Alþýðublaðið - 05.10.1950, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 05.10.1950, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 5. október 1950 ALÞÝÐUBLAÐIÐ i RJKISINS tt Jí Ýestur um land til Akureyrar hinn 9. þ. m. Tekið á móti flutningi til áætlunarhafna í dag og á morgun. Farséðlar seldir: árdegis á laugardag. „Esja" austur um land til Siglufjarð- ar hinn 11. þ. m. Tekið á móti flutningi til Fáskrúðsfjarðar, Reyðarfjarðar, Eskifjarðar, Norðfjarðar, Seyðisfjarðar, Þórshafnar, Kópaskers og Húsavíkur á morgun og laug- ardag. Farseðlar seldir á „SkjaldbreiS” til Skagafjarðar- og Eyja- fjarðarhafna hinn 11. þ. m. Tekið á móti flutningi til Sauðárkróks, Hofsóss, Haga- nesvíkur, Ólafsfjarðar, Dalvík ir og Hríseyjar á morgun. Far seðlar seldir á þriðjudag. Tekið á móti flutningi dag- lega til Vestmannaeyja. M.s. „Gullfóss" ier frá Reykjavík laugardag- inn 7. október, kl. 12 á hádegi- til Leith. og Kaupmannahafn- ar. Tollskoðun farangurs og vegabréfaeftirlit byrjar í toll- skýlinu vestast á hafnarbakk anum kl. 10,30 f. h. og skulu allir farþegar vera komnir í tollskýlið eigi síðar en kl. 11 f.h. H.f. Eimskipafélag Islands. ..^FVNDIR^^TiíKYmiMM » Saumaklúbbur I.O.G.T. tekur til starfa í dag kl. 3 i G.T.-húsinu og starfar fram- vegis í vetur á fimmtudögum svo sem verið hefur undanfar- in ár. Þess er vænzt að syst- urnar fjölsæki saumafundina. mánudag. FELAGSLIF Ármenning ar! íþróttaæfingar í kvöld í íþróttahús- inu. Stóri salurinn. Kl. 7—8 1. fl. kvenna Kl. 8—9 2. fl. kvenna Kl. 9—10 Glímuæfing Minni salurinn. Kl. 9—10 Hnefaleikar Munið að mæta strax á fyrstu æfinguna. Skrifstofan er opin kl. 8—10 sími 3356. Handknattleiksflokkur kvenna og karla Áríðandi æfing að Háloga- lan*di í kvöld. Kvenfólk kl. 9—10. Karlar kl. 10—11. Fjölmennið. Stjórn Ármanns. Marshallaðsíoð til Islands nemur nú samtals 20,2 millj. dollara —-------4-------- Innkaupaheimildir í ágúst fyrir traktor- um, jurta- ©g fernisolíum og liveitk —,------+-------- í LOK ÁG'USTMÁNAÐAR nam heildarupphæð sú, er l.sland hafði fengið í framlögum frá efnahagssamvinnustofnun Bandaríkjanna síðan Marshalláætlunin tók til starfa í apríl- mánuði 1948, samtals 16,2 milljónum dollara. Þessi upphæð sundurliðast þannig eftir tegund þeirrar efnahagsaðstoðar, sem í té hef ur verið látin: Framlög án endurgjalds 7,5 milljón dollarar. Lán 4,3 millj. dollarar. Skilorðsbundið fram- lag (gegn útflutningi á ísuðum fiski til Þýzkaland) 3,5 millj. dollara. Framlag, sem ekki hef- ur verið enn ákveðið hvort verða mun lán eða framlag án endurgjalds 0,9 millj. dollarar. Á tímabilinu frá 3. apríl 1948 til 30. júní 1949 voru ís- landi veitt framlög, sem námu alls 8,3 milljónum dollara og sundurliðast þau þannig: Framlág án endurgjalds 2.5 millj. dollarar. Lán 2,3 millj. dollarar. Skilorðsbundið fram- lag 3,5 millj. dollarar. Frá 1. júlí 1949 til 30. júní 1950 var íslandi veitt samtals 7 milljónir dollara og skiptist sjí upphæð þannig: Framlag án endurgjalds 5 milljónir dollara. Lán 2 millj. dollara. Á fjárhagsárinu. sem hófst 1. júlí s. 1. hefur íslandi fram að þessu verið veitt framlög er nema samtals 900,000 dollur- um, þar af 600,000 dollurum fvr ir júlímánuð s. 1. og 300,000 dollurum fvrir ágúst. Ekki er enn ákveðið hvort þessi fram- lög