Alþýðublaðið - 25.08.1950, Síða 4

Alþýðublaðið - 25.08.1950, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Fösíudagur 25. ágúst 1950. tltgefandi: Alþýðufiokkuriim. Ritsíjóri: Stefán Fjetursson. Fréttastjóri: Benedikt Gröndal. Þingfréttir: Helgi Sæmundsson Ritstjórnarsímar: 4901, 4902. Auglýsingar: Emilía Möllér. Auglýsingasími: 4906. Afgreiðslusími: 4900. Aðsetur: Alþýðuhúsið. Aiþýðuprentsmiðjan h.f. fogarasjdmenn SKRIF ÞJÓÐVILJANS og framkoma kommúnista öll í sambandi við verkfallið á tog- urunum varpar einkar skýru Ijósi á alvöruna og heilindin, eða hitt þó heldur, sem verið hefur í hinum háværa áróðri kommúnista undanfarið fyrir lengingu hvíldartímans á tog- urunum. í hart nær fjögur ár, eða síð- an þeir hrökkluðust úr stjórn Ólafs Thors, hafa kommúnist- ar þótzt hafa hinn mesta áhuga á því, að hvíldartíminn á tog- urunum yrði lengdur upp í tólf klukkustundir á sólarhring. Ár- lega hafa þeir verið með frum- varp til laga um þetta á al- þingi og brigzlað öllum öðrum, og þá ekki hvað sízt Alþýðu- flokknum, um svik við togara- sjómenn, af því að þetta frum- varp hefur ekki náð fram að ganga. Hefur Alþýðuflokkur- inn þó lagt sig í framkróka til þess að ná samkomulagi um málið við borgaraflokkana; en öðruvísi verður því ekki tryggt meirihlutafylgi á alþingi, eins og það er nú skipað. Síðast í vor hindruðu báðir borgara- flokkarnir enn á ný framgang frumvarpsins, þrátt fyrir sam- stöðu alþýðuflokksmanna og kommúnista um það á alþingi; og létu talsmenn borgaraflokk- anna þá svo um mælt, að eðli- legast væri, að þetta mál yrði út kljáð utan þings, með samn- ingum, af útgerðarmönnum og sjómönnum. Hafði Þjóðviljinn þá stór orð um slíka afgreiðslu málsins og gaf mjög ótvírætt í skyn, að nú skyldi ekki standa á því, að það yrði út kljáð utan þings. * Nú er þetta mál, lenging hvíldartímans á togurunum upp í tólf stundir á sólarhring, sem kunnugt er vin .af aðalkröf- um sjómannafélaganna í^verk- fallinu- á togurunum. Og hvað kemur í Ijós? Þjóðviljinn skrifar dag eftir dag svívirðingar um sjóman.na- félögin í sambandi við þetta verkfall. Og þar sem kommún- istar máttu því við koma, þ. e. í sjómannafélögunum á Akur- eyri og á Norðfirði, þar sem þeir fara með stjórn, hafa þeir gerzt hreinir og beinir verk- fallsbrjótar! Þeir höfðu þar, eins og annars staðar, heitið því á sjómannaráðstefnunni í Reykjavík síðastliðinn vetur, að hafa samflot við öll önnur sjómannafélög á landinu, í því skyni að knýja fram kröfur sjó- manna á togurunum á þessu sumri; en þegar togaraverkfall- ið er að hefjast í júlí, skearst þeir á síðustu stundu úr leik á Akureyri og á Norðfirði og láta togarana þar halda áfram veið- um, þ. e. a. s. karfaveiðum, og semja meira að segja á Akur- eyri sérstaklega um það, að fækka megi á skipunum um fjóra menn á meðanjþæf veiðar standi! Þetta er þá stuðningur komm únista, þegar til kemur, við verkfall togarasjómanna, við kjarabótakröíur þeirra yfirleitt og við kröfuna um tólf stunda hvíld á togurunum sérstaklega, þegar fyr'st er reynt að knýja hána fram utar. þlngs! ger- ast þessir miklu áhugamenn um lengingu