Alþýðublaðið - 08.09.1950, Side 7
Föstudagur 8. september 1950.
ALÞÝÐUBLAÐÍÐ
7
barátlunni
Framh. af 5. 'síðu.
Félag járniðnaðarmanna, Rvík
Félag íslenzkra rafvirkja, Rvík
Féiag bifvélavirkja, Reykjavík
Bakarasveinafél. íslands, Rvík
Félag blikksmiða, Reykjavík
Verkam.fél. Þróttur, Siglufirði
Verkam.fól. Akureyrarkaupst.
Verkakv.fél. Eining, bAkureyri
Bílstjórafélag : Akureyrar
Verkakvennafél. Von, Húsavík
Verkamannafél. Raufarhafnar
Verkam.fél. Bjarmi, Stokkseyri
16. september:
Vmf. Glæsibæjarhr., Glerárþ.
17. september:
Vkf. Snót, Vestmannaeyjum.
24. september:
Verkamannafél, Þór, Selfossi.
25. september.
Verkalýðsfélag Keflavíkur.
1. október:
Iðja, Reykjavík
Iðja, Hafnarfirði
Verkalýðsfélag Skagastrandar
Verkakv.fél. Aldan, Sauðárkr.
Vegna þeirra félaga, sem
ekki höfðu sagt upp fyrr en
það, að samningar voru fyrst
úr gildi 15. sept., ákváðu flest
þeirra, er fyrri voru, að fram-
lengja til þess tíma.
Aðgerðir hefðu því ekki haf-
izt fyrr en um miðjan ínánuð,
en það var að öllu leyti verri
tími en sá, er sambandsstjórn
hafði ætlað.
Sigyr,- f>rátt fyrir
svik korrímúnista.
Þótt kommúnistar sýndu ó-
heilindi og undanbrögð í þess-
um málum, héldu stjórnir
A.S.Í. og B S.R.B. áfram sam-
þykktum kröfum sínum um
leiðréttingu vísitölunnar og
^wgur fékkst í byí efni á
þann hátt, að ríkissíjórnin
lét undan hinum ákveðnu
kröfum, með því áð gera hin
gömlu bráðabirgðalög að
engu með útgáfu nýrra
bráðabirgðajaga, er kváðu
svo á, að við útreikning
vísitölunnar skyldi ekki taka
tillit til húsaleigupappírslag-
anna, en hækkun húsaleigu
samkvæmt hækkaðri húsa-
leiguvísitölu koma inn
í framfærsluvísitöluna á
. þann hátt sem raunveruleik-
inn sýndi samkvæmt rann-
sókn, er kauplagsnefnd hafði
gert í þessu efni.
Me'ð þessu var sigur feng-
inn í dcilu þeirri er varð
• sérstaklega tilefni. til upp-
sagna á samningum.
Það var ekki samið
um, hvað vísitalan
skyldi vera.
KommúnistEir hafa mjög
haldið því á lofti, að sambands-
stjórnin hafi samið um að vísi-
töluuppbót skyldi vera 15% á
kaup, — samið um smánarupp-
bætur, og fleira, er þeir halda
fram í því efni.
Þetta er á engan hátt rétt.
Eins og framan greindar
samþykklir sambandsstjórn-
ar bera með sér, gerði hún
kröfu til þess, að vísitalan
yrði rétt útreiknuð, eins og
lög stóðu til.
Þetta var gert áð áíiti
fulltrúa okkar í kauplags-
ncfnd, þáF sém e’nginn á-
greiningur var í nefndinni
við sí'ðasta útreikning, og var
því burtu falíin, að áliti sam-
bandsstjórnar, meginástæða
þess, að hún hvatti íil upp-
sagnar á samningum, og
sendi því tilmæli til þeirra
félaga, er sagt höfðu upp af
þeim ástæðum, um að fram-
lengja samninga sína ó-
breytta, en með mánaðar
uppsagnarfresti, því sam-
bandssijórninni cr það vel
ljóst og telur nokkurn veg-
inn víst, að vel geti það ver-
ið, að nýja baráttu þurfi að
hefja, og það fyrr en seinna.
Stærsti sigurinn.