verða veitt án endurgjalds eða sem lán. • ÓBEIN AÐSTOÐ. Til viðbótar við hin beinu framlög. er nú nema samtals 16,2 milljónum dollara, hefur íslandi verið veitt óbeint fram lag frá efnahagssamvinnustofn uninni í gegn um greiðslu- bandalag Evrópulandanna, en ísland gerðist nýlega meðlimur þessa bandalags, og nemur fram lag þetta 4 milljónum dollara. Er það ætlað til aðstoðar við að koma á greiðslujöfnuði á m'dli íslands og annarra meðlima- ríkja greiðslubandalagsins. Þetta framlag var veitt í júlí s. 1. svo sem áður hefur verið getið. INNKAUPAHEIMILDIR. Af heildarupphæð þeirra, sem veitt hefur verið í fram- lögum til íslands og nemur 16,2 milljónum dollara hafði efna- hagssamvinnustofnunin í lok á- gústmánaðar s. 1. samþykkt heimildir fyrir innkaupum á á- kveðnum vörutegundum, sam- kvæmt umsóknum frá íslenzku ríkisstjórninni, er námu sam- tals 15,6 milljónum dollara. í ágústmánuði voru innkaupa heimildir veittar fyrir 252,000 dollurum til kaupa á eftirfar- andi vörum: Víkin^ar. Skemmtifundur verður fyrir 3. og 4. flokk í kvöld kl. 8 stundvíslega x Oda fellowhúsinu uppi. Sýnd verð ur knattspyrnukvikmynd og fleira. Víkingar mætið allir. Stjórnin. Hjólatraktorar til landbún- aðar 10,000 dollarar, Beltistrakt orar til framræslu og vegagerð- ar 19,000 dollai’ar, Jurtaolíur til smjörlíkisgerðar 15,000 doll arai’, Fernisolía til framleiðslu á málningu 8,000 dollarar og Hveiti til brauðgerðar 2000,000 dollarar. Elllheimiltð Framhald ú 5 síðu. saman við viðskiptámálaráðu- neytið um lántöku erlendis til framkvæmdanna og telur ráðu neytið ekki fært að mæla með lántöku í þessu skyni. Eftir að hafa fengið álit ráðu neytisins sér fjárhagsráð sér ekki fært að verða við ósk yð- ar eins og sakir standa.“ Þessari greinargerð er að ljúka, en rétt þykir að birta bréf og skýrslu byggingarfull- tfúans í Reykjavík dags. 8. sept. „Samkvæmt beiðni yðar með bréfi dags. 2. sept. sendi ég yð- ur hér með skýrslu yíir hús þau, sem bygging liefur veri'3 hafin. á á árinu til d.lgs. dató. Skýrsla yfir hús, sem bygg- ing hefur verið hafin á árið 1950: Barðavogur 24 88,33 ferm. Barónsst,—Egils. (heilsuv.st.) 1516.2. Bergstaðastræti 46 (stækkun). Blönduhlíð 28 134,5. Bólstaðarhl. 15 13Cf,59. Bræðra boi’garst. 34 (efri hæð og ris). Bústaðablettur 17 (stækkun) 70,46. Dyngjuvegur 4 128,73. Dyngjuvegur 8 123,7. Efsta- sund 90 59,00. Efstasund 96 96.6. Elkjuvogur 26 121,0. Eskihlíð 31 116,27. Eskihlíð 33 —35 226,33. Faxaskjól 20 101,9. Granaskjól 5 120,0. Grettisgata 94 128,68. Kárastígur 1 (stækk- un). Karlagata 1—3 stækkun. Kleppsvegur 108 stækkun. Kvisthagi 17 129,90. Kvisthagi 23 311,87. Langholtsvegur 132 103,28. Laugarnesv. 83 stækk- un. Nesvegur 17 120,45. Njáls- gata 43 B 22,38. Nökkvavogur 16 92,75. Nökkvavogur 42 94,4. Nökkvavogur 52 120,53. Skipa- sund 92 129,9. Skipholt 5 220,0. Skipholt 7 246,6. Skúlagata 4 1706,15. Stangarholt 26 80,0. Stangarholt 28 80,0. Stangar- holt 30 80,0. Stangarholt 32 80,0. Stangarholt 34 80,0. Stangarholt 36 80,0. Sætún 4 stækkun 54,0. Sætún 6 geymsluskúr 278,5. Sætún 8 497,16. Sörlaskjól 78 85,78. Sörlaskjól 92 113,0. Sörlaskjól 94 115,1. Tryggvag.—Grófin 446.6. ferm. Fyrirhuguð viðbygging fyr- ir gamla fólkið átti að vera rúmlega 200 ferm. Vonandi koma aðrir og betri tímar á þessu landi, svo _ að hægt verði og leyft að byggja yfir gamla fólkið. Gísli Sigurbjörnsson. 