Alþýðublaðið - 23.08.1950, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 23.08.1950, Qupperneq 8
LEITIÖ EKKI GÆF- UNNAR langt yfir skammt; kaupið miða í bifreiðahapp- drœtti Sambands ungra jafnaðarmaima. — ALÞfÐUFLOKKSFÖLKI Takið höndum saman viH unga jafnaðarmenn og að- stoðið við sölu happdrætti® miða í bifrciðahappdrættS Sambands ungra ja£naðar> manna. [ Miðvikudagur 23. ágúsí 1950 nnsiilin ii! Knulh AthafnasvæSi, er nægir fjórym báíum, í uociirbúoiiigi þar á höfninni. LOKIÐ VAR VIÐ AÐ SPRENGJA upp klöppina í rásinni inn í hópið í Grindavík á laugardaginn var. Er nú tíu feta dýpj í rásinni allri, og geta G0 tonna bátar siglt þar inn um stór- sfcraumsfjöru. Gerð 80 metra langs athafnasvæðis, er nægja inan fjórum bátum, er nú í undirbúningi inni í hópinu. Rásin inn í hópið er um 250 metra löng. Var unnið að því í vetur og líka í vor að dýpka hana með dýpkunarskipinu Gretti svo að 12 feta dýpi yrði í henni um stórstraumsfjöru. A 20 metra löngum kafla var klöpp, sem sprengja þurfti, og var í fyrstunni ráðgert, að-gera þar sama dýpi og' annars staðar í rásinni, en frá því var horfið í bili, sakir þess að ekki var völ á nægilega löngum borum. Hefði þurft til þess 18—20 feta langa bora, en þeir fengust ekki lengri en 16 feta. Um 7 feta dýpi var áður á klöppinni. Grjótið, serr; upp kom við sprengingarnar, var sumt notað í uppfyllingu inni í hópinu, og sumt flutt út á haf. Pétur Sigurðsson hefur að undanförnu unnið að því að mæla og kortleggja innsigling- una og víkina fram af henni á mælingaskipinu Tý. FraiasSiaid af 1. síðu. hinn fræga konubát, sem var sagaður sundur til flutnings, en verður settur saman á ný > þjóðminjasafninu í Höfn. Leiðangu rsmenn áttu við hina mestu erfiðleika að stríða á Grænlandi, frosthörkur svo miklar hina dimmu vetur, að úr þeirra frusu föst, hundarnir átu hverjir aðra, og lengi gátu þeir lítið hreyft sig vegna óveð urs. Á sumrin fóru þeir ýmsar leiðangursferðir, endurbættu landakort, gerðu margs konar veðurathuganir, jarðfræði- og landafræðirannsóknir og loks fornleifarannsóknir. Þeir heyrðu jólakveðjur, sem endur- varpað var af íslenzkri útvarps- stöð og héldu upp á jólin með því að kveikja bálköst og fögn- uðu þá ekki síður vetrarsól- hvörfum en hinum kristnu jól- um. Enda þótt flugvélar fljúgi nú oft í viku hverri yfir norður- pólinn, var þetta leiðangur m.eð gamla sniðinu, ef til vill hinn síðasti, enda þótt 3?ngi verði á Grænlandi óleystar gátur, sem ekki verða leystar nema af manni, sem ferðast inn á jöklana með hundasleða. Vörusýning í Bergen vor Á VORI KOMANDA verður vörusýning í Bergen, og mun ísíand eiga kost á því að eiga hlutdeild að sýningunni. Þá hefur utanríkisráðuneytið til- kynnt Reykjavíkurbæ um sýn inguna, og telur bæjarráð æski legt, að þátttaka verði í sýning unni af hálfu Reykjavíkurbæj- ar. Jafnframt hefur bæjarráð falið forseta bæjarstjórnar að eiga viðræður við þá aðila, sem helzt koma til greina um þátt- töku. Skipulagsuppdrátf- ur gerður af Tjarn- BÆJARRÁÐ hefur falið for stöðumanni skipulagsdeildar bæjarins að gera heildarskipu- lagsuppdrátt að Tjarnargarð- inum í samráði við