Því hefur verið haldið fram
og það með fullum rétti, að
þetta sé einn stærsti sigur, er
samtökin hafa unnið.
Deilan er raunverulega háð
við ríkisvaldið, þótt formsins
vegna verði að lýsa henni yfir
við atvinnurekendur á hverj-
um stað, og með samtakamætt-
inum er ríkisvaldið knúið til
þess að skila því aftur, er það
hafði' ranglega tekið. Ég, sem
unnið hef hjá heildarsamtök-
unum árum saman, samtals um
14 ár, man ekki eftir öðrum
sigri meiri, enda veit ég, að all-
ur bægslagangur kommúnista
nú er eingöngu fram kall&ður
af öfund yfir því, hverju nú-
verandi sambandsstjórn, er þeir
hata, fékk áorkað, ög þá jafn-
framt hræðslu um að hennar
hlutur í kosningunum til sam-
bandsþings verði meiri en þeir
hefðu óskað.
/
Nokkuð fyrir alla.
Áður en ég skil við þetta mál,
vil ég leiða fram eitt veiga-
mikið atriði, er ég játa að réði
nokkru um mína afstöðu.
Mörg af þeim félögum, er
nxpp höfðu sagt, miðuðu upp-
sögn sína um stundarsakir við
það, að leiðrétting vísitölúnnar
fengist.
Ég geri ráð fyrir, að ef ríkis-
stjórnin hefði haldið, aö fjöldi
félag&nna héldi áfram, þrátt
fyrir það að nýr og réttur út-
reikningur vísitölunnar færi
fram, hefði hún haldið við sitt
og tekið slaginn upp að fullu
með atvinnurekendum. Ég ef-
ast ekkert um, að flest af þeim
félögum, er hefðu haldið fast
við uppsögn sína, hefðu staðið
sig í baráttunni og fengið, að
minnsta kosti sum þeirra, eitt-
hvað meiri bætur (þ. e. a. s. ef
svik kommúnista hefðu ekki
verið því verri), en þessari vísi-
tölu nam, en þá hefði líka hinn
mildi fjöldi launþega, sem þar
stóð fyrir utan, engar bætur
fengið, en með þessari lausn fá
allir nokkuð.
Kosningar til sam-
bandsþings.
Ég hef hér í stórum dráttum
rakið að hokkru störf núver-
andi sambandsstjórnar á um-
Liðnu tímabili, hvernig hún
hefur snúizt við hverju vanda-
máli, sem að höndum bar, og
hverju hún hefur fram komið
til aukinna réttinda og bættra
kjara fyrir samtökin og með-
limi þeirra.
Sambandsstjórnin setti sér
strax það rnarkmið að vinna að
Lausn mála á þann hátt, sem
bezt og hagkvæmast væri fyrir
samtökin hverju sinni, og sam-
kvæmt því hefur hún starfað.
Hvernig tekizt hefur. um
stefnu og starf, dæmir sam-
bandsstjórnin að sjálfsögðu
ekki um, heldur er dómsvaldið
í höndum hvers einstaklings í
samtökunum og þeirra allra
sameiginlega. En ég fyrir mitt
leyti kvíði í engu þeim dómi,
er verkalýðsfélögin hljóta að
kveða upp dagana 17. sept. til
11. okt. með kosningu til sam-
bandsþings. Ég hef fullkomna
ástæðu til þess að treysta dóm-
greind .mikils meirihluta verka-
Lýðsins svo, að á því sé engin
hætta, að kommúnistum verði
nokkurn tíma fengin aftur í
hendur yfirráðin í Alþýöusam-
bandi Islands, og því sízt nú,
þegar mönnum er enn í fersku
minni starfsemi þeirra í Al-
þýðusambandinu árin 1944—48
og þá sérstaklega þegar litið er
til svilia þeirra í yfirstandandi
sjómannadeilu og svika þeirra,
er þeir voru byrjaðir á í sam-
bandi við nýafstaðna deilu við
ríkisstjórnina.
Jón Sigurðsson.
Ingibjörg Jénsdéflir
Framhald af 3. síðu.
hjá dótturdóttur sinni að Ær-
Læk í Axarfirði.