28. sept. 1950. Innilega þökk kann ég öllum þeim, sem minntust mín og sýndu mér vinarþel á 80 ára afmælisdegi mín- um. : j Jónas Kristjánsson. Þeir sem hafa flutf búferlum og hafa innan stokksmuni sína brunatryggða hjá oss, eru áminntir um að tilkynna oss bústaðaskiptin. Sjóvátryggingarfélag fslands h.f. Eimskip 3. hæð. Brunadeild Sími 1700. Rannsókn lokið á beinum, er fundust i Heiðmörk. RANNSÓKN HEFUR leitt í Ijós, að beinin, sem fundust í Heiðmörk á dögunum, séu bein Jóns Guðjónssonar frá Stór- olfshvoli, en hann hvarf frá geð veikrahælinu á Kleppi í janú- armánuði 1946. Þegar beinin fundust snemma í síðastliðnum mánuði voru þau fengin í hendur Jóni Steffen- sen, sem gerði á þeim nákvæm ar mælingar og í’annsóknir. Enn fremur gerði rannsóknar- lögreglan nákvæma rannsókn á fataleifunum, sem fundust hjá beinunum, og hafa rannsóknir þessar leitt í ljós, að þetta séu bein Jóns Guðjónssonar. Allsherjanrerkfall kommúnisfa í Vín misíéksf algerlega ALLSHERJARVERKFALL KOMMÚNISTA í Vínarborg í gær misheppnaðist algerlega nema á hernámssvæði Rússa. f hinum borgarhlutanum mættu allir til vinnu, og er 150 komm únistar reyndu að stöðva stræt isvagna voru þeir hraktir hurtu. Um 30 þeirra voru hand teknir. Síðar í gær stofnuðu komm únistar til óeirða í Wiener Neu stadt, borg skammt frá Vín, og tóku pósthúsið *t:ar á sitt váld með ofbeldi. Borgin er á her- námssvæði Rússa. Tunnur að norðan komnar til verstöðv- anna hér syðra. UM SÍÐUSU HELGI kom Selfoss að norðan með tunnu- farm og var tunnunum skipað upp í Keflavík, en síðan var þeim dreift milli verstöðvanna á Suðurnesjum, þannig að nú er tunnuskorturinn. sem yfir- vofandi var, leystur í bili. Hýenur, UKar 09 Sjakalar tfrepa SOmannsá Indlandl HYENLR, ÚLFAR OG SJAKALAR hafa nýléga gert mikinn usla í fylkixxu Lucknoiv í Norður-Indlandi, og hafa þessi dýr drepið samtals 50 manns, aðallega börn, er þau hafa étið lif- andi. Alls munu yfir hundr- að villidýr hafa rú'ðizt inn í hæi héraðsins, og fundust börn sundur tætt af úlfum og hyenum á víðavangi. Lögreglumenn og veiðimenn réðust gegn ófreskjunum og gátu grandað um sex stykkj- um, en ekki komið í veg; fyrir plágu þessa. Gluggasýning Rammagerðarlnnar RAMMAGERÐIN, Hafnar- stræti 17, hefur um þessar mundir gluggasýningu í sýn- ingarglugga Málarans á horni Bankastrætis og Ingólfsstrætis, og eru þar sýndar margar gerð- ir af myndarömmum, og er ski’eyting þeii’ra gerð sam- kvæmt sænskri fyrirmynd og er all frábrugðin þeim ramma- skreytingum, sem hér hafa mest tíðkazt. Forstjóri rammagerðarinnar, Jóhannes Bjarnason, dvaldist í Svíþjóð í sumar og vann þar meða Jannars á rammaverk- stæði og kynntist þá hinni nýju aðferð, sem bæði er fólgin I gerð rammanna og skreytingu. Er þessi nýja skreyting eink- um frábrugðin að því leyti, acS rammarnir eru áferðarfallegri og ekki eins grófir og áður hef- ur tíðkazt, jafnframt því seni önnur efni og litir eru notaðir við skreytinguna. Gluggasýningin við Banka- stræti var opnuð um helgina og stendur yfir þessa viku. í verzlun rammagerðarinnar f Hafnarstræti 17 eru þessir rammar einnig til sýnis og sölu ásamt hinum eldri gerðum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.