Alþýðublaðið - 20.09.1950, Qupperneq 7
Mi'ðvikudagur 20. sepí. 1950.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Þéssi mynd sýnir skíðaútbúnað Dakotavélarinnar. Hjóiin ná
niður fyrir skíðin, svo að hún geti lent á flugvelli, en eru
síðan dregin upp. (Ljósm. Jón Tómasson, Keflavík.)
Framhald af 1. síðu.
hún svo lrring á jöklinum
og ætlaði að komast aftur í
för sín eftir iendinguna, áð
ur en hún staðnæmdist til
að taka fólkið. Þetta tókst
þó ekki, því að vélin tók að
síga í snjóinn.
Áhöfnin af Geysi fór þegar
um borð í skíðaflugvélina og
gerðu flugmenn hennar tvær
tilraunir til að hreyfa flugvél-
ina, en tókst ekki. Fóru þeir
þá út úr henni, og munu hafa
reynt að moka frá henni og
| troða braut fyrir hana, en
tókst ekki fyrir myrkur.
Með skíðaflugvélinni voru
i tveir íslendingar, og var Sig-
; urður Jónsson annar þeirra, en
! hinn Aifreð Elíasson.
Ætlunin var, að skíðaílugvél
in færi til Keflavíkur, en áhöfn
Geysis yrði flutt þaðan flug-
ieiðis til Reykjavíkur.
í gærkvöldi var búizt við,
að skíðaflugvélin reyndi þeg-
ar í dögun að hefja sig til
lofts. Mun hu.gur allrar þjóð-
arinnar, og þúsunda u{u heim
Þakka innilega vinarhug og hlý handtök á 60 ára af-
mæli mínu. Liíið heil.
Bjaníi Gíslason
Hafnarfirði.
til að selja merki heilsuhælissjóðs og rit N.L.F.Í. í dag
Góð söiulaun. Afgreiðsla í skrifstofu N.L.F.I., Laugavegi
22, (gengið inn frá Klapparstíg), sími 6371.
Stjórn Náttúrulækningafélags íslands.
hefur á boostólum í sláturtíðinni:
Dilkaslátur
Ærslátur
Dilkaliausa
Ærhausar
Lifur
Hjörtu
Nýru
Vambir
Blóð og Mör '
Samband ísienzkra samvinnufélaga
Sími 7080.
vantar unglinga og fullorðið fólk til að bera út
blaðið viðs yegar um bæinn,
Vesturbænum.
Talið við afgreiðsluna. — Sími 4900.
Aiþyðublaðið
allan, sem fylgzt hafa með þess
ari björgun, vera með flug-
mönnunum á Vatnajökli í dag
í von urn að björgunin megi
takast giftusamlega.
AKUREYRINGAR HALDA
ÍÁI^ÍAM Á'JÖKULINN
m * Wí '% 9
Fjallgöngumennirnir frá Ak
ureyri, sem lögðu af stað frá
Grænavatni í Mývatnssveit
klukkan f jöghr .; í,, fyrrinótt,
voru komnir alla leið að
jökulröndinni í gær. Voru
þeim send boð um að halda á-
fram upp á jökulinn, og var
ætiunin að senda þeim útvarps
senditæki í adg.
Leiðangur Þorsteins Þor-
steinssonar frá Akureyri var í
gærkvöldi komin upp að jökul
rönainni og mun hann vænt-
anlega leggja á jökulinn nú í
morgun.
Miðlunartlllagan
Framhald af 1. síðu.
miðlunartiijögunni, og var sátta
nefndin mjög ákveðin í, að
beita sér fyrir því, og taldi
engan annan samningsgrund-
völl nú hugsanlegan“.
— En hvað þá um hvíldar-
tímann?
,,í miðlunartillögunni er gert
ráð fyrir því“, segir Sigurjón,
„að tvískiptar vaktir eða tóif
stunda hvíld á sólarhring
verði tekin upp á togurunum
á saltfiskveiðum; og er það að
sjálfsögðu ekki nema áfangi á
leiðinni að því marki, sem tog
arasjómenn hafa sett sér: tólf
stunda hvíld á togurunum yf-
irleitt, — en víst er þaí mikils
verður áfangi. Og lítinn efa tpl
ég á því, að sáttanefndin hafi
talið sig hafa alveg fulla vissu
fyrir því, að lengra yrði ekki
komizt við togajaeigendur í
því efni í þetta sinn“.
— En hvernig myndi miðl-
unartillagan í framkvæmd
verka að öðru leyti á kjör tog
arasj ómannanna ?