garðyrkju- ráðunaút, frámkváemdástjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur og leikvallanefnd bæjarins. Rannsöknarlög- regluna vantar vilni úi af áreksiri Á MÁNUDAGSMORGUN - INN kl. 9—10 var fólksbifreið- inni R 1506 ekið niður Lauga- veginn, en á undan henni ók vörubifreið og beygði hún upp Frakkastíg. Þegar bifreiðin beygði, mætti hún annarri bif- reið á Frakkastígnum, og lét bifreiðarstjórinn á vörubifreið- inni hana þá renna ofurlítið aftur á bak, en við bað rakst hún utan í fólksbifreiðnia R 1506. Rannsóknarlögreglan bið- ur bifreiðarstjórann á vörubif- reiðinni að koma til viðtals. dagur logara- verkfallsins í DAG er 54. dágur tog- araverkfallsins og 13. dagur- inn síðan sóttasemjari kall- aði deiluaðila á fund síðast til að reyna að leysa dailuna, í dag er 54. dagurinn, sem ríkisstjórnin lætur sem hún viti ekki af verkfallinu, enda þótt hún hljóti að hafa beztu aðstöðuna til að leysa verkfallið og sen^ togarana út á ný. í dag er 54. dagurinn, sem komúnistar standa frammi fyrir alþjóð afhjúpaðir sem verkalýðssvikarar. Þeir berj ast ekki við gengislækkun- arstjórnina. Þeir berjast ekki við útgerðarauðvaldið Nei, þeir berjast gegn Sig- urjóni & Co., en þetta Co. eru togarasjómenn, sem eiga í sanngjarnri kjaradeilu og munu vinna hana, þrátt fyr- ir svik kommúnista. Smyglvörur enn gerðar upptækar í Tröllafossi ENN A NY hafa fundizt smyglvörur í Tröllafossi. I síð- ustu viku, er skipið kom til Reykjavíkur, gerðu tollverðir upptækan ýmis konar varning, sem ekki hafði verið gefinn upp til tolls, og játuðu tveir skipsménn að vera eigendur varningsins. Meðal varnings þess, er toll- verðirnir fundu, voru allmiklar birgðir af nylonsokkum, lind- arpennar, blyantar, kúlupenn- ar og tyggigummí. Skipverjarnir, sem játuðu á sig að eiga þessar vörur, hafa nú verið dæmdir; hlaut annar 5000 króna sekt, en hinn 4000 króna sekt. Tvö heimsmet í frjálsíþróttum: Fuchs 17,95 og Rodin 45,8 TVÖ HEIMSMET voru sett á frjálsíþróttamóti í Eskilstuna í Svíþjóð í gærkvöldi. Jamaica maðurinn Rodin hljóp 400 m. á 45,8 sek, en fyrra heimsmet ið var 45,9 og átti það landi hans, MacKinley. Þá kastaði Ameríkumaðurinn James Fuchs kúlu 17,95 m. og bætti þar með met það, er hann sjálfur setti á sunnudaginn um 4 sm. Af öðrum árangri á mótinu má nefna, að LaBeach vann 100 m. á 10,6 og 200 m. á 21,5 sek. Á öðru móti í Svíþjóð hljóp MacKenley 400 m. á 47,6 sek. Frá Briissel fréttist, að ung- verski flokkurinn komist ekki til Belgíu og muni heimsmeist arinn í sleggjukasti, Nemeth, því ekki keppa. Rúmensku kepp endurnir voru ekki komnir til Brússel. í gær lögðust æfingar niður vegna mikilla rigninga. Á Eúrópumeistaramótinu sundi í Vín vann Júgóslavía ít alíu með 9:7 í sundknattleik, en Svíar hafa unnið Svisslend- inga 12:1. örænmefisframleisian hér meir sumar en nokkru sinni fyrr -----j Aukin rækton og uppskeran óvenju góó. MEIRI GRÆNMETISFRAMLEIÐSLA liefur verið hér £ sumar en "nokkru sinni fyrr, enda hefur uppskeran verið ó- venju góð. Gróðurhúsin liafa líka verá) aukin og sjálf græn- metisræktunin látin sitja í fyrirrúmi fyrir hlómaræktinni.. Grænmetisneyzla almennings hefur farið mjög í vöxt síðusta árin og náði hámarki í