Alþýðublaðið - 01.10.1950, Blaðsíða 8
Gerízt áskrifenduf
Börn og unglingar.
Komið og seljið
Alþýðublaðið.
Allir vilja kaupa
- AlþýSublaSið.
Sunnudagur 1. októbcr 1950
at5 Alþýðublaðinu.
Alþýðublaðið inn á
bvert heimili. Hring-
ið í síma 4900 og 4906.'
í ------------------------------------------------
Hffil fí !@giras]ðmenn —
hváð fá hinsr!
-------------------
iÞað,, sem reiknirsgar Bæiarútgerð-
ar Reykjjavíkur sýna.
------—♦-----------
HVAÐ fá togarahásctarn ir og hváð frá hinir? Þessari
spurningu svara reikningar Bæjarútgerðar Reykjavíkur á
eftirfarandi hátt:
Togarinn „Ingóifur Arnarson“ gekk 308 daga árið
1949 og selcli ársframleiðsiu sína fyrir kr. 3.562,357,54.
Hreinn ágóoi af rekstrinum var kr. 309.516,18, og er sú
upphæð færð íii afskriffa á skipi og áhöldum. Kaup
skipshafnar yfir árið vai kr. 1.277.021,59, þar af til undir-
manna líklega um icr. 700.000,00.
Sérstaka athygli vekja eftirtaldir líðir: Viðhald skips
og vé’ar er kr. 303.000,00. Eí viðhaldið hefur verið fram-
kvæint á Islandi, verður hluíur vélsmiðjanna af þessari
upphæð varla undir kr. 80.000,00; því eins og kunnugt er
máttu þær leggja 40% á efni og vinnu árið 1949.
Fæðisreikningarnir eru kr. 121.000,00. Ef fæðiö hef-
ur verið keypt hérlendis af smásölum, eins og tíðkast
hjá ýmsum útgerðarfyrirtækjum, verðu'r hlutur kaup-
manna að minnsta iiosti kr. 20.000,00.
Fyrir veiðarfæri, olíu og ís voru greiddar kr. 057.000
00; hlutur kaupmanna af þeirri verzlún er varla undir
kr. 170.000,00, þar sem álagning á veiðarfæri og olíu er
36—38%.
Lánsstofnanir og aðrar stofnanir fá í vexti kr. 110
000,00: Reykjavíkurhöfn fær kr. 19.000,00 og vátrygg-
ingarfélögin kr. 124.000,00.
. Samtals er þetta: Til véismiðjanna kr. 80.000, til
matvörukaupmanna kr. 20.000, til olíu-, ís- og veiðar-
færasaia um kr. 170.000, til lánsstofnana um kr. 110.000,
til vátryggingarfélaga um kr, 124.000, til Reykjavíkur-
hafnar um kr. 19.000. Samtals um kr. 523.000,00.
Viðskipti þessara aðila við togarann „Ingólf Arnar-
son“ er mjög lítill liður í starfræka’u þeirra; vegna þess-
ara vxðskipta þurfa þeir ekki að auka hinn fasta rekst-
urskostnað sinn.
Aliir þessir aðiiar sýna góða rekstursafkomu og
greiða mikla skatta. En vesalings „Ingólfur Arnarson“,
sem verður áð dragast á hverju ári með mörg hundruð
þúsund krónur, sem er verzlunargróði forríkra fésýslu-
manna, er gerður upp með 9500 króna tapi á ári, þrátt
fyrir afburða skipstjóra og ágæta framkvæmdastjórn.
Sí’ðan er honum lagt um ófyrisjáanlegan tíma til þess að /
reyna að svelta hásetana til hlýðni, svo að þeir hætti öllu
kvabbi um bætt kjör og styttri vinnutíma.
Mér þykir ekki ólíklegt að Morgunblaðið gæti unn-
fð að því að lækka fyrrnefnd hundruð þúsunda nokkuð,
án þess'hð eiga það á hættu, að skjólstæðingar þess, senx
seljá mat og útgerðarvörur, lækkuðu í tekjum niður
fyrir háseta, eins og sáttanefndin vill greiða þeim. Og
ekki þyrftu þeir af þeim sökum að vera fjarvistum frá
vinum og vandamönnum eins og sjómennirnir.
SÆMUNDUR ÓLAFSSON.
Kennsla í norsku
við háskólann
í\’ ORSKI sendikennariiin við
háskólann, cand. philoi., Hal-
vard Mogeröy, hefur í hyggju
ag halda námskeið í norsku
(nynorsk og bokmál) í háskól-
anum í vetur. Kennsla þessi er
öllum heimil, og eru þeir, sem
hafa í hyggju að njóta bennar,
beðnir að koma til viðtals í II.
kennslustofu háskólans (niðri)
miðvikudaginn 4. október kl.
o e. h. Kennslan er ókeypis.
