Alþýðublaðið - 12.09.1950, Side 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Þriðjudagur 12. sept. 1950.
i L í/i ^ xiiUBfí £
Filipus
Bessason
hjreppstjórl:
AÐSENT BRÉF.
Ritstjóri sæll!
Það spaugar aldr-ei við, þegar
í'ólk fær opinberanir, svona allt
í einu og óviðbúið. Venjulegt al
múgafólk, misjafnlega fyrir-
kallað, þolir slíkt alls ekki á
stundum, heldur verður æði
gripið, og getur þá brugðið til
beggja vona um hagnýtan ár-
angur opinberunarinnar, Og sú
getur orðið raunin, að þá heíði
farið betur, ef leyndardómur-
inn hefði ekki orðið mönnum
uppvís.
Ég hef til dæmis fengið að
kenna á einu .slíku opinberun-
aræði að undanförnu. Ekki svo
að skilja, að sjálfum hafi mér
opinberast eitt öðru nýrra; ég
hef orðið mér úti um þessa litlu
þekkingu, sem ég á handbæra,
fiyrir athygli og reynslu og
hæfilega tortry,ggni, og hef, satt
að segja hálfgerða skömm á öll
um skyndivitrunum. En, —
sem sagt, — ég hef fengið að
kenna á opinberunum annarra,
og það í ríkari mæli en mér hef
ur gott þótt.
Frá því, er ég fyrst man eftir
mér, hafa krækiber sprottið í
holtum og hjallabrekkum á jörð
minni, ,,börnum og hröfnum að
leik“, eins og góðskáldið kvað.
Geri ráð fyrir að þau hafi
sprottið þar síðan löngu fyrir
landnámstíð og hafa þau allt til
þessa ekki þótt neinn ódáinsá-
vöxtur, enda engurn orðið að ó-
friði, það ég bezt veit. En nú
hefur skyndilega breyting á orð
ið. Einhver fræðingurinn heii-
ur nefnilega fengið opinberun,
og hana ekki af lakari tegund.
Samkvæmt henni eru hin fornu
ódáinsepli Iðunnar gömlu cnd-
urfundin, og mátti satt að segja
varla seinna vera, þar sem allf
er að drepast úr sukki og svalii.
„Þessu var aldrei um Áipta-
nes spáð“, stendur í kvæðinu.
Engum mun heldur hafa dottið
það í hug fyrir svo sem áratug
síðan, að hin 'einu sönnu ódáins
epli spryttu í holtum og hlíðum
á hans heimajörð í víðum bveið
um. Að vísu dálítið óásjálegri,
bæði hvað stærð og lit snerti,
heldur en þau, sem Iðunn leyfði
Ásum og Æsum að narta í, þsim
til eilífrar æsku, og hafði þeim
aldinum öllu minna aftur farið
en neytendunum. Það var ekki
von, að menn V'ssu þetta. Það
hafði víst enginn minnstu hug-
mynd um það, fyrr en fræðing
nrnir fengu opinberunina. En
þá fékk fólk líka- að vita það!
Og þá fengu berjalandaeig-
cnáunlir" líka að vita að fólk
vissi það! riÞó.tt jgulldð -'lægi í
molum úti um alla nva nnmdi
það ekki hleypa öðru tínsluæði
í borgarfólk, — enda kæmi hið
opinbera- þá víst fljótt til sög-
unnar og helgaði sér bæði sitt og
ananrra. Og svo þykjast borg-
arbúar vist eklti fá svó mikið
Dyrir gull sitt, að því, er mað-
ur heyrir! En fyrir berin nlýtur
það allra meina bót og sælu ein
faldra sennilega í kaupbæti,
þegar þar að kemur, því að
hrekkvíst getur ekki það fólk
verið, sem þannig trúir.
Höfuðstaðarbúar virðast með
öðrum orðum hafa gripizt
krækiberjahamstursæði. Nú er
ííf þeirra og velferð þar und-
ir komið, að þeir komist yfir
sem mest af krækiberjum. Nú
bruna þeir út um sveitir lands-
ins í rútubílum, luxusdrossíum
og öllu, sem með þá getur á-
íram oltið. ístrukjaggar, sem
ekki geta að lyng* lotið, leggj-
ast á meltuna og skríða krafs-
andi urn runna. Luxusfrúr og
i tildurdrósir með lokkað hár,
lakkaðar naglir og málað and-
lit læoást hálfbognar um holt
og hæðir og tína krækiber með
nýsköpunarklóm, sennilega
fengnum inn í landið fyrir
Marshallfé. Hefðarkonur og
heldrimenn klofa og klifra yfir
skurði og margfaldar gadda-
vísgirðingar, með dollur, brúsa,
skjóður og jafnvel hálfkagga í
fanginu. Flest er þetta fólk
reiðubúið að kaupa sig dýru
verði inn á berjalöndin, en séu
þau því samt ekki opin, þá er
gripið til Bessaleyfisins. Ber
verður það að tína. Kraekiberja
tínslan er oroin því trúarleg at-
höfn; sáluhjálparatriði, og það
þolir fúslega meinlæti og
pkrokkskjóður til þess að mega
fullnægja því. Kulda og vos-
búð, bakverk og búkraunir. Það
mætti segja mér, að -einhver
háttsettur nefndarmaðurinn eða
forstjórinn fyndist afvelta og
upp í loft milli þúfna í einhverri
berjabrekkunni í síðustu leit I
haust. Annarra gerir maður ráð
fyrir að yrði saknað.