„Um það má í rauninni
vísa“, svaraði Sigurjón, ,,til
þess samanburðar á kjörum
þeirra samkvæmt miðlunartil
lögunni annars vegar og eldri
samningum hins vegar, sem
gerður hefur verið af sátta-
nefnd og fylgdi tillögu hennar
í Alþýðublaðinu í gær. En sá
samanburður virðist sýna, að
við lélegan afla myndu kiör
togarasjómanna sízt verða betri
en áður samkvæmt kjaraá-
kvæðum miðlunartillögunnar;
en við sæmilegan afla myndu
þau verða mun betri.“
— Hefur stjórn sjómannafé-
lagsins tekið nokkra afstöðu,
jákv'æða eða neikvæða, til miðl
unartillögunnar?
„Nei, það hefur hún ekki
gert,“ svaraði Sigurjón. „Henni
var á félagsfundi í ágústmán-
uði falið að ræða nýja
kj^rasamninga við togaraeig-
sndur, en fór þá ekki fram á
neitt umboð til þess að gera þá,
enda lítur hún svo á, að í slík-
um hagsmunamálum, sem hér
er um að ræða, verði togara-
sjómennirnir sjálfir að taka úr
slitaákvörðun. Stjórn Sjómanna
félagsins vill aðeins brýna það
fyrir þeim, að kynna sér miðl-
unartillöguna vel, hugjeiða
kosti hennar og galla, vega þá
hvern á móti öðrum, og greiða
síðan atkvæði um hana eftir
því, sem vel athugað mál býð-
ur þeim“.
Afi okkar
Torfi Sigurðsson frá Eyrarbakka
andaðist þriðjúdaginn 19.. sep't.' að heimili sínu HafnargötU 74
Keflavík.
Kristbjörg Gísladóttir
Torfi Gísiason.
LOKAAÐVORUN
VARÐANDI SKÝRSLUGJÖF UM GENGISTAP
Á ERLENDUM SKULDUM.
Þeir skattgreiðendur, sem ekki hafa enn sent sundur-
liðun á skuldum sínum erlendis miðað við síðustu ára-
mót og 19. marz 1950, ásamt þeirri greinargerð, sem
krafizt er samkv. ákvæðum laga og reglugerðar um
stóreignaskatt, eru hér með aðvaraðir um að senda
þessar skýrslur nú þegar, ella verðul' hlutaðeigandi ein-
staklingum og félögum synjað um frádrátt á gengis-
•tapinu.
Það skal tekið fram, að við álagningu stóreignaskatts-
ins skal einnig tekið tillit til gengistaps af vöruskuldum
mynduðum frá 1. jan. til 19. marz 1950, sem ógreiddar
eru þann dag, ef sönnur eru færðar á að hlutaðeigandi
vörur séu verðlagðar samkv. eldra sölugengi.
Ennfremur skal það brýnt fyrir öllum aðilum, að til
þess að þeir geti engum rétti tapað í sambandi við
ákvörðun gengistapsins, er nauðsynlegt að þeir gefi
sundurliðun um allar erléndar skuldir sínar við síðustu
áramót, og geri grein fyrir hvernig þær eru til komnar.
Svör þessi séu komin í kaupstöðum til hlutaðeigandi
skattstjóra í síðasta lagi 23. þ. m„ en annars staðar á
landinu skulu svörin send til skattstofunnar í Reykja-
vík eða skattstofunnar á Akureyri í síðasta lagi 30.
sept. næstkomandi.
SKATTSTJÓRINN í REYKJAVÍK.
Orðsending
frá Málarasveinafélagi Reykjavíkur.
Allsherjaratkvæðagreiðsla um kosningu fulltrúa fé-
lagsins á 22. þing Alþýðusambands íslands fer fram
sunnudaginn 24. sept. frá kl. 1—9 e. h. og mánudaginn
25. sept. frá kl. 2—10 e. h. Atkvæðagreiðslan fer fram í
skrifstofu félagsins.
Frestur til að skila uppástungum er til kl. 12 á hádegi
föstudaginn 22. sept. Hverri uppástungu skulu fylgja skrif
íeg meðmæli a. m. k. 7 fullgildra félagsmanna. — Kjósa
Skal einn fulltrúa og annan til vara.
Kjörskrá liggur frammi í skrifstofu félagsins 20., 21
og 22. þ. m. frá kl. 7—9 e. h. og 23. þ. m. frá kl. 2—4 e. h.
Þeir félagsmenn, sem skulda árgjald frá árinu 1949
eða eldri árgjöld, geta komist á kjörskrá gegn því að
greiða skuld sína áður en kosning hefst.
i Kjörstjórnin veitir allar frekari upplýsingar um upp-
ástungur og tilhögun kosningarinnar.
Reykjavík, 20. september 1950.
í kjörstjórn Málarasveinafélags Reykjavíkur:
Þorsteinn Pétursson
Gísli Guðmundsson. Grímur Guðmundsson.