112 vörubílsíjórar
kusu f gær
112 VÖRUBÍLSTJÓRAR
greiddu atkvæði um fulltrúa-
val á Alþýðusambandsþing í
Vörubílstjórafélaginu Þrótti í
gær; en atkvæðagreiðslan held
ur áfram í dag, — eftir kl. 1
og er lokið í kvöld kl. 9.
Vörubílstjórar!. Herðið sókn
ina í dag og rekið kommúnista
af höndum ykkar. Kjósið A-
jistann, lista lýðræðissinna.
Björgunin úr Geysi;
Ivær bifreiðar úr leiðangrinum óku
upp á brún Vatnajökuls í gær
------♦------
Leiöangursmenn hafa senniiega komizt
upp að flaki flugvélarinnar í gær.
TVÆR EIFREIÐAR LEIÐANGURSINS. sem á að bjarga
vörum úr Geysi, óku upp á Vatnajökul í gærdag. Óku þær
nokkuð inn á jökulinn, en síðan gengu lciðangursmenn á skíð-
um að í- akinu, og höfðu meðferðis sleða til þess að taka vör-
urnar a.
ræðissmnar sigr-
uðu hjá múrurum
Fengu 70 atkvæöi,
kommúnistar 44.
LYÐRÆÐISSINNAR sigr-
uðu með 70 atkvæðum gegn
44, sem kommúnistar fengu,
við fulltrúakjörið á Alþýðu-
sambandsþing í Múrarafélagi
Reykjavíkur í gær og fyrra-
dag. Kosinn var Ólafur Páls-
son, og ta vara Eggert G. Þor-
steinsson.
Kosið var að viðhafðri alls-
herjaratkvæðagreiðslu og var
kjörsókn mjög mikil. Um 90%
allra félagsmanna, eða 116 af
123, tóku þátt í atkvæðagreiðsl
unni.
íslandsklukkan í 30.
sinn annað kvöld
ANNAÐ KVÖLD verður „fs-
Iandsklukkan“ sýnd í þrítug-
asta skipti í þjóðleikhúsinu og
er áhorfendatala að þeim sjón-
leik komin um eða yfir átjáiF
þúsundir, en gera má ráð fyrir,
að þessi sjónleikur verði sýnd-
ur oft enn og við góða aðsókn.
„Gullna liliðið“, hinn frægi
sjónleikur Davíðs Stefánsson-
ar, hefur náð hæstri áhorfenda
tölu sjónleika, sýndra í Reykja
vík, eða því sem næst tuttugu
þúsundum.
Sjónleikurinn „Óvænt heim-
sókn“ hefur nú verið sýr.dur
átta sinnum, og verður sýndur
í aðeins fá skipti enn. Innan
skamms hefjast svo sýningar á
þriðja sjónleiknum, sem þjóð-
leikhúsið tekur til neðferðar a
þessu hausti, en það er gaman-
leikurinn „Pabbi“ eftir banda-
rísku höfundana Howard Lind-
say og Piussel Crouse.
Þegar prófessor Roger Me-
Hugh frá Dublin var á ferð hér
í vor, flutti hann þjóðleikhús-
inu gjöf frá Abbeyleikhúsinu í
Dublin; leikritið „Riders to the
sea“ eftir írska höfundi.nn J
N. Synge, flutt af leikurum
Abbeyleikhússins og tekið upp
á „tape“-þráð. En þar eð.hér
voru ekki íyrir hendi tæki til
endurflutnings, hefur Abbey-
leikhúsið nú sent þjóðleikhús-
ir.u leikinn á hljómplötum. Ria
* Leiðangurinn lagði af stað
úr Reykjavík á mánudaginn
var og kom austur að jökul-
röndinni á þriðjudag. Síðan
hefur hann hafzt við neðan við
jökulinn og varð að færa tjald-
stæðin fjær jöklinum en upp-
haflega var tjaldað, vegna snjó
komu og skafrennings. Frá því
síðastliðinn sunnudag hefur
ekki verið unnt að fljúga yfir
jökulinn vegna dimmviðris og
óveðurs, en í gær var flogið
austur, og var forstjóri Loft-
leiða h.f., Kristján Jóhann
Kristjánsson, með í förinni.
Hann skýrði blaðinu svo frá,
að leiðangursmenn hefðu verið
komnir inn á jökulinn um það
bil miðja vegu milli jökulbrún
arinnar og flaksins, er hann
flaug þarna yfir, og hefðu þeir
verið á skíðum og með sleða
með sér, en tveim bifreiðum
hefði verið ekið upp á jökul-
brúnina og nokkuð inn á jök-
ulinn. Alls voru þrír bílar með
í förinni og var einn þeirar skd
inn eftir neðan við jökulrönd-
ina, þar sem leiðangurinn_hef-
ur haldið til síðustu daga.