Það er nú það. Allt getur
komizt í tízku. Allt getur orðið
Frank Yerbi
HEITA
að ofstæki.
krækiberið!
Jafnvel ■trúin á
Virðingarfyllst.
Filipus Bessason.
hreppstjóri.
Auglýsið í
Alþýðublaðinu
11íiSVQ, vilcii} á-iJU sðiÆiajjifdi -géitti
■þeiffl ekfej athygli, þegar þæí
gengu út úr gistihúsinu.: Augu,
hans beindust að öðru einmitt
þá stundina. Hann fylgdist
með ferðum manns nokkurs,
sem gekk á gangstéttinni hand-
fn götunnar, skammt frá gisti-
húsinu. Þetta var risavaxinn
negri, auðsjáanlega mikið ölv-
aður. Hann slagaði, laut höfði
og talaði við sjálfan sig. Ógeðs-
legur og illa drukkinn náungi,
hugsaði Laird; hann lendir í
einhverju klandri áður en langt
um líður. Á sömu andrá kom
hann auga a þær frænkur, Sa-
brínu og frú Duncan. Honum
varð þegar ljóst, að drukkni
negrinn myndi rekast á þær.
Hann tók undir sig stökk, og
hugsun hans var köld og rök-
ræn. Þetta, hugsaði hann, leið—
ir til þess, að allur sá frami,
sem ég hyggst að ná fyrir til-
styrk negranna, rýkur út í veð-
ur og vind. Hann stökk upp á
gangstéttina og tók á rás eftir
drukkna negran'um, og enda
þótt hann hlypi hratt og ört
drægi saman með þeim, sá
hann þegar, að hann hlyti að
verða of seinn til að firra þær
frænkur vandræðum. Fangels-
isvistin í Andersonville sagði
og til sín sem fyrr; hann ætlaði
að kalla til þeirra og aðvara
þær, en kom engu hljóði upp
fyrir mæði. Hann nálgaðist
negrann óðum; styrjaldarþjálf-
un hans olli því, að hann hafði
augun hjá sér og var v:ð öilu
búinn, og því var það, að hann
veitti athygli ungum, íturvöxn-
um og vel klædum negra, blá-
svörtum á'hörund, sem stökk
í sömu svifum yfir götuna og
stefndi á þá.
Breytir engu, hugsaði hann;
ég hef í fullu tré við tvo svert-
ingja. Þótt þeir væru tíu sam-
an. ■— Laird dreip til drukkna
negrans um leið og hann slag-
aði utan í Sabrínu og hratt
áenni á frú Duncan, svo harka-
lega að hin aldurhnigna kona
féll við og skall utan í húsvegg-
ínn. Hann náði taki á öxl hans,
kippti honum að sér og gaf
honum um leið vel úti látið
högg með krepptum hnefa
beirrar handar, sem honum var
Laus. Þykkar varir negrans
sprungu við höggið og blóðið
íossaði af munni hans.
Fífl, hugsaði Laird með sjálf-
um sér. Þú hefur ekkert að
gera í hendurnar á þessu svarta
trölli. Þú verður að grípa til
skammbyssunnar. Hann stakk
hendinni inn undir yfirhöfnina
og grannir fingur hans kreppt-
ust um skammbyssuskeftið.
Negrinn bjóst til árásar,
nálgaðist hann hægum, örugg-
um skrefum og morðfýsnin
skein úr augum hans, — • æðis-
þrungin morðfýsn.
Laird dró.djúpt andann og
beínái'' áiiammbyssúhíáúþín'u
hægt og 'rólega upp á viS og
fram undir yfirhöfninni. Hann
varð gagntekinn kaldri öruggri
ró, þegar hann kreppti fingur-
inn um gikkinn, en spennti
hann samt ekki og fór sér að
engu óðslega. í sömu anará var
sem dimmum skugga br-gði
fyrir; Laird sá unga, íturvaxna
negrann rétta út arminn og slá
drukkna tröllið í andlitið flöt-
um lófa, og um leið kvað við
hár, snöggur smellur, líkt og
hleypt hefði verið af skamm-
byssu.
Hver veit, hugsaði Laird, og
varð nú vonbetri um úrslitin,
nema þessi ungi svertingi veiti
mér þá aðstoð, sem mér dugar.
Hann sleppti takinu á skamm-
byssunni og gekk skrefi nær ‘
þeim blökku. Og nú urðu kon-1
urnar tvær, sem hölluðust upp 1
B& veggnum nær dauða en lífi
af hræðslu, vitni að furðulegri
n.jón.
Svarta tröllið nam skyndi-
lega staðar og blóðugar varir
þess titruðu.
Það lítur helzt út fyrir að
"æflilinn ætli að fara að skæla,
hugsaði Laird. Og það varð
líka. Tárin tóku að streyma af
nvörmum negrans.
