íil bygginga verkamannabú- staða, frumvarpið um öryggi á vinnustöðvum og tillögur og frumvörp um liækkun á per- sónufrádrætti hinna lægst launuðu.' Oll þessi umbótamál hindra stjórnarflokkarnir á þingi. Slíkur er hugur þeirra til umhótamála alþýðunnar. Eldhúsumræðurnar hófust í gærkvöldi með einni umferð, 40 mínútna ræðutíma fyrir hvern flokk. Kommúnistar töl- uðu fyrstir, þeir Áki Jakobs- son og Ásmundur Sigurðsson. Þá talaði Stefán Jóhann fyrir Alþýðuflokkinn. Framsóknar- menn höfðu þriðja ræðutím- Framhald á 8 síðu. Emil, Haraldur og Finnur tala í um- ræðunum í kvöld IRAMHAI.D á útvarps- umræðum frá alþingi hefst kl. 8.15 í kvöld. Af liálfu Al- þýðuflokksins tala þá Emil Jónsson, Haraldur Guð- mundsson ðg Finnur Jóns- son. Ræðuumferðir verða þrjár, 25, 15 og 10 mínútur, og er röð flokkanna þessi: 1. Sjálfstæðisflokkur, 2. komm únistaflokkur, 3. Alþýðu- flokkur og 4. Framsóknar- flokkur.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.