Tveir menn urðu eftir hjá
bifreiðunum. sem ekið var upft
á jökulinn, og varpaði flugvél-
in niður til þeirra benzíni og
öðrum varningi í gær.
AIls eru í jökulleiðangrinum
16 menn og munu nokkrir taka
sér bólfestu við flakið meðan
björgun varanna fer frám, en
aðrir vinna að flutningi þeirra
niður af jöklinum. Fíugvélin
hafði í gær samband viö leið-
angursmenn og líður þeim öli-
um vel.
Flakið er ennþá upp úr snjó,
en allmikið hefur skafið að því
frá því að síðast var flogið
austur yfir jökul á sunnudag-
inn var. Þó er ameríska Da-
kotafiugvélin ennþá hér um bil
öll upp úr snjó.
36 af 54 skipa-
1 smlSum kusu í gær
FIJÁ skipasmiðum kusu í
gær 36 af 54 á Alþýðusam-
bandsþing, og er það mikil kjör
sókn. En betur má ef duga skal
og enn er tækifæri í dag til að
greiða atkvæði frá kl. 10 ár-
degis til kl. 6 síðdegis. Enginn
má sitja heim.a. Komið á kjöi'-
stað í dag og kjósið B-listann.
Monney, leikstjóri yi.ð Abbey-
leikhúsið, hefur stjórna'ð upp-
tökunni og leikur sjálf aðal-
hlutverkið.
Þrýsliloftsvélar
laka benzin á íofii
yfir Keflavík
TVÆR amerískar þrýstilofts
orustuflugvélar af Thunder-
jet gerð flugu nýlega yfir At-
lantshaf án þess að lenda, og
tóku þær eldsneyti úr tank-
flugvélum á nokkrum stöðum:
á leiðinni, þar á meðal yfir
KeFavík. Er þetta í fyrstas
sinn, sem svo litlar þrýstiloftsi
flugvélar fljúga viðkomulaust;
alla þessa leið, en annar flug-
maðurinn varð þó að stökkva*.
út. úr vél sinni í fallhiíf yfir
Labrador, þar sem benzínforðil
hans nægði ekki.
Brezk tankflugvél vs.r £
Kefiavík og tóku orustuflug-
vélarnar benzín úr henni í 25
000 feta hæð. Er slöngu rennt
út úr tankvélinni, en hún fast-
ist með sjálfvirku tæki við
vængop á orustuvélunum. er
hinar síðarnefndu fljúga á
slönguna.
Munið berkla-
varnðdaginn
BERKL AV ARN AD AGURINN
er í dag, og verða merki berkla
sjúklinga og blaðið „Reykja-
Iundur“ seld á götum bæjar-
ins og út um allt land. Merkl.
dagsins eru tölusett og. gilda.
sem happdrættismiðar, en
vinningurinn er ferð til og frá
Kaupmannahöfn með Gullfoss
næsta sumar. ,
í kvöld verða samkornur til
ágóða fyrir SÍBS í Breiðfirð-
ingabúð og í Tjarnareafé.
-------------«---------
Kona verður fyrir bii
á Skólavörðustíg
Á FÖSTUDAGINN ók bif-
reið á konu á Skólavörðu-
stígnum og fór bifreiðin yfir
bæði læri konunnar. Var húrx
flutt í Landsspítalann, en
reyncljst vera óbrotin, svö
undarlegt sem það er. Konan
heitir Guðrún Sveinsdóttir til
heimilis að Laugaveg 27, en
bifreiðin, som ók á hana, yar
jeppabifreið, Þ 120. Blfreiðar
stjórinn hefur enn ekki gefið
sig frarn við rannsóknarlög-
regluna, en er beðinn að hafa
samband vio hana serr fyrst
eftir helgina.
Á föstudeginn urð.i einnig
margir biíre;ðaárekstmr í bæn
uin og skemmdust alls 16 bif-
rexóar. Mjög harður árekstur
var milli 'jörubíls og {ýksbíls
á mótum Sogavegar og Háa-
leitisvegar og skemmdúst báð
ir bílarnir mikið. Þá má geta
þess, að þann dag urðu þrfr
árekstrar á Grettisgötunni, sem
er einstefnuakstursgata.
ÍSLENZKUR IÐNAÐUR
nefnist nýtt mánaðarrit, sem
Félag íslenzkra iðnrekenda gef
ur út. Þar eru rædd ýmis hags
munamál iðnrekenda og birtar
eru fregnir úr iðnaðinum.