„Hvers vegna slærð þú mig,
Inch liðsforingi?“ kjökraði
hann dimmum rómi. „Hvernig
ctendur á því, að þú slærð mig?
Eg hef ekki gert neinufn-mein.
Það var þessi bölvaður hvíti
fantur . . .. “
„Rólegur kunníngi,“ sagði
spengilegi, ungi negrinn. „Þú
ert fullur. Farðu heim og sofðu
úr þér vímuna. Vertu ekki að
flækjast á götunni; þú hefur
ekkert nema vandræðin upp
úr því.“
„Mér er leyfilegt að ganga
um göturnar,“ öskraði drukkni
negrinn, sterkri, dimmri röddu.
„Erum við ekki orðnir frjálsir
menn? Ég er ekki lengur skyld-
ugur til að víkja af gangstétt-
unum fyrir hvítum mönnum.
Ég er ekki skyldugur til að
taka ofan, þegar ég mæti þeim;
ég er ekki lengur skyldugur
til . . . . “
„Komdu þér heim, kunn-
ingi, endurtók negrinn ítur-
vaxni. „Ég segi, að þér sé þa‘ð i
fyrir beztu!“
„Það er nú það,“ svaraði sá
ölvaði. „Fyrirgefðu, Inch liðs-
Coringi. Ég vildi heldur bíða
bana en þola högg þín og vita,
að þú værir mér reiður. Ef ég
á þig að vini, hirði ég ekkert
um hvað aðrir segja við mig
eða hvernig með mig er farið,
— aðeins ef . . . . “
„Ég barði þig vegna þess, að
ég var til neyddur,“ svaraði
ungi negrinn. „Með því einu
gat ég bjargað lífi þínu. Við
erum vinir, jafnt eftir senj áð-
ur. Farðu nu heim áð söfaíu
Laird og konurnar tvær
störðu á þennan unga, glæsi-
lega negra. Það, gæti orðið mér
að gagni að kynnast náungan-
um, hugsaði Laird. Hann er
fæddur foringi, Það sést bezt á
því valdi, sem hann hefur yfir
þessum drukkna hrotta.
Svarta tróllið hélt af stað,
reikult í spori. „Þakka þér fyr-
ir, Inch liðsforingi,“ tuldraði
hann.
Ungi, spengilegi negrinn
rneri sér nú að þeim þremur.
Hann tók ofan hattinn með svo
glæsilegri armhreyfingu, að
kurteisasti lávarður hefði mátt
vera stoltur af. „Ég biðst afsök-
unar,“ mælti hann á hreinni
ensku, og rödd hans var nijúk
og hreimþýð. „Þeir haga sér
eins og krakkar. Þeim lærist
smám saman að kunna fótum
sínum forráð.“
„Þakka þér fyrir, Blakkur
r;æll,“ svaraði Sabrína með
sinni tæru og þróttmiklu rödd.
„Það er gott til þess að vita,
að enn skuli fyrirfinnast þeir
negrar, sem vita hvað til síns
Iriðar heyrir."
Laird sá, að svipur unga
negrans stirðnaði. Fagri, litli
kjáninn þinn, Sabrína, hugsaði
hann. Það er þó auðséð, að
þessi negri er ekki af gamla
Ekólanum. Hann gekk til negr-
ans og lagði hönd sína á öxl
bonum.
„Ég þakka þér hjálpina,“
mælti hann lágt og rólega og
virti fyrir sér blásvart andlit
hans, „Það var síður en svo, að
mig langaði til þess að vinna
náunganum mein. Mér finnst
tími til þess ltominn, að vin-
átta og skilningur takist með
kynþáttum okkar. Ég hefði
gaman af að mega ræða við þig,
ínch liðsforingi. Einhvern tíma
í góðu tómi . . . . “
Inch horfði ,fast á þennan há-
vaxna hvíta mann, virti fyrir
sér holdskarpt andlit hans,
meitlað djúpum dráttum, og
leit í grá, hvöss, en þó góðleg
augu hans.
„Það ætti að reynast auð-
velt,“ svaraði hann. „Hérna er
nafnspjaldið mitt. Heimsæktu
mig, þegar þér bezt hentar.“
Síðah hneigði hann sig kurt-
eislega fyrir konunum í
kveðjuskyni og gekk á brott.
„Slíkt og þvílíkt,“ tautaði
•frú Duncan. „Aldrei hefði ég
trúað því, að slíkur maður væri
til meðal negra.“
„Ég ekki heldur,“ mælti
Laird. Hann leit á Sabrinu.
Brúnu augun hennar voru djúp
og myrk. Hún roðnaði upp í
hársrætur við augnatillit hans.
„Það hygg ég,“ mælti hún,
„að enn séuð þér Suðurríkja-
maður í hjarta yðar, Laird liðs-
hefst í, kvöld á íþróttavellinum.
Spennandi képpni í öllum greinum
með þátttöku Briisselfaranna.
Aðgangur á kr. 2, 5 og 10.
m 1 IP, lyF HsjF 1 P1! ^jf
ft L il St H it 11 I