sumar, enda eru sumar tegundir græn- metis nú með lægra verði en verið hefur þrátt fyrir hækkandi verðlag á öðrum sviðum. upplýsingum* “ Samkvæmt sem Alþýðublaðið hefur fengið hjá skrifstofu Sölusambands garðyrkjumanna, hefur græn- metisframleiðslan aldrei náð þvílíku magni sem á þessu sumri. Stafar það af tvennu: ó- venju góðri uppskeru og auk- inni grænmetisrækt. Margir gróðurhúsaeigendur hafa álitið það hagnýtara að framleiða grænmeti til manneldis, held- ur en skrautblóm, og því dreg- ið úr blómaræktinni en lagt meiri áherzlu á ræktun græn- metisins. Verðlag á grænmeti er nú lægra en bað var í fyrrasumar, að minnsta kosti á sumum teg- undum, t. d. hvítkáli og tómöt- um. Fyrst á vorin og framan af sumrinu, meðan framleiðslan svarar tæpast eftirspurn, er verðið hæst, en lækkar svo þeg- ar líður á sumarið, og kostar hvítkálið nú t .d. ekki nema 2 kr. kílóið á móti 7 krónum fyrst í vor. Tómatar hafa einnig lækkað í verði og kosta nú 6 kr. kílóið af öðrum flokki og 10 krónur kg. í fyrsta flokki. Til samanburðar má geta þess, að á sama tíma í fyrra var tó- mataverðið 7 kr. í öðrum flokki og 13 krónur í fyrsta flokki. Búizt er við, að þetta verð hald- ist sumarið og haustið út eða fram í desember, er grænmet- isframleiðslunni lýkur að þéssu sinni. Grænmeti mun þó væntán- lega fáanlegt allan veturinn, en fyrir tveim árum var tekin hér upp frysting á grænmeti, og hefur hún gefizt mjög vel Þegar sumarframleiðslan er mikil, eins og nú hefur verði, má búast við því. að hægt verði að frysta það mikið mr.gn af grænmetistegundunum eins og t. d. hvítkáli. að nógar birgðir verði yfir veturinn. Atllee kallar sam- an fund flokksleiðloga CLEMENT ATTLEE, for- sætisráðherra Breta, hefur kall- að 24 leiðtoga jafnaðarmanna á fund í London, og koma þeir saman í dag til að ræða land- varnamálin. Attlee hefur hætt við að fara í sumarfrí. 1 fliniii sóiarfirlnia if ENGIN SÍLD hefur borizt á land norðan lands síðustu f imm sólarhringa, og heíur alitaf verið vonzku veður. í gær birtl til og lægði, og síðdegis var komið bezta veður. Bátarnir„ sem allir höfðu legið í höfn, lögðu þá af stað út á miðin, en engár fregnir um veiði höfðu borizt, er blaðið átti samtal viði fréttaritara sinn á Siglufiroi í gærkvöldi. Fanney komin að norðan FANNEY, skip síldarútvegs- nefndar, sem nú á að hefja síld- arleit og tilraunir með nýjum gerðum af vörpum, er komin. til Reykjavíkur og mun hefja veiðitilraunir innan skamms. Skipið mun enn ekki vera byrjað síldarleitina. Jafnframt cíldarleitinni mun Fanney eiga. að gera tilraunir með ýmsar nýjar gerðir af síldarvörpum. Ókleifi að sælta í DIXON, sáttasemjari sam- einuðu þjóðanna í Kashmir- deilunni, hefur sagt í Karachi, að þýðingarlaust sé að reynæ frekar að sinni að miðla mál- um milli Indverja og Pakistan.: Hann mun því hverfa til Laka Success og- ekki dveljast lengutí í Indlandi. Thorvaldsensiélagið sækir um lóð fyrir vöggusfofu i THORVALDSENSFÉLAG- IÐ hefur farið þess á leit viðf bæjarráð, að það fái lóð fyriþ væntanlega vöggustofu við Laugarásveg. Bæjarráð heíur* vísað málinu til barnaverndar- nefndar til umsagnar.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.