hvíldartímans á togurunum blátt áfram verk- fallsbrjótar og skrifa blað sitt, Þjóðviljann, þannig, að engu er líkara en að það sé orðið málgagn útgerðarmanna á móti togarasjdmönnum! * Svo kemur Þjóðviljinn í gær og spyr hvers vegna Jón Axel Pétursson hafi ekki enn kveðið upp úrskurð um það, að tólf stunda hvíld á sólarhring skuli tekin upp á togurum Bæjarút- gerðar Reykjavíkur?!! í sambandi við þessa spurn- ingu lýgur Þjóðviljinn því upp, að Norðfjarðartogararnir hafi þegar „tekið upp tólf stunda hvíld“, og lætur eins og það standi nú helzt ekki nema á Jóni Axel, að sá hvíldartími verði viðurkenndur yfirleitt á togaraflotanum! Sannleikurinn er hins vegar sá, að tólf stunda hvíld hefur eklji verið „tekin j upp“ á neinum togara enn. Hún ; hefur aðeins verið reynd á nokkrum togurum í einni veiði- för, fyrst af einum bæjartogar- anum í Reykjavík, svo sem i tilraunaskyni; og Norðfjarðar- togararnir urðu einna seinastir til þess að gera það. Það má og hverjum manni augljóst vera, einnig kommúnistum, að það er alls ekki á valdi Jóns Axels, sem er aðeins annar af tveimur framkvæmdastjórum Bæjarút- gerðar Reykjavíkur og hefur þar að auki yfir sér útgerðar- ráð, að úrskurða tólf stunda hvíld á togurum þess fyrirtæk-. is. Það verður að berjast fyrir því, að fá slíka lengingu hvíld- artímans _ á togurunum. yiður- kennda! En þá baráttu hafa kommun- istar nú blygðunarlaust svikið, af því að málið er ekki lengur í þeirra höndum og það var þeim aldrei neitt annað en flokkslegt áróðursmál. Þeir hafa skorizt úr leik í verkfalli togarasjó- manna, sem meðal annars hef- ur tólf stunda hvíld á togurun- um að markmiði, og ráðizt sem verkfallsbrjótar að baki þeim. Og yfir slíkt æruleysi sitt eru kommúnistar svo að reyna að breiða með alls konar þvætt- ingi eins og þeim í Þjóðviljan- um í gær, hvers vegna Jón Ax- el sé ekki búinn að úrskurða tólf stunda hvíld á togurum Bæjarútgerðar Reykjavíkur! Þeim væri skammar nær að standa nú sjálfir við öll stóru orðin, sem þeir eru búnir að hafa um þetta velferðarmál togarasjómanna! Skemmtilegir leikir. — Híaði og "giæsimennska. — Fátt um beliibrögS. — Þurfum við fleiri dæmi? -— Hvað á fólk að ?erar sem týnir skömm tunarm iðum ? Barn býður bana í bílslysi í Kefíavík ÞAÐ SVIPLEGA SLYS varð í Keflavík á miðvikudaginn, að eins árs gamalt barn varð fyrir börubifreið og beið bana. Faðir barnsins er Ragnar Jóns son verkamaður. ÉG HELD, að ekki hafi sést hér eins skemmtilegir knatt- spyrnukappleikir og Ieikirnir undanfarna daga við Þjóðverj- ana, hvernig sem á því stendur. Kappieikirnir hafa verið fjör- ugir, hraðir og gersnevddir „trikkum“, eins og sumir knatt- spyrnumenn kalla það þegar Ieikmenn bsáta bolabrögðum og leynilegum, í rann og veru ó- Iöglegum, brögðum. HRAÐINN var það, sem mesta athygli vakti við þessa leiki, ekki eingöngu hraði hinna erlendu leikmanna, heldur og hinna íslenzku. Og þar sáum við a'ð okkar piltar stóðust hinum erlendu ekki snúning. Skipting ar Þjóðverja voru miklu örari og vissari en okkar pilta. Það hlýtur líka að hafa vakið at- hygli, hve örsjaldan Þjóðverj- arnir notuðu