Það er von þess, er línur þess
ar ritar að Ingibjörg megi njóta
fagurs ævikölds án storms og
strits. Lifðu heil Ingibjörg.
N. N.
IIANNES A HOIíNlNU.
Framhald af 4. síðu.
keppni karla, ætti Fegrunarfé-
lagið að koma á stað hrossa- og
nautgripasýningu í Tívolí. í
þeirri dómnefnd eiga einungis
að vera karlmenn. Sting ég upp
á að formaður nefndarinnar
verði^ ritstjóri Mánudagsblaðs-
ins og meðdómendur hin flónin,
sem hafa verið með miklar vanga
veltur vfir því að fegurðardrottn
ingin skuli vera gift. Ég efast
ekki um, að þessari glæsilegu
nefnd takist að úrskurða hvaða
lirossi og nauti beri lárviðar-
kransinn. — Og það er víst
ekkert vafamál, að hún sér íil
þess að verðlaunagripurinn
verði óspjallaður.“
Kórea
Framhald af 1. síðu.
unum við Masan. Yið Naktong-
fljótið voru háðir .harðir bar-
dagar í gær, og verður komm-
únistahernum ekkert ágengt
þar, enda er öflugu liði Banda-
ríkjamanna að mæta. Flugfloti
Bandaríkjamanna hefur sig nú
mjög í frammi, þrátt fyrir ó-
hagstæð flugskilyrði, og brezk-
ar flugvélar frá Singapore eru
nú á leið til Suður-Kóreu til
að taka þátt í styrjöldinni þar.
--------------*-----------
EKIÐ VAR um kl. 3 í fyrri-
nótt utan í bifreiðina R-2390,
sem er græn Packardbifreið, á!
móts við húsið nr. 44 við Barma !
hllð, og dælduð vinstri aftur-;
hjólhlíf hennar.
Rannsóknalögreglan biður
bifreiðarstjórann, sem valdur'
er að þessum skemmdum, að
koma við fyrstu hentugleika til
viðtals á skrifstofu hennar og
einnig sjónarvotta, ef nokkrir
eru.
Jarðarför
Helga Helgasonar verzlunarstjóra,
fer fram á morgun, laugardaginn 9. september. Athöfnin hefst
í Dómkirkjunni kl. 11 f. h:
Þeir, sem hafa í huga að senda blóm eða kránsa, erú vin-
samlega beðnir að láta einhverja líknarstofnun njóta þess.
Börn hins látna.
eftir hádegi í dag, föstudaginn 8. september, vegna
jarðarfarar.
Tollsfjóraskrifsiofan.
B
Tilkynnini
Innflutnings- og gjaldeyrisdeild Fjárhagsráðs hef-
ur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á gúmmí-
skóm, framleiddum innanlands.
Heild. söluverð Smásöluv. án
án söluskatts. m. söluskatti. söluskatts.
No. 26—30 kr. 18.84 kr. 19.40 kr. 24.20
No. 31—34 kr. 20.30 kr. 20.90 kr. 26.15
No. 35—39 kr. 22.86 kr. 23.55 kr. 29.15
No. 40—46
kr. 25.29
kr. 26.05 kr. 32.80
Hámarksverð þetta, miðað við ópakkaða skó, gildir
í Reykjavík og Hafnarfirði, en annars staðar á land-
inu má bæta við verðið sannanlegum flutningskostn-
aði.
Séu skórnir seldir pakkaðir, skulu framleiðendur
leita samþykkis verðlagsstjóra fyrir umbúðarverðinu,
er bætist við ofangreint hámarksverð í smásölu, án
álagningar.
Með tilkynningu þessari fellur úr gildi auglýsing
verðlagsstjóra nr. 23, 1950.
Reykjavilí, 7. september 1950.
Verðlagssfjérinn.
Rennibekkur óskast til kaups
lippiýsingar í síma 3311.
Slálur
frá og með deginum í dag og meðan sláturtíð
stendur yfir höfum við slátur til sölu.
Kjötverzlunin Búrfell,
Skjaldborg, sími 1506.
Auglýsið í Alþýðublaðinu!