þá leikaðferð að bjarga sér úr hættu með því að sparka knettinum ú rleik, en það hefur alltaf þótt hýimleiður leikur, en þó nokkuð algengur, og setti alveg sérstakan blæ á Frumherji9 sem nú gengur í harndóm ÞAÐ ER ALKUNNUGT, að margir gamlir menn ganga í barndóm og sumir fyrir ald- ur fram. Guðbrandur Magn- ússon forstjóri virðisí vera einn þeirra. Hann er að vísu kvikur á fæti og hress í tali. En ræðan, sem hann flutti á samkomu Framsóknarmanna norður á Blönduósi í þessum mánuði og birtist í Tímanum í gær, ber því vitni, að sem stjórnmálamaður gengur hann nú í barndómi. Hann getur ei að þessu gert, og þessi stað- reynd haggar að sjálfsögðu ekki hætis hót þeirri stað- reynd, að Guðbrandur er góð- ur maður og merkur á sína vísu. SNEMMA í RÆÐU SINNI minnist Guðbrandur „hinna tveggja gáfuðu og glæsilegu foringja Framsóknarflokks- ins“, Jónasar Jónssonar og Tryggva Þórhallssonar. En þetta er ónærgætnislegt bæði við Framsóknarflokkinn og hina áminnztu fyrrverandi foringja hans. Tryggvi var hrakinn úr Framsóknar- flokknum af Jónasi og sam- herjum hans. Síðar var Jón- as hrakinn úr flokknum af Hermanni og samherjum hans. Framsóknarflokkurinn hefur þannig tvisvar sinnum risið upp gegn skapara sín- um. En Guðbrand dreymir, að hann lifi enn á náðartíma- bili Tryggva og Jóna-sar! NOKKRU SÍÐAR slær Guð- brandur fram þeirri staðhæf- ingu, ag stefna Framsóknar- flokksins sé ekki aðeins póli- tísk stefna — hún sé lífs- skoðun! Áður hefur sam- vinnuhreyfingin fengið þann vitnisburð, að hún sé sam- búðarhættir, þar sem ein- staklingsframtakið njóti sín eðlilega og hinn minnsti bróðir búi við hinn fyllsta rétt! Auðvítað á einnig þetta að vera lofsöngur um Fram- sóknarflokkinn. Svona tala viðkvæmir hugsjónamenn, sem annaðhvort ganga í barn- dómi eða hafa aldrei áttað sig á lögmáli þróunarinnar, og þó segist Guðbrandur trúa á erfðalögmálið! Hinn minnsti bróðir getur ekki búið við hinn fyllsta rétt, ef einstak- lingsframtakið nýtur sín eðli- lega, enda eru þess engin dæmi í veraldarsögunni. Og stefna Framsóknarflokksins er hvorki pólitísk stefna né lífsskoðun. Hún er henti- stefna, enda hefur flokkur- inn sagt skilig við bernsku- sjónarmið sín oft og iðulega og miklu oftar en hann hefur skipt um foringja í innan- flokksstyrjöldum. Framsókn- arflokkurinn er sama fyrir- bærið og hinir tækifæris- sinnuðu miðflokkar nágranna landanna. Og Hermann Jón- asson er leiðtogi flokksins í dag af því að hann er stefnu- laus og hugsjónasnauður. Fyrrum átti þó Framsóknar- flokkurinn gáfaða og glæsi- lega foringja, þó að þeir væru misvitrir. En þá var hann út, og nú er hann viðundur ver- aldár. ÞAÐ ER ATHYGLISVERT, að Guðbrandur Magnússon flyt- ur ræðu sína á þeim tíma, þegar Framsóknarflokkurinn er í flatsæng með íhaldinu. Kjör fólksins eru skert. Bölv- un atvinnuleysisins er kölluð yfir þjóðina. Stórvirkustu at- vinnutækin eru ónotuð. Þann- ig farnast Framsóknarflokkn- um, þegar Guðbrandur gefur honum þann vitnisburð, að hann búi hinum minnsta bróður fyllsta rétt. En hitt er skylt að taka fram, að vafa- laust segir Guðbrandur þetta af allt öðrum ástæðum en Tíminn, þegar hann flytur lesendum sínum sömu blekk- * ingu. Guðbrandur veit ekki betur, af því að hann dvelst í hillingalöndum þeirrar for- tíðar, þegar Framsóknar- flokkurinn var enn á æsku- skeiði. En skriffinnar Tímans hafa gengið í þjónustu flokks- ins á afbrotatímum hans. Þeir eru skuggabörn, sem aldrei hafa séð morgunroðann. Og þeir eru gerólíkir Guðbrandi af því að þeir halda fram þvi, sem þeir trúa ekki sjálfir. MÁLGAGN FRAMSÓKNAR- FLOKKSINS hefði ekki átt að birta ræðu Guðbrandar. Það er ljótur hrekkur við frumherja, sem nú gengur í barndómi. En fyrst ræðan hefur birzt á prenti, er ástæða til þess að vekja athygli á henni við alla þá, sem vilja kynna sér, hvernig Framsókn- arflokkurinn átti að verða a6 dómi viðkvæmra hugsjóna- manna. Svo geta þeir borið saman drauminn og reymsl- una. Það er lærdómsríkur samanburður. Ieik Englendinganna, sem hing- að komu einu sinni. MÖRG ERLEND knattspyrnu lið hafa komið hingað í sumar, og að ég held aldrei eins mörg. Þetta er gott og gagnlegt fyrir unga íþróttamenn, og þá ekki síður þegar erlendar þjóðir sækja hingað til keppni í frjáls- um íþróttum. Enda sanna dæm- in þetía. Nú skara ungir íslend- ingar fram úr í ýmsum íþrótía- greinum — og er það furðulegt um svo fámenna þjóð, hve marga afreksmenn hún á. SAGT VAR í blaði, að sá maður fyrir austan járntjald, sem skarar fram úr í kúluvarpi, gæti ekki fengið að keppa á Ev- rópumeistaramótinu í Brússel vegna þess að hann fengi ekki fararleyfi, en það stafaði af ótta Rússa við það, að íþróttamaður- inn vildi ekki fara aftur til síns beimalands, en hann er Eistlend ingur. Þurfum við frekar vitn- anna við um að eitthvað sé bog- ið við stjórnarfarið í ríki, sem hagar sér þannig? HVERNIG Á FÓLK að fara að, sem týnir skömmtunarmið- um sínum? Ég spyr að 'gefnu til- efni. Kona týndi öllum skömmt- unarmiðum heimilis síns. Hún sneri sér til skömmtunarskrif- stofu bæjarins, en skrifstofu- fólkið vísaði henni á skömmtun- arskrifstofu ríkisins. Starfsfólk þar vísaði á skömmtunarstjóra ríkisins, en hann neitaði alveg að láta konuna fá nýja miða. NÚ VEIT ÉG EKKI hvort fjölskyldan ,getur lifað þetta skömmtunartímabil út. En það væri heldur engin björgun, því að ef hún fær ekki nýja sjofna, fær hún enga miða heldur við næstu úthlutun. Fjölskylda kon unnar er því rekin úr þjóðfé- laginu fyrir fullt og allt. Hér er harkalega að farið. Þetta er ekki stjórnsemi, heldur duttl- ungar. Og duty.ungar eru óþol- andi. og skemmfiferðln í Borgarfjörð ÞEIR FUJ me'ðlimir í Hafnar firði, sem ætla að verða með í skemmtiferðinni upp í Borgar fjörð um næstu helgi, eru'beðn ir um að tilkynna þátttöku í skrifstofu ATþýðuflokksfélags- ins í Haínariýrði, í Alþýðuhús inu fyrir föstudagskvöld. Félagar eru einnig beðnir um að herða sölu happdrættismiða SUJ, því nú eru aðeins nokkrir dagar þar til dregið verður. Þá óskar félagið eftir börn- um til að selja happadrætts- miða, og eru þeim greidd há sölulaun. Eru miðarnir afgreidd ir í Alþýðuhúsinu við Strand- götu frá 10—12 og 4-—7, dag- lega.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.